Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 12. febrúar 2025.
Mál nr. S-7869/2024:
Héraðssaksóknari
(Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Elíasi Shamsudin,
(Leifur Runólfsson lögmaður)
Jónasi Shamsudin og
(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Samúel Jóa Björgvinssyni
(Jón Egilsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Upptaka.
Útdráttur
Ákærðu sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og voru tveir þeirra dæmdir í fangelsi í 2 ár og 6 mánuði en einn í í 3 ár og sex mánuði.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 22. janúar 2025, er höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 20. desember 2024, á hendur: „Elíasi Shamsudin, kt. […], […], Reykjavík, Jónasi Shamsudin, kt. […], […], Mosfellsbæ, og Samúel Jóa Björgvinssyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:
I.
Á hendur ákærðu öllum fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, í félagi, haft um nokkurt skeið fram til miðvikudagsins 2. október 2024 í vörslum sínum, 2.943,38 grömm af MDMA kristölum og 1.781 MDMA töflu, sem voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, og ákærðu geymdu í skrifstofuhúsnæði að […] í Kópavogi. Að kvöldi miðvikudagsins 2. október 2024 komu ákærðu saman í ofangreint húsnæði í því augnamiði að sækja efnin, en lögregla hafði þann 23. september 2024 skipt MDMA kristölunum út fyrir gerviefni. Ákærðu Elías og Jónas sóttu efnin þar sem þau voru falin og bar ákærði Samúel Jói efnin út úr húsnæðinu og setti þau inn í bifreið ákærða Elíasar, sem ók bifreiðinni að […] í Reykjavík, þar sem hann og ákærði Samúel Jói voru handteknir með efnin meðferðis. Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Á hendur ákærða Samúel Jóa fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 2. október 2024 haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, 153,29 grömm af kókaíni, 5,10 grömm af MDMA, 223,58 grömm af metamfetamíni í kristalsformi, 22 MDMA töflur og 788 töflur sem innihéldu fíknilyfið brómazólam, sem lögreglumenn fundu við leit á dvalarstað hans að […] í Reykjavík, Telst þetta varða við 2. gr. og 3. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
III.
Á hendur ákærða Jónasi fyrir fíkniefnalaga- og vopnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 2. október 2024 haft í vörslum sínum 4,60 grömm af kókaíni, tvö stunguvopn og tvö höggvopn (hnúajárn og felukylfu) sem lögreglumenn fundu við leit á heimili hans að […] í Mosfellsbæ.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og b. og c. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er krafist upptöku á framangreindum fíkniefnum og fíknilyfjum skv. 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Með vísan til 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er krafist upptöku á þremur Rolex armbandsúrum (munanr. […], […] og […]), tveimur armböndum úr gulli, tveimur hálsmenum úr gulli, tveimur keðjum úr gulli, tveimur hringjum úr gulli (munanr. […]) tveimur peningum úr gulli, [og] fjórum stöngum úr gulli (munanr. […]) sem fundust við leit lögreglu á heimili ákærða Jónasar og tveimur Rolex armbandsúrum (munanr. […] og […]) sem lögregla fann við líkamsleit á ákærðu Samúel Jóa og Elíasi. Einnig með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 er krafist upptöku á framangreindum vopnum (munanr. […], […], […] og […]).“
- Þann 19. nóvember 2024 gaf lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu út ákæru á hendur ákærða Samúel og var meðferð málanna sameinuð, sbr. 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði er þar ákærður:
I.
„fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 14. september 2023, ekið bifreiðinni […] með 119 km hraða á klukkustund um Reykjanesbraut við Grindavíkurveg í Reykjanesbæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, en leyfður hámarkshraði á veginum var 90 km á klukkustund.
M: 008-2023-[…]
Telst háttsemi þessi varða við 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr., umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 14. apríl 2024, ekið bifreiðinni […] með 118 km hraða á klukkustund um Kringlumýrarbraut í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, en leyfður hámarkshraði á veginum var 80 km á klukkustund.
M: 007-2024-[…]
Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 4., mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
III.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 16. júní 2024, ekið bifreiðinni […] með 183 km hraða á klukkustund um Vesturlandsveg við Borgarfjarðarbrú í Borgarbyggð, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, en leyfður hámarkshraði á veginum var 90 km á klukkustund.
M: 313-2024-[…]
Telst háttsemi þessi varða við 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr., umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 frá 16. júní 2024 er ákærði var bráðabirgðasviptur ökurétti skv. 102. gr. sömu laga.“
I
Við aðalmeðferð málsins var af hálfu ákæruvaldsins fallið frá kröfu um upptöku á þremur Rolex-armbandsúrum (munanr. […], […] og […]), tveimur armböndum úr gulli, tveimur hálsmenum úr gulli, tveimur keðjum úr gulli, tveimur hringjum úr gulli (munanr. […]), tveimur peningum úr gulli og fjórum stöngum úr gulli (munanr. […]) sem fundust við leit lögreglu á heimili ákærða Jónasar og tveimur Rolex-armbandsúrum (munanr. […] og […]) sem lögregla fann við líkamsleit á ákærðu Samúel og Elíasi.
III
- Ákærði Elías krefst þess aðallega að hann verði sýknaður en til vara að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa.
- Ákærði Jónas krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af I. kafla ákæru en til vara að honum verið dæmd vægasta refsing er lög leyfa bæði vegna I. og III. kafla ákæru.
- Ákærði Samúel Jói krefst þess að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa og að honum verði ekki gerð frekari svipting ökuréttar.
- Ákærðu krefjast þess allir að gæsluvarðhald sem þeir hafa sætt frá 3. október 2024 komi til frádráttar dæmdri refsingu. Þá krefjast verjendur ákærðu hæfilegra málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
- Dómari tók við meðferð málsins þann 2. janúar sl. og hafði fram að þeim tíma engin afskipti haft af því.
IV
Málsatvik
- Samkvæmt málsgögnum hófst rannsókn málsins þegar lögreglu barst nafnlaus ábending um að fíkniefni væri að finna í skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að […] í Kópavogi. Er aðstæðum lýst svo í skýrslu lögreglu að þegar komið er upp stigann á 2. hæð er þar á hægri hönd skrifstofurými sem var yfirgefið. Í því rými eru tvær skrifstofur við suðurhlið hússins og er umrætt rými þar á vinstri hönd. Rýmið sem var í eigu […] og hafði staðið autt um tíma þegar atvik gerðust. Ákærðu Elías og Jónas voru með á leigu annað rými á hæðinni undir skrifstofu. Í yfirgefna skrifstofurýminu fann lögregla fíkniefni í gulum Bónuspoka ofan við loftplötu í millilofti. Var um að ræða þrjár pakkningar, tvær voru teipaðar með svörtu límbandi og ein með glæru límbandi. Ein pakkningin var opnuð á vettvangi og forprófuð og gaf jákvæða svörun sem MDMA. Efnin voru fjarlægð og flutt til tæknideildar þar sem þau voru forprófuð á ný og staðfest að um MDMA væri að ræða. Þá var efnið vigtað og reyndist ein pakkningin vera 987,67 g að þyngd, önnur 962,87 g og sú þriðja 992,84 g, eða alls 2.943,38 g. Lögregla kom fyrir gerviefnum í stað fíkniefnanna og með úrskurði héraðsdóms var fengin heimild til að koma fyrir hljóð- og myndbandsupptökubúnaði í rýminu og til að koma fyrir eftirfarar- og upptökubúnaði í pakkanum með gerviefnunum. Liggur fyrir upptaka í hljóði og mynd sem m.a. var tekin upp í gegnum upptökubúnaðinn, bæði utandyra og í því rými þar sem gerviefnin voru geymd.
- Í upplýsingaskýrslu lögreglu um eftirlit með rýminu 2. október 2024 og endurriti af samtali ákærðu meðan þeir voru í rýminu kemur fram að ákærðu komu að húsnæðinu kl. 18:11, gengu inn í húsnæðið kl. 18:13 og inn í rýmið þar sem efnin voru falin kl. 19:18. Elías gekk beint inn í tóma rýmið á 2. hæð og beint inn í rýmið þar sem lögregla fann fíkniefnin. Hann sneri sér við er hann gekk inn í rýmið og sagði komdu hérna og Jónas og Samúel fylgdu honum inn í rýmið. Jónas spurði hvort það vantaði stól og sótti síðan stól og setti á gólfið fyrir neðan efnin. Ákærði Elías fór síðan upp á stólinn og lyfti þar upp loftplötunni en fann ekki efnin strax. Það kom fát á Elías sem færði stólinn og lyfti upp fleiri loftplötum. Jónas segir þá þetta er ekki fyndið og Elías svaraði með sömu setningu. Elías hætti að lyfta loftplötum, setti hendur meðfram síðum og horfði á meðákærðu og Jónas sagði þá er búið að taka þetta? Elías hélt áfram að leita og fann pokann stuttu seinna, rétti Jónasi pokann og sagði þessi ferð skiptir bara víst máli. Jónas brosti á meðan hann hélt á pokanum og ætlaði að setja hann ofan í annan poka sem Samúel var með en þá sagði Elías þetta eru þrjú sko og Samúel svaraði get ég tekið eitt úr þessu? Þá sagði Elías: Getur þú það, tekið þrjú? Samúel tók við pakkanum og skoðaði hann og setti hann á hillu. Elías eða Jónas sagði þá þarft þú ekki bara einn? og Samúel svaraði ég þarf bara eitt gramm og Jónas svarar eitt gramm og sagði Samúel þá nei fimm eða sex grömm eða eitthvað.
- Þá kemur fram í skýrslunni að í kjölfarið hafi Samúel sagt þetta hérna er til dæmis mjög furðulegt. Ertu ekki að sjá litinn á þessu? Hann opnaði síðan eina pakkninguna og Jónas sótti hníf, sem var í hillu, til að aðstoða hann. Annað hvort Elías eða Jónas sagði þá að hann hefði teipað þetta eins og hálfviti og Samúel svaraði: Teipaðir þú þetta? Því svaraði annað hvort Elías eða Jónas játandi og Samúel sagði í kjölfarið þá þarf ég ekkert að opna þetta. Er þetta allt alveg eins? Sjáðu hvað þessi er fallegur. Því síðastnefnda svaraði Elías eða Jónas með orðunum þetta er allt svona hjá mér. Skömmu síðar sagði Samúel var ég ekki búinn að sýna ykkur mynd af þessu, hvernig þetta leit út hjá mér? Aska, svart svart. Elías eða Jónas svaraði þá þetta er samt alveg eins og Samúel svaraði þetta er ekki svart svart, þetta er ekki aska. Elías eða Jónas sagði síðan taktu þetta og Samúel sagði eftir að þeir höfðu ítrekað þetta þið eruð alveg ruglaðir. Þá sagði Samúel: Já, ég fer bara yfir þetta heima bara, ég er alveg ruglaður. Elías eða Jónas sagði þá: Ætlaru að taka öll þrjú, ertu ruglaður? Á upptökunni heyrðist Samúel þá segja: Ég tek öll þrjú en ég kem með þetta ef þetta er eitthvað rugl, bara þannig við getum farið yfir það.
- Einnig kemur fram í skýrslunni að ákærðu yfirgáfu rýmið kl. 19:24 og gengu í framhaldi af því út úr því. Hélt ákærði Samúel þá á pokanum með pakkningunum og sagði hann þá m.a.: Mér líður eins og þetta hafi verið tveir þrír pokar af mismunandi efnum. Skömmu síðar heyrist Elías eða Jónas segja: Hentu þessu öllu ofan í einn poka og svo … Þá sagði Elías eða Jónas skömmu síðar: Hvenær ætlaru að taka mynd af þessu, taka mynd af þessu og senda beint á strákana og segja … Samúel svaraði þá: Það verður nóg að gera hjá mér í kvöld. Klukkan 19:26 gengu ákærðu út úr húsnæðinu að […]. Samúel fór inn í bifreiðina […] ásamt Elíasi, setti pakkann fyrir aftan ökumannssætið í bifreiðinni og settist í framsætið farþegamegin. Jónas fór inn í bifreiðina […]. Meðal málsgagna eru ljósmyndir úr upptökunum sem sýna ákærðu sækja efnið, ásamt skýringum.
- Lögregla fylgdi eftir bifreiðinni […] í […] þar sem Elías stöðvaði hana og hann og Samúel voru handteknir. Var Samúel þá að fara út úr bifreiðinni með pokann sem innihélt gerviefnin og MDMA-töflurnar. Fyrir liggur ódagsett skýrsla lögreglu með myndum sem teknar voru við handtökuna. Jónas var handtekinn skömmu síðar við heimili sitt. Við skoðun á höndum ákærðu við handtöku reyndist Elías vera með fjólubláan lit á hægra þumli og lófa og Samúel á báðum höndum.
- Á myndbandinu má sjá Elías koma úr ökumannssæti Audi-bifreiðar, […] þegar þeir komu að […], en Jónas úr framsæti farþegamegin. Af upptökunni verður ráðið að Elías var klæddur í dökkbláa Nike-hettupeysu og svartar buxur merktar […] og var með tommustokk í buxnavasa en Jónas var í svartri hettupeysu með rennilás að framan og stórt bleikt merki […] á bakinu og minna eins merki vinstra megin að framan. Þá var hann í svörtum buxum sem virðast vera eins og þær sem Elías var í. Þá sést að Samúel horfði vel í kringum sig utandyra áður en hann hélt inn í húsnæðið. Ekki er að sjá að hann sé með eitthvað innan undir peysunni eða í buxnastrengnum. Þegar ákærðu gengu inn í rýmið þar sem lögregla fann fíkniefnin var Samúel með svartan poka og er sýnilega eitthvað í pokanum. Þá má sjá að Jónas lyfti upp báðum höndum til að taka á móti Bónuspokanum frá Elíasi þegar hann tók hann niður af loftinu og er ekki að sjá að þá hafi verið bundið fyrir pokann. Kl. 19:21:14 ætlaði Jónas að setja gerviefnin ofan í svarta pokann á meðan Samúel hélt honum opnum. Síðar á myndbandinu, kl. 19:21:26, má sjá að Samúel setti svarta pokann á hillu í rýminu. Klukkan 19:23:38 sést að Elías tekur svarta pokann úr hillunni, og virðist þá enn vera eitthvað í honum, og heldur honum opnum á meðan Samúel setur Bónuspokann með gerviefnunum ofan í svarta pokann. Verður af myndbandinu ráðið að ákærðu hafi verið um fimm mínútur inni í rýminu.
- Lögregla framkvæmdi húsleit á nokkrum stöðum vegna rannsóknar málsins. Í skrifstofurými sem Elías og Jónas leigðu að […] fundust og voru haldlagðir eftirtaldir munir: rafmynta kubbur, Rolex-úr, Garambit-hnífur í slíðri, tvær grammavogir og handskrifað A4-blað þar sem m.a. stóð 3 kg af kók, 1 kg af ís, 4.075 af Emm í pakkningum (4 kg) og 5 pokar MDMA 10.000 töflur. Við leit á heimili Samúels fannst m.a. töluvert magn fíkniefna sem nánar eru greind í II. kafla ákærunnar frá 20. desember sl. Á heimili Jónasar fundust m.a. þau fíkniefni og vopn er greinir í III. kafla framangreindrar ákæru, auk umbúða sem taldar eru vera undan kókaíni, fatnaður sem Jónas var í þegar hann fór í […] fyrr um kvöldið og þeir munir sem taldir voru upp í upptökukröfu á hendur Jónasi. Farið var með framangreindar umbúðir í tæknideild lögreglu og gáfu efnisleifar jákvæða niðurstöðu sem kókaín. Þá voru umbúðirnar rannsakaðar með tilliti til þess að 4 kg af kókaíni hafi verið í umbúðunum. Á heimili Elíasar fannst handskrifað A4-blað með ýmsum upplýsingum, aðallega fjárhæðum.
- Fyrir liggja ljósmyndir af efninu sem fannst í […] sem reyndist vera MDMA-kristallar. Myndirnar voru teknar þegar efnið var tekið til skoðunar í tæknideild en því var síðan skipt út fyrir gerviefni. Þá liggur fyrir efnaskýrsla tæknideildar þar sem fram kemur að efnið var haldlagt 23. september 2024 og staðfest að tegund og magn efnisins væri í samræmi við það sem í ákæru greinir. Þrjú sýni af efnunum voru send Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði til styrkleikamælinga. Í framlagðri matsgerð rannsóknastofunnar, dags. 21. október 2024, segir að efnissýni nr. 1 hafi verið brúnleitur köggull 4,454 g að þyngd. Með gasgreiningu á súlu, massagreiningu, vökvagreiningu á súlu og ýmsum efnaprófum fannst að sýnið innihélt MDMA. Efnaprófin bentu til þess að MDMA væri að mestu í formi MDMA-klóríðs. Styrkur MDMA í sýninu var 81%, sem samsvarar 96% af MDMA-klóríði. Sýni nr. 2 reyndist vera 5,315 g á þyngd og var styrkur MDMA í sýninu 80% sem samsvarar 95% af MDMA-klóríði. Þá reyndist sýni nr. 3 vera 4,090 g á þyngd og var styrkur MDMA í sýninu einnig 80% sem samsvarar 95% af MDMA- klóríði.
- Einnig liggur fyrir matsgerð rannsóknastofunnar frá 2. desember 2024. Samkvæmt henni óskaði lögregla eftir útreikningi á því hversu mikið magn efnisins í neyslustyrkleika megi framleiða úr 2.943,38 g af því efni sem sýnin voru úr samkvæmt framangreindri matsgerð, dags. 21. október 2024. Þá segir í matsgerðinni:
Sögulega eru flest MDMA sýni sem koma til rannsóknar á töfluformi. Líta má svo á að ein tafla sé einn skammtur. Á tímabilinu 1.1.2015 til dagsins í dag bárust Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði til rannsóknar 57 sýni af MDMA töflum, sem innihéldu á bilinu 35–187 mg af MDMA. Meðalgildi var 101 mg og verður það notað í útreikningunum hér á eftir.
Ofangreint sýni samsvarar því 2943,38x0,80/0,101=23.313 töflum sem innihalda 101 mg af MDMA. Við framleiðslu á töflum er óhjákvæmilegt að eitthvað fari til spillis. Hve mikið er háð tækni og þjálfun þeirra, sem verkið vinna.
- Fyrir liggja ljósmyndir af þeim MDMA-töflum sem haldlagðar voru og efnaskýrsla tæknideildar vegna greiningar á 1.781 töflu er haldlögð var þann 2. október 2024. Þar kemur fram að þær hefðu fundust á gólfi í farþegarými í bifreið og að um hafi verið að ræða MDMA-töflur. Er um að ræða 1.407 fjólubláar töflur með Mercedes-merki, samtals 665 g, bláar þríhyrningslaga töflur, alls 231, samtals 97,4 g, og 143 bláar töflur með Mercedes-merki, alls 67,08 g. Þrjú sýni af efnunum, en í hverju þeirra voru fimm töflur, voru send Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði til greiningar og styrkleikamælinga. Í framlagðri matsgerð rannsóknastofunnar, dags. 21. október 2024, segir að í efnissýni nr. 1 hafi verið fimm fjólubláar töflur. Á annarri hlið þeirra var merki Mercedes Benz ásamt áletruninni MERCEDES og áletrunin AMG á hinni. Meðalþungi þeirra var 0,476 g og mesta þvermál þeirra var um 12,9 mm. Í efnissýni 2 voru fimm bláar töflur. Töflurnar voru fimmhyrndar með merki Punisher á annarri hlið og deiliskoru á hinni. Meðalþungi þeirra var 0,422 g og mesta þvermál þeirra var um 14,4 mm. Í efnissýni 3 voru fimm bláar töflur. Á annarri hlið þeirra var merki Mercedes Benz ásamt áletruninni MERCEDES og áletrunin AMG á hinni. Meðalþungi þeirra var 0,476 g og mesta þvermál þeirra var um 12,9 mm. Með gasgreiningu á súlu, massagreiningu, vökvagreiningu á súlu og efnaprófum fannst að töflurnar innihéldu MDMA. Efnaprófin bentu til þess að MDMA væri að mestu í formi MDMA-klóríðs. Í hverri töflu samkvæmt efnissýni 1 voru 118 mg af MDMA (samsvarar 140 mg af MDMA-klóríði), í hverri töflu í efnissýni 2 voru 103 mg af MDMA (samsvarar 123 mg af MDMA-klóríði) og í hverri töflu í efnissýni 3 voru 114 mg af MDMA (samsvarar 136 mg af MDMA-klóríði).
IV
- Ákærði Elías gaf skýrslu vegna rannsóknar málsins 3. október 2024. Kvaðst hann ekkert vita um málið og einungis hafa verið að skutla vini sínum heim. Hann hefði verið með vini sínum í […] sem hafi ætlað að hjálpa honum að búa til crypto wallet.
- Þá gaf ákærði skýrslu 7. október 2024. Sagði hann þá að vinur sinn, ákærði Samúel, ætti fíkniefnin sem hefðu fundist í […] og hefði hann verið að skutla honum umrætt sinn. Hann hefði sótt Samúel um fimmleytið og fram að þeim tíma sem þeir voru handteknir hefðu þeir verið í […] að setja upp crypto-aðgang. Sagði hann nokkra aðra aðila hafa aðgang að rýminu þar sem fíkniefnin hefðu fundist, m.a. byggingastjóra, annan verktaka og fasteignasala, en einungis hann og ákærði Jónas hefðu aðgang að skrifstofu þeirra. Kvaðst hann ekki vita hvort Samúel væri með aðgang að […]. Hann hefði fyrst orðið var við að Samúel væri með fíkniefni þegar þeir gengu út úr […]. Hann hefði ekki séð að Samúel væri með fíkniefnin þegar hann fór þangað inn. Sjálfur hefði hann ekki tekið fíkniefnin úr pokanum, skoðað þau eða rætt um þau. Var ákærða þá kynnt að starfsmenn tæknideildar hefðu skoðað hendur hans eftir að hann var handtekinn og hefði hann þá sagt að á höndum hans væri blek úr blekpenna sem hefði sprungið. Kvaðst ákærði ekki hafa vitað að það væri eitthvað blátt á höndum sínum.
- Skýrsla var tekin af ákærða á ný 4. nóvember 2024. Staðfesti hann þá fyrri framburð og kvaðst ekkert vita um fíkniefnin eða hver ætti þau. Bornar voru undir ákærða ljósmyndir sem teknar voru í […] sem liggja fyrir í framlagðri ljósmyndaskýrslu og kaus hann að tjá sig ekki um þær. Þá kvaðst hann ekki kannast við handskrifað blað sem fannst við leit á skrifstofu. Kvaðst hann ekki hafa haft hugmynd um hvað þeir hefðu verið að taka niður af loftinu og kvaðst hann ekki hafa vitað af bögglinum eða hafa hugmynd um hvaðan efnið kom en það hefði verið í eigu Samúels. Ákærði sagði að blár litur á höndum hans þegar hann var handtekinn hefði verið eftir kúlupenna en ekki af pakkningunum.
- Ákærði Jónas gaf einnig skýrslu vegna málsins 3. október 2024 og neitaði þá að tjá sig um sakarefnið samkvæmt I. kafla ákæru.
- Skýrsla var tekin af ákærða á ný 7. október 2024. Neitaði ákærði þá einnig að tjá sig um sakarefnið en sagði sig og Elías vera með skrifstofu nr. […] í […] og að einungis þeir hefðu aðgang að henni.
- Þá gaf ákærði skýrslu 4. nóvember 2024. Kvaðst hann ekki hafa orðið var við að Samúel væri með fíkniefni á sér þegar þeir voru í […] daginn sem þeir voru handteknir. Kvaðst hann ekkert vita um fíkniefnin eða hvar þau voru geymd og kvaðst neita sök. Voru ákærða sýndar myndir sem teknar voru í […] og kvaðst hann þekkja sig á þeim, ekki vita hvað væri skrifað á handskrifað blað sem fannst á heimili hans og ekkert vita um handskrifað blað sem honum var sýnt og kynnt að fundist hefði við leit á skrifstofu hans. Þá voru ákærða sýndar myndir sem unnar voru upp úr myndbandinu sem tekið var í […] daginn sem þeir voru handteknir og kvaðst hann ekki geta útskýrt hvað var að gerast þar og kvaðst ekki sjá nein fíkniefni á myndunum. Var ákærða bent á poka sem Samúel var með og ákærði og Elías höfðu tekið niður úr loftinu og honum sagt að innihald pokans hefði verið það efni sem fannst í bifreiðinni sem ákærðu Elías og Samúel voru handteknir í. Einnig var honum kynnt að efnunum hafði þá verið skipt út fyrir gerviefni og fjólublátt efni sett á pakkann sem litaði svo hendur þeirra. Kvaðst ákærði ekki hafa verið blár á höndunum, ekki hafa vitað hvað væri í pakkanum, ekki hafa sett hann þarna upp eða vitað af honum þarna. Spurður hvers vegna hann hefði verið að taka pokann niður sagði hann að spyrja yrði Elías að því.
- Ákærði Samúel gaf skýrslu 3. október 2024 og tjáði hann sig ekki að öðru leyti en því að hann kvaðst ekki eiga fíkniefnin.
- Ákærði gaf skýrslu á ný 7. október 2024 og neitaði hann að tjá sig um sakarefnið.
- Þá var tekin skýrsla af ákærða 4. nóvember 2024 og neitaði hann þá einnig að tjá sig um sakarefnið.
- Að ósk ákærða var tekin skýrsla af honum 20. nóvember 2024. Ákærði viðurkenndi þá að eiga þau fíkniefni sem fundust í […]. Hann hefði verið undir álagi og stressaður og beðið meðákærðu að geyma þetta og fela. Kvaðst ákærði hafa vitað af tómu rými í og beðið þá um að geyma þetta þar. Viti hann ekki til þess að meðákærðu hafi vitað hvað hann væri að láta þá hafa. Kvaðst hann hafa verið að nýta sér góðmennsku þeirra til að fá þá til að geyma efnið. Ákærði kvaðst, 4–5 vikum áður en þeir voru handteknir, hafa hringt í Elías í gegnum Signal. Hann hefði komið með efnið í Bónuspoka sem var í bakpoka, um 3 kg af MDMA og tæpar 2.000 E-töflur. Hann hefði einungis látið þá fá Bónuspokann með efnunum en tekið bakpokann til baka. Geti hann ekki sýnt fram á nein samskipti á milli þeirra í tengslum við þetta en kvaðst halda að hann hafi látið þá hafa efnið á […] þar sem þeir voru með hundana sína.
- Ákærði sagði að blár taupoki sem sjáist á upptökunum og hann virðist halda á þegar þeir ganga inn á skrifstofuna væri pokinn sem hann hefði látið Bónuspokann ofan í. Sagði ákærði að þeir hefðu sótt MDMA-töflurnar og MDMA-efnið upp á loftið. Hann hefði vitað að þetta væri auð skrifstofa og beðið meðákærðu að fara með þetta þangað og geyma fyrir ofan loftið. Kvaðst hann ekki hafa sagt þeim hvaða efni þetta væri. Hann geti ekki sagt hvar hann hafi fengið efnin en hann hefði fengið þau upp á krít og skuldi þau nú en vilji ekki segja hve mikið. Aðspurður kvaðst hann ekki muna eftir því að annar meðákærðu hefði afhent honum hníf til að opna pakkningarnar þegar búið var að taka efnið niður af loftinu. Kvaðst hann ekki muna eftir að hafa talað um að þetta væri skrítið á litinn þegar hann opnaði pakkann en kvaðst eiga það til að tala of mikið. Ákærði sagði að hann hefði gengið frá efnunum áður en þau voru sett upp á loftið. Borið var undir ákærða að á upptökunni heyrist Elías segja: Ég teipaði þetta eins og hálfviti.. Ákærði hafi þá svarað: Teipaðir þú þetta? Því hafi Elías svarað játandi. Kvaðst ákærði ekki vita af hverju Elías sagðist hafa teipað efnið. Meðákærðu hefðu verið að geyma þetta fyrir hann og hefðu sett efnið þangað upp fyrir hann og viti hann ekki til þess að þeir hafi vitað hvaða efni þetta væri.
- Borið var undir ákærða að á upptökunni heyrist hann spyrja meðákærðu af hverju efnin litu svona út og kvaðst ákærði þá hafa verið að reyna að skoða þetta eitthvað. Honum hafi fundist þetta vera eitthvað skrítið og því hafi hann ákveðið að taka öll efnin. Kvaðst hann hafa ætlað að selja efnin til að komast út úr skuld en vildi ekki segja hve mikið hann skuldaði. Hann kvaðst hafa verið tekinn með efnin og vildi bara viðurkenna það. Borið var undir ákærða að á hljóðupptöku heyrist hann segja: Ég fer yfir þetta seinna. Og síðan: Það verður nóg að gera hjá mér í kvöld. Kvaðst ákærði með þessu hafa meint að hann ætlaði að selja efnin.
V
Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi
- Ákærði Elías sagði hvað varðar I. kafla ákærunnar frá 20. desember sl. að hann hefði farið 2. október og tekið niður poka úr loftinu og afhent bróður sínum, ákærða Jónasi, sem afhenti ákærða Samúel pokann. Samúel hefði komið til hans í ágúst og beðið hann um að aðstoða sig við að geyma poka sem hann hafi gert en Samúel hefði ekki sérstaklega beðið hann um að fela þetta. Hann hefði ekki kannað innihald pokans og ekki haft vitneskju um hvað væri í honum. Samúel hefði ekki útskýrt það fyrir honum, einungis spurt hvort hann gæti geymt þetta fyrir sig og sagt svo er best að spyrja ekki neinna spurninga og kvaðst hann hafa sagt ekkert mál og ekki spurt frekar. Kvaðst hann ekki muna hvar þeir hefðu hist en það gæti hafa verið á […]. Hefði hann spurt Samúel hvar hann ætti að geyma þetta og Samúel þá sagt að hann gæti mögulega geymt þetta á skrifstofunni hjá sér. Hann hefði þá sagt við Samúel að hann vildi það ekki þar sem hann taldi að Samúel þyrfti að nálgast og sagði honum að það væri tóm skrifstofa við hliðina á hans skrifstofu sem hann gæti nýtt. Sagði ákærði að hann minnti að þetta hefði verið í Bónus-taupoka eða Bónuspoka. Hann hefði ekkert kíkt í pokann sem hefði verið bundinn heldur sett hann upp á falskt loft sama dag og Samúel kom með pokann til hans. Spurður af hverju hann hefði gert það sagði ákærði að það hefði engin ástæða verið fyrir því. Kvaðst hann ekkert hafa átt við innihaldið og ekki vitað hvað væri í pokanum. Hann og meðákærðu hefðu svo komið í húsnæðið 2. október sl. en hann og Jónas hefðu verið að fara að vinna. Fyrr um daginn hefði hann beðið Samúel um að hjálpa sér vegna crypto- lykils. Samúel hefði komið og hjálpað honum en þegar þeir voru að fara hefði Samúel viljað taka pokann. Hann hafi þá farið með Samúel inn í rýmið og tekið pokann niður af loftinu, afhent Jónasi pokann sem hafi svo afhent Samúel hann. Síðan hefðu þeir farið út og hann skutlað Samúel heim.
- Ákærði sagði að allir hefðu verið með aðgang að og umráð yfir rýminu þar sem pokinn var geymdur en það væri aldrei læst. Rýmið væri búið að vera tómt a.m.k. tvö til þrjú ár. Í húsnæðinu að […] væru 15 skrifstofur sem væru leigðar út. Þessi skrifstofa þar sem pokinn var geymdur er eitt stórt rými. Sjálfur hafi hann ekki haft nein umráð yfir rýminu. Hann hefði látið Samúel vita að hann gæti sjálfur sótt þetta ef hann þyrfti og viti hann ekki hvort hann hefði farið þangað.
- Ákærða er kynnt að samkvæmt gögnum málsins hafi um 3 kg af MDMA-kristölum verið í pokanum og að lögregla hafi sótt pokann upp á loftið og sett gerviefni í staðinn. Engar MDMA-töflur hefðu fundist þar en 1.781 slík tafla hefði verið í þeim poka sem Samúel hefði verið með við handtöku. Ákærði kvaðst ekki vita hvaðan þessar töflur hefðu komið og ekkert vita um þær.
- Borið var undir ákærða myndband sem tekið var upp í húsnæðinu að […] þann 2. október sl. Staðfesti ákærði að þar sæist hann fyrir utan húsnæðið ásamt meðákærðu, að þar sæist að Samúel hefði ekki verið með neitt í höndunum þegar hann gekk inn í húsnæðið og að hann hefði verið með svartan taupoka þegar hann gekk inn í rýmið þar sem gerviefnunum hafði verið komið fyrir. Viti hann ekki hvar Samúel hafi fengið þennan poka. Þá staðfesti ákærði að þar sjáist einnig að Jónas sótti stól þegar þeir voru komnir inn í rýmið. Fyrst hefði hann ekki fundið pokann og hefði ákærða ekki fundist fyndið ef hann hefði týnt eigum Samúels. Kvaðst hann ekki sjá hver hefði spurt þegar þeir voru inni í rýminu er búið að taka þetta?, sagt þetta eru þrjú sko, eða spurt hvort Samúel gæti tekið þrjú. Viti hann ekki hvort hann hafi verið viðstaddur þegar Samúel reyndi að opna pakkana en sagði að seinna í myndbandinu kæmi fram að hann hefði farið eitthvað fram.
- Ákærði kvaðst sjá á upptökunni að Samúel setti Bónuspokann á hillu. Telji hann að það hafi verið Samúel sem hafi spurt hvað er þetta? og haldi að hann hafi þá verið að kíkja ofan í pokann. Kvaðst hann þekkja rödd Samúels og sagði hann eiga það til að tala við sjálfan sig. Ákærði staðfesti að Jónas hefði sótt hníf en hann viti ekki hvað hann hafi gert við hnífinn, sjálfur hafi hann þá verið frammi. Ákærði sagði að Samúel sæist á myndbandinu opna pakka en pakkarnir hefðu verið þrír og allir svartir.
- Ákærði kvaðst ekki vita hver hefði sagt ég teipaði þetta eins og hálfviti, hann sjái ekki neinn tala í þessari upptöku. Kynnt að það heyrist að Samúel sagði teipaðir þú þetta? var ákærði spurður að hverjum hann hefði verið að beina þeirri spurningu og sagði ákærði að hann væri ekki viss. Kvaðst hann ekki sjá að hann hefði þá verið þarna og seinna á myndskeiðinu sjáist að hann sé ekki þarna. Hann hefði verið eitthvað frammi á meðan, m.a. hefði hann farið á salernið. Hann hefði verið veikur fyrr um daginn en muni annars ekki hvað hann var að gera.
- Ákærði kvaðst ekki vita hvern Samúel hefði spurt hvort þetta væri allt alveg eins eða hver hefði sagt þetta er allt svona hjá mér. Hann gæti ekki gert greinarmun á því hvort þetta væri hann eða Jónas en hann viti ekki annað en að þeir hefðu bara verið þrír þarna í rýminu. Þá kvaðst ákærði ekki muna eftir því að Samúel hefði sent honum mynd. Ákærði staðfesti að hann hefði farið akandi úr […] og skutlað Samúel í […] þar sem þeir voru handteknir.
- Kom fram hjá ákærða að hann, Jónas og nokkrir aðrir væru saman með skrifstofu í húsnæðinu sem væri í lokuðu rými sem væri öðruvísi en það sem fíkniefnin hefðu fundist í. Ákærði sagði að hann og bróðir hans ættu saman byggingafyrirtæki og væri hann verkefnastjóri. Kvaðst hann ekki kannast við handskrifað blað sem fannst á skrifstofunni og sagði að þetta væri ekki hans skrift og hefði hann ekki séð þetta blað áður. Lýsti hann húsnæðinu svo að það væri alrými, skrifstofan væri til hægri og væru þar tíu aðrar skrifstofur. Þeir sem væru með honum í rýminu væru byggingastjóri, annar byggingaverktaki, fasteignasali og kona sem ræki travel company. Daginn sem þeir voru handteknir hefðu þau öll verið á skrifstofunni fyrr um daginn. Hann viti ekki hver hafi skilið blaðið eftir á skrifstofunni, hún væri almennt læst en þau væru öll með aðgang að henni.
- Þá var ákærða kynnt að því sé haldið fram að það hafi verið blek á höndunum á honum eftir að hann kom við pakkninguna og sagði ákærði þá að liturinn á hendinni á honum væri vegna þess að kúlupenni hefði sprungið í hægri hendinni á honum og hefði hann nuddað blekinu við þegar hann var að skrifa. Benti ákærði á að á upptökunni sjáist að hann taki pokann niður með vinstri hendi en blekið hefði verið á þeirri hægri. Þá staðfesti ákærði að hafa óskað eftir því við lögreglu að gerð yrði raddgreining á þeim röddum sem heyrast á myndbandinu.
- Ákærði Jónas kvaðst hafa tekið á móti pokanum og afhent ákærða Samúel hann. Honum hefði ekki verið kunnugt um að þessi poki væri geymdur þarna á loftinu fyrr en þeir voru allir komnir í rýmið til að taka hann niður af loftinu. Hann hefði vitað að það væri poki á loftinu á þeim tímapunkti þegar hann sótti stólinn og hefði ákærði Elías sagt honum frá pokanum þegar þeir voru að ganga inn í þetta rými. Kvaðst ákærði ekki hafa kíkt ofan í pokann heldur hefði það rétt verið svona og sýndi þá um leið með höndunum eins og hann væri að opna poka og hefði lokað honum jafnharðan aftur. Hann hefði séð þrjár kúlur í pokanum en ekki vitað að um fíkniefni væri að ræða og ekki séð það. Hann hefði áttað sig á því að þetta væru fíkniefni eða gerviefnin sem lögregla kom fyrir í stað þeirra þegar Samúel var að opna pakkann og talaði um eitt gramm. Hann hafi þá sjálfur sagt eitt gramm eins og hann hefði viljað fá hann úr þessu rými sem hann hafði aðgengi að eða sem var nálægt vinnustað hans. Elías hefði ekkert verið búinn að ræða við hann um þetta áður. Þetta kvöld hefði hann farið á skrifstofuna til að vinna og undirbúa næsta dag og fengið far þangað með meðákærðu.
- Ákærði kvaðst ekkert kannast við handskrifað blað, sem fannst á skrifstofu hans og Elíasar, eða efni þess og sagði að þetta væri ekki hans skrift og kvaðst ekki hafa séð það áður. Viti hann ekki hvaða upplýsingar komi fram á skjalinu eða hvort þær varði fíkniefni. Hvað varðar handskrifað blað sem fannst á heimili hans sagði ákærði að það gæti verið gamalt blað. Á því væru einhverjar tölur og nefndir einhverjir gjaldmiðlar sem hann geti ekki útskýrt þó að vel gæti verið að hann hefði skrifað þetta en telji það ekki tengjast þessu máli.
- Framlagt myndband var sýnt ákærða. Honum var kynnt að þar sjáist þegar þeir voru á leið inn í rýmið og hafi Samúel verið kominn með svartan taupoka í vinstri höndina. Kvaðst ákærði ekki vita hvar Samúel hefði fengið þennan poka eða hvað hefði verið í honum. Ákærði staðfesti að hann sæist þarna ganga á eftir Samúel og það sjáist í bakið á honum. Sagði ákærði að hann heyrðist spyrja hvort það vantaði stól og sagði að hann vissi á þessum tímapunkti að það þyrfti stól til að sækja pokann. Kynnt að einhver heyrist spyrja er þetta nýtt sko? og hann svara því neitandi kvaðst ákærði ekki muna eftir þessu. Kvaðst hann ekki kannast við að hafa sagt þetta er ekki fyndið og ekki sjá hvort hann eða Elías væru að tala á þessu myndbandi. Viti hann ekki hver hafi sagt er búið að taka þetta? Ákærða er kynnt að hann sjáist rétta út hendurnar og staðfesti ákærði það og sagði að hann hefði verið að fara að taka á móti einhverjum poka. Staðfesti ákærði að hafa verið brosandi þegar hann tók á móti pokanum en það snúist ekki um að pokinn hafi fundist heldur sé hann almennt mjög glaður. Sýnist honum að ekki hafi verið búið að binda höldurnar á pokanum þegar hann tók við honum. Spurður hvort hann muni eftir þessu sagði ákærði að hann væri bara að rifja þetta upp núna. Hann muni eftir einhverju en ekki öllu.
- Ákærða var kynnt að á myndbandinu heyrist sagt þessi ferð skiptir bara víst máli og kvaðst ákærði ekki vita hver hefði sagt þetta en heyrist það vera Samúel. Þá kvaðst hann ekki sjá hver hafi sagt þetta eru þrjú sko eða hvort Samúel hafi verið spurður hvort hann gæti tekið þrjú í kjölfarið af því. Kynnt að það sjáist að ákærði sé að horfa á Samúel og staðfesti ákærði það og sagði að Samúel hefði örugglega verið að reyna að opna pakkann eða skoða hvað væri í honum en hann viti ekki hvers vegna og taldi líklegt að Samúel hefði vitað hvað var í pakkanum.
- Staðfesti ákærði að hann sjáist á myndbandinu sækja hníf og kvaðst hann minna að hann hefði látið Samúel hafa hnífinn og taldi að Samúel hefði örugglega átt erfitt með að opna pakkann. Á þessum tímapunkti í myndbandinu hefði hann verið einhvers staðar fyrir aftan eða lengra þarna og benti með vinstri hendi vinstra megin við sig. Sjálfur hefði hann einungis séð þrjár kúlur ofan í pokanum sem hann taldi að búið hefði verið um með svörtu teipi. Spurður hver sjáist kíkja í hurðaropið sagði ákærði að það hefði verið hann fyrst Elías hefði komið í kjölfarið. Kvaðst hann halda að hann hefði verið að kanna með Elías þegar hann kíkti í hurðaropið.
- Spurður hver hefði sagt ég teipaði þetta eins og hálfviti sagðist ákærði ekki vita það en taldi að Samúel hefði spurt teipaðir þú þetta? Samúel hefði einnig spurt er þetta alveg eins? en ákærði viti ekki hvers vegna hann hafi spurt. Þá viti hann ekki hver hafi sagt þetta er allt svona hjá mér eða um hvaða mynd var rætt þegar Samúel heyrist segja var ég ekki búinn að sýna ykkur mynd af þessu? Muni hann ekki eftir að hafa fengið mynd frá Samúel af efni sem er eins og svört aska. Heyrist honum það vera Samúel sem segi þetta er ekki svart svart. Hann viti ekki hver hafi spurt ætlar þú að taka þrjú? en haldi að hann og Elías hafi þá verið báðir þarna inni. Þegar talað er um þrjú hafi þeir eflaust verið að tala um það sem var ofan í pokanum, þrjár pakkningar. Þá viti hann ekki af hverju Samúel ætlaði að taka þetta og mögulega koma með þetta aftur ef þetta er eitthvert rugl.
- Ákærði kvaðst ekki hafa vitað af þessum efnum fyrr en þennan sama dag og hefði hann aldrei samþykkt að geyma fíkniefni. Á þessum tímapunkti grunaði hann að þetta væri eitthvað ólöglegt sem gæti verið ýmislegt, m.a. fíkniefni. Kvaðst hann ekki heyra hver sagði að honum fyndist eins og þetta hefðu verið tveir, þrír mismunandi pokar. Þá heyrist honum að Samúel hafi sagt við skulum taka mynd af þessu og senda á strákana og það verður nóg að gera hjá mér í kvöld en viti hann ekki hvað Samúel hafi ætlað að gera þetta kvöld.
- Ákærða var kynnt að Samúel hefði verið með svartan taupoka þegar hann var handtekinn stuttu síðar og að í pokanum hefðu verið efnin sem voru uppi á lofti og 1.781 MDMA- tafla. Spurður kvaðst ákærði ekki vita hvaðan þessar töflur hefðu komið og kvaðst ekki muna eftir að hafa séð taupokann áður en þeir fóru inn. Ákærði kvaðst aldrei hafa séð MDMA-töflurnar og staðfesti hann að það hefðu einungis verið þrjár einingar í þessum Bónuspoka og það hefði verið eini pokinn sem hann hefði tekið á móti. Kannist hann ekki við að töflurnar hafi verið geymdar í hans umráðum.
- Staðfesti ákærði að þeir Elías væru eineggja tvíburar og með mjög svipaða rödd en taldi að hægt væri að greina raddir þeirra í sundur með raddgreini. Þá taldi hann að verið gæti að Samúel hefði áttað sig á því á staðnum að eitthvað annað væri í pokanum en ætti að vera þar, hann hefði alla vega talað um að eitthvað væri öðruvísi.
- Ákærði sagði að þeirra skrifstofa væri inn af annarri skrifstofu í annarri álmu í húsinu en þetta tóma rými hefði staðið autt og væri alltaf opið. Húsnæðið sjálft er opið á meðan […] er opin, alveg frá kl. átta á morgnana til níu, tíu á kvöldin. Sagði ákærði að út frá því mætti segja að þetta væri almannarými. Staðfesti ákærði að þeir væru með lykla að þeirri skrifstofu sem þeirra skrifstofa væri inn af og sinni skrifstofu.
- Ákærði Samúel kvaðst játa brot sín samkvæmt I. kafla ákærunnar frá 20. desember sl. Þetta hefðu verið hans fíkniefni og hefði hann beðið meðákærðu um að geyma þau fyrir sig. Beðinn um að tala hærra ítrekaði hann það sama en kvaðst hafa beðið ákærða Elías um að geyma efnin eða hjálpa honum alla vega að koma þeim á þennan stað í […]. Kynnt að hann hefði fyrr sagt að hann hefði beðið þá um að geyma fíkniefnin sagði ákærði að það hefði verið Elías sem hann hefði beðið um þetta og væri enginn vafi um það í hans huga. Kvaðst hann halda að hann hefði beðið Elías um þetta einhvern tímann í ágúst, nokkrum vikum áður en þeir voru handteknir. Elías hafi ekki átt að fá greitt fyrir að geyma þetta heldur hafi þetta verið vinargreiði. Hann hefði verið búinn að biðja nokkra aðila um að geyma þetta en enginn virtist vilja hjálpa honum. Elías hefði í rauninni verið seinasta von hans og sagðist hann ætla að gera þetta fyrir hann. Verið gæti að þessi samskipti þeirra hefðu verið í gegnum samskiptaforritið Signal. Ákærði kvaðst hafa geymt þetta heima hjá sér til að byrja með en hefði verið orðinn stressaður og því hefði hann ekki viljað vera með þetta heima. Hann hefði ekki sagt Elíasi hvað þetta væri, bara beðið hann um að geyma þetta og Elías hefði einskis spurt. Efnið var í þessum gula Bónuspoka. Kvaðst ákærði ekki vilja tjá sig um það hvar hann hefði fengið efnið en hann hefði pakkað efnunum inn í þrjár alveg sléttar kúlur og teipað þær, að hann minni, með svörtu einangrunarteipi. Hann hefði dottið í það síðasta sumar og þá hefði fíkniefnasalinn hans, sem hann var kominn í skuld við, beðið hann um að geyma efnið og í staðinn hefði hann átt að fá fellda niður skuldina og kannski meira af fíkniefnum til að viðhalda neyslunni sinni. Hann hefði fengið efnið í einum stórum poka. Hann hefði ekki vigtað það en skipt því í þrjár pakkningar þar sem það hefði verið einfaldast fyrir hann að gera þetta þannig.
- Ákærði staðfesti að hafa verið með MDMA-töflur í taupoka þegar hann var handtekinn og hafa komið með þær heiman frá sér þar sem hann var búinn að geyma þær í allt að tvo til þrjá mánuði. Væri um að ræða sams konar töflur og fundist hefðu heima hjá honum og væru þær úr sömu sendingunni. Kvaðst ákærði hafa komið með töflurnar í […] 2. október í taupokanum og verið með pokann inni á sér þegar hann kom. Hann hefði síðan tekið við gerviefnunum og sett þau í taupokann.
- Kynnt að hann hefði í fyrstu skýrslunni sem hann gaf hjá lögreglu, 3. október 2024, sagt að hann ætti ekki efnin en væri með þau sagði ákærði þá að um leið og hann hefði tekið við pokanum til að geyma efnin væru þau á hans ábyrgð. Hann geti sagt að hann eigi pokann í rauninni svo lengi sem hann er í hans haldi. Hann kvaðst ekkert hafa komið að innflutningi þessara efna til Íslands eða fjármögnun innflutningsins. Ákærði sagði að þáttur meðákærðu væri í raun enginn. Hann hefði beðið Elías um að geyma efnin og hefði Elías tekið við þeim og sett á þann stað þar sem þau voru geymd. Þá staðfesti ákærði að hafa vitað hvernig efni var í þessum pakka og að hafa vitað hvernig liturinn átti að vera á pakkningunum og á efnunum. Þær hefðu aldrei verið beint í vörslum Elíasar. Minnti hann að hann hefði sameinað efnið og töflurnar í einn poka eftir að hann sótti pokann og þá troðið Bónuspokanum ofan í taupokann.
- Ákærði sagðist vera fíkill og hefði neyslusaga hans byrjað í kringum 13–14 ára aldur og þróast í gegnum árin. Hann hefði náð góðum edrúkafla frá árinu 2020 en fallið seinni hluta árs 2024 og verið kominn í neyslu í september þegar málsatvik áttu sér stað. Hann skuldi greiðslu fyrir efnin af því að þau voru tekin. Ákærði sagði að MDMA væri alsæla. Viti hann til þess að þetta efni sé notað sem hugvíkkandi lyf og sé lögmætt víða og notað gegn þunglyndi og áfallastreituröskun, í lágum skömmtum.
- Ákærði kvaðst hafa fengið MDMA-töflurnar og kristalana á sama tíma. Á þessum tíma fannst honum einfaldast að finna geymslustað fyrir kristalana og vildi þá skipta þeim upp í þrjár einingar. Hann hefði nokkrum sinnum komið til meðákærðu í […], vissi að rýmið hafði verið autt, datt það í hug sem geymslustaður og ákvað að biðja Elías um hjálp. Hann vildi heldur ekki koma Elíasi í óþægilega stöðu og setja þetta þangað þar sem hann vissi að skrifstofan hans væri í sama húsnæði. Þess vegna hafi hann spurt Elías um hjálp og í rauninni um leyfi.
- Var ákærða kynnt að í skýrslu sem tekin var af honum 20. nóvember sl. hefði komið fram hjá honum að hann hefði beðið Elías og Jónas um að geyma efnið. Ákærði kvaðst ekki muna eftir að hafa sagt þetta en sagði að hann hefði þá sagt eitthvað vitlaust eða skilið spurninguna vitlaust og vilji hann leiðrétta þetta. Kynnt að hann hefði einnig sagt í þessari skýrslutöku að hann hefði komið með MDMA-kristalana og MDMA-töflurnar í Bónuspoka og hvort tveggja hefði verið geymt upp á loftinu sagðist ákærði einnig vilja fá að leiðrétta það, hann hafi greinilega misskilið þessa spurningu líka.
- Kvaðst ákærði hafa verið á leiðinni annað með MDMA-töflurnar en svo hefði planið breyst og hann beðið Elías um að skutla sér aftur heim og þar ætlaði hann að bíða eftir öðru fari. Planið hafi verið að fara með MDMA-töflurnar annað. Hann hafi ætlað að koma MDMA-efninu í burtu af því að hann hafði verið beðinn um að sækja þetta.
- Þá var ákærða kynnt að í skýrslutökunni, þegar borin var undir hann upptakan, heyrist Elías segja ég teipaði þetta eins og hálfviti og ákærði þá svarað já. Var ákærði spurður hvort hann hefði í þessari skýrslutöku verið spurður hvort það væri vafi á því hvor hefði verið að spyrja hann, Elías eða Jónas, og sagði ákærði þá að hann gæti ekki sagt hvor röddin þetta væri og ekki muna hvernig þetta hefði verið kynnt fyrir honum.
- Framlagt myndband sem tekið var upp í […] þann 2. október var sýnt ákærða. Kom þá fram hjá ákærða að hann hefði verið með MDMA-töflurnar innan á peysunni og í buxnastrengnum. Kynnt að þarna hafi sést að hann hafi verið með þennan taupoka inni í rýminu og staðfesti ákærði að hafa þá verið með töflurnar í honum. Kvaðst ákærði ekki geta greint hvort Elías eða Jónas hefði sagt þetta eru þrjú sko. Ákærði kvaðst hafa sagt get ég tekið eitt út úr þessu? og að hann hefði verið að velta fyrir sér hvort hann gæti gert það núna eða hvort hann yrði að bíða með það þangað til hann kæmi heim eða þangað sem hann ætlaði.
- Spurður hver hafi spurt hvort hann gæti tekið þrjú sagði ákærði að hann geti ekki sagt hvort það var Elías eða Jónas en viðkomandi hefði verið að spyrja hvort hann gæti ekki tekið allt í burtu. Ákærði kvaðst vera sá sem talaði um að taka fimm eða sex grömm og væri hann þá að tala um að taka þetta fyrir sig í eigin neyslu. Kvaðst hann ekki átta sig á því hvað hann hefði verið að tala um þegar hann sagði að eitthvað væri furðulegt, hvort það hefði verið að honum hafi fundist kúlurnar ekki vera pakkaðar alveg jafnt eða eitthvað vera öðruvísi við pakkninguna. Þegar hann segi hvað er þetta hafi hann verið að velta fyrir sér bleki á puttunum á sér. Þegar það heyrist skrjáfhljóð á myndbandinu hafi hann verið að reyna að opna pakkninguna til að ná í nokkur grömm til að taka með og virðist Jónas þá afhenda honum hnífinn.
- Ákærði kvaðst ekki vita hver hefði sagt ég teipaði þetta eins og hálfviti en hann hefði sjálfur spurt spurningarinnar teipaðir þú þetta? Hann hefði spurt að þessu þar sem honum hefði fundist þetta vera skrítið. Kvaðst hann ekki vita hvort hann hefði verið að tala við Elías eða Jónas þar sem hann þekki ekki muninn á rödd þeirra eða þeim í þessu myndbandi. Staðfesti ákærði að hann hefði áður sagt að hann hefði sjálfur teipað pakkana og sagði að þegar annar meðákærðu hefði sagt að hann hefði teipað þetta sjálfur hefði hann spurt hvort viðkomandi hefði teipað þetta og þá verið að velta fyrir sér hvort hann hefði endurteipað þetta eða sett meira teip á þetta. Var ákærða kynnt að viðkomandi hefði þá svarað já og ákærði þá sagt þá þarf ég ekkert að opna þetta og kvaðst ákærði þá ekki vita hvað það væri.
- Spurður hver hafi spurt er þetta allt alveg eins? og bent á að hann hefði sjálfur komið með efnið sagði ákærði að hann hefði líklega verið að tala við sjálfan sig þarna. Ákærði staðfesti að hann hefði sagt sjáðu hvað þessi er fallegur en geti ekki sagt hvort hann eða meðákærðu hafi sagt þetta er allt svona hjá mér. Þá kvaðst hann ekki geta svarað því hvað er svart svart og ekki muna hvaða mynd það er sem hann á að hafa sent af svart svart. Þá gæti hann ekki svarað því hver hefði spurt hann hvort hann ætlaði að taka öll þrjú. Kynnt að á myndbandinu heyrist hann segja að hann ætli að taka þetta allt og ef það er eitthvað rugl komi hann með þetta aftur og sagði ákærði að hann hefði þá bara ætlað að fá að geyma þetta aftur. Geti hann ekki sagt til um hvað hann hafi átt við með rugli. Hann hafi verið í bullandi rugli og gæti hafa verið að tala um hvað sem er. Spurður hvort hann hafi ætlað að skoða þessi efni betur heima og ef þetta væri eitthvað sem honum litist ekki á ætlaði hann að koma með efnin aftur sagði ákærði nei, hann væri ekki alveg að skilja þetta. Kvaðst ákærði ekki geta svarað því hver hafi sagt er þetta allt eins? eða hver hafi sagt að það ætti að taka mynd af þessu. Gæti hann ekki staðfest að það hefði átt að taka mynd af efnunum. Þá vilji hann ekki tjá sig um það hverjir strákarnir eru sem talað er um í myndbandinu. Einnig var ákærða kynnt að hann hefði þar sagt að það verður nóg að gera hjá mér í kvöld og þegar hann var spurður hvað hefði staðið til sagði ákærði að það hefði pottþétt bara verið eitthvað djamm eða eitthvað.
- Ákærða var kynnt að hann sjáist gramsa í Bónuspoka, að hann hefði sagt að hann hefði pakkað upphaflegu efnunum og var hann spurður hvort það væri mögulegt að það væri að renna upp fyrir honum þarna á staðnum að þetta liti eitthvað öðruvísi út, þessi gerviefni, en þessi efni sem hann pakkaði svaraði ákærði því játandi. Hann fékk eitthvað á hendurnar á þessum tíma sem honum var síðar sagt að væri blek og honum fannst eitthvað skrítið við þetta. Staðfesti ákærði að hann hefði haldið á pokanum þegar hann fór út. Kynnt að hann hefði séð ástæðu til að setja pokann inn á sig þegar hann fór inn sagði ákærði að hann hefði verið töluvert minni þá, þarna hefði hann ekki komið honum inn á sig.
- Lögreglumaður nr. A kvaðst hafa stýrt rannsókninni og vísaði til þess að helstu niðurstöður hennar kæmu fram í skýrslu rannsakara. Borist hefði nafnlaus ábending sem leiddi til þess að fíkniefni hefðu fundist sem skipt var út fyrir gerviefni. Lögreglan hefði síðan fylgst með og beðið þess að þau yrðu sótt og séð þegar ákærðu komu þrír til að sækja efnin. Ákærðu hefðu farið frá […] á tveimur bifreiðum og hafi verið ákveðið að elta þá bifreið sem fíkniefnin voru í og voru ákærðu handteknir stuttu síðar.
- Vitnið sagði að MDMA-töflurnar hefðu ekki verið á loftinu en rannsakarar telja að þær hafi verið einhvers staðar þarna inni. Þeir hefðu ekki séð á upptökunni þegar komið var með töflurnar í […]. Vitninu var kynnt að Samúel hafi borið um það fyrir dómi að hann hefði verið með töflurnar með sér þegar hann kom inn í húsnæðið þetta kvöld og sagði vitnið þá að hann hefði sagt annað í skýrslutöku. Þá hefði hann sagt að öll efnin hefðu verið í sama poka sem hann hefði látið bræðurna fá.
- Vitnið staðfesti að lögregla hefði leitað vel í húsnæðinu að […] og að engar töflur hefðu fundist þar. Samúel hefði tekið svarta taupokann með sér út úr bifreiðinni áður en hann var handtekinn. Rannsakarar hefðu haldið að í honum væru gerviefnin og var pokinn tekinn af götunni eftir handtökuna og settur í Audi-bifreiðina sem var síðan ekið á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Þar var leitað í bifreiðinni og þegar efnin og búnaðurinn var tekinn úr þessum poka kom í ljós að þar var aukapakkning með töflunum.
- Þá kom fram hjá vitninu að af hálfu Elíasar hefði verið óskað eftir því að gerð yrði raddgreining á þeim röddum sem heyrast á upptökunni. Rætt hefði verið við fagmenn á þessu sviði sem hefðu upplýst að í þessu tilviki yrði ekki hægt að segja hundrað prósent til um hvor tvíburanna væri að tala í hverju tilviki. Staðfesti vitnið að fíkniefnin sem fundust á loftinu hefðu ekki verið ljósmynduð þar sem þau fundust en myndir verið teknar af þeim í tæknideild í pokanum og eins og þau voru þegar þau fundust.
- Var vitninu kynnt að fyrir lægi skýrsla um uppritun á upptökunni sem tekin var upp í […] og spurt hvers vegna þar væri að hluta til vísað til þess að Elías/Jónas hefði sagt tiltekna hluti en í skýrslu sem tekin var af Samúel 20. nóvember 2024 voru sömu ummæli borin undir hann og hann hefði sagt að Elías hefði látið þau falla. Sagði vitnið að þeir hefðu ekki getað fullyrt hundrað prósent að það hefði verið Elías sem sagði þetta og hefði skýrslunni því verið breytt til að Elías fengi að njóta vafans. Þá kom fram hjá vitninu að gerviefni líti öðruvísi út en fíkniefnin sem voru haldlögð. Staðfesti vitnið að engin gögn hefðu komið fram sem styddu það að ákærði Samúel hefði staðið að innflutningi eða fjármögnun þessara efna. Myndbandið benti til þess að Elías eða Jónas ætti þessi efni en þeir hefðu ekki svarað neinum spurningum við rannsóknina.
- Bornar voru undir vitnið ljósmyndir af MDMA-töflunum og staðfesti vitnið að þetta væru töflurnar, að þær hefðu verið í taupokanum þegar Samúel og Elías voru handteknir og væru þetta upprunalegar umbúðir. Minnti hann að töflurnar sem fundist hefðu heima hjá Samúel hefðu verið mjög svipaðar.
- Lögreglumaður nr. B sagði að settur hefði verið upp búnaður í […] eftir að fíkniefni hefðu fundist þar. Síðan hefðu lögreglumenn verið með eftirlit þar, með myndavélum og fleiru. Ákærðu hefðu komið þangað til að sækja þessa sendingu sem var uppi á loftplötu í einu herberginu. Þegar ákærðu komu út fóru Elías og Samúel saman í bifreið Elíasar en Jónas var sóttur. Tekin var ákvörðun um að elta bifreið Elíasar þar sem þeir voru með búnað inni í pakkningunni með gerviefnunum. Þeir voru eltir uns bifreiðin var stöðvuð og Samúel steig út úr henni með pokann og í framhaldi af því voru þeir handteknir. Kristalarnir hefðu fundist í rýminu en ekki MDMA-töflurnar, þær fundust síðar í pokanum með gerviefnunum.
- Vitnið staðfesti að hafa unnið skýrslu sem inniheldur myndir sem teknar voru þegar Samúel og Elías voru handteknir. Kom fram hjá honum að þar sjáist svartur taupoki, gerviefni og töflur sem voru í honum. Efnin sem voru geymt á loftplötunum voru í gulum Bónuspoka. Það sést á myndbandinu að þegar þeir þrír ganga inn í þetta rými heldur Samúel á þessum svarta poka. Efnin sem voru á loftplötunum voru sett í þennan svarta poka. Þegar ákærðu voru handteknir var búið að bæta MDMA-töflunum í pokann með gerviefnunum.
- C, verkefnastjóri hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, staðfesti að hafa unnið þær fjórar matsgerðir sem liggja fyrir í málinu, þar á meðal útreikninga þar sem fram kemur að hægt sé að gera rúmlega 23 þúsund MDMA-töflur úr þeim MDMA-kristölum sem getið er um í I. kafla ákæru.
- Kvaðst vitnið ekki geta svarað því hvort MDMA hefði upphaflega verið löglegt eða hvort nú væri farið að nota vegna áfallastreituröskunar, þunglyndis eða kvíða. Vissi hann til þess að einhverjar rannsóknir væru í gangi hvað þetta varðar en vissi ekki til þess að efnið væri notað af læknum hér á landi eða hvort það væri löglegt í einstaka löndum. Efnið væri á lista yfir ólögleg ávana- og fíkniefni. Áhrifin af efninu væru m.a. örvandi og ofskynjanir.
- Þá sagði vitnið að brómazólam væri róandi og kvíðastillandi, skylt efnum eins og t.d. díazepam og alprazólam, en þetta efni hafi aldrei verið á lyfjamarkaði. Spurður kvaðst hann ekki telja að um vægt efni væri að ræða, heldur hefði það áþekk áhrif og önnur bensódíazepín. Vitnið sagði MDMA-kristalana sem getið er um í matsgerðinni frá 21. október 2024 vera hægt að vinna áfram yfir á töfluform. Einnig væri hægt að neyta efnisins á þessu formi, t.d. um munn, með sprautu eða taka í nef.
VI
Niðurstaða, I. kafli ákæru, dags. 20. desember 2024
- Ákærðu eru allir í I. kafla ákærunnar ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, í félagi, haft um nokkurt skeið fram til miðvikudagsins 2. október 2024 í vörslum sínum 2.943,38 g af MDMA-kristölum og 1.781 MDMA-töflu sem voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni og ákærðu geymdu í skrifstofuhúsnæði að […] í Kópavogi. Í ákæru er háttsemi ákærðu talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Ákærði Samúel játar sök, þó með þeim fyrirvara að hann hafi ekki komið með MDMA- töflurnar í […] fyrr en 2. október sl. Ákærðu Elías og Jónas neita sök. Elías kvaðst hafa tekið við Bónuspoka með MDMA-kristölum frá Samúel og sett hann upp á loftið og tekið hann niður, ásamt meðákærðu, þann 2. október sl. Hann hafi ekki vitað hvað var í pokanum. Jónas kvaðst ekki hafa vitað af pokanum fyrr en þeir tóku hann niður af loftinu þann 2. október og ekki hafa vitað hvað var í honum. Byggir Jónas á því að meðferð hans á efninu geti ekki flokkast sem vörslur og verði hann sakfelldur verði það einungis fyrir tilraunabrot þar sem fíkniefnunum hafði þá verið skipt út fyrir gerviefni. Bæði Elías og Jónas byggja á því að þeir hafi ekkert vitað af MDMA-töflunum.
- Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gildir sú grundvallarregla almennt að dómur skuli reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. Samkvæmt 108. gr. sömu laga hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik sem telja má honum í óhag á ákæruvaldinu og verður hann því aðeins sakfelldur að nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, teljist fram komin um hvert það atriði er varðar sekt, sbr. 1. mgr. 109. gr. laganna. Þá metur dómurinn hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar.
- Um þátt ákærðu í brotinu er aðallega við að styðjast framangreinda upptöku í hljóði og mynd sem tekin var upp utandyra við húsnæðið og í rýminu þar sem efnin voru geymd. Fyrir liggur að rýmið er á 2. hæð og á sömu hæð er skrifstofa sem Elías og Jónas höfðu á leigu. Byggja ákærðu á því að rýmið hafi verið öllum opið á meðan fyrirtæki sem starfrækt eru í húsinu, þ. á m. veitingastaður, væru opin. Er ekkert fram komið sem bendir til annars og verður því við það miðað að aðgengi að rýminu hafi verið almennt, a.m.k. frá morgni og fram á kvöld. Þá er heldur ekkert fram komið sem staðfestir að ákærðu hafi haft einhver umráð yfir þessu rými.
- Á upptökunni má sjá er ákærðu komu í […] þann 2. október sl. Upptakan sýnir þó ekki allar ferðir ákærðu um húsnæðið, hvorki í hljóði né mynd. Af upptökunni má engu að síður heyra og að miklu leyti sjá hvað ákærðu voru að aðhafast í rýminu þar sem gerviefnin voru geymd.
- Ákærðu Elías og Jónas eru tvíburar og mjög líkir útlitslega. Þegar myndbandið er skoðað verður þó skýrt greint á milli þeirra á grundvelli m.a. fatnaðar og með hliðsjón af framburði þeirra sjálfra fyrir dómi. Af upptökunni má sjá að ákærði Elías sést koma úr ökumannssæti Audi-bifreiðar. Var hann klæddur í dökkbláa Nike-hettupeysu og svartar buxur með bleikt merki […] og var með tommustokk í buxnavasa. Ákærði Jónas kom út úr framsæti farþegamegin og var hann í svartri hettupeysu með rennilás að framan og stórt bleikt merki […] á bakinu og minna eins merki vinstra megin að framan. Þá var hann í svörtum buxum sem virðast vera eins og þær sem Elías klæddist. Þegar upptakan var borin undir Samúel við skýrslutöku fyrir dómi kvaðst hann ekki þekkja í sundur raddir meðákærðu sem einnig að einhverju leyti báru um að geta heldur ekki greint þar á milli á hljóðupptöku. Við skoðun á myndbandinu verður hins vegar að einhverju leyti ráðið hvor var að tala í hverju tilviki með hliðsjón af myndefninu.
- Samkvæmt nefndri upplýsingaskýrslu gengu ákærðu allir inn í húsnæðið kl. 18:13 og inn í rýmið þar sem gerviefnin voru geymd kl. 19:18. Ekki liggur fyrir hvað ákærðu voru að gera í millitíðinni. Elías og Jónas báru um það fyrir dómi að þeir hefðu ætlað að vinna og Elías sagði einnig að Samúel hefði verið að aðstoða hann vegna crypto-lykils. Á upptökunni sést að Samúel horfði vel í kringum sig utandyra áður en hann hélt inn í húsnæðið. Ekki er að sjá að hann sé með eitthvað innan undir peysu eða í buxnastreng sem getur samrýmst þeim poka með MDMA-töflum sem sjá má myndir af í málsgögnum. Þegar ákærðu gengu inn í rýmið þar sem lögregla fann fíkniefnin var Samúel með svartan taupoka og er sýnilega eitthvað í pokanum.
- Af samskiptum ákærðu inni í rýminu verður ráðið að ákærðu sóttu pokann í sameiningu og af framgöngu þeirra og samtali virtist enginn þeirra vera í vafa um hvað þeir voru að gera. Óumdeilt er að ekki voru aðrir á vettvangi. Elías og Jónas gengu beint í það að taka efnin niður og vissu hvar á loftinu efnin voru falin. Jónas sótti stól og setti undir þann stað í loftinu þar sem efnin voru geymd, Elías steig síðan upp á stólinn og leitaði að efninu. Þá óttuðust þeir að efnin væru horfin. Jónas og Samúel fylgdust með leitinni og virtist þeim öllum létt þegar efnin fundust. Þá má sjá á myndbandinu að Jónas lyfti upp báðum höndum til að taka á móti pokanum frá Elíasi líkt og hann gerði sér grein fyrir umfangi hans. Efnin voru í gulum Bónuspoka en lögregla var þá búin að skipta 2.943,38 g af MDMA-kristölum út fyrir gerviefni.
- Þá má á myndbandinu heyra ákærðu ræða um efnið. Samúel beindi m.a. ítrekað spurningum til meðákærðu sem benda til þess að þeir hafi verið að ræða um fíkniefni. Elías sagði t.d. þetta eru þrjú sko um það leyti sem Jónas ætlaði að setja Bónuspokann með gerviefnunum ofan í svarta pokann sem Samúel hélt þá á. Samúel tók við Bónuspokanum og skoðaði pakkningarnar í honum og spurði hvort hann geti tekið eitt úr þessu og Elías spurði þá hvort hann geti tekið þrjú. Þá talaði Samúel um eitt og Jónas spurði eitt gramm en Samúel sagði þá fimm eða sex grömm eða eitthvað. Fyrir dómi sagði Samúel að þegar hann ræddi um grömm hefði hann ætlað að taka efni til eigin neyslu. Þegar hann talaði um þrjú hefði hann verið að spyrja hvort hann gæti tekið allt efnið en viti ekki hvort hann hafi þá verið að ræða við Elías eða Jónas. Má af þessu ráða að viðstaddir hafi verið meðvitaðir um magn efnisins. Ekki verður ráðið af myndbandinu hvort Elías eða Jónas sagði við Samúel að hann hefði teipað þetta en þá spurði Samúel teipaðir þú þetta? Að mati dómsins bendir framangreint til þess að Samúel hafi ekki pakkað efnunum inn eins og hann bar um. Þá liggur fyrir að Samúel reyndi að opna eina pakkninguna og Jónas fylgdist með og aðstoðaði hann með því að rétta honum hníf. Virðast Elías og Jónas þá vera báðir viðstaddir utan þess að Elías fór skamma stund út úr rýminu, a.m.k. einu sinni. Loks talaði Samúel um að koma með efnin aftur ef þetta væri eitthvað rugl.
- Fram kemur í málsgögnunum að lögregla hafði komið bláu litarefni fyrir á pakkningunum með gerviefninu en ekkert bendir til þess að slíkt efni hafi verið á Bónuspokanum. Bæði Samúel og Elías reyndust vera með slíkt litarefni á höndunum þegar þeir voru handteknir sem gefur vísbendingu um að þeir hafi snert pakkningarnar. Samúel bar um það fyrir dómi að hafa fengið litarefnið á hendurnar þegar hann skoðaði pakkningarnar. Elías bar um það hjá lögreglu og fyrir dómi að liturinn, sem var á hægri hendi hans, stafaði af því að kúlupenni hefði sprungið í höndum hans og kvaðst einungis hafa snert pokann með vinstri hendi þegar hann tók hann niður en liturinn var á þeirri hægri. Hafnar dómurinn alfarið þessari skýringu hans en á upptökunni verður ekki annað séð en að hann snerti einungis pokann en ekki pakkningarnar þegar hann tók þær niður af loftinu. Verður af þessu dregin sú ályktun að hann hafi snert pakkningarnar eftir að þær voru teknar niður. Samkvæmt málsgögnum reyndist litarefnið hafa borist yfir á framangreindan hníf og á útidyrahurð húsnæðisins.
- Síðar á myndbandinu, kl. 19:21:26, má sjá að Samúel setti svarta taupokann á hillu í rýminu. Klukkan 19:23:38 sést að Elías tók pokann úr hillunni, og virðist þá enn vera eitthvað í honum, og hélt honum opnum á meðan Samúel setti Bónuspokann með gerviefnunum ofan í svarta pokann. Ákærðu héldu áfram að ræða um fíkniefnin þegar þeir gengu út úr rýminu, m.a. um útlit umbúðanna og annað hvort Elías eða Jónas spurði Samúel hvenær hann ætlaði að taka mynd af þessu og senda á strákana. Ákærðu gengu síðan allir út úr húsnæðinu og Samúel var þá með svarta pokann og var ákærði handtekinn með pokann skömmu síðar.
- Eins og að framan er rakið gaf Samúel fjórum sinnum skýrslu við rannsókn málsins. Hann tjáði sig ekki um sakarefnið fyrr en í fjórðu skýrslunni sem hann óskaði sjálfur eftir að gefa. Hefur framburður hans verið töluvert á reiki. Kvaðst hann, í fjórðu skýrslunni, hafa beðið báða meðákærðu um að geyma efnið fyrir sig en sagði þá ekki hafa vitað hvað var í pakkanum og hefðu þeir báðir sett efnin á loftið. Í skýrslu sinni fyrir dómi byrjaði ákærði á því að segja að hann hefði beðið báða meðákærðu um að geyma efnið en leiðrétti sig. Fyrir dómi kvaðst ákærði hafa misskilið spurningu lögreglu en það hafi einungis verið Elías sem hann hefði haft samband við vegna pakkans og beðið að geyma hann. Á upptöku af skýrslu hans hjá lögreglu má heyra að ákærði er að lýsa atvikum í sjálfstæði frásögn þegar hann segir að hann hafi leitað til beggja meðákærðu og í því skyni haft samband við Elías. Þá er einnig misræmi í framburði ákærða hvað það varðar hvenær hann kom með MDMA-töflurnar í […]. Hjá lögreglu bar hann um að það hafi verið um leið og hann kom með MDMA-kristalana en fyrir dómi að það hafi verið sama dag og hann sótti gerviefnin og kvaðst hafa verið með töflurnar inn á sér þegar hann kom í […].
- Elías gaf þrisvar skýrslu við rannsókn málsins. Í annarri skýrslunni sagði hann Samúel vera eiganda efnanna og sjálfur hefði hann einungis verið að skutla honum. Framburður hans var á svipaðan veg í þriðju skýrslunni. Fyrir dómi sagði ákærði að Samúel hefði haft samband við hann og beðið hann um að geyma pokann sem hann hafi gert en ekki haft neina vitneskju um það hvað var í pokanum. Ákveðið hefði verið að geyma pokann í tómri skrifstofu rétt hjá skrifstofu þeirra bræðra og hafi hann sett pokann þar upp á falskt loft.
- Jónas gaf einnig þrisvar skýrslu við rannsókn málsins. Í þriðju skýrslunni kvaðst hann þekkja sig á myndum sem teknar voru af honum í […] 2 þann 2. október en ekki hafa orðið var við að Samúel væri með fíkniefni en ekki geta útskýrt hvað þeir hefðu verið að gera. Fyrir dómi kvaðst ákærði hafa tekið á móti pokanum og afhent Samúel. Hann hafi ekki vitað að pokinn væri geymdur þarna fyrr en þeir fór allir inn í rýmið til að taka pokann niður. Kvaðst hann hafa vitað af pokanum á þeim tímapunkti þegar hann sótti stólinn og hefði Elís sagt honum frá pokanum. Grunaði hann að þetta væri eitthvað ólöglegt og hefði áttað sig á því að þetta tengdist fíkniefnum þegar Samúel hefði talað um eitt gramm og hann þá viljað að farið yrði með efnið úr húsnæðinu. Ekki fæst hins vegar séð af myndbandinu að ákærði hafi brugðist þannig við heldur tekið fullan þátt í að sækja efnin og í samræðum um þau allan þann tíma sem þeir voru í rýminu.
- Þá báru Elías og Jónas um að vera með skrifstofu á leigu í sama húsnæði. Í annarri skýrslu sinni hjá lögreglu báru þeir báðir um að einungis þeir hefðu aðgang að skrifstofunni. Þeim var báðum í þriðju skýrslutökunni kynnt handskrifað blað sem fannst á skrifstofu þeirra og lögregla taldi tengjast fíkniefnaviðskiptum. Fyrir dómi báru þeir um að nokkrir aðilar til viðbótar hefðu aðgang að skrifstofunni. Á framangreindu blaði komu m.a. fram upplýsingar um tegund og magn fíkniefna, m.a. 5 pakkningar af MDMA 10.000 töflur.
- Metur dómurinn það svo að framburður Samúels hafi breyst meðákærðu til hagsbóta í fjórðu skýrslunni sem hann gaf hjá lögreglu og fyrir dómi að mestu til samræmis við framburð meðákærðu fyrir dómi. Þá hafa þær skýringar sem Samúel hefur sett fram á breyttum framburði sínum ekki verið trúverðugar. Einnig hefur framburður bæði Elíasar og Jónasar tekið breytingum í gegnum meðferð málsins, eins og rakið hefur verið. Þá er það mat dómsins að framburður allra ákærðu hafi um margt verið í ósamræmi við framlagða upptöku af vettvangi og skýringar þeirra á misræminu ótrúverðugar. Er það því mat dómsins að framburður allra ákærðu sé ótrúverðugur og verður niðurstaða málsins ekki á honum byggð að því marki sem hann fær ekki jafnframt stoð í öðrum gögnum.
- Ákærðu eru ákærðir fyrir að hafa, í félagi, haft efnin í vörslum sínum um nokkurt skeið fram til 2. október 2024. Ekkert liggur fyrir um tilurð fíkniefnanna eða fjármögnun þeirra. Fyrir liggur að samskonar MDMA-kristallar og töflur fundust við leit á heimili Samúels. Málsgögn og framburður ákærðu staðfesta að pakki sem áður hafði verið með MDMA-kristölum sem hafði verið skipt út fyrir gerviefni, var geymdur ofan á loftplötu á lofti skrifstofuhúsnæðisins og að ákærðu í sameiningu sóttu pakkann þangað.
- Ljóst er að lögreglan haldlagði MDMA-kristalana 23. september sl. Samúel hefur verið tvísaga um það hvort hann hafi beðið báða meðákærðu eða einungis Elías um að geyma fíkniefnin en hefur frá upphafi borið um að hann hafi haft samband við Elías í því skyni. Þá hefur Elías viðurkennt að hafa komið efnunum fyrir á loftinu að beiðni Samúels sama dag og Samúel afhenti honum efnin. Fyrir dómi bar Elías um það að Samúel hafi beðið hann um að spyrja einskis þegar hann tók við pokanum. Jónas kvaðst fyrir dómi hafa áttað sig á því að um eitthvað ólöglegt væri að ræða þegar þeir sóttu pokann og að um fíkniefni væri að ræða þegar Samúel ræddi um gramm. Eru framangreindir framburðir ákærðu ótrúverðugir m.a. með hliðsjón af því sem sjá má af upptökunum, eins og að framan er lýst. Af upptökunum verður ráðið að Elías og Jónas töldu sig vera að sækja fíkniefni og virtust vita hvar efnin voru geymd. Þá bendir geymslustaðinn einnig til þess að ætlunin var að fela eitthvað ólögmætt.
- Hugtakið vörslur samkvæmt ákvæðum laga nr. 65/1974 hefur verið túlkað svo að það sé rýmra en svo að það taki aðeins til eiganda efna eða til þess að taka efni til geymslu fyrir annan sem er fjarstaddur. Af upptökunni má ætla að Elías og Jónas hafi haft eitthvað yfir efnunum að segja enda ráðfærði Samúel sig við þá báða um ráðstöfun efnisins, m. a. um það hve mikið hann tæki af því og að hann ætlaði að skila þeim aftur til þeirra ef eitthvað hefði ruglast. Þá var ekkert sem kallaði á að Samúel þyrfti samþykki meðákærðu fyrir notkun rýmisins eða einungis samþykki Elíasar miðað við framburði Elías og Jónasar um aðgengi að rýminu. Teljast þeir því allir hafa haft aðgengi að geymslustaðnum á því tímabili er ákæra málsins tekur til.
- Með vísan til þess sem að fram er rakið er talið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi allir vitað að pakkinn sem þeir voru að sækja innihéldi fíkniefni. Ekki er að sjá á upptökunni að magn efnisins hafi komið þeim á óvart enda ræddu þeir bæði um eitt og þrjú kg og öll þrjú. Telst huglægum refsiskilyrðum því fullnægt. Með vísan til þess sem rakið hefur verið og til atvika heildstætt telst sannað að ákærðu hafi haft efnin í vörslum sínum um nokkurt skeið fram til 2. október.
- Lögreglan vissi fyrst af MDMA-töflunum eftir að Samúel og Elías voru handteknir. Voru töflurnar, sem alls voru 1781, í sama poka og MDMA kristalarnir sem Samúel var með þegar hann var handtekinn. Af myndskeiðinu verður ráðið að Samúel var ekki með töflurnar þegar hann kom í […] þetta kvöld. Hann var hins vegar með töflurnar í svörtum poka þegar hann fór inn í rýmið þar sem gerviefnin voru geymd hátt í klukkustund síðar. Má af því ráða að ákærðu höfðu svigrúm til að athafna sig annars staðar í húsnæðinu en engin ákærðu sást koma með svarta taupokann inn í sjálft húsnæðið. Einungis er við framburð Samúels að styðjast hvað varðar meðferð þessara taflna fram að þeim tíma er Samúel sést koma með pokann inn í rýmið. Ekkert liggur fyrir um það hvar töflurnar voru geymdar, hvort aðrir ákærðu en Samúel hafi haft aðkomu að því að sækja þær eða hvort Elías og Jónas hafi haft aðgang að þeim á geymslustað.
- Fyrir liggur framburður lögreglumanns sem staðfesti að leitað hefði verið í húsnæðinu, þar sem MDMA-kristalarnir fundust, en engin önnur fíkniefni fundist. Á meðan Elías og Jónas sóttu pokann með kristöllunum virðist Samúel að mestu hafa verið með pokann með töflunum að því leiti sem það er sýnilegt á myndbandinu. Ekki er að heyra á upptökunni að rætt hafi verið um töflurnar. Þá verður ekki ályktað sem svo að handskrifað blað sem fannst á skrifstofu Elíasar og Jónasar staðfesti aðkomu þeirra beggja eða annars að vörslum MDMA-taflnanna, eins og atvikum er háttað. Er ekki sjáanlegt af málsgögnum að Elías eða Jónas hafi haft aðra aðkomu að töflunum en þá að Jónas ætlaði að setja Bónuspokann ofan í svarta pokann með töflunum sem Samúel var þá með. Samúel setti síðan svarta pokann á hillu þaðan sem Elías tók hann og hélt honum opnum á meðan Samúel setti Bónuspokann þar ofan í. Samkvæmt því er vafi um það hvort Elías og Jónas hafi haft vitneskju um töflurnar eða séð þær umrætt sinn. Því skortir bæði á það að fullnægjandi sönnun liggi fyrir um að huglæg refsiskilyrði séu uppfyllt með vitneskju þeirra um MDMA-töflurnar og að aðkoma þeirra að efninu geti talist til varslna. Verða ákærðu að njóta þess vafa, sbr. 109. gr. laga nr. 88/2008, og telst því ósannað að þeir hafi haft vörslur taflnanna og verða þeir sýknaðir af sakarefninu hvað það varðar.
- Í samræmi við framangreint er það mat dómsins að efni myndbandsins bendi ekki til þess að Samúel hafi komið með töflurnar í […] þennan dag eins og fram kom í breyttum framburði Samúels. Verður, með vísan til atvika eins og þeir birtast á upptökunni, því á því byggt að töflurnar hafi þegar verið komnar í húsnæðið og að Samúel hafi haft vitneskju um það og aðgengi að þeim. Samkvæmt þessu telst sannað að Samúel hafi haft töflurnar í vörslum sínum í […] um nokkurt skeið fram til 2. október.
- Af hálfu ákærðu er ekki gerð athugasemd við magn eða styrk efna, eins og þeim er lýst í ákærunni, sem hefur verið staðfest með efnaskýrslum tæknideildar og matsgerðum Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði sem staðfestar voru fyrir dómi. Með hliðsjón af magni þeirra efna sem ákæra málsins varðar er það mat dómsins að bæði MDMA- kristallarnir og töflurnar hafi verið ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.
- Að öllu þessu virtu telur dómurinn sannað, sbr. 108. og 109. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, að ákærðu hafi gerst sekir um þá háttsemi sem greinir í I. kafla ákæru frá 20. desember sl. utan þess að Elías og Jónas verða ekki sakfelldir fyrir vörslur MDMA-taflnanna, og er háttsemi þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Niðurstaða, II. kafli ákæru, dags. 20. desember 2024, og ákæru, dags. 19. nóvember
- Ákærði Samúel hefur skýlaust játað brot sitt samkvæmt II. kafla ákæru, dags. 20. desember 2024, og ákæru, dags. 19. nóvember 2024. Fær játning ákærða fulla stoð í gögnum málsins. Er með henni og öðrum gögnum málsins sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunum.
Niðurstaða, III. kafli ákæru, dags. 20. desember 2024
- Ákærði Jónas hefur skýlaust játað brot sitt samkvæmt III. kafla ákæru, dags. 20. desember 2024. Fær játning ákærða fulla stoð í gögnum málsins. Er með henni og öðrum gögnum málsins sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er þar gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
VII
- Ákærði Elías er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 18. desember 2024, hefur hann fjórum sinnum verið dæmdur til refsingar með dómum héraðsdóms. Ákærði var fyrst með dómi […] 2015 dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár vegna líkamsárásar sem talin var varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með dómi […] 2016 var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Þá var ákærði með dómi […] 2016 dæmdur í átta mánaða fangelsi en þar af voru sjö mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár vegna líkamsárása sem taldar voru varða við 1. mgr. 218. gr. og 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940. Loks var ákærði með dómi […] 2017 dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, sbr. 173. gr. a, sbr. 20. gr., laga nr. 19/1940. Voru tveir síðastgreindu dómarnir hegningarauki vegna eldri dóms.
- Ákærði Jónas er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 18. desember 2024, var hann með dómi héraðsdóms […] 2016 dæmdur í átta mánaða fangelsi en þar af voru fimm mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár vegna brots gegn lögum nr. 65/1974. Þá hefur ákærði tvisvar sinnum gengist undir sektargerð lögreglustjóra vegna umferðarlagabrota.
- Ákærði Samúel er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 18. desember 2024, hefur hann fjórum sinnum verið dæmdur til refsingar með dómum héraðsdóms. Ákærði var fyrst með dómi […] 2017 dæmdur í 15 mánaða fangelsi en þar af voru 12 mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár vegna brots gegn lögum nr. 65/1974, vopnalögum nr. 16/1998 og 252. gr., sbr. 20. gr., 244. gr., 248. gr., 2. mgr. 218. gr., 1. mgr. 257. gr. og 233. gr. laga nr. 19/1940. Þá var ákærði með dómi […] 2018 dæmdur í 22 mánaða fangelsi vegna brots gegn 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940 en með broti sínu var ákærði talinn hafa rofið reynslulausn vegna eldri dóms. Ákærði var með dómi […] 2018 dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a laga nr. 19/1940, brot gegn lögum nr. 65/1974 og 1. mgr. 244. gr. laga nr. 19/1940, auk tilraunar til brots gegn sama lagaákvæði, sbr. 20. gr. laga nr. 19/1940. Var dæmd refsing hegningarauki vegna eldri dóms, auk þess sem ákærði var talinn hafa rofið reynslulausn. Loks var ákærði […] 2019 dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940 og var dæmd refsing einnig hegningarauki vegna eldri dóms, auk þess sem ákærði var talinn hafa rofið reynslulausn. Þá hefur ákærði fimm sinnum gengist undir sektargerð lögreglustjóra vegna umferðarlagabrota.
- Ákærðu í máli þessu eru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot fyrir vörslur á miklu magni fíkniefna til söludreifingar í ágóðaskyni. Var háttsemi ákærðu liður í því að koma efnunum í dreifingu. Auk framangreinds verður einnig við ákvörðun refsingar ákærðu litið til þess að ákærðu frömdu brotið í félagi og til sakaferils ákærðu. Verður því við ákvörðun refsingar ákærðu litið til 1., 3., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. laga nr. 19/1940. Að auki hefur Jónas verið sakfelldur fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 og lögum nr. 16/1998 og Samúel fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 og umferðarlögum nr. 77/2019. Samúel játaði brot sín að mestu fyrir dómi og Jónas játaði brot sín samkvæmt III. kafla ákærunnar. Að öðru leyti eiga ákærðu sér engar málsbætur. Í ljósi alls framangreinds, alvarleika brotsins og með vísan til 77. gr. laga nr. 19/1940, hvað varðar Samúel og Jónas, þykir refsing Elíasar og Jónasar hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði og Samúels fangelsi í þrjú ár og 6 mánuði. Til frádráttar komi gæsluvarðhaldsvist ákærðu eins og í dómsorði greinir, sbr. 76. gr. laga nr. 19/1940.
- Með vísan til þeirra lagaákvæða er greinir í ákæru er Samúel sviptur ökurétti í fimm mánuði frá 16. júní 2024 en hann var sviptur ökurétti til bráðabirgða frá þeim degi, sbr. 102. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 2.943,38 g af MDMA-kristölum, alls 1.803 MDMA-töflur, alls 157,89 g af kókaíni, 5,10 g af MDMA, 223,58 g af metamfetamíni í kristalsformi og 788 töflur sem innihéldu fíknilyfið brómazólam, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og tvö stunguvopn og tvö höggvopn (hnúajárn og felukylfa) (munanr. […], […], […] og […]), sem lögreglumenn fundu við leit á heimili Jónasar, með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
- Eftir úrslitum málsins, sbr. 235. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, greiði Elías 2/3 hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, sem alls eru ákveðin 5.400.000 krónur. Jónas greiði 2/3 hluta málsvarnarlauna skipaðra verjenda sinna Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem alls eru ákveðin 1.300.000 krónur, og Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, sem alls eru ákveðin 4.400.000 krónur, auk 63.450 króna vegna aksturskostnaðar. Þá greiðist 1/3 hluti málsvarnarlauna framangreindra lögmanna úr ríkissjóði. Samúel greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar lögmanns, 5.400.000 krónur. Við ákvörðun málsvarnarlauna hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts, vinnu lögmannanna á rannsóknarstigi og reglna dómstólasýslunnar nr. 1/2025.
- Ákærðu greiði sameiginlega sakarkostnað að fjárhæð 674.418 krónur en Samúel greiði jafnframt 713.848 krónur vegna þeirra brota sem hann einn hefur verið sakfelldur fyrir, allt í samræmi við framlagt yfirlit ákæruvaldsins.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari.
- Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Elías Shamsudin, sæti fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Frá refsingu dregst óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 3. október 2024, með fullri dagatölu.
Ákærði, Jónas Shamsudin, sæti fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Frá refsingu dregst óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 3. október 2024, með fullri dagatölu.
Ákærði, Samúel Jói Björgvinsson, sæti fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Frá refsingu dregst óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 3. október 2024, með fullri dagatölu.
Ákærði Samúel er sviptur ökurétti í fimm mánuði frá 16. júní 2024.
Upptæk eru gerð 2.943,38 g af MDMA-kristölum, 1.803 MDMA-töflur, 157,89 g af kókaíni, 5,10 g af MDMA, 223,58 g af metamfetamíni í kristalsformi, 788 töflur sem innihéldu fíknilyfið brómazólam, tvö stunguvopn og tvö höggvopn (hnúajárn og felukylfa) (munanr. 647332, 647333, 647334 og 647335).
Ákærði Elías greiði 2/3 hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, 5.400.000 krónur, en 1/3 hluti greiðist úr ríkissjóði.
Ákærði Jónas greiði 2/3 hluta málsvarnarlauna skipaðra verjanda sinna, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 1.300.000 króna og Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 4.400.000 krónur, auk 63.450 króna í aksturskostnað, en 1/3 hluti málsvarnarlaunanna greiðist úr ríkissjóði.
Ákærði Samúel greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar lögmanns, 5.400.000 krónur.
Ákærðu greiði sameiginlega 674.418 krónur í annan sakarkostnað og ákærði Samúel greiði jafnframt 713.848 krónur í sakarkostnað.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir (sign)