Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Óbyggðarnefnd

Hæstiréttur birt 13. júní 2005

217/2005

Þorleifur Hjaltason (Jón Hjaltason hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Þ höfðaði mál á hendur Í þar sem hann krafðist þess í fyrsta lagi að lög nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta yrðu felld úr gildi, í öðru lagi að tilgreindur úrskurður óbyggðanefndar yrði felldur úr gildi, í þriðja lagi að núverandi landamerki jarðarinnar Hóla yrðu staðfest, í fjórða lagi að viðurkennt yrði að hann ætti skaðabótarétt á Í vegna þinglýsingar og aflýsingar óbyggðanefndar á kvöðum á jörðinni Hólum. Var þessum kröfum Þ vísað frá dómi. Þá krafðist hann þess að Í yrði gert að greiða málskostnað hans fyrir óbyggðanefnd. Var Þ talinn hafa lögvarða hagsmuni af því að bera ákvörðun nefndarinnar að þessu leyti undir dóm, auk þess sem ákvæði laga nr. 58/1998 stæðu því ekki í vegi.