Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 5. apríl 2019.
Mál nr. S-122/2019:
S-122/2019:
Ákæruvaldið
(Pétur Hrafn Hafstein saksóknarfulltrúi)
gegn
X
(Jón Egilsson lögmaður)
Lykilorð
Hótanir. Játningarmál. Kynferðisbrot. Miskabætur. Tilraun. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, kynferðisbrot, tilraun til kynferðisbrots, hótun og brot gegn áfengislögum og barnaverndarlögum. Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi. Ákærði játaði brot sín skýlaust svo og bótaskyldu sína gagnvart brotaþola.
Mál þetta, sem dómtekið var 19. mars 2019, var höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 14. febrúar 2019 og ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu útgefinni 5. mars 2019, á hendur X, kennitala [...], [...], Reykjavík.
Í ákæru héraðssaksóknara frá 19. mars 2019 eru ákærða gefin að sök „neðangreind hegningar-, barnaverndar- og áfengislagabrot, framin á árinu 2017:
I.
Kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum, með því að hafa á tímabilinu [...], sent A, kt. [...], sem þá var [...] ára, fjölda textaskilaboða, bæði sms-skilaboð úr símanúmerinu [...] í símanúmer A, [...], og skilaboð í gegnum samskiptavefinn Facebook, sem innihéldu kynferðislegt og ósiðlegt orðbragð, og eina mynd af getnaðarlim sínum í gegnum sama samskiptavef, en ákærði blekkti A með því að nota Facebook reikning með nafninu ,,B“, segjast vera fæddur árið [...] og senda henni andlitsmynd af óþekktum ungum karlmanni sem mynd af sjálfum sér, en skilaboðin voru ítrekuð og til þess fallin að særa blygðunarsemi hennar og valda henni ótta, og voru skilaboðin eftirfarandi: Skilaboð send í gegnum Facebook [...]: 1. „var pæla fá þig ef þú færir oní bæ“ 2. „en ef við kúrum þá verðuru nakinn ok“ 3. „ef ég set hann inn þarf ég að nota smokk ??“ 4. „fæ ég að setja hann inn já eða nei“ 5. „ertu á pillunni ?“ 6. „ok þá brunda ég ekki inn“ 7. „má ég þá setja hann inn í þig í kvöld ??“ 8. „fæ ég þá í staðinn að setja hann í þig í kvöld ?“ 9. „viltu sjá hann ??“ 10. „ertu með stór eða lítil brjóst ?“
- Myndskilaboð með mynd af getnaðarlimi sínum í reisn og hönd haldandi við neðanverðan liminn. 12. „áttu einhverja mund sem sést í þaug ?“ en ákærði leiðréttir sig í næstu skilaboðum og kveðst hafa átt við „mynd“. 13. „viltu fá hann inn já eða nei ekkert annað svar“ 14. „þú færð hann inn í kvöld ok“ 15. „fæ ég tott ?“ 16. „viltu ég sleiki píkuna ?“ 17. „er píkan rökuð ?“ 18. „ertu að verða gr ?“ 19. „ekki vera í bh þegar þú kemur til mín ok“ 20. „má ég taka þig í rassinn ?“ 21. „má ég setja hann inn í þig án smokks ?“ 22. „á ég að taka sénsinn á að brunda inn í þig ?“ 23. „má ég brunda uppí þig ?“ 24. „kyngiru ?“ 25. „æi en ef þú kemur ekki í kvöld þá fæ ég mynd af brjóstonum ok“ 26. „þótt þú komir þá fæ ég mynd af þeim á eftir ok“ 27. „stinuru ?“ 28. „ertu fljót að fá það ?“ 29. „ertu orðin gr ?“ Sms-skilaboð send [...]: 30. „Fæ ég þig ef þú ferð oní bæ ?“ 31. „Fæ èg að setja hann inn í staðinn ? Já eða nei ?“ 32. „Má ég brunda uppí þig ?“ 33. „Stinuru?“ 34. „Lofaru að ég fæ að ríða þér í kvöld?“ 35. „Æi plís“ 36. „Þá ríðum við í kvöld ok ?“ 37. „Þú lofar að koma. Ok“ 38. „Ég fæ þig í kvöld ok“ 39. „Má ég brunda inní þig ?“ 40. „Svaraðu. Má ég brunda inn ?“ Sms-skilaboð send [...]: 41. „Má ég brunda inní píkuna ?“ Telst þetta varða við 199. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, til vara við 209. gr. sömu laga, og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
II.
Kynferðisbrot og brot gegn áfengislögum með því að hafa á tímabilinu [...] gert tilraun til að tæla A til þess að hafa við sig kynferðismök, með því að setja sig í samband við hana að fyrra bragði í gegnum Facebook og villa á sér heimildir um nafn og aldur, með þeim hætti sem greinir í ákærulið I, afhenda henni áfengi [...] 2017 utan við verslun [...], Reykjavík, nánar til tekið einn brúsa sem innihélt landa, senda henni fjölda textaskilaboða, bæði sms-skilaboð og skilaboð í gegnum Facebook, sem eru að hluta tilgreind í ákærulið I, fyrir og eftir afhendingu áfengisins, þar sem ákærði bauð A meðal annars heim til sín, óskaði eftir kynferðismökum með henni og lagði til að hún greiddi fyrir áfengið með því að hafa kynferðismök við ákærða, ásamt því að hringja í nokkur skipti í A og biðja hana um að koma til sín, og að lokum gefa það til kynna með texta- og myndskilaboðum í gegnum sömu samskiptaleiðir að hann hygðist taka eigið líf er hún varð ekki við óskum hans. Telst þetta varða við 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga, og 1. mgr. 18. gr., sbr. 1. mgr. 27. gr. áfengislaga nr. 75/1998.
III.
Fyrir hótun með því að hafa [...] sent A eftirfarandi sms-skilaboð úr símanúmerinu [...]: „Ef B fer þü lïka. Þîn mistök. Hefðir átt að spara kjaftin“, sem voru til þess fallin að vekja ótta hjá henni um líf sitt og heilbrigði, en áður hafði ákærði í samskiptum sínum við A gefið til kynna að „B“ hygðist og hefði reynt að svipta sig lífi. Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga.
IV.
Fyrir kynferðisbrot með því að hafa [...] aflað sér tveggja ljósmynda af A sem sýna hana á kynferðislegan og klámfenginn hátt, með því að biðja hana símleiðis um að senda myndir af sér, sem hún gerði í gegnum Facebook, og í framhaldi af því haft umræddar myndir í vörslu sinni á þremur munum þar til lögregla lagði hald á munina [...] á þáverandi heimili ákærða að [...], Reykjavík, það er í farsíma af gerðinni [...], USB minnislykli af gerðinni [...] og fartölvu af gerðinni [...], en tvö eintök af hvorri mynd voru vistuð í tölvunni. Telst þetta varða við 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að ákærði sæti upptöku samkvæmt 1. tölulið 1. mgr. 69. gr. a í almennra hegningarlaga á fartölvu af gerðinni [...] (munaskrá [...]), USB minnislykli af gerðinni [...] (munaskrá [...]), farsíma af gerðinni [...] (munaskrá [...]), farsíma af gerðinni [...] (munaskrá [...]) og farsíma af gerðinni [...] (munaskrá [...]), en umræddir munir voru notaðir við framningu brota ákærða.
Einkaréttarkrafa: Af hálfu C, kt. [...], fyrir hönd ólögráða dóttur sinnar A, kt. [...], er þess krafist að ákærða verði gert að greiða brotaþola miskabætur samtals að fjárhæð 2.500.000 kr. með vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá [...] 2017, en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., vaxtalaga frá þeim degi er mánuður er liðinn frá því að krafan er birt ákærða, til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að ákærða verði gert að greiða brotaþola málskostnað að skaðlausu, samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum 24% virðisaukaskatti, fyrir að halda fram bótakröfu sinni í málinu.“
Í ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu útgefinni 5. mars 2019 er ákærða gefið að sök „umferðarlagabrot, með því að hafa [...] 2018 ekið léttu bifhjóli undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 2,15 ‰) austur [...] í Reykjavík, við [...], þar sem akstri lauk með umferðaróhappi. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 3. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“ Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og að hún verði skilorðsbundin að öllu leyti. Þá krefst hann þess að fjárhæð miskabóta verði lækkuð en ákærði viðurkennir bótaskyldu. Einnig krefst hann hæfilegrar þóknunar sér til handa. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í báðum ákærum og eru brot hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða. Samkvæmt þessu hefur ákærði verið sakfelldur fyrir ítrekuð kynferðisbrot, tilraun til kynferðisbrots, hótun, áfengislagabrot, brot gegn barnaverndarlögum og umferðarlagabrot. Ákærði á að baki langan sakarferil sem nær aftur til ársins [...] og einkennist af auðgunar- og umferðarlagabrotum. Með dómi Hæstaréttar [...] 2008 var ákærði dæmdur í Hæstarétti í fangelsi í 5 ár fyrir kynferðisbrot og þjófnað. Honum var veitt reynslulausn [...] 2011 í tvö ár en rauf skilyrði reynslulausnarinnar [...] 2012. Hann lauk afplánun á eftirstöðvum refsingarinnar [...] 2014. Með vísan til 2. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga eru ítrekunaráhrif þess dóms því ekki niður fallin. Verður við ákvörðun refsingar litið til 205. gr. almennra hegningarlaga en samkvæmt ákvæðinu má hækka refsingu um allt að helming hafi maður áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot. Ákærði lýsti því yfir hér fyrir dómi að hann iðraðist gjörða sinna og taldi sér ekki hafa verið sjálfrátt umrætt sinn. Lýsti hann mikilli vanlíðan sem hann hefði glímt við um langt skeið og lagði fram gögn þar sem raktar eru upplýsingar um persónulega hagi hans og bágar aðstæður frá barnæsku. Kvaðst hann gera sér grein fyrir að hann þyrfti á geðlæknisaðstoð að halda og kvaðst nú þegar hafa gert ráðstafanir til þess að fá hjálp. Hvað sem framangreindu líður verður ekki hjá því litið að ákærði lét sér ekki segjast eftir að hann var dæmdur fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn ungri stúlku heldur hélt uppteknum hætti. Ásetningur hans var einbeittur eins og aðferðirnar sem hann beitti bera með sér. Var háttsemi ákærða til þess fallin að valda brotaþola, sem er ung að árum, vanlíðan og hafa í för með sér ófyrirséðar afleiðingar. Gildir hér einu þó að kynferðisbrotin hafi átt sér stað á netinu en ungir þolendur slíkra brota njóta ríkrar verndar og gildir einu þó að samþykki þeirra við háttsemi eða einhvers konar þátttaka komi til. Hafa ber í huga að ákærði villti á sér heimildir sem er til þess fallið að auka á alvarleika brota hans. Verða þessi atriði virt ákærða til refsiþyngingar. Þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá því að brot ákærða samkvæmt ákæru 14. febrúar 2019 var framið verður ekki annað séð en að rannsókn hafi miðað áfram með eðlilegum hraða en málið var sent aftur til rannsóknar frá Héraðssaksóknara áður en ákæra var gefin út. Á hinn bóginn var talsverður dráttur á útgáfu ákæru dagsettri 5. mars 2019 en um einfalt umferðarlagabrot var að ræða. Hefur sá dráttur þó ekki áhrif á refsingu í málinu eins hér stendur á. Brot ákærða var ítrekað öðru sinni. Ekki eru efni til að líta til 3. tl. 74. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar vegna þessa brots eins og ákærði krafðist. Með vísan til framangreinds og með hliðsjón af 1.,4., 6., 7. og 8. tl. 1. mgr. 70. og 77. gr. almennra hegningarlaga er refsing ákærða ákveðin 16 mánaða fangelsi. Þegar litið er til sakarferils ákærða og alvarleika brotanna er ekki unnt að skilorðsbinda refsinguna. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttinda ákærða.
Þá skal ákærði sæta upptöku á þeim munum sem hald var lagt á undir rannsókn málsins eins og nánar greinir í dómsorði. Af hálfu brotaþola er gerð krafa um miskabætur að fjárhæð 2.500.000 krónur auk vaxta og útlagðs kostnaðar við öflun sálfræðivottorðs. Ákærði hefur verið sakfelldur fyrir ítrekuð kynferðisbrot og tilraun til kynferðisbrots gagnvart brotaþola. Brot ákærða voru, eins og áður segir, til þess fallin að valda brotaþola vanlíðan. Af hálfu réttargæslumanns var aflað sálfræðivottorðs þar sem gerð var grein fyrir andlegri vanlíðan sem brotþoli hefur glímt við um nokkurt skeið. Á brotaþoli rétt til miskabóta á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 sem þykja, með hliðsjón af fjárhæð miskabóta í sambærilegum málum, hæfilega ákveðnar 600.000 krónur með vöxtum eins og nánar greinir í dómsorði en dráttarvextir leggjast á mánuði eftir að ákærða var birt krafan. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda Jóns Egilssonar lögmanns, 632.400 krónur og 7.040 krónur vegna aksturs, svo og 404.240 króna réttargæsluþóknun Erlings Daða Emilssonar lögmanns og 38.735 krónur vegna útlagðs kostnaðar hans í tengslum við sálfræðivottorð. Við ákvörðun þóknunar þeirra er litið til vinnu þeirra á rannsóknarstigi. Hliðsjón er höfð af framlögðum tímaskýrslum lögmannanna og er við ákvörðun þóknunar tekið tillit til virðisaukaskatts. Þá skal ákærði greiða 51.198 krónur í annan sakarkostnað samkvæmt framlögðu sakarkostnaðaryfirliti. Sigríður Hjaltested héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 16 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttinda ákærða. Ákærði sæti upptöku á fartölvu af gerðinni [...], USB minnislykli af gerðinni [...], farsíma af gerðinni [...], farsíma af gerðinni [...] og farsíma af gerðinni [...].
Ákærði greiði A 600.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá [...] 2017, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga, frá 30. desember 2017 til greiðsludags.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar lögmanns, 632.400 krónur, og 7.040 krónur vegna aksturs, 404.240 króna réttargæsluþóknun Erlings Daða Emilssonar lögmanns og útlagðan kostnað hans, 38.735 krónur. Þá greiði ákærði 51.198 krónur í annan sakarkostnað. Sigríður Hjaltested (sign.)