Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Ósanngjarnir löggerningar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2024

E-5907/2022

Gunnar Jósefsson (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Andri Árnason lögmaður)

Fallist var á að stefnda bæri að endurgreiða stefnanda hluta þeirra vaxta sem hann hafði greitt af láni samkvæmt skuldabréfi sem hann tók árið 2006 hjá forvera stefnda en samið hafði verið um að vextir lánsins skyldu vera breytilegir. Talið var að stefndi hefði ekki gert fullnægjandi grein fyrir forsendum þess að vöxtum yrði breytt í skilmálum skuldabréfsins sjálfs, samkvæmt 2. mgr. 6. gr. og 9. gr. laga nr. 121/1994 um neytendalán, en af hálfu stefnda kom fram að ekki hefðu fundist gögn um að stefnanda hefðu verið kynntar forsendur lánsins með öðrum hætti, svo sem í lánsumsókn eða greiðsluáætlun við lántökuna. Varð hann af þessum sökum að bera hallann af skorti á sönnun þess að stefnandi hefði engu að síður tekið lánið með umræddum kjörum ef honum hefði verið gerð grein fyrir forsendum breytinganna með nákvæmari hætti. Var því talið að heimild hans til að breyta vöxtunum væri ógild samkvæmt 36. gr. og 36. gr. c í lögum nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Ekki var á hinn bóginn fallist á að horfa til 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu við endurútreikning vaxtanna heldur var miðað við þá vexti sem aðilar sömdu upphaflega um og sú vaxtaprósenta lögð til grundvallar. Þá var ekki fallist á að endurreikna ætti lánin frá upphafi 15 ár aftur í tímann heldur miðað við að stefnanda bæri einungis endurgreiðsla þeirrar fjárhæðar sem nam mismun á greiddum vöxtum og vöxtum samkvæmt upphaflega umsaminni vaxtaprósentu fjögur ár aftur í tímann, en umframgreiðslur fyrir þann tíma væru fyrndar.