Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 5. júní 2008.
Mál nr. S-201/2008:
Ákæruvaldið
(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Andra Þór Magnússyni
svofelldur
d ó m u r :
(sjálfur)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Vörslur. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Ákært fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslur fíkniefna. Ákærði játaði brot sín greiðlega. Dæmdur til greiðslu sektar, sviptur ökurétti í tólf mánuði og fíkniefni gerð upptæk auk þess að vera gert að greiða sakarkostnað.
Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið samdægurs, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 14. apríl 2008 á hendur Andra Þór Magnússyni, kt. 000000-0000, Selvogsbraut 35, Þorlákshöfn, „fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot með því að hafa, skömmu fyrir hádegi sunnudaginn 2. mars 2008, ekið bifreiðinni NS-460 austur Heiðmörk í Hveragerði, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrakýdrókannbínóls og fyrir að hafa umrætt sinn haft í vörslu sinni 0,41 gr af tóbaksblönduðu kannabisefni er ákærði henti frá sér áður en lögergla hafði afskipti af honum.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66,2006 sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar, samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44, 1993, lög nr. 57, 1997, lög nr. 23, 1998, lög nr. 132, 2003 og lög nr. 84, 2004 og lög nr. 66,2006 og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 13377), samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði kom fyrir dóminn og játaði brot sitt greiðlega. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með brotum þessum unnið sér til refsingar.
Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða, sem óskaði ekki eftir skipuðum verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Um málavexti vísast til ákæruskjals.
Sakaferill ákærða hefur ekki áhrif við ákvörðun refsingar nú utan að ákærði var dæmdur þann 17. nóvember 2006 fyrri brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og gert að greiða 60.000 krónur í sekt til ríkissjóðs. Í matsgerð frá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði dagsett 16. janúar 2008 kemur meðal annars fram að í blóði ákærða hafi mælst tetrahýdrókannabínól 55 ng/ml. Tetrahýdrókannabínól er í flokki ávana- og fíkniefna, sem óheimil eru á íslensku forráðasvæði. Ákærði hefur því verið óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega þegar blóð- og þvagsýni voru tekin.
Er refsing ákærða nú ákveðin 180.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæta ella fangelsi í fórtán daga. Þá skal ákærði sviptur ökurétti eins og í dómsorði segir. Í samræmi við 1. mgr. 165. gr. ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar sem er samkvæmt yfirliti 104.631 króna. Loks skal ákærði sæta upptöku á fíkniefnun eins og segir í dómsorði.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Andri Þór Magnússon, greiði 180.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í fjórtán daga.
Ákærði er sviptur ökurétti í tólf mánuði frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði allan sakarkostnað að fjárhæð 104.631 krónur.
Ákærði sæti upptöku á 0,41 grammi af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Ástríður Grímsdóttir.