Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-40/2006:

Ákæruvaldið

(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)

gegn

X

(Tryggvi Guðmundsson hdl)

Eignaspjöll. Frávísun frá héraðsdómi. Gripdeild.

Máli var vísað frá dómi þar sem ákært var fyrir eignaspjöll, en sakarefni þótti varða gripdeild.

Það er höfðað 25. ágúst sl. af sýslumanninum á Ísafirði gegn X [.....] fyrir eignaspjöll, með því að hafa einhvern tíma í desember 2003, sem ábyrgðarmaður áramótabrennu á Hauganesi í Skutulsfirði, í heimildarleysi látið færa nánar tilgreindan bát af geymslusvæði við Ísafjarðarhöfn á Hauganes, þar sem hann var notaður sem efniviður í brennuna og brenndur 31. desember 2003.  Er þetta talið varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Eins og hér er rakið, er ákærða gefið að sök að hafa látið taka tilgreindan bát í heimildarleysi og nota hann í bálköst.  Myndi taka bátsins í heimildarleysi og tileinkun hans í þágu áramótabrennunnar varða við 245. gr. almennra hegningarlaga, að því gefnu að allir efnisþættir í verknaðarlýsingu þess ákvæðis teldust sannaðir.  Þykir ekki nægilega tryggt að hugsanlegum vörnum ákærða verði ekki áfátt af þessum sökum, sbr. 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991, þar sem honum er gefið að sök í ákæru að hafa unnið til refsingar með því að brenna bátinn, miðað við heimfærslu háttsemi hans til 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga.  Verður málinu af þessari ástæðu vísað sjálfkrafa frá dómi.

Úrskurðinn kveður upp Erlingur Sigtryggsson, dómstjóri.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá dómi.

Erlingur Sigtryggsson