Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-147/2020:

Héraðssaksóknari

(Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)

gegn

Magnúsi Inga Guðmundssyni

(Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)

Peningaþvætti. Vopnalagabrot. Fíkniefnalagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum og peningaþvætti. Ákærði játaði brot sín skýlaus.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 13. janúar sl. var höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dags. 12. nóvember 2019, á hendur: „[…] og Magnúsi Inga Guðmundssyni, kt. [...], [...] fyrir eftirtalin meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum og peningaþvætti:

I

Á hendur ákærðu […] og Magnúsi fyrir brot tengd rekstri félagsins M., kt. [...], nú afskráð, á rekstrarárinu 2011:

A

[…]

B

Á hendur ákærða Magnúsi sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni félagsins frá 8. júní 2011 fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum þess vegna uppgjörstímabilanna maí – júní til og með nóvember – desember rekstrarárið 2011 og ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var eða innheimta bar í rekstri félagsins vegna sömu uppgjörstímabila í samræmi við fyrirmæli IX kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð 3.597.481 króna, sem sundurliðast svo: Rekstrarárið 2011 Uppgjörstímabil Vangoldinn VSK maí – júní kr. 473.245 júlí – ágúst kr. 74.103 september – október kr. 288.915 nóvember – desember kr. 3.169.438 kr. 4.005.701

C

Á hendur ákærða Magnúsi sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni félagsins frá 8. júní 2011 fyrir að hafa vanrækt að standa skil á skattframtali félagsins gjaldárið 2012 vegna rekstrarársins 2011. Þannig taldi hann ekki fram til skatts fyrir hönd félagsins tekjur sem skattskyldar eru samkvæmt B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og kom með því félaginu undan greiðslu tekjuskatts, samtals að fjárhæð 3.716.278 krónur, sem sundurliðast svo:

Rekstrarárið 2011 Rekstrartekjur: kr. 21.531.392 Möguleg rekstrargjöld: kr. 650.000 Tekjuskattsstofn kr. 20.881.392 Áætlaður tekjuskattsstofn með álagi: kr. 2.300.000 Vanframtalinn tekjuskattsstofn: kr. 18.581.392 Vangoldinn tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 20% kr. 3.716.278

D

1 […]

  1. Á hendur ákærða Magnúsi sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni félagsins frá 8. júní 2011 fyrir að hafa vanrækt að færa bókhald fyrir félagið frá 8. júní rekstrarárið 2011 þannig að uppfyllti kröfur laga í meginatriðum og ekki varðveitt bókhaldsgögn þess með fullnægjandi hætti.

E

1 […]

  1. Á hendur ákærða Magnúsi sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni félagsins frá 8. júní 2011 fyrir peningaþvætti með því að hafa nýtt ávinning af brotum samkvæmt ákæruköflum I-B og I-C, samanlagt að fjárhæð kr. 7.485.336, í þágu atvinnurekstrarins eða í eigin þágu.

    Brot ákærðu samkvæmt ákæruköflum I-A og I-B teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

    Brot ákærða Magnúsar samkvæmt ákærukafla I-C telst varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

    Brot ákærðu samkvæmt ákærukafla I-D teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 36. og 1. og 2. tölulið 37. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald.

    Brot ákærðu samkvæmt ákærukafla I-E teljast varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

II

Á hendur ákærðu […] fyrir að hafa: […]“

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingu er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Í þinghaldi 13. janúar sl. var mál þetta klofið frá máli nr. S-[...], sbr. heimild í 2. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008, og fékk þá ofangreint málsnúmer S-147/2020.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín samkvæmt I. kafla B, C, D1 og E2. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Í I. kafla ákæru B er samanlögð fjárhæð virðisaukaskatts sem ákærði stóð ekki skil á röng og í ósamræmi við þá sundurliðun sem fylgdi þar á eftir. Sú tala sem þar er tilgreind sem samanlögð fjárhæð vangoldins virðisaukaskatts fyrir nánar tilgreind uppgjörstímabil er þó rétt og í samræmi við gögn málsins. Engin athugasemd var gerð við þetta við rekstur málsins og kemur það af framangreindum ástæðum ekki að sök.

Við ákvörðun refsingar er litið til skýlausrar játningar ákærða á rannsóknarstigi og hér fyrir dómi. Samkvæmt sakavottorði ákærða var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjaness, uppkveðnum 16. ágúst 2013, dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir stórfelld skattalagabrot og bókhaldsbrot. Var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Dómurinn hefur því ekki ítrekunaráhrif á brot ákærða í máli þessu en sakaferill ákærða hefur þó áhrif á refsiákvörðun, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að auki er litið til 6. tl. 1. mgr. 70. gr. laganna, en um beinan ásetning var að ræða. Þykir refsing ákærða með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 hæfilega ákveðin fangelsi í tíu mánuði en fresta skal fullnustu sjö mánaða refsingarinnar og hún falli niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignaskatt verður ákærða jafnframt gerð sektarrefsing. Brot gegn ákvæðunum varðar sektum, sem skulu aldrei vera lægri en nemur tvöfaldri fjárhæð vanskilanna og ekki hærri en tífaldri fjárhæðinni. Brot ákærða teljast stórfelld, en litið er til 3. mgr. 262. gr. laga nr. 19/1940 og þess að um skattsvik var að ræða. Verður fjárhæð því miðuð við þrefalda fjárhæð vanskila. Ber ákærða að að greiða 23.200.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 300 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ingu Lillýjar Brynjólfsdóttur lögmanns, eins og nánar greinir í dómsorði.

Sigríður Hjaltested héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Magnús Ingi Guðmundsson, sæti fangelsi í tíu mánuði en fresta skal fullnustu sjö mánaða refsingarinnar og hún falli niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði greiði 23.200.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 300 daga.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ingu Lillýjar Brynjólfsdóttur lögmanns, 277.760 krónur.

Sigríður Hjaltested (sign.)

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.77. gr.1. mgr. 262. gr.2. mgr. 262. gr.3. mgr. 262. gr.264. gr.
Lög nr. 50/1988 Lög um virðisaukaskatt 1. mgr. 40. gr.
Lög nr. 145/1994 Lög um bókhald 36. gr.37. gr.
Lög nr. 90/2003 [Lög um tekjuskatt]1) 7. gr.2. mgr. 109. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 2. mgr. 169. gr.