Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-38/2007:

Ákæruvaldið

(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)

gegn

Ágústi Frey Svanbergssyni

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Játningarmál. Skilorð. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður var ákærður fyrir vörslu 11,89 gramma af kókaíni og lítilræðis af hassi. Játaði hann sök og var dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár. Efni og áhöld voru gerð upptæk.

Mál þetta, sem var dómtekið 25. þ.m., höfðaði sýslumaðurinn á Ísafirði 2. mars sl. gegn Ágústi Frey Svanbergssyni, kt. 000000-0000, Tangagötu 31a, Ísafirði, nú með dvalarstað að Eyjaseli 5, Stokkseyri, „ fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 30. desember 2005 haft í vörslum sínum 11,89 grömm af kókaíni og 2 grömm af hassi, sem lögregla fann og lagði hald á við leit í bifreið ákærða RZ-165.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að gerð verði upptæk 2 grömm af hassi og 11,98 (svo!) grömm af kókaíni, sem lagt var hald á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. reglugerðar nr. 233, 2001. Þá er þess jafnframt krafist með vísan til 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001, að gerð verði upptæk áhöld til fíkniefnaneyslu sem fundust við húsleit að Tangagötu 31a, Ísafirði.“

Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er sök hans nægilega sönnuð. Hefur ákærði brotið gegn tilgreindum refsiákvæðum í ákærunni. Dómur verður lagður á málið eftir reglum 125. gr. laga nr. 19/1991.

Ákærði hefur þrívegis á árunum 2003 til 2006 sætt sektum fyrir fíkniefnalagabrot. Hann kveðst nú stunda nám og vinnu og hafa hætt að nota fíkniefni. Þegar litið er til þess að ákærði hafði nokkuð af sterku fíkniefni í fórum sínum og einnig til sakaferils hans verður að gera honum þyngri refsingu en sekt. Á hinn bóginn verður litið til greiðlegrar játningar hans hér fyrir dómi og þess að hann kveðst hafa breytt hegðun sinni til hins betra. Refsing hans ákveðst fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið eins og greinir í dómsorði.

Gera ber upptæk efni og muni eins og krafist er.

Sakarkostnað leiddi ekki af rannsókn málsins. Ákærði verður dæmdur til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl., sem ákveðst 62.250 krónur, virðisaukaskattur meðtalinn.

Dóminn kveður upp Erlingur Sigtryggsson dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærði, Ágúst Freyr Svanbergsson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptæk eru tvö grömm af hassi, 11,89 grömm af kókaíni og áhöld til neyslu fíkniefna.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl., 62.250 krónur.

Erlingur Sigtryggsson