Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-7/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Níels Agnari Magnússyni

X

svofelldur

d ó m u r :

(sjálfur)

Vopnalagabrot. Vörslur. Ávana- og fíkniefni. Þjófnaður.

Sakfellt fyrir brot gegn vopnalögum, vörslur fíkniefna og þjófnað úr kirkju. Tveggja mánaða fangelsi dæmt.

Mál þetta, sem þingfest var þann 20. febrúar sl. og dómtekið sama dag vegna þáttar ákærða Níelsar Agnars Magnússonar, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 15. janúar 2008, á hendur Níels Agnari Magnússyni, kt. 000000- 0000, Heiðarholti 20f, Reykjanesbæ, til dvalar að Borgarheiði 15v, Hveragerði, og X, kt. 000000-0000, Klapparstíg 6, Reykjanesbæ,

I.

„gegn ákærða Níels fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa skömmu fyrir miðnætti 12. apríl 2007 haft í vörslum sínum 4 töflur af ecstacy (MDMA), 1,96 gr af maríhúana og heimatilbúið hnúajárn, en fíkniefnin og hnúajárnið fann lögregla við leit á ákærða eftir að hafa stöðvað akstur bifreiðarinnar NI-546 á Ránargötu í Keflavík, en ákærði var farþegi í bifreiðinni umrætt sinn.

Teljast brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum og c. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16, 1998.

II.

gegn ákærða X fyrir nytjastuld með því að hafa að kvöldi mánudagsins 23. apríl 2007 tekið bifreiðina YI-582 ófrjálsri hendi þaðan sem hún stóð við Fitjabraut í Njarðvík og hagnýta sér hana til aksturs, allt þar til lögregla stöðvaði akstur bifreiðarinnar í sandnámu í landi Hrauns í Ölfusi, að morgni þriðjudagsins 24. apríl 2007.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

III.

gegn ákærða X fyrir þjófnað með því að hafa að morgni þriðjudagsins 24. apríl 2007 stolið gluggum og hurðum úr gámi við hús Einingaverksmiðju EGS í Njarðvík.

Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

IV.

gegn ákærða Níels Agnari fyrir þjófnað með því að hafa að morgni þriðjudagsins 24. apríl 2007 stolið sálmabók og biblíu úr Krýsuvíkurkirkju í Krýsuvík.

Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

V.

gegn ákærða X fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að morgni þriðjudagsins 24. apríl 2007 ekið bifreiðinni YI-582 austur Krísuvíkurveg, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns, metamfetamíns, tetrahýdrókannabínóls og kókaíns, og fyrir að hafa síðan eftir að lögregla mætti bifreið ákærða í Selvogi, Sveitarfélaginu Ölfusi, ítrekað hundsað stöðvunarmerki lögreglu með gefin voru bæði með hljóð- og ljósmerkjum, heldur aka áfram alls 27.1 km austur Krýsuvíkurveg, suður Þrengslaveg, inná Þorlákshafnarveg, suður afleggjara að Hrauni í Ölfusi, þaðan þvert yfir Eyrarbakkaveg, suður vegslóða að sandnámu í landi Hrauns, þar sem ákærði stöðvaði loks akstur bifreiðarinnar og var hlaupinn uppi af lögreglu.

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 5. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga og 19. gr. sbr. 41. gr. lögreglulaga nr. 90 ,1996.

VI.

Gegn ákærða X fyrir neðangreind umferðarlagabrot, framin í eftirför lögreglu, er frá greinir í ákærulið V. (tímasetningar vísa til upptöku úr eye witnes búnaði lögreglu) a. með því að hafa um kl. 09:59:17 ekið of hratt miðað við aðstæður og óvarlega, austur Krísuvíkurveg, yfir blindhæð skammt vestan við Hlíðardalsskóla í Ölfusi.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. e. lið 2. mgr. 36. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. b. með því að hafa um kl. 10:02:12 ekið viðstöðulaust af Krísuvíkurvegi inná Þrengslaveg í Ölfusi, of hratt miðað við aðstæður, gegn stöðvunarskyldu og án þess að nota stefnuljós.

Telst brot ákærða varða við 2. mgr. 25. gr., 2. mgr. 31. gr. og 1. mgr., sbr. e. lið 2. mgr. 36. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. c. með því að hafa um kl. 10:02:21 ekið á öfugum vegarhelmingi og öfugu megin við umferðareyju, eftir að hafa skyndilega beygt til vinstri inná Þorlákshafnarveg í átt að Hveragerði, án þess að nota stefnuljós..

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. og 3. mgr. 14. gr. auk 2. mgr. 31. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. d. með því að hafa um kl. 10:02:26 aftur ekið yfir á öfugan vegarhelming og yfir óbrotna aksturslínu, skammt vestan við afleggjarann að Hrauni í Ölfusi.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 5. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. e. með því að hafa um kl. 10:02:41 beygt af Þorlákshafnarvegi, inná afleggjara að Hrauni í Ölfusi, án þess að nota stefnuljós.

Telst brot ákærða varða við 2. mgr. 31. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. f. með því að hafa um kl. 10:07:07 ekið of hratt miðað við aðstæður og óvarlega viðstöðulaust af Hraunsvegi, þvert yfir Eyrarbakkaveg, án þess að virða biðskyldu á gatnamótunum.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. c. lið 2. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 5. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.

VI.

gegn ákærða X fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að kvöldi mánudagsins 25. júní 2007 ekið bifreiðinni RU-263 um Norðurlandsveg í Langadal, Austur-Húnavatnssýslu, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns og tetrahýdrókannabínóls.

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

VII.

gegn ákærða X fyrir umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 7. júlí 2007 ekið bifreiðinni RU-263, sviptur ökurétti um Vogaveg í Vogum í átt að gatnamótum Reykjanesbrautar.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og að ákærða Níels verði með dómi gert að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 11569) og hnúajárni, sbr. ákærulið I., sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16, 1998, einnig er þess krafist að ákærða X verði gert að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 44, 1993, lög nr. 57, 1997, lög nr. 23, 1998, lög nr. 132, 2003, lög nr. 84, 2004 og lög nr. 66, 2006, frá 24. apríl 2007 að telja.

Þess er einnig krafist að ákærði X fái punkta skv. 7. gr., sbr. viðauka, reglugerðar nr. 929, 2006 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna ofangreindra brota og hann dæmdur til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 2. mgr. 101. gr. umferðarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 57/1997 og 8. gr., sbr. 10. gr., reglugerðar nr. 929, 2006 vegna uppsafnaðra punkta, frá sama tímapunkti og að ofan greinir.“

Ákærði, Níels, kom fyrir dóminn og játaði brot sín greiðlega. Samþykkti hann einnig upptöku á fíkniefnum og hnúajárni eins og greinir í ákæru. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Ákærði X neitaði sök varðandi ákærulið III, V og VII. Var þáttur ákærða X skilinn frá máli þessu.

Farið var með mál ákærða Níelsar samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða, sem óskaði ekki eftir verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málavexti vísast til ákæruskjals.

Samkvæmt sakavottorði ákærða sem liggur frammi í málinu hefur ákærða Níels margoft verið gerð refsing, meðal annars fyrir nauðung, umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, þjófnað og skjalafals. Ákærði var dæmdur í júní 2003 til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 10. mars 2005 var ákærði dæmdur í fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 22. apríl 2005 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þann 12. júní 2006 gekkst ákærði Níels undir sátt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og þann 16. mars 2007 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var dómurinn frá 22. apríl 2005 dæmdur upp með dómi 16. mars 2007. Ákærði hefur nú verið sakfelldur í fimmta sinn fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni frá árinu 2003. Við ákvörðun refsingar nú ber einnig að líta til þess að um margítrekað brot ákærða er að ræða eins og að ofan greinir auk þess að ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir þjófnað í fjórða sinn frá árinu 2003. Þá ber að líta til skýlausrar játningar ákærða fyrir dómi. Er háttsemi ákærða réttilega færð til refsiákvæða.

Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Ekki þykja skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna.

Upptæk skulu gerð 1,96 grömm af maríhúana, fjórar töflur af ecstacy (MDMA) og hnúajárn.

Enginn sakarkostnaður hlaust af máli þessu.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Níels Agnar Magnússon, sæti fangelsi í tvo mánuði.

Upptæk eru gerð 1,96 grömm af maríhúana, fjórar töflur af ecstacy (MDMA) og hnúajárn.

Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 155. gr.244. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 60/1980 2. gr.
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 5. gr.1. mgr. 14. gr.3. mgr. 14. gr.2. mgr. 25. gr.2. mgr. 31. gr.2. mgr. 36. gr.2. mgr. 45. gr. a1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.101. gr.102. gr.
Lög nr. 19/1991 Lög um meðferð opinberra mála 125. gr.
Lög nr. 44/1993 Lög um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987.
Lög nr. 57/1997 Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, o.fl. (innheimta sekta og punktakerfi vegna umferðarlagabrota). 4. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 2. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 23/1998
Lög nr. 132/2003
Lög nr. 84/2004
Lög nr. 66/2006 5. gr.19. gr.41. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 101. gr.