Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-65/2014:

Ákæruvaldið

(Sigríður Svava Sigurgeirsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Magnúsi Haukssyni

I

(Sigurður G. Guðjónsson hrl)

Hegningarauki. Skilorðsbundið fangelsi og sekt.

Skattalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var 14. apríl sl., höfðaði sérstakur saksóknari með ákæru 1. desember 2014 á hendur ákærða; „Magnúsi Haukssyni, kt. [...],[...], fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum, framin í sjálfstæðri atvinnustarfsemi, með því að hafa:

  1. Eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstraráranna 2006 til og með 2011 og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfseminni vegna sömu uppgjörstímabila, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, samtals að fjárhæð kr. 19.560.589, sem sundurliðast sem hér greinir:

    Árið 2006

janúar - febrúar kr. 683.824
mars - apríl kr. 866.739
maí - júní kr. 679.328
júlí - ágúst kr. 289.722
september - október kr. 652.095
nóvember - desember kr. 1.813.982

kr. 4.985.690 Árið 2007

janúar - febrúar kr. 432.444
mars - apríl kr. 240.197
maí - júní kr. 486.965
júlí - ágúst kr. 788.045
september - október kr. 457.552
nóvember - desember kr. 1.055.670
Árið 2008 kr. 3.460.873
janúar - febrúar kr. 771.756
mars - apríl kr. 582.119
maí - júní kr. 190.407
júlí - ágúst kr. 205.698
september - október kr. 429.322
nóvember - desember kr. 648.721
Árið 2009 kr. 2.828.023
janúar - febrúar kr. 1.068.138
mars - apríl kr. 312.127
maí - júní kr. 259.039
júlí - ágúst kr. 240.815
september - október kr. 293.696
nóvember - desember kr. 971.564
Árið 2010 kr. 3.145.379
janúar - febrúar kr. 507.109
mars - apríl kr. 312.152
maí - júní kr. 46.666
júlí - ágúst kr. 60.933
september - október kr. 625.882
nóvember - desember kr. 1.833.192
Árið 2011 kr. 3.385.934
janúar - febrúar kr. 370.718
mars - apríl kr. 85.298
maí - júní kr. 438.314
júlí - ágúst kr. 142.679
september - október kr. 463.011
nóvember - desember kr. 254.670
kr. 1.754.690
Samtals: kr. 19.560.589
  1. Látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og varðveita fylgiskjöl og önnur bókhaldsgögn vegna sjálfstæðrar atvinnustarf[s]emi sinnar frá og með janúar rekstrarárið 2006 til og með desember rekstrarárið 2011.

    Framangreind brot ákærða samkvæmt 1. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005.

    Framangreind brot ákærða samkvæmt 2. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. og 2. töluliður 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

II

Ákærði hefur viðurkennt þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Gerir hann þá kröfu að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa og refsing verði að öllu leyti skilorðsbundin. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi ákærða höfðu tjáð sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Samræmist játning ákærða rannsóknargögnum málsins, en ákæra styðst við lögreglurannsókn sem fram fór á grundvelli bréfs skattrannsóknarstjóra ríkisins til embættis sérstaks saksóknara 7. maí 2014 og rannsóknargagna sem því fylgdu. Hafa með þessu verið færðar viðhlítandi sönnur fyrir sakargiftum samkvæmt ákæru. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða.

III

Ákærði er fæddur árið [...]. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur hann tvívegis með dómum Héraðsdóms Vestfjarða verðið sakfelldur og dæmdur til refsingar vegna brota gegn skattalögum. Ákærði var 30. nóvember 2005 dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, og dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 11.500.000 krónur vegna brota gegn 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 1. mgr. 162. gr. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 19. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og 22. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, 2., 3., og 5. tl. 1. mgr. 37. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald. Brot þau sem ákærði var þá sakfelldur fyrir framdi hann á árinu 2001. Í dóminum var dómur sama héraðsdóms frá 30. september 1998, vegna skattalagabrota, talinn hafa ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar. Þá var ákærði 10. desember 2008 dæmdur í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í þrjú ár og greiðslu sektar að fjárhæð 11.000.000 krónur vegna brota gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, 1. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt, 2. mgr. 109. gr. laga um tekjuskatt, 2. mgr. 22. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. og 2. tl. 1. mgr. 37., sbr. 36. gr. laga um bókhald. Þá var vararefsing vegna sektar ákvörðuð sex mánuðir yrði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. Voru brot ákærða, sem framin voru á árinu 2002, talin vera hegningarauki vegna þeirra brota sem ákærði var sakfelldur fyrir með dómi 30. nóvember 2005.

Ákærði er nú sakfelldur fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskattsskýrslum og innheimtum virðisaukaskatti til ríkissjóðs vegna áranna 2006 til 2011, samtals 19.560.589 krónur og fyrir að láta undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og varðveita bókhaldsgögn vegna atvinnustarfsemi sinnar. Teljast brot ákærða meiri háttar í skilningi 262. gr. almennra hegningarlaga. Brotin framdi ákærði á framangreindu tímabili er hann rak [...]. Eru þau því að hluta til framin áður en dómurinn var kveðinn upp 10. desember 2008 og teljast þau að því leyti vera hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga vegna þeirra brota sem ákærði var sakfelldur fyrir með þeim dómi. Hvað varðar þau brot ákærða sem framin voru eftir uppkvaðningu þess dóms þá voru þau að mestu leyti framin á skilorðstíma dómsins. Þegar rannsókn málsins hófst var skilorðstíma dómsins hins vegar lokið og eru því ekki skilyrði til að taka upp skilorðsþátt dómsins, sbr. 3. mgr. 56. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði byggir á því að við ákvörðun refsingar eigi að líta til þess að þrátt fyrir að hann hafi ekki haldið bókhald og því liggi ekki fyrir gögn um að hann hafi greitt virðisaukaskatt til frádráttar álögðum skatti sé ljóst að um slíka reikninga var að ræða. Því sé tjón ríkissjóðs vegna brota hans ekki í samræmi við þær tölur sem fram koma í ákæru. Þá kveðst ákærði nú hafa komið skattamálum sínum í rétt horf og sé launamaður. Dómurinn hafnar því alfarið að, eins og ákæruefninu er háttað, sé hægt að líta til gagna sem ekki hafa verið lögð fram. Við ákvörðun refsingar ákærða er litið þess að ákærði hefur játað brot sín greiðlega fyrir dómi, um þrjú og hálft ár eru liðin síðan þeim brotum sem ákærði hefur nú sakfelldur fyrir lauk og brotin náðu yfir sex ára tímabil. Með vísan til framangreinds og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði.

Ákærða verður að auki gert að greiða sekt til ríkissjóðs. Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt skal sekt vera ekki lægri en tvöföld skattfjárhæð en getur farið upp í allt að tífalda þá fjárhæð sem undan var dregin eða vanrækt greiðsla á. Verður sektin, í samræmi við það og með vísan til dómafordæma, ákvörðuð 39.000.000 krónur er greiðist til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja. Við ákvörðun vararefsingar vegna fésektar er haft í huga að brot þau sem ákærði hefur nú sakfelldur fyrir eru að hluta til hegningarauki vegna áðurnefnds dóms héraðsdóms frá 10. desember 2008. Verður vararefsing því, með vísan til 1. mgr. 54. gr. almennra hegningarlaga, ákveðin sex mánuðir.

VI

Eftir úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 218. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, ber að dæma ákærða til að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar G. Guðjónssonar hrl., sem er hæfilega ákveðinn 160.000 krónur, og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts, og útlagaðan kostnað skipaðs verjanda ákærða 43.820 krónur.

Dóm þennan kveður upp Sigríður Elsa Kjartansdóttir dómstjóri.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Magnús Hauksson, sæti fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði 39.000.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja, en sæta ella fangelsi í sex mánuði.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar G. Guðjónssonar hrl., 160.000 krónur, og útlagðan kostnað verjandans 43.820 krónur.

Sigríður Elsa Kjartansdóttir

Heimildaskrá