Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Gildissvið stjórnsýslulaga
Stefnandi, sem er héraðsdómari, krafðist ógildingar á þremur ákvörðunum stefnda, íslenska ríkisins, er lutu að breyttri útreikningsaðferð launabreytinga samkvæmt 4. mgr. 44. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla og endurkröfu ofgreiddra launa. Dómurinn taldi ákvarðanirnar vera stjórnvaldsákvarðanir samkvæmt 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en ekki hefði verið gætt málsmeðferðarreglna laganna. Stefnanda hefði hvorki verið gert viðvart um að málið væri til meðferðar, sbr. 14. gr. laga nr. 37/1993, né notið andmælaréttar, sbr. 13. gr. sömu laga. Talið var að umræddir annmarkar væru verulegir. Var af þeim sökum fallist á kröfur stefnanda um ógildingu umræddra ákvarðana.