Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Ósæmileg meðferð á líki

Hæstiréttur birt 28. apríl 2005

510/2004

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir saksóknari) gegn Grétari Sigurðarsyni, Jónasi Inga Ragnarssyni (Ingi Tryggvason hdl) og Tomasi Malakauskas (Ágúst Sindri Karlsson hdl) (Brynjar Níelsson réttargæslumaður) (Sveinn Andri Sveinsson réttargæslumaður) (Björgvin Jónsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

G, J og T voru sakfelldir fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni, brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki, með því að hafa í ágóðaskyni, staðið að innflutningi á 223,67 grömmum af metamfetamíni hingað til lands. Hafði V flutt efnið til landsins í 61 pakkningu innvortis í líkama sínum, en veikst daginn eftir komu sína vegna stíflu í mjógirni af völdum ­pakkn­inganna. Létu G, J og T farast fyrir að koma V til hjálpar, sem lést þremur dögum síðar. Fluttu þeir lík hans til og sökktu því í sjó. Var refsing hvers þeirra ákveðin fangelsi í 2 ár og 6 mánuði.