Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-2386/2022:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ashraf Almansor

(Svavar Daðason lögmaður)

Skjalafals.

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 12. september sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 24. maí 2022, á hendur Ashraf Almansor, kt. [...], [...], [...], fyrir skjalafals með því að hafa, þriðjudaginn 30. október 2018, framvísað í blekkingarskyni við starfsmenn Útlendingastofnunar, vegna umsóknar sinnar um dvalarleyfi hér á landi, grunnfölsuðu sýrlensku sakavottorði nr. 633513, útgefnu á nafn ákærða þann 27. desember 2015, og breytifalsaðri þýðingu sakavottorðsins.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Verjandi ákærða krefst aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa sem öll verði skilorðsbundin og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.

Málsatvik

Samkvæmt skýrslu flugstöðvardeildar lögreglustjórans á Suðurnesjum barst vegabréfarannsóknarstofu lögreglustjórans beiðni frá Útlendingastofnun 1. júlí 2019 um að taka til skoðunar sýrlenskt skjal og skjalaþýðingu með tilliti til áreiðanleika skjalanna. Það var niðurstaða rannsóknarinnar að hvorugt skjalið hefði öryggispappír sem grunnefni. Samanburðargögn gefi til kynna að raðnúmer eigi að vera prentað með letterpresstækni en það sé ekki gert. Bakgrunnsprent eigi að vera prentað með offset-prenttækni en svo sé ekki. Þá sé ekkert gjaldmerkjanna á skjölunum prentað með offset-prenttækni og ekkert þeirra sé með öryggispappír sem grunnefni. Öryggisþræðir séu áprentaðir á gjaldmerkin. Allt sé þetta í miklu ósamræmi við samanburðargögn. Í blautstimpli utanríkisráðuneytisins sé stafsetningarvilla og lögun hans sé ekki í fullu samræmi við samanburðargögn. Leitað hafi verið álits lögreglu í Hollandi, Noregi og Lúxemborg sem hafi verið einróma um að atriði í skjalinu víki frá samanburðargögnum og að um falsað skjal sé að ræða. Niðurstaðan sé því sú að skjölin séu afar vafasöm og á þeim báðum séu fölsuð atriði. Að öllum líkindum sé sýrlenska skjalið grunnfalsað, þ.e. að öllu leyti falsað. Erfitt sé að fullyrða um skjalaþýðinguna en stimplar og gjaldmerki á henni séu fölsuð.

Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu þar sem hann hafnaði því að skjölin væru fölsuð. Hann kvað sjötugan frænda sinn hafa farið í innanríkisráðuneytið í Sýrlandi og sótt gögnin sem hann hefði greitt fyrir 400 dollara. Hann hefði sjálfur sótt gögnin í Þýskalandi. Hann hefði svo framvísað þessum gögnum hjá Útlendingastofnun.

Framburður fyrir dómi Ákærði neitaði sök fyrir dómi en skoraðist undan því að gefa skýrslu í málinu.

Lögreglumaður nr. 0229 skýrði frá rannsókn sinni á skjölunum sem hefðu borist frá Útlendingastofnun. Hann hefði langa reynslu af skjalarannsóknum og skoðun hans hefði leitt í ljós að sakavottorðið sem um ræði hafi verið grunnfalsað skjal. Þá greindi hann frá gagnagrunnum þar sem hægt væri að finna öryggisatriði til samanburðar. Í þessu tilviki hefðu þau ekki verið til staðar. Hann hefði leitað aðstoðar erlendis frá og þar hefði niðurstaðan verið sú sama.

Niðurstaða

Ákærða er gefið að sök skjalafals með því að hafa framvísað í blekkingarskyni grunnfölsuðu sýrlensku sakavottorði og breytifalsaðri þýðingu sakavottorðsins. Ákærði neitar sök. Hann gaf ekki skýrslu fyrir dómi en hjá lögreglu neitaði hann því að um fölsun væri að ræða.

Ágreiningslaust er að ákærði framvísaði framangreindum gögnum við starfsmenn Útlendingastofnunar er hann sótti um dvalarleyfi hér á landi. Í málinu liggja fyrir gögn sem sýna að umrædd skjöl hafa ekki þau öryggisatriði sem þeim ber að hafa. Þá hafa verið lögð fram gögn frá Þýskalandi, þar sem ákærði dvaldi áður, þar sem fram kemur að gögnin voru ekki lögð fram fyrir þarlend yfirvöld en ákærði vísaði til þess við skýrslugjöf hjá lögreglu að þetta hefði ekki verið vandamál þar.

Ákærði hefur ekki lagt fram frekari gögn eða skýrt nánar hvernig hann fékk framangreind skjöl. Þá hefur hann ekki veitt nánari upplýsingar um hver útvegaði honum skjölin önnur en að um sjötugan frænda sé að ræða. Hann vísaði til þess hjá lögreglu að hægt væri að spyrja yfirvöld í Sýrlandi en landið væri „í klessu“. Með hliðsjón af skýrslu lögreglu og framburði lögreglumanns fyrir dóminum er sannað að um fölsun er að ræða. Þá verður að telja ótrúverðugt að ákærði hafi talið að framangreind skjöl væru ófölsuð.

Með hliðsjón af öllu framanrituðu telst því sannað að ákærði hafi framvísað framangreindum fölsuðum skjölum við starfsmenn Útlendingastofnunar til þess að hafa áhrif á meðferð umsóknar sinnar um dvalarleyfi og þar með blekkja þá í lögskiptum. Verður ákærði því sakfelldur samkvæmt ákæru og er brot hans þar rétt heimfært til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í [...] [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 17. maí 2022, hefur ákærði ekki áður sætt refsingu og verður það metið honum til refsimildunar, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Svavars Daðasonar lögmanns, 697.500 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun málsvarnarlauna hefur verið tekið tillit til málsvarnarlauna fyrri verjanda ákærða. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Ashraf Almansor, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Svavars Daðasonar lögmanns, 697.500 krónur.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.1. mgr. 155. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.