Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Brot á allsherjarreglu
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Almari, Erlingssyni, Evu Hauksdóttur, Hauki Hilmarssyni, Jason Thomas Slade og Sögu Ásgeirsdóttur (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
A, E, H, og S ásamt fjórum öðrum mönnum lokuðu veginum að Hellisheiðarvirkjun við mótmælaaðgerðir. Voru þau ákærð fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu um að opna veginn aftur fyrir umferð og hverfa af vettvangi. Var háttsemin talin varða við 19. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og ákvæði í lögreglusamþykkt fyrir Árnessýslu. Með vísan til forsendna héraðsdóms staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hans um sakfellingu ákærðu. Var talið að lögfull sönnun væri fram komin, þrátt fyrir neitun ákærðu, að þeim hafi verið gefin skýr fyrirmæli um að víkja af veginum og láta af aðgerðum að því marki sem þau gengu á rétt annarra til að fara um veginn. Töldust aðgerðir lögreglu því nauðsynlegar í umrætt sinn. Var A, E, H og S gert að greiða hvert um sig 50.000 krónur í sekt til ríkissjóðs auk sakarkostnaðar. Þá var J ákærður fyrir húsbrot með því að hafa við áðurgreindar mótmælaaðgerðir klifrað í heimildarleysi upp í byggingarkrana við virkjunina og hafst þar við í skamma stund. Var brot hans talið varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ágreiningslaust var að J fór ekki inn í stýrihús kranans. Ekki var fallist á með ákæruvaldinu að sú háttsemi að „klifra upp í“ kranann félli undir verknaðarlýsingu ákvæðisins. Þá tóku heldur engin ákvæði í lögreglusamþykkt fyrir Árnessýslu til þessarar háttsemi J. Var hann samkvæmt þessu sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.