Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Brunabótamat

Landsréttur birt 9. október 2025

607/2024

Miðhraun 4, húsfélag (Fjölnir Ólafsson lögmaður) gegn FF 11 ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður) og FF 11 ehf (Fjölnir Ólafsson lögmaður)

Eigendur fasteignarinnar að Miðhrauni 4 í Garðabæ, F ehf. og H ehf., deildu um skiptingu kostnaðar vegna endurbyggingar hennar í kjölfar eldsvoða 5. apríl 2018. Deildu aðilar um það hvort miða ætti skiptingu kostnaðar sem rekja mátti til endurbyggingar sameignar við hlutfallstölur hvors eignarhluta um sig í eignaskiptayfirlýsingu fasteignarinnar, sem F ehf. taldi eiga við, eða hvort miða ætti við hlutfall hvors um sig í samanlögðu brunabótamati eignarinnar, svo sem H ehf. byggði á. Einnig var um það deilt hvort sýkna bæri húsfélag eignarinnar, M, og H ehf. af tilteknum kröfum F ehf. á grundvelli aðildarskorts, hvort kröfur F ehf. á hendur þeim væru niður fallnar fyrir fyrningu eða tómlæti og hvort H ehf. ætti gagnkröfur til skuldajafnaðar á móti kröfum F ehf. Kröfum um sýknu á grundvelli aðildarskorts, fyrningar og tómlætis var hafnað. Niðurstaða Landsréttar var að miða ætti við hlutfall brunabótamats hvors eignarhluta fyrir sig í heildarbrunabótamati eignarinnar. Voru M og H ehf. sýknaðir af kröfum F ehf., að öðru leyti en því að fallist var á að F ehf. ætti kröfu á hendur H ehf. um greiðslu hlutar hans í kostnaði við lóð, hellulagnir og inntak. Hins vegar var á það fallist að H ehf. ætti hærri gagnkröfur til skuldajafnaðar á móti kröfum F ehf. Voru M og H ehf. því sýknaðir af kröfum F ehf.