Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-6329/2020:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Guðlaugi Helga Valssyni

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál.

Ákærði dæmdur í níu mánaða fangelsi vegna aksturs sviptur ökurétti.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 20. apríl sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. september 2020 á hendur Guðlaugi Helga Valssyni, kt. […], […], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 27. janúar 2020, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Borgarveg í Reykjavík, við Spöng, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. (M. […]) Telst brot þetta varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

I

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot það sem honum er gefið að sök í ákæru. Um málsatvik vísast til ákæruskjals. Er játning ákærða studd sakargögnum. Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotið sem er réttilega fært til refsiákvæða í ákæru.

II

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 14. apríl 2021, á hann að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2000 en þar af koma eftirgreind tilvik til skoðunar við ákvörðun refsingar í máli þessu. Er þá einnig litið dóms og viðurlagaákvörðunar er lögð voru fram í málinu en ekki er að finna á framlögðu sakavottorði en eru talin skipta máli við ákvörðun refsingar ákærða, sbr. dóm Landsréttar í máli ákæruvaldsins gegn ákærða nr. […]. Með dómi 12. janúar 2000 var ákærði dæmdur til sektarrefsingar fyrir að aka sviptur ökurétti, en hafði áður gengist undir sátt hjá sýslumanni um greiðslu sektar og tímabundna ökuréttarsviptingu vegna hraðaksturs. Með viðurlagaákvörðun 14. mars 2001 samþykkti ákærði á ný sektargreiðslu fyrir að aka sviptur ökurétti, en hafði þá jafnframt samþykkt greiðslu sektar og tímabundna sviptingu ökuréttar með sátt hjá lögreglustjóra fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal fyrir að aka sviptur ökurétti. Með dómi Hæstaréttar 14. apríl 2005 var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ýmis brot gegn sömu lögum, þar á meðal sviptingarakstur, en hafði áður samþykkt sektargreiðslu og tímabundna sviptingu ökuréttar með sátt hjá lögreglustjóra, meðal annars fyrir hraðakstur. Með dómi 28. október 2008 var ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi og sviptur ökurétti tímabundið fyrir ýmis brot, þar á meðal akstur sviptur ökurétti, en hann hafði þá áður með tveimur sáttum hjá lögreglustjóra samþykkt greiðslur sekta og tímabundnar sviptingar ökuréttar, meðal annars fyrir að aka undir áhrifum áfengis og ávana-og fíkniefna. Með dómi 16. júní 2010 var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum, þar á meðal fyrir sviptingarakstur. Með þeim brotum rauf hann einnig skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt vegna afplánaðrar refsingar samkvæmt eldri dómum. Áður en til þess kom hafði ákærði verið sviptur ökurétti ævilangt með dómi 18. júní 2009 fyrir önnur umferðarlagabrot. Með dómi 19. maí 2011 var ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, meðal annars fyrir að aka sviptur ökurétti, en var ekki gerð sérstök refsing. Um var að ræða hegningarauka samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga við fyrrgreindan dóm 16. júní 2010. Með dómi 7. febrúar 2013 var ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og sviptingarakstur. Með dómi 19. desember sama ár var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti, en með dómnum var einnig dæmd upp skilorðsbundin reynslulausn sem honum hafði þá verið veitt af óafplánaðri refsingu eldri dóma. Með dómi 9. febrúar 2016 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð vegna ýmissa brota, þar á meðal vegna sviptingaraksturs. Með dómi 18. maí sama ár var honum svo gerður hegningarauki við dóminn 9. febrúar það ár, og þá var hann dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti. Með dómi 14. mars 2017 var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð vegna ýmissa brota, þar á meðal fyrir að aka þrívegis sviptur ökurétti. Eitt þeirra brota framdi ákærði áður en dómurinn 18. maí 2016 gekk og var honum að því leyti gerður hegningarauki. Loks var ákærði með dómi Landsréttar 4. desember 2020, í máli nr. […] dæmdur í 20 mánaða fangelsi vegna aksturs sviptur ökurétti. Með brotunum var ákærði talinn hafa rofið skilyrði reynslulausnar sem honum var veitt til eins árs á 140 daga eftirstöðvum refsingar samkvæmt fjórum eldri dómum og honum ákveðin refsing í einu lagi vegna hinnar óafplánuðu refsingar og þeirra brota sem hann var sakfelldur fyrir, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar og 60. gr. almennra hegningarlaga. Með dómnum staðfesti Landsréttur sakfellingu héraðsdóms vegna aksturs sviptur ökurétti og koma sjónarmið um hegningarauka því ekki til álita við ákvörðun refsingar ákærða nú.

Samkvæmt dómvenju og að sakaferli ákærða virtum, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, fer um refsingu ákærða nú líkt og hann hafi í tíu tilvikum áður gerst sekur um að aka sviptur ökurétti. Þykir refsing ákærða því hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði. Ákærði hefur lagt fram gögn um persónulega hagi sína og bera þau með sér að ákærði stundi náms- og starfsendurhæfingu og félagsstarf. Samkvæmt því hafa jákvæðar breytingar orðið á högum ákærða að undanförnu. Allt að einu þykja, með vísan til sakaferils ákærða sem þegar er rakinn, ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans að hluta eða í heild sinni.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 250.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi.

Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Guðlaugur Helgi Valsson, sæti fangelsi í níu mánuði.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls
Sigríður Elsa Kjartansdóttir (sign)

Kristjánssonar lögmanns, 250.000 krónur.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.1. mgr. 70. gr.78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 164. gr.
Lög nr. 15/2016 Lög um fullnustu refsinga 1. mgr. 82. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.