Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 1. nóvember 2021.
Mál nr. S-371/2021:
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
(Þórdís Ólöf Viðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Kristjáni Má Guðnasyni
(sjálfur)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Hegningarauki. Ítrekun. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var fundinn sekur um margítrekaðan akstur sviptur ökurétti og var honum gert að sæta fangelsi í fimmtán mánuði.
Dómur
Mál þetta, sem þingfest var 23. september sl. og dómtekið fimmtudaginn 28. október sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 25. ágúst sl., á hendur Kristjáni Má Guðnasyni, […] fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að morgni mánudagsins 3. maí 2021, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti ævilangt um Hlíðarveg í Rangárþingi eystra. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019, sbr. 1. mgr. 95. gr. sömu laga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá var mál S-409/2021 höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 21. september sl., á hendur ákærða, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, að morgni þriðjudagsins 31. ágúst 2021, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti ævilangt vestur Vallarbraut við SS-völlinn í Rangárþingi eystra. Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77, 2019, sbr. 1. mgr. 95. gr. sömu laga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þann 7. október sl., var mál S-409/2021 sameinað máli þessu. Ákærði kom fyrir dóminn þann 28. október sl., og lýsti yfir að hann óskaði ekki eftir skipun verjanda. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæruskjölum. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjala. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæruskjölum og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði margoft áður sætt refsingu vegna aksturs sviptur ökurétti, síðast með dómi Landsréttar uppkveðnum þann 15. október sl., þar sem ákærða var gert að sæta fangelsi í fimmtán mánuði. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir eru framin fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms og verður ákærða því nú dæmdur hegningarauki, með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í fimmtán mánuði. Með vísan til dómvenju sem og að virtum sakaferli ákærða þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Kristján Már Guðnason, sæti fangelsi í fimmtán mánuði.
Sólveig Ingadóttir.