Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 711/2021:

Viktoria Ludmilova Nikolova

(sjálf)

gegn

Höldi ehf

(Bjarni Þór Óskarsson lögmaður)

Kærumál. Endurupptaka. Útivist. Stefnubirting.

V kærði úrskurð héraðsdóms þar sem kröfu hennar um endurupptöku máls var hafnað og byggði á því að annmarkar hefðu verið á birtingu stefnu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að efni birtingavottorðsins hefði ekki verið hnekkt og teldist það því rétt samkvæmt 3. mgr. 87. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var hinn kærði úrskurður staðfestur með hliðsjón af þessu en að öðru leyti með vísan til forsendna hans.

Úrskurður Landsréttar

Landsréttardómararnir Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björgvinsson og Ingimundur Einarsson, settur landsréttardómari, kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Sóknaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 18. nóvember 2021. Greinargerð varnaraðila barst réttinum 9. desember sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. nóvember 2021 í málinu nr. I-4089/2021 þar sem kröfu sóknaraðila um endurupptöku máls nr. E-1797/2021 var hafnað. Kæruheimild er í q-lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
  2. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og að endurupptaka máls nr. E-1797/2021 verði heimiluð.
  3. Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt birtingarvottorði stefnuvotts 18. mars 2021 var stefna á hendur sóknaraðila birt fyrir henni á lögheimili hennar. Efni vottorðsins hefur ekki verið hnekkt og telst það því rétt samkvæmt 3. mgr. 87. gr. laga nr. 91/1991. Ekki eru því skilyrði til að endurupptaka málið samkvæmt a-lið 2. mgr. 137. gr. laga nr. 91/1991.

    Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

  2. Rétt þykir að fella kærumálskostnað niður.

Úrskurðarorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Kærumálskostnaður fellur niður.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. nóvember 2021

  1. Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar um endurupptökukröfu, sóknaraðila, 1. nóvember sl., er höfðað með stefnu sem varnaraðili, kveður hafa verið birta 18. mars 2021.

    Sóknaraðili er Viktoria Ludmilova Nikolova, Hagamel 15, Reykjavík. Varnaraðili er Höldur ehf., Tryggvabraut 12, Akureyri.

  2. Í máli nr. E-1797/2021, sem sóknaraðili krefst að verði endurupptekið, gerir stefnandi kröfu um að stefndu, verði gert að greiða stefnanda, skuld að fjárhæð 150.000 krónur ásamt dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af þeirri fjárhæð frá 5. janúar 2021 til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu.
  3. Á vottorði vegna birtingar stefnu í máli þessu segir að birtingarstund sé fimmtudagurinn 18. mars 2021 klukkan 21:04 og birtingarstaður sé að Hagamel 15, Reykjavík, sem sé lögheimili sóknaraðila. Þá segir þar og að birt sé fyrir henni sjálfri. Stefnan sé birt af stefnuvotti sem sett hefur fangamark sitt á vottorðið. Stefnan var árituð um aðfararhæfi 20. apríl 2021.
  4. Með bréfi dagsettu 24. ágúst 2021, sem barst dóminum 26. ágúst sl. og lagt var fram á dómþingi 29. september sl., gerði sóknaraðili þá kröfu að málið yrði endurupptekið með vísan til a-c liða 2. mgr. 137. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Kveðst sóknaraðili við endurupptöku málsins munu krefjast þess aðallega að málinu verði vísað frá héraðsdómi en til vara sýknu auk málskostnaðar.
  5. Í þessum þætti málsins verður leyst úr endurupptökukröfunni og krefst varnaraðili þess að henni verði synjað og honum dæmdur málskostnaður að mati dómsins.
  6. Af hálfu sóknaraðila er endurupptökubeiðnin reist á því að stefnan hafi ekki verið birt fyrir henni eða öðrum sem heimilt hafi verið að taka við stefnu fyrir hennar hönd. Sóknaraðili hafi hvorki ritað undir birtingarvottorðið né sé það áritað um að hún hafi neitað að undirrita það. Hún hafi því ekki fengið veður af málinu fyrr en hún var boðuð til fjárnáms hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 17. ágúst sl., þar sem krafist var fjárnáms til tryggingar skuld samkvæmt hinni árituðu stefnu. Af þeim sökum sé frestur til að krefjast endurupptöku ekki liðinn.
  7. Sóknaraðili hefur lagt fram tryggingu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 137. gr. laga nr. 91/1991.
  8. Varnaraðili byggir á því skilyrði 2. mgr. 137. gr. laga um meðferð einkamála til endurupptöku málsins séu ekki fyrir hendi. Mánaðarfrestur til að óska endurupptöku sé einnig liðinn. Varnaraðili kveður sóknaraðila ekki hafa fært fram sönnun fyrir því að birting hafi ekki tekist eins og birtingarvottorðið beri með sér, en fyrir því beri hún sönnunarbyrði sbr. 3. mgr. 87. gr. laga um meðferð einkamála. Framlagt læknisvottorð feli ekki í sér sönnun í því efni. Þá kveður stefndi engin rök hafa verið færð fyrir því að að fullnægt sé skilyrðum b- eða c-liða 2. mgr. 137. gr. einkamálalaga og því beri að hafna kröfunni. Þá kveður stefndi formskilyrði beiðninnar ekki í samræmi við áskilnað 138. gr. einkamálalaga og beri að vísa henni frá af þeim sökum.

Niðurstaða

  1. Samkvæmt 1. og 2. mgr. 137. gr. laga nr. 91/1991 er heimilt að endurupptaka útivistarmál í héraði að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum. Samkvæmt 1. mgr. 137. gr. getur stefndi beiðst endurupptöku málsins innan þriggja mánaða frá því máli lauk í héraði, enda berist beiðnin dómara innan mánaðar frá því stefnda urðu málsúrslit kunn. Í slíku tilviki er ekki þörf sérstaks rökstuðnings fyrir beiðninni. Séu þrír mánuðir liðnir frá því máli lauk í héraði en innan árs frá því getur stefndi samkvæmt 2. mgr. 137. gr. beiðst endurupptöku ef beiðnin berst dómara innan mánaðar frá því stefnda urðu málsúrslit kunn og stefndi sýnir jafnframt fram á að einhverju þeirra skilyrða sem greinir í stafliðum a-d sé fullnægt.
  2. Óumþrætt er að skilyrði 1. mgr. 137. gr. eml. eru ekki uppfyllt í málinu, þar sem málinu lauk með áritun stefnu 20. apríl sl. en beiðni um endurupptöku barst dóminum 26. ágúst sl. Ber því að líta til þess hvort skilyrðum 2. mgr. 137. gr. sé mætt þannig að heimilt sé að endurupptaka málið. Byggir sóknaraðili á því að skilyrði a- til c-liða 2. mgr. 137. gr. séu fyrir hendi.
  3. Í máli þessu er ágreiningur um hvort stefna hafi verið birt fyrir sóknaraðila og sömuleiðis hvenær sóknaraðila urðu málsúrslit kunn. Sóknaraðili kveður sig fyrst hafa fengið vitneskju um málið og úrslit þess 17. ágúst sl., með boðun sýslumanns til fjárnámsgerðar. Varnaraðili kveður sóknaraðila hafa haft vitnesku um málið frá birtingu stefnu 18. mars sl., en auk þess hafi sóknaraðili verið í sambandi við stefnanda í síma 29. mars 2021. Þá hafi sóknaraðili komið í viðtal ásamt maka 27. apríl sl. og loks hafi sóknaraðili haft samband 17. ágúst sl. og upplýst að hún hygðist fara fram á endurupptöku málsins og óskað eftir að fjárnámsgerð yrði frestað.
  4. Á framlögðu birtingarvottorði staðfestir stefnuvottur með undirritun sinni að hann hafi birt stefnuna fyrir sóknaraðila sjálfri á heimili hennar þann 18. mars sl. Sóknaraðili hefur lagt fram læknisvottorð um óvinnufærni sína þann dag. Að mati dómsins verður ekki fallist á það með sóknaraðila að með framlagningu þess hafi henni tekist sönnun þess að hún hafi ekki getað komið til dyra er stefnuvottinn bar að. Þrátt fyrir að stefnuvottur hafi ekki ritað á vottorðið að sóknaraðili hafi neitað að rita nafn sitt á það til staðfestingar móttöku verður til þess litið að áskilnaður þar um er ekki lögbundinn. Er því að mati dómsins ekki komin fram næg sönnun til þess að birtingarvottorðinu verði hnekkt. Verður endurupptaka málsins því ekki heimiluð með vísan til - a-liðar 2. mgr. 137. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.
  5. Sóknaraðili hefur hvorki fært sérstök rök fyrir því hvers vegna eða hvernig skilyrði b- og c-liða 2. mgr. 137. gr. eigi við í málinu, né hefur hún lagt fram gögn sem renni stoðum þar undir og verður af þeim sökum ekki fallist á það með sóknaraðila að þeim aðstæðum sem þar greinir sé fyrir að fara í málinu. Bergþóra Ingólfsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Beiðni sóknaraðila, Viktoriu Ludmilovu Nokolova, um endurupptöku máls nr. E-1797/2021 er hafnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 3. mgr. 87. gr.1. mgr. 137. gr.2. mgr. 137. gr.3. mgr. 137. gr.138. gr.1. mgr. 143. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.