Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-42/2019:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sigurði Þórarinssyni

Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Ökuréttarsvipting. Skilorðsbundnir dómar. Umferðarlagabrot. Vörslur.

Ákærði var sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og að aka í fimm skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Mál   þetta,   sem   dómtekið   var   í   dag,   er   höfðað   með   ákæru,   útgefinni   af lögreglustjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   22.   janúar   2019,   á   hendur   Sigurði Þórarinssyni, kt. [...],[...], Reykjavík, fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2018:

  1. Fyrir   umferðar-   og   fíkniefnalagabrot,   með   því   að   hafa   aðfaranótt sunnudagsins 18. febrúar ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (amfetamín í blóði 65 ng/ml, kókaín 95 ng/ml og MDMA 125 ng/ml ) vestur Hringbraut í Reykjavík að gatnamótum Njarðargötu, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 0,08 g af kókaíni sem lögregla fann eftir leit.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/ 1987 og við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.

  2. Fyrir   umferðarlagabrot,   með   því   að   hafa   laugardaginn   3.   mars   ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist MDMA 575 ng/ml ) á bifreiðastæði við Bláa Lónið, Grindavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  3. Fyrir   umferðarlagabrot,   með   því   að   hafa   þriðjudaginn   31.   júlí   ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 70 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,3 ng/ml) suður Tryggvagötu í Reykjavík að húsi nr. 13, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða við 1. sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  4. Fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 2. ágúst ekið bifreiðinni [...] án skráningarmerkja og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 95 ng/ml og MDMA 55 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,1 ng/ml) austur Hverfisgötu   í   Reykjavík   við   Klapparstíg,   þar   sem   lögregla   stöðvaði aksturinn   og   jafnframt   á   sama   tíma   haft   í   vörslum   sínum   1,24   g   af maríjúana-kannabisi, sem ákærði framvísaði.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., og 1. mgr. 63. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/ 1974.

  5. Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 23. október ekið bifreiðinni [...] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist MDMA 170 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 5,2 ng/ml) austur Stórakrika í Mosfellsbæ að Reykjavegi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 1,24 g af maríjúana-kannabisi, sem ákærði framvísaði.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/ 1987.

    Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar   og   til   sviptingar   ökuréttar   skv.   101.   og   102.   gr.   nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.

    Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

    Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Það athugast að í ákærulið 3, er varðar akstur ákærða undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna hinn 31. júlí 2017, hefur ákæruvaldinu láðst að tilgreina það magn vínanda sem mældist í blóði ákærða er lögregla stöðvaði aksturinn og heimfærslu þess til viðeigandi lagaákvæðis, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Af þeim sökum verður ákærði ekki sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum áfengis. Þá á vörslubrot það er tilgreint er í lok ákæruliðar 5 sér ekki stoð í gögnum málsins og verður ákærði því heldur ekki sakfelldur fyrir það. Þá athugast jafnframt að magn kókaíns í blóði ákærða í ákærulið 4 mældist samkvæmt gögnum málsins 30 ng/ml þegar brotið átti sér stað en ekki 95 ng/ml, svo sem greinir í ákæru.

    Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 18. janúar 2019, gekkst ákærði undir greiðslu sektar hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu með sátt hinn 29. mars 2016 fyrir að aka undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Að öðru leyti hefur ákærði ekki gerst brotlegur við lög.

    Ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og ítrekaðan akstur undir   áhrifum   ávana-   og   fíkniefna.   Með   hliðsjón   af   fjölda   brota   ákærða   og ákvæðum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

    Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti í 5 ár frá birtingu dóms þessa að telja.

    Ákærði greiði 892.348 krónur í sakarkostnað.

    Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Sigurður Þórarinsson, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði er sviptur ökurétti í 5 ár frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 892.348 krónur í sakarkostnað.

Þórhildur Líndal