Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Ómerking héraðdóms að hluta
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem sóknaraðila var heimiluð húsleit að dvalarstað varnaraðila til haldlagningar muna sem þar kynnu að finnast og tengdust ætluðum sakarefnum. Þá var fallist á kröfu sóknaraðila um heimild til leitar og rannsóknar á rafrænu efnisinnihaldi farsíma og annarra tilgreindra muna sem kynnu að verða haldlagðir og væru í eigu og/eða umráðum varnaraðila. Í úrskurði Landsréttar var rakið að leit sóknaraðila á dvalarstað varnaraðila væri lokið og var málinu vísað frá að því er þær rannsóknarathafnir varðar, sbr. 3. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Á hinn bóginn væri leit í tveimur farsímum og tölvu sem sóknaraðili lagði hald á við húsleitina ólokið. Varnaraðili hafi ekki verið boðaður á dómþing við meðferð málsins í héraði þar sem fjallað var um kröfur sóknaraðila, sbr. 1. mgr. 104. gr. laga nr. 88/2008. Þegar krafa sóknaraðila var lögð fyrir héraðsdóm hafi ekki legið fyrir upplýsingar um hvort lagt yrði hald á einhverja muni eða gögn sem kynnu að finnast við húsleitina. Héraðsdómi hafi verið rétt að hafna kröfu sóknaraðila um heimild til þess að leita í og rannsaka efnisinnihald fjarskiptatækja sem kynnu að finnast við húsleit þar til fyrir lægi hvaða tæki yrðu haldlögð og þá hvort efni væri til að boða varnaraðila á dómþing til þess að taka afstöðu til kröfunnar. Var hinn kærði úrskurður því ómerktur að þessu leyti og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.