Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 25. ágúst 2022.
Mál nr. S-2444/2022:
Héraðssaksóknari
(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daniel Zambrana Aquilar og
(Oddgeir Einarsson lögmaður)
Raúl Ríos Rueda
(Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Líkamsárás. Lögreglulagabrot. Samverknaður. Sérstaklega hættuleg líkamsárás. Skilorð.
Útdráttur
Ákærðu voru sakfelldir fyrir líkamsárás í félagi. Hlutur annars ákærða í brotinu var mun alvarlegri og var hann sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk annarra brota, þar á meðal líkamsárás gegn öðrum brotaþola á fyrra tímamarki. Meðákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás skv. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Dómur
Árið 2022, fimmtudaginn 25. ágúst, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr. S-2444/2022: Ákæruvaldið gegn Daniel Zambrana Aguilar og Raúl Ríos Rueda, en málið var dómtekið 15. þ.m.
Málið er höfðað með ákæru Héraðssaksóknara, dagsettri 30. maí 2022, á hendur „Daniel Zambrana Aquilar, kennitala […], […] og Raúl Ríos Rueda, kennitala […], […], gegn ákærða Daniel, fyrir tilraun til manndráps, og gegn ákærða Raúl, fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 5. mars 2022, í félagi, framan við skemmtistaðinn [X] í Reykjavík, veist að A, kennitala […], ákærði Daniel með ítrekuðum höggum með óþekktu stunguvopni, líklega skrúfjárni, í efri búk A en ákærði Raúl með ítrekuðum hnefahöggum í höfuð og efri hluta líkama, allt með þeim afleiðingum að A hlaut samfall á lungum beggja vegna, sár á framvegg brjóstkassa, mörg sár á bakvegg brjóstkassa, mar og yfirborðsáverka á höfði og dreifða yfirborðsáverka á líkama.
Telst brot ákærða Daniels varða við 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en brot ákærða Raúl við 217. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkröfur:
Af hálfu A, kennitala […], er gerð krafa um að ákærða Daniel Zambrana Aquilar, verði gert að greiða honum kr. 4.139.911.- í skaða- og miskabætur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. mars 2022 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Eins er þess krafist að ákærði greiði málskostnað kröfuhafa að skaðlausu, þ.e. þóknun undirritaðs réttargæslumanns Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða samkvæmt mati dómstóla og að tekið verði tillit til þess að kröfuhafi er ekki virðisaukaskattskyldur aðili.
Af hálfu A, kennitala […], er gerð krafa um að ákærða Raúl Ríos Rúeda, verði gert að greiða honum kr. 900.000.- í miskabætur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. mars 2022 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Eins er þess krafist að ákærði greiði málskostnað kröfuhafa að skaðlausu, þ.e. þóknun undirritaðs réttargæslumanns Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða samkvæmt mati dómstóla og að tekið verði tillit til þess að kröfuhafi er ekki virðisaukaskattskyldur aðili.“
Hinn 8. júní 2022 gaf lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu út ákæru á hendur „Daniel Zambrana Aguilar, kt. […], […], fyrir eftirtalin brot:
- Líkamsárás með því að hafa, sunnudaginn 4. júlí 2021, fyrir utan veitingastaðinn [Y] í Reykjavík, veist með ofbeldi að B, kt. […], og gefið honum olnbogaskot í andlit, með þeim afleiðingum að hann hlaut tannarbrot á tveimur framtönnum, yfirborðsáverka á höfði og á hægri hendi. […] Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Brot gegn lögreglulögum með því að hafa, sunnudaginn 17. október 2021, fyrir utan Birkihvamm […] í Kópavogi, hlaupið á brott án þess að hlýða ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að stöðva en lögregla hafði afskipti af ákærða við Lindarhvamm í Kópavogi, við hús […]. […] Telst háttsemi þessi varða við 19. gr., sbr. 44. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Einkaréttarkrafa
Fyrir hönd B, kt. […], gerir Halldóra Aðalsteinsdóttir, lögmaður, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða brotaþola skaða- og miskabætur að fjárhæð kr. 1.500.000 kr., sbr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 4. júlí 2021 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða brotaþola málskostnað vegna lögmannskostnaðar við að hafa kröfu þessa uppi, og fylgja henni fyrir dómi, en málskostnaðaryfirlit verður lagt fram við meðferð málsins. Þá er einnig krafist að Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður verði tilnefnd sem réttargæslumaður.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Málin voru sameinuð.
Verjandi ákærða Daniels krefst sýknu af tilraun til manndráps og að bótakröfu verði vísað frá dómi. Verði sýknað af tilraun til manndráps og lagaskilyrði verði talinn fyrir annarri heimfærslu brots til refsiákvæða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og lækkun bótakröfu. Einnig er krafist vægustu refsingar vegna ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 8. júní 2022 og lækkunar miskabótakröfu. Málsvarnarlauna er krafist samkvæmt tímaskýrslu.
Verjandi ákærða Raúls krefst aðallega sýknu og að bótakröfu verði vísað frá dómi. Til vara er krafist vægustu refsingar og að aðallega að bótakröfu verði vísað frá dómi en til vara að hún sæti lækkun. Málsvarnarlauna er krafist samkvæmt tímaskýrslu. Ákæra dagsett 30. maí 2022 Samkvæmt frumskýrslu var lögreglan send að skemmtistaðnum [X] á þeim tíma sem í ákæru greinir vegna manna sem slógust með hnífum, eins og segir í skýrslunni. Þá segir í skýrslunni að rætt hafi verið við ýmsa á vettvangi og þeir nafngreindir en enginn árásarþoli með hnífsstunguáverka hafi verið sjáanlegur. Rætt var við A sem kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás og ætti hann erfitt með að anda. Segir í skýrslunni að A hafi átt erfitt með að tala og að draga andann og sagst hafa verið laminn í brjóstkassann. Var A komið í hendur sjúkraflutningamanna sem fluttu hann á slysadeild. A var ekki talinn tengjast málinu þar sem hann hefði hvorki talað um hnífa né verið stunginn, bara laminn, eins og segir í skýrslunni. Við rannsókn á slysadeild greindist A með áverkana sem í ákæru greinir.
Tekin var skýrsla af A hjá lögreglu 5. mars sl. er hann var á sjúkrahúsi og kvaðst hann hafa orðið fyrir árás tveggja til þriggja stráka er hann hefði verið einn fyrir utan skemmtistaðinn og hann verið felldur í götuna og ráðist á hann.
Tekin var skýrsla af ákærða Daniel hjá lögreglunni 9. mars 2022 þar sem hann lýsti líkamsárás sem hann varð fyrir inni á skemmtistaðnum [X] á þessum tíma. Hann hefði síðan farið út þar sem hann hefði orðið hræddur um að lenda í því sama og inni á skemmtistaðnum stuttu áður og þá tekið upp verkfæri eða stutt járn sem hann gat ekki lýst nánar og beitt áhaldinu gegn A sem hefði verið í átökum við meðákærða Raúl. Tekin var skýrsla af ákærða Raúl hjá lögreglunni 5. apríl 2022. Lýsti hann því að þeir meðákærði hefðu orðið fyrir áreiti af hálfu tveggja manna inni á skemmtistaðnum og meðákærði Daniel hefði fengið hnefahögg frá öðrum þeirra. Eftir að hafa skoðað myndbandsupptöku frá vettvangi kvaðst ákærði vera maðurinn sem þar sést slá mann hnefahöggum í andlitið. Hann hefði verið að verja sig. Hann vissi ekki hvað meðákærði gerði.
Nú verður rakinn framburður ákærðu og vitnisburður fyrir dómi Ákærði Daniel neitar sök og kvað hann aldrei hafa vakað fyrir sér að svipta A lífi. Hann kvaðst hafa verið inni á skemmtistaðnum [X] og þá séð Raúl rífast við tvo menn, en annar þeirra hefði verið A. Hann kvaðst hafa spurt hvað væri í gangi og hann hefði vitað það næst er hann var kýldur í andlitið og í gólfið og er hann lá þar hefði hann verið kýldur og sparkað í höfuð hans og teldi hann sig hafa misst meðvitund í tvær til þrjár sekúndur og hann hefði ekki getað staðið upp. Hann lýsti afleiðingum þessarar árásar og ætti hann meðal annars erfitt með að anda um nefið og staðfesti hann að áverkar sem um ræðir sæjust á ljósmyndum sem lögreglan tók og fylgja gögnum málsins. Mennirnir hefðu lamið hann og kýlt liggjandi í gólfinu, en síðan hefðu þeir horfið og hann ekki fundið þá. Fáum mínútum síðar hefði hann farið einn út af skemmtistaðnum, þar sem hann sá sömu menn aftur og aftur byrjuðu slagsmál, að hans sögn. Hann kvað meðákærða hafa komið út um tveimur mínútum síðar. Hann kvaðst hafa orðið smeykur við að sjá mennina aftur og slagsmál hefðu byrjað. A hefði verið fyrir utan ögrandi og kallað yfir hópinn. Slagsmál hefðu byrjað en hann kvaðst ekki muna eða hann vissi ekki nákvæmlega hvert upphafið var. Hann hefði tekið áhald upp af götunni eftir að A og meðákærði Raúl voru byrjaðir í slagsmálunum og notað áhaldið gegn A. Hann kvaðst ekki muna hversu oft hann lamdi A með áhaldinu, þar sem hann hefði verið svolítið drukkinn, eins og hann bar. Er hann tók áhaldið upp af götunni og beitti á A kvaðst hann aldrei hafa getað ímyndað sér að hann gæti valdið svona miklum skaða með því og hann hefði ekki talið áhaldið svo hættulegt. Hann kvaðst hafa orðið hræddur þar sem tveir aðilar hefðu áður ráðist á hann inni á skemmtistaðnum og hann verið með áverka í andliti eftir það. Hann hefði farið burt eftir þetta og verið hræddur og talið að fleiri gætu ráðist á sig. Hann kvaðst ekki hafa reynt að drepa A heldur hefði vakað fyrir honum að verja sig þar sem hann hefði verið í sjokki eftir að hafa verið laminn inni og hefði hann talið hugsanlegt að þessir aðilar héldu áfram að ganga í skrokk á honum. Spurður um hugsanlegar afleiðingar árásarinnar kvaðst hann ekki hafa getað ímyndað sér að hann gæti valdið jafn miklum skaða og raunin varð. Hefði vakað fyrir honum að drepa A þá hefði hann beitt áhaldinu öðruvísi og skýrði hann þetta nánar. Nánar spurður um stunguvopnið kvaðst ákærði ekki geta skýrt eða lýst vopninu nánar en hann staðfesti að hafa rissað upp teikningu af því og liggur hún fyrir meðal gagna málsins. Hann hefði verið drukkinn og ekki muna hvað hann gerði við áhaldið sem um ræðir. Ákærði kvað marga hafa verið stadda fyrir utan skemmtistaðinn og meðákærða Raúl hafa tekið þátt í slagsmálunum sem þar voru.
Meðal gagna málsins eru myndupptökur úr símum sem lögreglan aflaði og upptökur úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Upptökurnar voru skoðaðar undir aðalmeðferðinni og ákærði spurður út í þær. Hann staðfesti að vera maðurinn sem sést leggja til A. Myndbrotið af atburðinum er stutt og upphafið sést ekki, en þar má sjá ákærða slá til A og ákærði staðfesti að hafa haldið á áhaldinu er hann sló til hans. Á myndskeiðinu sést að átök eru hafin er ákærði kemur þar að klukkan 02:39. Spurður um þetta kvað hann A hafa verið ögrandi utandyra og „gert sig stóran“ en engin slagsmál hefðu verið hafin. Klukkan 02:53 sést ákærði í eftirlitsmyndavél á gangi í miðborginni og staðfesti hann fyrir dóminum að þar sjáist hann taka upp af götunni áhaldið sem hann beitti gegn A og lét falla stuttu síðar í götuna. Ákærði staðfesti að hann sæist á upptöku klukkan 03:09 og virtist þar taka upp áhaldið sem hann beitti á A. Spurður um þetta kvaðst hann ekki muna eftir þessu en hann kvaðst hafa verið á gangi í miðbænum stuttan tíma eftir þetta en síðan farið heim til sín, en hann myndi ekki hvað varð af áhaldinu.
Ákærði Raúl neitar sök á þeirri forsendu að hann hafi í greint sinn beitt sjálfsvörn. Hann kvaðst hafa ætlað upp á efri hæð skemmtistaðarins [X] á þessum tíma. Er hann kom að stiganum hefðu tveir menn staðið í vegi fyrir honum og hindrað för hans upp. Hann hefði talið þá hafa verið að hæðast að sér og spurt þá hvað væri í gangi og beðið þá að hleypa sér upp. Meðákærði Daniel hefði þá komið að en verið kýldur í andlitið og ákærði tekinn upp og hrint niður, en A hefði verið annar þessara manna. Ákærði lýsti miklum stærðarmun á sér og mönnunum, en hann hefði ekki getað varist af þeim sökum. Hann kvað mennina hafa ráðist á Daniel en ákærði ekki getað staðið upp til að koma honum til aðstoðar. Nokkrum mínútum síðar hefðu þeir meðákærði farið út af staðnum til að reykja, að hann minnti, og þá séð A ögrandi og lýsti hann þessu. Það næsta sem hann vissi væri að hann fékk högg svo hann missti gleraugun. Hann hefði reynt að verjast og þannig hefðu slagsmálin haldið áfram og hann hefði slegið A hnefahögg, eins og í ákæru greinir, en hann teldi að um sjálfsvörn hefði verið að ræða, þar sem tveir stórir menn hefðu komið og kýlt hann og hann glatað gleraugum sínum við það og orðið mjög hræddur við A sem væri mun hærri en ákærði. Nánar spurður hvort einhver hefði verið með A í för kvaðst hann ekki vita það, en margt fólk hefði verið þarna fyrir utan. Hann kvaðst ekki hafa séð hvað meðákærði aðhafðist á sama tíma þar sem búið hefði verið að kýla gleraugun af ákærða og hann séð illa frá sér, auk þess að vera sjálfur í slagsmálum. Hann myndi eftir áverkum á meðákærða, sem hann hefði hlotið þetta kvöld við það að vera kýldur í andlitið.
Ákærði Raúl staðfesti að hann sæist á upptökum, sem hann skoðaði í réttarhaldinu, þar sem sést er hann slær A, en aðdragandi og aðstæður hefðu verið eins og hann lýsti m.t.t. sjálfsvarnar og rakið var að framan. Vitnið A kvaðst hafa verið á [X] ásamt C, D og fleirum þetta kvöld. Einhver átök hefðu byrjað inni á staðnum og hann séð strák hlaupa að þeim, en hann hefði þá staðið upp og gengið í veg fyrir strákinn, sem hefði verið ákærði Raúl, og ýtt honum frá sér tvisvar sinnum og sagt honum að hætta þessu. Raúl hefði fallið í gólfið en staðið á fætur og reynt að kýla vitnið og hann þá ýtt honum aftur frá sér en hann hefði e.t.v. ýtt Raúl þrisvar sinnum frá sér. Hann kvaðst hafa séð C í átökum skammt frá en hann hefði lítið fylgst með þeim og gæti ekki lýst þeim nánar. Svo hefði ástandið róast og eftir þetta og á leiðinni út, innan við 5 mínútum síðar að hann taldi, hefði C verið á eftir honum og lýsti hann því er þau D biðu eftir C úti. Hann hefði þá heyrt einhvern ávarpa sig og spyrja „was this you?“ og fengið högg í kjölfarið og húfan sem hann bar hefði endað fyrir andliti hans svo hann sá ekkert en mörg högg tekið að dynja á honum alls staðar og hann reynt að verjast, en hann hefði ekki slegið frá sér í þessari atburðarás. Hann kvað Raúl hafa komið aftan að sér og sagt „was this you?“ og síðan ráðist á sig. Hann kvaðst ekki hafa sýnt neina ögrun fyrir utan skemmtistaðinn eins og ákærðu báru og sagði engin samskipti hafa átt sér stað milli sín og ákærðu áður en árásin hófst. Stuttu síðar hefði hann tekið húfuna af sér, eftir að árásin var yfirstaðin, og sest niður og þá fundið að hann átti erfitt með að anda og fleira. Hann hefði farið í nálægan sjúkrabíl og verið fluttur á slysadeild og hann ekki vitað af stungunum fyrr en við læknisskoðun á slysadeild. Hann lýsti sjúkrasögu sinni vegna þessa og ástandi eftir atburðinn og aðstoð sem hann hefur fengið vegna þessa. Hann lýsti þrekleysi og fleiri afleiðingum árásarinnar en kvaðst finna fyrir bata sem hann lýsti.
Vitnið D kvaðst hafa verið með A á skemmtistaðnum á þessum tíma. Hún kvað slagsmál hafa verið inni á staðnum, þar sem um sex manns tóku þátt, en hún vissi ekki hvort þeir sem veittust að A fyrir utan staðinn hefðu verið meðal þessara sex sem hún nefndi. Hún kvað A hafa komið og sótt sig og þau farið saman út af staðnum og þá hefði verið ráðist á A og hann stunginn, en engin orðaskipti hefðu átt sér stað áður. Hún kvað tvo menn hafa elt þau A út og er þangað kom hefðu þeir saman byrjað að berja A og hann verið stunginn, en hún kvaðst ekki hafa séð áhaldið sem beitt var á A. A hefði ekki slegið á móti en gengið í burtu er þessu lauk. Hún lýsti því að A hefði átt erfitt með andardrátt eftir árásina en sjúkrabíll hefði verið nærri og hann verið fluttur á sjúkrahús. D þekkti sig á myndbandsupptöku frá vettvangi.
Vitnið C kvaðst ekki neita því að hafa tekið þátt í átökum inni á skemmtistaðnum á þessum tíma, en hann myndi ekki eftir þeim. Stuttu síðar hefði hann farið út til að vera ekki vísað út. Er þangað kom hefði hann farið í burtu ásamt vini sínum og því ekki séð það sem gerðist utandyra við skemmtistaðinn á þessum tíma.
Vitnið E var í dyragæslu á þessum tíma en sá ekki það sem gerðist fyrir utan skemmtistaðinn.
Vitnið F, […], lýsti því er Daniel og Raúl voru í stiga inni á skemmtistaðnum, og A kom að og ýtti Raúl. Daniel hefði þá komið og spurt A hvað hann væri að gera. A hefði þá kýlt Daniel í andlitið og átök hafist, en þeir hefðu fljótt verið skildir í sundur. Slagsmálin hefðu síðan byrjað aftur og Daniel verið felldur í gólfið þar sem sparkað var í höfuð hans. Þeir hefðu verið skildir í sundur og allir farið út af staðnum, en vitnið orðið eftir inni og hann gæti ekki borið um það sem gerðist utandyra.
Vitnið G lýsti því er hann sá tvo menn hrinda Daniel í gólfið inni á skemmtistaðnum auk þess sem sparkað var í hann liggjandi á gólfinu. Kærasta hans hefði stöðvað hann í að aðstoða Daniel. Hann hefði ekki orðið vitni að því sem gerðist fyrir utan skemmtistaðinn.
Vitnið H var dyravörður á nálægum bar þetta kvöld. Hann lýsti því er hann sá átök í hóp ungmenna að slást, eins og hann lýsti þessu, og hann hefði þá tekið upp síma sinn og myndað það sem fram fór. Hann kvaðst hafa verið í um 30 metra fjarlægð og því ekki geta sagt að hann hefði séð það sem átti sér stað. Hann kvaðst hafa sent lögreglunni upptökuna.
Vitnið I kvaðst hafa verið fyrir utan [X] á þessum tíma og þá séð hnefa á lofti og séð að einstaklingur hefði verið barinn, en hann hefði ekki séð hvort einhverju áhaldi var beitt. Hann kvað tvo menn hafa veist að manninum og eins og annar árásarmannanna hefði verið að reyna að halda þeim sem varð fyrir árásinni. Þetta hefði gerst mjög hratt og lokið er stúlka kallaði „er eitthvað að þér“ og þá hefðu mennirnir hlaupið í burtu og sá sem varð fyrir árásinni hefði verið dreginn inn á [X] og dyrunum lokað.
Vitnið J kvaðst hafa verið inni á [X] á þessum tíma er hann sá einhvern berja ákærða Daniel sem féll í gólfið, en hann vissi ekki hvort hann rotaðist eða ekki. Er Daniel lá í gólfinu hefði annar maður byrjað að sparka í höfuð hans. Er hann ætlaði að segja vini sínum frá þessu hefðu Daniel og árásarmennirnir verið farnir út. Hann sá ekki það sem gerðist utandyra.
Vitnið K kvaðst hafa verið fyrir utan skemmtistaðinn á þessum tíma er hann sá tvo stráka ráðast á einn. Hann kvað þetta hafa gerst mjög hratt og ekki hafa séð hvort sá sem varð fyrir árásinni hefði hótað eða átt upptök að því sem gerðist, en sá hefði ekki veitt neina mótspyrnu. Hann kvaðst hafa séð manninn stunginn í bakið en hann kvaðst þá hafa farið inn á skemmtistaðinn.
Vitnið L var yfirdyravörður á [X] á þessum tíma. Hann kvaðst hvorki hafa séð það sem í ákæru greinir né átökin sem lýst hefur verið inni á staðnum þetta kvöld. Meðal gagna málsins er vottorð M sálmeðferðarfræðings, dagsett 6. ágúst 2022, en vottorðið er ritað eftir eitt viðtal við A. M staðfesti vottorðið fyrir dóminum og skýrði, en hann lýsti afleiðingum árásarinnar á A og er það einkum kvíði sem hann upplifir og önnur einkenni þekkt í kjölfar árásar, sem hann skýrði einnig.
Lögreglumaður nr. […] ritaði frumskýrslu málsins sem hann staðfesti fyrir dóminum og lýsti aðgerðum lögreglu á vettvangi. Hann lýsti samskiptum við A á vettvangi og er hann fór með sjúkrabíl í burtu. Hann hitti A aftur á slysadeild þar sem hann tók mynd af áverkum hans. Hann lýsti árangurslausri leit að árásarvopni á vettvangi. Meðal gagna málsins eru gögn frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. N lögreglufulltrúi vann gögnin sem hann skýrði og staðfesti fyrir dóminum.
Meðal gagna málsins eru tvö læknisvottorð fyrir A, dagsett 8. og 22. mars 2022. O sérfræðilæknir ritaði bæði vottorðin þar sem lýst er áverkunum sem greindust á A við komu á slysadeild á þessum tíma, en áverkarnir eru hinir sömu og lýst er í ákærunni. O skýrði og staðfesti vottorðin fyrir dóminum. Skoðun leiddi í ljós að A hefði verið með samfallin lungu báðum megin. Hann kvað sér hafa dottið í hug að áverkinn gæti verið eftir skrúfjárn og skýrði hann það álit sitt. Hann kvað áverkann lífshættulegan og skýrði hann þetta. Hann kvað batahorfar góðar varðandi líkamlegar afleiðingar.
Ákæra lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsett 8. júní 2022 Sannað er með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemina sem í báðum köflum ákæru greinir og eru brotin þar rétt færð til refsiákvæða. Skírskotað er til ákærunnar um lýsingu málavaxta.
Niðurstaða ákæru dagsettrar 30. maí 2022 Ákærði Daniel neitar sök en framburður hans um upphaf átakanna fyrir utan skemmtistaðinn [X] er mjög óljós og kvaðst hann ekki vita eða muna hvert upphafið var og þá kvaðst hann ekki muna hversu oft hann lamdi A með áhaldinu og tók fram að hann hefði verið „svolítið drukkinn“. Þá bar hann að slagsmálin hefðu byrjað vegna þess að hann hefði orðið smeykur við að sjá mennina sem gengið höfðu í skrokk á honum áður inni á skemmtistaðnum [X], eins og rakið hefur verið.
Það er mat dómsins að ekkert sé fram komið í málinu sem bendi til þess að A hafi aðhafst nokkuð það utan dyra við skemmtistaðinn á þessum tíma sem skýrt geti ástæðu árásar ákærðu á hann.
Ráða má af gögnum málsins og vitnisburði sem rakinn hefur verið að ákærði Daniel varð fyrir líkamsárás inni á skemmtistaðnum áður en hann fór þaðan út og hlaut við það áverka, m.a. í andliti. Þá virðist ákærði Raúl einnig hafa átt í útistöðum inni á skemmtistaðnum.
Þótt engu verði slegið föstu um tilefni líkamsárásarinnar á A virðist skýringa helst að leita í því sem gerðist inni á skemmtistaðnum en að mati dómsins var árásin tilefnislaus því jafnvel þótt gengið sé út frá því að báðir ákærðu hafi orðið fyrir árás eða eftir atvikum áreiti inni á skemmtistaðnum réttlætir það ekki líkamsárás þeirra á A.
Vitnið A kvað hafa verið ráðist á sig tilefnislaust fyrir utan skemmtistaðinn. Trúverðugur vitnisburður hans um þetta fær stoð í vitnisburði D, I og K og af myndskeiðum af atburðinum. Þrátt fyrir að upphafið sjáist ekki á myndskeiðunum sést þar hvar ákærðu ganga í skrokk á A sem virðist engum vörnum hafa getað komið við heldur bar hann hendur fyrir höfuð sér, en húfa hans huldi andlit hans eins og rakið var að framan.
Samkvæmt þessu er sannað með játningu beggja ákærðu og með trúverðugum vitnisburði A sem fær stoð í vitnisburði D, I og K og með myndskeiðum af atburðinum sem báðir ákærðu hafa staðfest fyrir dóminum að þar sjáist þeir viðhafa háttsemina sem í ákæru greinir að þeir hafi, hvor um sig, gerst sekir um og þeim er gefin að sök í ákærunni að teknu tilliti til þess sem rakið verður um heimfærslu brots ákærða Daniels til refsiákvæða og tilraun til manndráps. Þá er sannað með sama vitnisburði og gögnum að ákærðu veittust í félagi að A eins og ákært er fyrir.
Ekkert styður neitun ákærða Raúls á grundvelli neyðarvarnar og er þeirri málsástæðu fyrir neitun hans hafnað.
Með vísan til læknisvottorða sem rakin voru og með vitnisburði O sérfræðilæknis er sannað að afleiðingar líkamsárásarinnar á A voru þær sem í ákæru greinir.
Brot ákærða Raúls varðar við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga eins og í ákæru greinir.
Ákærða Daniel er gefin að sök tilraun til manndráps og brotið talið varða við 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði Daniel hefur staðfastlega neitað því að fyrir honum hafi vakað að ráða A bana og kvaðst ekki hafa getað ímyndað sér að hann gæti valdið jafn miklum skaða og raunin varð er hann greip áhaldið upp af götunni og beitti því á A. Ákærða er gefið að sök að hafa veist að A með ítrekuðum höggum í efri búk. Rannsóknargögn frá tæknideild lögreglu sýna að höggin komu á bak A og voru a.m.k. sex talsins en það er fjöldi gata sem náðu í gegnum jakka sem A klæddist á þessum tíma. Ráða má hið sama af ljósmyndum sem lögreglan tók af áverkum A á slysadeild. Sannað er með læknisvottorðum og með vitnisburði O sérfræðilæknis að samfall á lungum A var lífshættulegur áverki. Áhaldið sem ákærði notaði við árásina fannst ekki og verður engu slegið föstu um hvers kyns það var. Hins vegar er ljóst af því sem rakið hefur verið að af beitingu áhaldsins hlaust lífshættulegur áverki.
Ekkert er fram komið sem bendir til þess, gegn neitun ákærða, að fyrir honum hafi vakað að ráða A bana. Þá er það mat dómsins með hliðsjón af öllu framanrituðu, m.a. staðsetningu stunguáverkanna á baki A, að ekki sé unnt með vissu að slá því föstu að ákærða hlyti að hafa verið ljóst að bani kynni að hljótast af atlögunni og er hann því sýknaður af tilraun til manndráps. Samkvæmt þessu ber að sakfella ákærða fyrir stórfellda líkamsárás sem varðar við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en færa má háttsemina undir það lagaákvæði þótt þess sé ekki getið í ákæru, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði Daniel hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Brot hans samkvæmt ákæru dagsettri 30. maí 2022 er alvarlegt og líkamsárásin tilefnislaus og ofsafengin og afleiðingarnar alvarlegar. Ákærðu stóðu saman að árásinni og er hlutur ákærða Daniels mun alvarlegri en þáttur meðákærða og verður vegna þessa höfð hliðsjón af 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga við refsiákvörðun. Ákærði hefur játað brot samkvæmt ákæru dagsettri 8. júní 2022 og er litið til þess við refsiákvörðun. Refsing ákærða Daniels er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og þykir þannig hæfilega ákvörðuð fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Með vísan til 76. gr. almennra hegningarlaga skal draga frá refsivistinni óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 9. mars 2022 til dagsins í dag að telja með fullri dagatölu.
Ákærði Raúl hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Líkamsárásin var tilefnislaus. Ákærðu stóðu saman að árásinni og verður við refsiákvörðun höfð hliðsjón af 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í þrjá mánuði sem rétt þykir að skilorðsbinda eins og nánar greinir í dómsorði.
A á rétt á miskabótum úr hendi ákærða Daniels á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og þykja miskabæturnar hæfilega ákvarðaðar 1.500.000 krónur auk vaxta svo sem í dómsorði greinir en dráttarvextir reiknast frá 7. júlí 2022, er mánuður var liðinn frá birtingu bótakröfunnar fyrir ákærða. Aðrir kröfuliðir í bótakröfu A sem hefur verið andmælt eru ekki studdir nægum gögnum og er sá hluti kröfunnar ódómtækur og ber að vísa honum frá dómi. Þá greiði ákærði 1.688.229 króna réttagæsluþóknun Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns, skipaðs réttargæslumanns A.
A á rétt á miskabótum úr hendi ákærða Raúls á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og þykja miskabæturnar hæfilega ákvarðaðar 400.000 krónur auk vaxta svo sem í dómsorði greinir en dráttarvextir reiknast frá 7. júlí 2022, er mánuður var liðinn frá birtingu bótakröfunnar fyrir ákærða. Aðrir kröfuliðir í bótakröfu A sem hefur verið andmælt eru ekki studdir nægum gögnum og er sá hluti kröfunnar ódómtækur og ber að vísa honum frá dómi. Þá greiði ákærði Raúl A 200.000 krónur í málskostnað. B á rétt á miskabótum úr hendi ákærða Daniels á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og þykja miskabæturnar hæfilega ákvarðaðar 500.000 krónur auk vaxta svo sem í dómsorði greinir en dráttarvextir reiknast frá 7. júlí 2022, er mánuður var liðinn frá birtingu bótakröfunnar fyrir ákærða. Þá greiði ákærði Daniel Gunnari Gunnarssyni 725.400 krónur í málskostnað og 22.080 krónur í aksturskostnað lögmanns sem flutti bótakröfuna fyrir dómi. Ákærði Daniel greiði 44.532 krónur í útlagðan sakarkostnað ákæruvaldsins. Ákærðu greiði óskipt 50.720 krónur í útlagðan sakarkostnað ákæruvaldsins. Ákærði Daniel greiði 2.806.740 króna málsvarnarlaun Oddgeirs Einarssonar lögmanns og 30.988 krónna aksturskostnað verjandans og 580.878 króna málsvarnarlaun Áslaugar Láru Lárusdóttur lögmanns, verjanda ákærða undir rannsókn málsins.
Ákærði Raúl greiði 1.620.432 króna málsvarnarlaun Þorgils Þorgilssonar lögmanns. Tekið hefur verið tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknunar lögmanna. Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari flutti málið fyrir ákæruvaldið. Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð
Ákærði, Daniel Zambrana Aquilar, sæti fangelsi í tvö ár og sex mánuði en frá refsivistinni skal draga óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 9. mars 2022 til dagsins í dag að telja með fullri dagatölu.
Ákærði, Raúl Ríos Rueda, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið í tvö ár frá birtingu dómsins að telja og falli refsingin niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði Daniel greiði A, kt. […] 1.500.000 krónur í miskabætur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. mars 2022 til 7. júlí 2022 en frá þeim degi með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Þá greiði ákærði Daniel 1.688.229 króna réttagæsluþóknun Guðmundar Njáls Guðmundssonar lögmanns.
Ákærði Raúl greiði A, kt. […] 400.000 krónur í miskabætur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. mars 2022 til 7. júlí 2022 en frá þeim degi með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Þá greiði ákærði A 200.000 krónur í málskostnað.
Ákærði Daniel greiði B, kt. 121098-2109 500.000 krónur í miskabætur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 4. júlí 2021 til 7. júlí 2022 en frá þeim degi með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Þá greiði ákærði Daniel Gunnari Gunnarssyni 725.400 krónur í máskostnað og 22.080 krónur í aksturskostað lögmanns sem fór með bótakröfuna. Ákærði Daniel greiði 44.532 krónur í útlagðan sakarkostnað ákæruvaldsins. Ákærðu greiði óskipt 50.720 krónur í útlagðan sakarkostnað ákæruvaldsins.
Ákærði Daniel greiði 2.806.740 króna málsvarnarlaun Oddgeirs Einarssonar lögmanns og 30.988 króna aksturskostnað verjandans og 580.878 króna málsvarnarlaun Áslaugar Láru Lárusdóttur lögmanns, verjanda ákærða undir rannsókn málsins. Ákærði Raúl greiði 1.620.432 króna málsvarnarlaun Þorgils Þorgilssonar lögmanns.
Guðjón St. Marteinsson