Héraðsdómur Vesturlands
Dómur 18. apríl 2007.
Mál nr. S-53/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Jóhannesson fulltrúi)
gegn
Jóni Óskari Magnússyni
Lykilorð
Fangelsi. Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Hylming. Líkamsárás. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir líkamsárás, hylmingu og vopnalagabrot. Refsing ákveðin fjögurra mánaða fangelsi, en fullnustu þriggja mánaða frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Hnífar og skotfæri gerð upptæk.
Mál þetta, sem dómtekið var 14. mars sl., höfðaði lögreglustjórinn í Stykkishólmi með ákæru 19. febrúar 2007 á hendur ákærða, Jóni Óskari Magnússyni, kt...., til heimilis að Grundargötu 27, Grundarfirði; „fyrir líkamsárás, hylmingu og vopnalagabrot.
I.
Ákærða er gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 17. desember 2006 slegið Kristófer Eðvarðsson, kt. ..., hnefahögg í andlitið þar sem hann sat við borð á veitingastaðnum Kaffi 59 í Grundarfjarðarbæ og síðan ítrekað rekið hnéð í höfuðið á honum eftir að hann féll í gólfið, með þeim afleiðingum að hann hlaut blóðmar undir hægra auga, bólgu á hægri kinn og nefbrotnaði.
Telst háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Ákærða er gefið að sök að hafa fyrir um þremur árum síðan keypt hálfsjálfvirka Benelli haglabyssu nr. M118290, sem hann framvísaði við húsleit á heimili sínu þann 24. janúar 2007, þrátt fyrir að hann grunaði að byssan væri stolin og að hafa átt hana og notað síðan án skotvopnaleyfis. Byssuna, sem var stolið í innbroti að Eiðistorgi á Seltjarnarnesi þann 12. október 1999, geymdi ákærði uppá fataskáp í svefnherbergi sínu ásamt 237 haglaskotum.
Ákærða er einnig gefið að sök að hafa átt og haft í vörslum sínum tvo ólöglega hnífa, annan með 23 sm blaði og hinn með 14,5 sm blaði.
Telst háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 254. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 12. gr., 2. mgr. 23. gr. og a lið 2. mgr. 30. gr. sbr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Með vísan til 37. gr. vopnalaga er krafist upptöku á báðum haldlögðu hnífunum og 237 haglaskotum.
Kristófer Eðvarðsson gerir bótakröfu á hendur ákærða með vísan til XX. kafla laga nr. 19/1991 og 26. gr. laga nr. 50/1993 að fjárhæð kr. 251.550,-. Krefst hann dráttarvaxta frá 27. febrúar 2007 til greiðsludags sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001 og að vextir leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti í fyrsta sinn 12 mánuðum eftir upphafsdag vaxta.“
I.
Ákærði kom fyrir dóm 14. mars sl. og viðurkenndi brot sín eins og þeim er lýst í ákæru. Játning ákærða er í samræmi við gögn málsins. Brot hans teljast því nægjanlega sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykja vera efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði 16. maí 1997 dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti vegna ölvunaraksturs. Hinn 4. júlí sama ár hlaut hann dóm fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og var refsing ákveðin fangelsi í átján mánuði. Í lok desember 1998 gekkst ákærði undir sektargerð lögreglustjóra vegna fíkniefnabrots. Þá hlaut hann dóm 23. febrúar 2000 vegna brots á 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og umferðarlögum og var refsing ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Ákærði hlaut síðan tvo dóma vegna brota á umferðarlögum í ágúst og september 2000 en í báðum tilfellum var dæmdur hegningarauki vegna dómsins frá 23. febrúar sama ár. Með dómi 30. nóvember 2001 var ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og eignaspjöll. Þá hlaut hann á árinu 2002 í tvígang refsingu vegna umferðarlagabrota.
Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að ákærði hefur ítrekað verið sakfelldur fyrir ofbeldisbrot. Hins vegar þykir mega virða það ákærða til nokkurra málsbóta að hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og þá samþykkti hann framkomna bótakröfu. Samkvæmt þessu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Eftir atvikum og þar sem nokkuð er um liðið síðan ákærði hlaut síðast refsingu þykir með heimild í 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 mega fresta fullnustu þriggja mánaða af refsingu hans og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
III.
Í málinu krefst brotaþoli, Kristófer Eðvarðsson, bóta úr hendi ákærða að fjárhæð 251.550 krónur með vísan til XX. kafla laga nr. 19/1991 og 26. gr. laga nr. 50/1993. Einnig krefst hann dráttarvaxta frá 27. febrúar 2007 til greiðsludags, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001, og að vextir leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti, í fyrsta sinn 12 mánuðum eftir upphafsdag vaxta.
Við þingfestingu málsins samþykkti ákærði bótakröfu brotaþola. Með vísan til samþykkis ákærða verður hann dæmdur til að greiða brotaþola 251.550 krónur ásamt dráttarvöxtum svo sem nánar greinir í dómsorði. Rétt stefnanda til höfuðstólsfærslu dráttarvaxta á 12 mánaða fresti má leiða beint af ákvæðum 12. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og er því óþarft að kveða á um slíka höfuðstólsfærslu í dómsorði.
IV.
Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála skal dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað. Með vísan til framlagðs sakarkostnaðaryfirlits dæmist ákærði því til að greiða 17.700 krónur vegna öflunar áverkavottorða.
Samkvæmt niðurstöðu dómsins og með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæruskjali ber að gera upptæk þau vopn og skotfæri sem í dómsorði greinir.
Dóm þennan kveður upp Benedikt Bogason héraðsdómari en uppkvaðning dómsins hefur dregist vegna starfsanna dómara.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jón Óskar Magnússon, sæti fjögurra mánaða fangelsi en fresta skal fullnustu þriggja mánaða af refsingunni og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 17.700 krónur í sakarkostnað.
Ákærði sæti upptöku á tveimur hnífum og 237 haglaskotum sem lögregla haldlagði við rannsókn málsins.
Ákærði greiði Kristófer Eðvarðssyni 251.550 krónur auk dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af þeirri fjárhæð frá 27. febrúar 2007 til greiðsludags.
Benedikt Bogason