Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-4135/2019:

Íslenskir aðalverktakar hf.

(Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

gegn

Ernst & Young ehf. og

Rögnvaldi Dofra Péturssyni

(Tómas Jónsson lögmaður)

Áritun. Endurskoðandi. Hlutafé. Sérfræðiábyrgð.

Í málinu var deilt um ábyrgð endurskoðanda, þ.á m. hvort staðfestingar hans á innborguðu hlutafé og áritun á sameiginlegan efnahagsreikning hafi valdið stefnanda tjóni. Var það niðurstaða dómsins að skýringa á meintu tjóni stefnanda væri ekki að rekja til umræddra staðfestinga endurskoðandans eða til áritunar hans.

Dómur

I

Mál þetta, sem var höfðað með stefnu birtri 17. júlí 2019, var dómtekið 3. júní 2021. Stefnandi er Íslenskir aðalverktakar hf., Höfðabakka 9, Reykjavík, en stefndu eru Ernst & Young ehf., Borgartúni 30, Reykjavík, og Rögnvaldur Dofri Pétursson […].

Dómkröfur stefnanda eru þær að viðurkennd verði óskipt skaðabótaskylda stefndu á því tjóni stefnanda af verksamningi stefnanda við félagið Sameinað Sílikon hf. sem varð af völdum þess að endurskoðaður ársreikningur Sameinaðs Sílikons hf. vegna ársins 2014 gaf ekki rétta mynd af stöðu félagsins. Þá krefst stefnandi greiðslu málskostnaðar.

Stefndu krefjast sýknu af öllum kröfum stefnanda, auk greiðslu málskostnaðar.

II

Forsögu málsins er að rekja til verksamnings á milli stefnanda og Sameinaðs Sílikons hf., dags. 11. júlí 2014, um byggingu mannvirkja í Helguvík. Stefndu, Ernst & Young ehf. og Rögnvaldur Dofri Pétursson, löggiltur endurskoðandi, störfuðu fyrir og veittu Sameinuðu Sílikoni hf. og tengdum félögum ýmiss konar ráðgjöf. Sakarefni málsins lýtur að meintri skaðabótaskyldri háttsemi stefndu í tengslum við þá vinnu, einkum vegna staðfestingar stefndu á tveimur hlutfjárhækkunum í einkahlutafélaginu Stakksbraut 9 ehf., en það félag sameinaðist Sameinuðu Sílikoni hf. á árinu 2014, og þjónustu sem stefndu veittu í tengslum við gerð ársreiknings hins sameinaða félags fyrir árið 2014, samkvæmt ráðningarsamningi, dags. 2. júní 2014.

Þær hlutafjárhækkanir sem um er deilt í Stakksbraut 9 ehf. eru annars vegar að nafnverði 223.759.000 krónur samkvæmt ákvörðun hluthafafundar félagsins þann 31. desember 2013. Hins vegar að nafnverði 449.216.000 krónur samkvæmt ákvörðun hluthafafundar þann 15. febrúar 2014. Í báðum tilvikum var hollenskt félag, USI Holding B.V., eini hluthafi félagsins, skráð fyrir allri áskrift að hinu nýja hlutafé.

Einkahlutafélagið Stakksbraut 9 var stofnað í febrúar 2012. Tilgangur félagsins var að afla tilskilinna leyfa og gera viðeigandi samninga við stjórnvöld til þess að starfrækja kísilver í Helguvík. Félagið keypti lóðina Stakksbraut 9 í Reykjanesbæ með kaupsamningi, dags. 18. apríl 2012, og mun Arion banki hf. hafa fjármagnað kaupin að stærstum hluta. Ýmsir fjárfestar lögðu USI Holding B.V. til fjármagn í þá fjárfestingu, þar á meðal einkahlutafélagið Tomahawk Development á Íslandi. Það félag var að mestu í eigu sömu fjárfesta og Stakksbraut 9 ehf. Stefndu og Stakksbraut 9 ehf. undirrituðu ráðningarsamning, dags. 10. apríl 2014, sem afmarkaði vinnu stefndu fyrir félagið, þ. á m. aðstoð við færslu bókhalds og gerð ársreiknings fyrir félagið. Var sérstaklega tekið fram að í þeirri vinnu fælist ekki endurskoðun heldur fagleg aðstoð.

Samkvæmt áðurgreindum verksamningi á milli stefnanda og Sameinaðs Sílikons hf. um byggingu mannvirkja í Helguvík skyldu greiðslur frá Sameinuðu Sílikoni hf. til stefnanda miðast við verkkostnað og álagningu og markgildi. Reikningar skyldu gerðir mánaðarlega eða á tveggja vikna fresti og skyldu greiddir innan 14 daga frá útgáfu. Áætluð verklok voru 31. maí 2016.

Gerður var viðauki við verksamninginn í byrjun árs 2015, þar sem Sameinað Sílikon hf. tók að sér að greiða það stál sem notað var í verkið, en stefnandi skyldi áfram vera ábyrgur fyrir afhendingu og gæðum þess.

Samkvæmt minnisblaði stefnanda, dags. 10. febrúar 2016, krafðist stefnandi þess m.a. að verktími yrði framlengdur auk þess sem gerðar voru athugasemdir við greiðsludrátt Sameinaðs Sílikons hf. á framvindureikningi stálframleiðenda o.fl. Kemur fram í minnisblaðinu að meint krafa stefnanda gagnvart Sameinuðu Sílikoni hf. nemi 53.830.509 krónum og í bréfi stefnanda, dags. 23. mars 2016, segir að ógreiddar kröfur sem komnar séu í eindaga nemi 118.213.765 krónum.

Ágreiningur ágerðist á milli stefnanda og Sameinaðs Sílikons hf. þegar komið var fram á árið 2016 og gerðu aðilar m.a. kröfur í greiðslu- og verktryggingar hvors annars vegna verksins. Þannig sendi Sameinað Sílikon hf. stefnanda tilkynningu með bréfi, dags. 25. maí 2016, um beitingu vanefndaúrræða og skoraði á stefnanda að skila verkinu þann 31. maí 2016 eins og samið hafði verið um.

Í lok maí 2016 nam fjárhæð ógreiddra reikninga frá Sameinuðu sílikoni hf. til stefnanda sem fallnir voru í gjalddaga um 561.000.000 króna með virðisaukaskatti.

Með bréfi, dags. 27. maí 2016, tilkynnti stefnandi Sameinuðu Sílikoni hf. að hann myndi neyðast til að stöðva verkið ef reikningar yrðu ekki greiddir á gjalddaga 1. júní 2016. Ekki kom til þess og undirrituðu málsaðilar í framhaldinu viðauka 2 við verksamninginn, dags. 2. júní 2016, þar sem stefnandi féllst á að stöðva ekki verkið gegn nánar tilgreindum greiðslum frá Sameinuðu Sílikoni hf. Einnig var komist að samkomulagi um að skiladagur verksins skyldi vera 30. júní 2016.

Í því skyni að leysa úr ágreiningi stefnanda og Sameinaðs Sílikons hf. um greiðslu reikninga var sett af stað gerðardómsmeðferð á grundvelli ákvæðis í verksamningi aðila. Þá gerði stefnandi kröfu í greiðslutryggingu Sameinaðs Sílikons hf. hjá Arion banka hf. hinn 5. júlí 2016. Sama dag sendi stefnandi tölvupóst til Sameinaðs Sílikons hf. þar sem tilkynnt var að verkið yrði stöðvað 7. júlí 2016 ef ekki yrðu greiddir gjaldfallnir ógreiddir reikningar í samræmi við viðauka 2 við verksamninginn, frá 1. júní 2016. Bréfaskipti fóru á milli aðila í framhaldinu þar sem Sameinað Sílikon hf. lýsti yfir skuldajöfnuði vegna tjóns sem stefnandi hefði valdið félaginu með stórkostlegri yfirsjón sinni við stjórnun á stálframleiðslu í verkefnið. Hinn 14. júlí 2016 lýsti Sameinað Sílikon hf. yfir riftun á verksamningi aðila. Í kjölfar þess sendi stefnandi Sameinuðu Sílikoni hf. bréf þar sem krafist var greiðslu reikninga að fjárhæð 890.476.057 krónur, auk virðisaukaskatts. Í kjölfarið hófst síðan fyrrgreind gerðardómsmeðferð.

Gerðardómur var kveðinn upp 24. júlí 2017 þar sem m.a. var komist að þeirri niðurstöðu að Sameinuðu Sílikoni hf. bæri að greiða stefnanda 1.113.657.533 krónur, auk dráttarvaxta.

Hinn 14. ágúst 2017 barst Héraðsdómi Reykjaness beiðni frá Sameinuðu Sílikoni hf. um heimild til greiðslustöðvunar, sem samþykkt var sama dag. Félagið var síðan úrskurðað gjaldþrota 22. janúar 2018. Hinn 15. mars 2018 lýsti stefnandi kröfu að fjárhæð 1.113.657.533 krónur samkvæmt dómi gerðardóms í málinu, auk dráttarvaxta, málskostnaðar, kostnaðar vegna gerðardóms og kostnaðar við kröfulýsingu, sem samtals nam 1.353.863.117 krónum.

Samkvæmt bókhaldi Sameinaðs Sílikons hf. fékk stefnandi greiddar fyrir verkið rúmlega 1.286 millj. kr. árið 2015 og árið 2016 fékk stefnandi greiddar rúmlega 1.978 millj. kr. Greiðslur Sameinaðs Sílikons hf. til stefnanda voru því hærri en bæði lausafjár- og eiginfjárstaða Sameinaðs Sílikons hf. samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi Sameinaðs Sílikons hf. árið 2014. Þá fékk stefnandi um 364 millj. kr. frá 12. maí til 30. júní 2014. Samtals fékk stefnandi greidda rúmlega 3,2 milljarða króna frá þeirri stöðu sem birtist í ársreikningi 2014, þ.e. í lok þess árs, og þar til stefnandi lét af störfum. Lýstar kröfur í þb. Sameinaðs Sílikons hf. námu um 23 milljörðum kr.

Fyrri hlutafjárhækkunin sem deilt er um í máli þessu var samþykkt á hluthafafundi Stakksbrautar 9 ehf., þann 31. desember 2013, þar sem ákveðið var að auka hlutafé í félaginu um 223.759.000 hluti eða úr 500.000 krónum að nafnverði í 224.259.000 að nafnverði. Í fundargerð hluthafafundarins kemur fram að fyrir hið nýja hlutafé skyldi greitt með skuldajöfnun á viðskiptareikningi hluthafans á genginu einn, eða krónu á móti krónu, til samræmis við skýrslu stjórnar og yfirlýsingu endurskoðanda félagsins, dags. 22. desember 2013.

Með tilkynningu til fyrirtækjaskrár, dags. 23. september 2014, var tilkynnt um framangreinda hækkun hlutafjár. Undir tilkynninguna rituðu Magnús Garðarsson fyrir hönd Joseph Dignam og stefndi Rögnvaldur sem endurskoðandi félagsins. Jafnframt fylgdi með tilkynningunni „Staðfesting á hlutafjáraukningu og greiðslu hlutafjár“, þar sem stefndi Rögnvaldur staðfesti við fyrirtækjaskrá að hlutafé félagsins hefði verið hækkað um 223.759.000 krónur að nafnvirði og að greitt hefði verið fyrir hækkunina að fullu með öðru en peningum.

Þann 16. júlí 2018 óskaði skiptastjóri Sameinaðs Sílikons hf. eftir skýringum frá stefndu á framangreindri kröfu USI Holding B.V. sem var grundvöllur skuldajöfnuðarins vegna hlutafjárhækkunarinnar. Skýringar stefndu voru þær að krafa USI Holding B.V. hefði orðið til með greiðslu útlagðs kostnaðar Magnúsar Garðarssonar, Helga Björns Ormarssonar og Tomahawk Development á Íslandi ehf. fyrir hönd Stakksbrautar 9 ehf. árið 2012 sem hefði numið samtals 56.209.859 kr. og ýmsum lánagreiðslum Tomahawk Development á Íslandi ehf. að fjárhæð 167.549.141 kr. árið 2013. Jafnframt vísuðu stefndu til þess að gerðir hefðu verið fimm víkjandi lánasamningar við þessa aðila vegna framangreindra skulda Stakksbrautar 9 ehf. við Magnús, Helga og Tomahawk Development.

Síðari hlutafjárhækkunin sem um er deilt í máli þessu var gerð á hluthafafundi í Stakksbraut 9 ehf. þann 15. febrúar 2014. Var ákveðið að hækka hlutafé félagsins um 449.216.000 krónur að nafnverði eða úr 224.259.000 krónum að nafnverði í 673.475.000 krónur að nafnverði. Samkvæmt fundargerð hluthafafundar skyldi greiða með peningum fyrir hið nýja hlutafé á genginu einn og frestur til greiðslu vera til loka ágústmánaðar 2014. Tillagan var samþykkt af hluthafa félagsins, USI Holding B.V., og skráði hann sig fyrir allri hlutfjáraukningunni á fundinum. Hlutafjárhækkunin var tilkynnt til fyrirtækjaskrár hinn 23. september 2014, eða sama dag og fyrri hlutafjárhækkunin. Tilkynningin var undirrituð af Magnúsi Garðarssyni fyrir hönd Joseph Dignam og stefnda Rögnvaldi sem endurskoðanda félagsins.

Þann 24. september 2014 samþykktu hluthafafundir Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons hf. að sameina félögin. Við samrunann hækkaði hlutafé Sameinaðs Sílikons hf. um 673.475.000 krónur, sem var heildarhlutafé Stakksbrautar 9 ehf. eftir fyrrgreindar hlutafjárhækkanir í Stakksbraut 9 ehf. Eftir samrunann þá nam heildarhlutafé Sameinaðs Sílikons hf. samtals 1.112.673.640 krónum.

Í endurskoðuðum samrunaefnahagsreikningi, dags. 1. september 2014, fyrir samrunafélögin, sem áritaður er af stefnda, Rögnvaldi Dofra, segir svo:

Undirritaður endurskoðandi hefur endurskoðað og sannreynt að sameiginlegur efnahagsreikningur Sameinaðs Sílikons hf. og Stakksbrautar 9 ehf. hinn 1. september 2014 byggir á árshlutareikningum félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2014 til 31. ágúst 2014.

Jafnframt hefur undirritaður endurskoðandi endurskoðað og sannreynt að drög að upphafsefnahagsreikningi Sameinaðs Sílikons hf. þann 1. september 2014 eru í samræmi við samrunaefnahagsreikninginn og sýnir þær breytingar sem álitið er að samruninn hafi í för með sér. Samkvæmt samrunaefnahagsreikningnum, sem byggðist á árshlutareikningum félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2014 til 31. ágúst 2014, var handbært fé Stakksbrautar 9 ehf. 94.774 krónur.

Við aðalmeðferð málsins gáfu forstjóri stefnanda, Þóroddur Ottesen Arnarson, og stefndi, Rögnvaldur Dofri Pétursson, skýrslu og vitni báru Benedikt Egill Arnarsson lögmaður, Friðbjörn Garðarsson lögmaður og Skarphéðinn Pétursson lögmaður.

III

  1. 1. Helstu málsástæður og lagarök stefnanda Stefnandi byggir málatilbúnað sinn á því að komið hafi í ljós að fjárhagsstaða Sameinaðs Sílikons hf. hafi verið allt önnur og verri en fram hafi komið í endurskoðuðum ársreikningi félagsins vegna ársins 2014, sem hafi legið fyrir þegar kröfur stefnanda á hendur félaginu söfnuðust upp, og að skráð hlutafé hafi verið mun hærra en það átti að vera. Telur stefnandi að ástæðurnar megi rekja til þess að tilkynningar Stakksbrautar 9 ehf., sem sameinað var Sameinuðu Sílikoni hf. með samþykkt hluthafafundar 24. september 2014, til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra 23. september 2014 hafi verið rangar eða að minnsta kosti villandi.

    Tilkynningarnar hafi verið undirritaðar af stefnda, Rögnvaldi Dofra Péturssyni, löggiltum endurskoðanda, fyrir hönd stefnda, Ernst & Young ehf., og þar segi að hlutaféð hafi verið að fullu greitt. Byggir stefnandi á því að það sé rangt eða villandi, þar sem engar greiðslur höfðu í raun borist fyrir hækkanirnar. Með því hafi stefndi, Rögnvaldur, sýnt af sér saknæma vanrækslu í starfi í a.m.k. þremur tilvikum, sem hafi leitt til þess að raunveruleg fjárhagsstaða Sameinaðs Sílikons hf. hafi verið allt önnur og verri en endurskoðaðir ársreikningar þess gáfu til kynna. Hafi stefnda, Rögnvaldi, átt að vera þetta ljóst í síðasta lagi við endurskoðun ársreiknings Sameinaðs Sílikons hf. vegna ársins 2014. Þetta hafi í fyrsta lagi verið við hlutafjárhækkun félagsins Stakksbrautar 9 ehf. þann 31. desember 2013 og í öðru lagi við hlutafjárhækkun sama félags þann 15. febrúar 2014. Stefndi, Rögnvaldur, hafi staðfest að hlutfjárhækkunin væri að fullu greidd í báðum tilvikum, þegar ekkert raunverulegt endurgjald hafi komið til félagsins við hækkunina. Í þriðja lagi hafi þetta verið við samruna félaganna Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons hf., í september 2014, en í samrunareikningi hafi óefnislegar eignir hins sameinaða félags verið verulega ofmetnar. Hafi stefndi, Rögnvaldur, þrátt fyrir þetta með yfirlýsingu sinni staðfest að samruninn myndi ekki rýra möguleika lánardrottna til fullnustu krafna sinna, og áritað endurskoðaðan samrunareikning félaganna. Stefnandi byggir á því að stefnda, Rögnvaldi, hafi átt að vera þetta ljóst við framangreinda atburði, eða í síðasta lagi við endurskoðun ársreiknings Sameinaðs Sílikons hf. vegna ársins 2014, en hann hafi endurskoðað ársreikninginn án fyrirvara.

    Stefnandi byggir á því að a.m.k. hluti tjóns hans vegna vanefnda Sameinaðs Sílikons hf. á greiðslum á grundvelli verksamnings aðila hafi verið af völdum þessarar vanrækslu stefnda, Rögnvalds. Þannig hafi stefnandi tekið mið af síðasta endurskoðaða ársreikningi Sameinaðs Sílikons hf. sem lá fyrir og skráðu hlutafé Sameinaðs Sílikons hf. við mat á því hversu háar útistandandi kröfur stefnanda á hendur Sameinuðu Sílikoni hf. urðu áður en hann greip til þess lokaúrræðis að stöðva framkvæmdir. Hafi þannig útistandandi kröfur stefnanda á hendur Sameinuðu Sílikoni hf. numið 1.099.191.104 krónum við lok framkvæmda í júlí 2016. Samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi félagsins vegna ársins 2014, sem birtur var opinberlega 20. ágúst 2015, nam eigið fé þess 1.303.120.681 krónu. Þá hafi komið fram í vottorði frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra í maí 2016 að hlutafé félagsins hefði frá þeim tíma verið hækkað í fjóra milljarða króna. Hafi stefnandi þess vegna mátt treysta því að félagið gæti staðið undir kröfum að fjárhæð a.m.k. 1,3 milljarðar króna.

    Við innheimtu krafnanna hafi komið í ljós að Sameinað Sílikon hf. gæti ekki staðið undir þeim og félagið að lokum verið lýst gjaldþrota. Í kjölfar gjaldþrotsins hafi einnig komið í ljós að endurskoðaðir ársreikningar gáfu ekki rétta mynd af fjárhagsstöðu félagsins, einkum vegna hinna þriggja fyrrnefndu atriða. Byggir stefnandi á því að hefði honum verið raunveruleg fjárhagsstaða félagsins ljós hefði hann stöðvað framkvæmdir mun fyrr og tjón hans þá ekki orðið jafnmikið af vanefndum félagsins og raunin varð. Þar sem endurskoðaður ársreikningur Sameinaðs Sílikons hf. vegna ársins 2014 og skráð hlutafé Sameinaðs Sílikons hf. í maí 2016 gáfu þannig ranga mynd af fjárhagsstöðu félagsins, einkum vegna hinna fyrrnefndu þriggja atriða sem stefndi, Rögnvaldur, beri ábyrgð á, geri stefnandi þá kröfu að viðurkennd verði óskipt skaðabótaskylda stefndu af þessum völdum. Því til samræmis sé í kröfugerð stefnanda gerð krafa um viðurkenningu bótaskyldu á því tjóni stefnanda sem af verksamningnum varð af völdum þess að endurskoðaður ársreikningur Sameinaðs Sílikons hf. vegna ársins 2014 gaf ekki rétta mynd af stöðu félagsins. Sé þannig á því byggt að það sé a.m.k. hluti þess tjóns sem stefnandi hafi orðið fyrir af verksamningnum.

  2. 2. Helstu málsástæður og lagarök stefndu Stefndu byggja sýknukröfu sína á því að skilyrði skaðabótaábyrgðar séu ekki uppfyllt. Hvorki hafi verið sýnt fram á saknæma né ólögmæta háttsemi stefndu né heldur að nokkurt orsakasamband eða tengsl hafi verið á milli starfa stefndu og ætlað tjóns stefnanda. Þá er byggt á því að tjón stefnanda sé ósannað og að í öllu falli hafi eigin sök stefnanda valdið hinu meinta tjóni.

    Stefndi byggir á því að stefndu hafi staðið rétt að staðfestingu á hækkun hlutafjár í Stakksbraut 9 ehf. á grundvelli þeirra upplýsinga sem þá lágu fyrir og að stefndu hafi staðið rétt að samruna þess félags við Sameinað Sílikon hf. og endurskoðun á ársreikningi sameinaðs félags 2014.

    Stefnandi hafi nánast enga grein gert fyrir ætluðu tjóni sínu og tengslum þess við meinta háttsemi stefndu.

    Byggt er á því að eigin sök stefnanda og viðskiptaákvarðanir hafi verið meginorsök ætlaðs tjóns stefnanda.

    Um hækkun hlutafjár að fjárhæð 223.759.000 krónur vísa stefndu til þess að samkvæmt bókhaldi Stakksbrautar 9 ehf. hafi USI Holding B.V. átt kröfu að sömu fjárhæð á hendur félaginu. Hlutafjárhækkunin fólst í því að óumdeildum skuldum sem Stakksbraut 9 ehf. hefði ella þurft að greiða var breytt í hlutafé í félaginu. Stakksbraut 9 ehf. hafði tekið við peningagreiðslum sem mynduðu skuldina. Ársreikningur fyrir árið 2013 endurspegli þessa tilhögun en þar komi fram að hlutafé að fjárhæð 223.759.000 krónur hafi verið innborgað og skuldir kreditfærðar. Þá hafi stefndu fengið staðfestingu á því að greiðslur hefðu verið inntar af hendi, sbr. yfirlýsingu fyrirsvarsmanns USI Holding B.V., Magnúsar Ólafs Garðarssonar. Þá byggja stefndu á því að í staðfestingu á innborgun hlutafjár felist engin ábyrgð á því hvað verði um greiðsluna síðar. Það geri félagsstjórn og eftir atvikum framkvæmdastjóri. Auk þess sé það ekki óeðlilegt að félag sem vann að uppbyggingu stóriðjureksturs nýtti allt fjármagn jafnharðan. Skylda endurskoðanda lúti aðeins að staðfestingu innborgunar. Í hækkun hlutafjárins hafi eingöngu falist að hlutafé í Stakksbraut 9 ehf. að nafnvirði hækkaði um 223.759.000 krónur og skuldir félagsins lækkuðu um samsvarandi fjárhæð.

    Um hækkun hlutafjár að fjárhæð 449.216.000 krónur benda stefndu á að staðfesting þeirra hafi aðeins lotið innborgun hlutafjár og það hafi stefndu ekki annað en staðfest á grundvelli millifærslna inn á bankareikning Stakksbrautar 9 ehf. Yfirlýsing stefndu hafi því staðist, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga um einkahlutafélög.

    Um ætlaða hringrás greiðslna taka stefndu fram að útilokað hafi verið fyrir stefndu að gera sér grein fyrir ætluðum hringgreiðslum. Eðli starfsemi Stakksbrautar 9 ehf. hafi verið þannig að félagið nýtti sér jafnharðan allt fjárframlag til öflunar leyfa og annars undirbúnings fyrir kísilverksmiðju í Helguvík.

    Stefndu mótmæla því sem röngu að stefndi Rögnvaldur hafi verið endurskoðandi Tomahawk Development á Íslandi ehf. Einnig er öllum ályktunum um ætlaða vitneskju stefndu um aðkomu Magnúsar Garðarssonar að hinum ýmsum félögum vísað á bug. Þá vísa stefndu til framburðar Friðbjörns Garðarssonar, lögmanns hjá skiptastjóra, þess efnis að útilokað sé að ytri endurskoðendur Sameinaðs Sílikons hf. hafi haft upplýsingar um erlenda bankareikninga Magnúsar Garðarssonar og félaga á hans á vegum.

    Stefndu byggja á því að rétt hafi verið staðið að samruna Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons hf. Yfirlýsing stefndu þann 1. september 2014 hafi verið rétt. Eftir samrunann hafi sameinað félag skuldað 1.488.649.295 krónur eða nákvæmlega sömu fjárhæð og Sameinað Sílikon hf. skuldaði eitt og sér fyrir samrunann.

    Um tilurð óefnislegra eigna benda stefndu á að þeir höfðu engar forsendur til að efast um að útgjöld Stakksbrautar 9 ehf. væru vegna þróunar- og undirbúningskostnaðar. Stefndu benda á að hinar óefnislegu eignir mynduðust jafnt og þétt frá stofnun Stakksbrautar 9 ehf. og að hluta til áður en stefndu hófu störf. Stefndu drógu þar af leiðandi ekki í efa að eignfæra mætti kostnaðinn, sbr. m.a. 16. gr. ársreikningalaga nr. 3/2006. Þá fólu störf stefndu fyrir Stakksbraut 9 ehf., eins og áður segir, ekki í sér endurskoðun heldur einskorðuðust við faglega aðstoð.

    Stefndu taka fram að áritun á samrunareikning hafi ekki verið um annað eða meira en það sem leiða megi af orðalagi hennar, þ.e. að sameiginlegi reikningurinn byggðist á árshlutareikningum beggja félaga og að drög að upphafsefnahagsreikningi væru í samræmi við samrunaefnahagsreikning og sýndu þær breytingar sem álitið væri að samruninn hefði í för með sér.

    Stefndu byggja einnig á að ályktun stefnanda um handbært fé sé haldlaus. Tilgangur Stakksbrautar 9 ehf. hafi verið að standa straum af kostnaði vegna undirbúnings kísilverksmiðju. Félaginu hafi því verið lagðir til fjármunir eftir því hvernig kostnaður féll til. Eðli máls samkvæmt hafi Stakksbraut 9 ehf. því átt takmarkað lausafé þegar kom að samrunanum við Sameinað Sílikon hf. Það hafi ekki gefið tilefni til að draga í efa að sú staða væri raunveruleg eða gæfi rétta mynd af fjárhag Stakksbrautar 9 ehf. Loks árétta stefndu að yfirlýsingum um áhrif samruna á möguleika lánardrottna á fullnustu krafna sé alls ekki ætlað að gilda til allrar framtíðar. Eðli máls samkvæmt geti þær aðeins tekið til stöðunnar við samrunann en ekki til síðari atvika og enn síður lýst stöðunni eitt eða jafnvel tvö ár fram í tímann. Kjarninn sé sá að samruninn skerti ekki möguleika lánardrottna á fullnustu.

    Kjarninn í málatilbúnaði stefnanda sé sá að ársreikningur Sameinaðs Sílikons hf. 2014 hafi ekki gefið rétta mynd af fjárhag félagsins og af þeim sökum hafi stefnandi hætt störfum fyrir félagið síðar en ella á árinu 2016. Þessari málsástæðu mótmæla stefndu. Stefndu benda á að í ársreikningi Sameinaðs Sílikons hf. 2014 hafi verið gerð grein fyrir óefnislegum eignum, bæði í efnahagsreikningi og skýringum. Ársreikningurinn hafi því borið glögglega með sér að allur kostnaður við uppbyggingu kísilverksmiðjunnar væri eignfærður. Enn fremur var gerð grein fyrir reikningsskilaaðferðum varðandi bókfærslu og mat á óefnislegum eignum sem og hvernig farið væri með virðisrýrnun á óefnislegum eignum. Við skoðun stefndu á varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum Sameinaðs Sílikons hf. hafi engar vísbendingar komið fram um virðisrýrnun slíkra eigna í árslok 2014.

    Stefndu byggja á að ársreikningur Sameinaðs Sílikons hf. hafi gefið rétta mynd af fjárhag félagsins jafnvel þótt fallist yrði á að myndun óefnislegra eigna Stakksbrautar 9 ehf., sem runnu inn í hið sameinaða félag, hafi verið annmörkum háð. Árétta stefndu að endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið Deloitte framkvæmdi virðisrýrnunarpróf á varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum miðað við árslok 2016. Á þeim tíma voru heldur ekki vísbendingar um virðisrýrnun á óefnislegum eignum. Styður sú niðurstaða að eigið fé Sameinaðs Sílikons hf. hafi hvorki verið ofmetið í árslok 2014 né í árslok 2016 og að rekstur félagsins myndi endurheimta kostnað við óefnislegar eignir.

    Stefndu ítreka mótmæli sín gegn staðhæfingu stefnanda um að eigið fé Sameinaðs Sílikons hf. hafi í raun verið neikvætt. Eigið fé sameinaðs félags í árslok 2014 hafi verið jákvætt um rúmlega 314,6 millj. króna jafnvel þótt öll fjárhæð óefnislegra eigna Stakksbrautar 9 ehf. við samruna félaganna hefði verið einskis virði og þar með allar eignir Stakksbrautar 9 ehf. og þær afskrifaðar við samrunann. Staðhæfing stefnanda standist því ekki.

    Stefndu byggja einnig á því að stefnandi hafi ekki sýnt fram á tjón eða tengsl þess við ætlaða háttsemi stefndu. Telja stefndu ósannað að stefnandi hafi beðið tjón vegna áframhaldandi starfa sinna fyrir Sameinað Sílikon hf. og beri þegar af þeirri ástæðu að hafna kröfum stefnanda. Málatilbúnaður stefnanda gangi út á að félagið hafi hætt störfum fyrir Sameinað Sílikon hf. síðar en það hefði gert ella vegna ákveðinna upplýsinga um efnahag félagsins, einkum um óefnislegar eignir í árslok 2014. Í stefnu sé engin grein gerð fyrir því hvenær stefnandi hefði að öðrum kosti lagt niður störf, einungis sagt að það hefði orðið fyrr. Það hafi grundvallarþýðingu í málinu að gerð sé fullnægjandi grein fyrir beinum kostnaði stefnanda af áframhaldandi störfum fyrir Sameinað Sílikon hf. og jafnframt að færðar séu sönnur á að sá kostnaður nemi hærri fjárhæð en þeim greiðslum sem stefnandi fékk úr hendi félagsins á sama tímabili. Almenn skírskotun til gerðardóms 24. júlí 2017 nægi ekki.

    Stefndi bendir á að stefnandi hafi fengið greidda rúmlega 3,2 milljarða króna frá þeirri stöðu sem birtist í ársreikningi 2014, þ.e. í lok þess árs, og þar til stefnandi lét af störfum um mitt árið 2016. Telja stefndu því ósannað að stefnandi hafi orðið fyrir tjóni vegna áframhaldandi starfa sinna fyrir Sameinað Sílikon hf. Stefndi byggir einnig á því að engin tengsl séu á milli ætlaðs tjóns stefnanda og starfa stefndu. Ekkert orsakasamband sé á milli starfa stefndu fyrir Stakksbraut 9 ehf. og Sameinað Sílikon hf. og ætlaðs tjóns stefnanda. Stefnandi hafi ekki lagt fram nein gögn því til stuðnings að hann hafi lagt upplýsingar um fjárhagsstöðu Sameinaðs Sílikons hf. samkvæmt ársreikningi 2014 til grundvallar ákvörðun sinni um að halda áfram vinnu fyrir Sameinað Sílikon hf. á árinu 2016.

    Krafa um orsakasamband felist ekki aðeins í því að tiltekin háttsemi þurfi að hafa leitt til tjóns heldur er gengið lengra og almennt gerð sú krafa að orsakasamband sé á milli háttsemi og alls þess tjóns sem tjónþoli verður fyrir. Tjónþola dugar því ekki að sýna fram á saknæma háttsemi ef það er ekki nákvæmlega sú háttsemi sem valdið hefur tjóni. Augljóst sé að hvorki staðfesting stefndu á hækkun hlutafjár í Stakksbraut 9 ehf. í september 2014 né heldur afmörkuð störf stefndu fyrir Sameinað Sílikon hf. vegna ársins 2014 hafi leitt til þess að stefnandi hélt áfram störfum fyrir Sameinað Sílikon hf. fram á mitt ár 2016, né hafi þau nokkra þýðingu í því sambandi. Störf stefndu hafi því ekki verið skilyrði ætlaðs tjóns stefnanda.

    Sú aðferð sem almennt er notuð til þess að ákvarða tjón nefnist mismunarkenningin en í henni felst að tvær atburðarásir eru bornar saman og þannig lagt mat á hvort eða hve mikið tjón hefur orðið. Annars vegar sú atburðarás sem varð og hins vegar sú atburðarás sem hefði orðið ef ekki hefði komið til hinnar bótaskyldu háttsemi. Í máli þessu yrði þá sú atburðarás sem varð borin saman við þá atburðarás sem hefði orðið ef stefndu hefðu ekki staðfest hækkun hlutafjár í Stakksbraut 9 ehf. með þeim áhrifum sem hið hækkaða hlutafé hafði á efnahag hins sameinaða félags.

    Áhrif umþrættra tveggja hlutafjárhækkana, sem stefnandi telur að hafi verið tilhæfulausar, á fjárhag Stakksbrautar 9 ehf. voru einungis þau að eini hluthafi félagsins eignaðist fleiri hluti í því. Stakksbraut 9 ehf. lagði ekki út fé vegna hækkunarinnar og skuldir félagsins jukust ekki. Þá raskaði hækkunin ekki eignarhlutföllum. Staða Stakksbrautar 9 ehf. til að standa við skuldbindingar sínar gagnvart lánardrottnum breyttist því ekki. Þá verði að líta til þess að stefnandi ákvað að ganga til verksamninga við Sameinað Sílikon hf., nýstofnað félag sem var algjörlega háð fjármögnun, bæði af hálfu hluthafa og lánardrottna. Þá viðskiptaákvörðun virðist stefnandi hafa tekið snemma árs 2014 og því óháð hlutfjárhækkunum í Stakksbraut 9 ehf. eða samruna Sameinaðs sílikons hf. við það félag. Stefnanda hafi verið ljóst að Sameinað sílikon hf. myndi engra tekna afla fyrr en í fyrsta lagi eftir verklok skv. verksamningi Sameinaðs sílikons hf. við stefnanda og að því gefnu að ekkert annað stæði í vegi fyrir gangsetningu kísilversins. Óvissuþættir voru fjölmargir og margháttaðir.

    Stefndu byggja á því að hvorugar upplýsingarnar, um skráð hlutafé eða óefnislega eign, eins og þær birtust í ársreikningi Sameinaðs sílikons hf. 2014, hafi gefið ranga mynd af stöðu félagsins í árslok 2014.

    Stefndu benda á að fjárhæð hins hækkaða hlutafjár, 673.475.000 krónur að nafnvirði, hafi ekki myndað nema 17% af eignum sameinaðs félags í árslok 2014, sbr. bls. 4 ársreikningi 2014. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem segir til um hversu mikið félag hefur skuldsett sig, hafi orðið um 0,3 við samrunann, að teknu tilliti til fjárhæðarinnar, en hefði ella verið um 0,2. Fjárhæðin hafi því ekki haft afgerandi áhrif á eiginfjárstöðu félagsins og engu breytt um lausafjárstöðu þess.

    Enn fremur hækkaði hlutafé Sameinaðs Sílikons hf. umtalsvert á árinu 2015 og nam í árslok tæplega 4 milljörðum króna, eins og ársreikningur félagsins ber með sér. Árið 2016 hækkaði hlutafé Sameinaðs Sílikons hf. um tæplega 1,7 milljarða til viðbótar. Um er að ræða opinberar og aðgengilega upplýsingar í fyrirtækjaskrá RSK sem stefnandi virðist hafa verið meðvitaður um. Hin litlu áhrif hlutafjárhækkunarinnar vegna samrunans í september 2014 voru því fljót að þverra og voru enn síður til þess fallin að gefa ranga mynd af stöðu félagsins við síðara tímamark. Stefndu benda einnig á að eiginfjárhlutfall Sameinaðs sílikons hf. hækkaði á árinu 2015 í 0,4 án tillits til samrunans við Stakksbraut 9 ehf., sbr. ársreikning Sameinaðs sílikons hf. 2016.

    Stefndu benda á að staða Sameinaðs Sílikons hf. samkvæmt ársreikningi 2014 hafi verið viðkvæm, algerlega óháð upplýsingum um hlutafé í árslok 2014 eða óefnislegum eignum, enda hvort tveggja gagnslaus mælikvarði á gjaldfærni. Aðrar og auðskiljanlegar upplýsingar ársreikningsins hafi verið mjög afgerandi um raunverulega stöðu Sameinaðs Sílikons hf. Samkvæmt ársreikningi 2014 samanstóðu eignir Sameinaðs Sílikons hf. af mannvirkjum og tækjum á byggingarstigi, stofnkostnaði og bundnum bankareikningi. Eignir félagsins voru augljóslega ekki tekjuberandi eins og sakir stóðu. Félagið hafði engar tekjur aðrar en óverulegar vaxtatekjur og án öruggrar langtímafjármögnunar hefði félagið ekki verið í stakk búið til að standa undir frekari skuldbindingum.

    Samkvæmt ársreikningi 2014 námu veltufjármunir Sameinaðs Sílikons hf. 162.069.356 krónum og þar af handbært fé 122.462.825 krónum. Skammtímaskuldir á sama tíma voru hins vegar 221.236.468 krónur eða 59.167.112 krónum meiri en veltufjármunir félagsins. Félagið átti með öðrum orðum ekki handbært fé eða veltufjármuni fyrir skuldum sínum. Stefnanda gat ekki dulist þessi augljósa og viðkvæma staða að teknu tilliti til umfangs kísilverkefnisins sem stefnandi var beinn þátttakandi í. Stefndu benda á að samkvæmt samrunaefnahagsreikningi 1. september 2014 hafi handbært fé Sameinaðs Sílikons hf. verið rúmlega 723 millj. króna en Stakksbrautar 9 ehf. 94.774 krónur þann dag. Handbært fé hafði því dregist saman um rúmlega 600 millj. krónur frá þeim tíma og fram að áramótum, á fjórum mánuðum, eða um ríflega 80%. Fjárþörf Sameinaðs Sílikons hf. var greinilega veruleg og aðkallandi. Félagið var langt frá því að líta út fyrir að vera „stöndugt og vel fjármagnað“ eins og haldið er fram í stefnu.

    Í lið 8 í ársreikningnum 2014 var sérstaklega tekið fram að Sameinað Sílikon hf. hefði sett allar eignir að veði til tryggingar bankaláni. Félagið átti því engar óbundnar eignir. Stefnandi gat m.ö.o. ekki leitað fullnustu í einni einustu eign. Stefnandi hafi jafnframt mátt vita að óefnislegar eignir félagsins – eignfærður stofnkostnaður – gátu ekkert sagt til um gjaldfærni félagsins til framtíðar. Þar fyrir utan mynduðu þær aðeins um 20% af eignum félagsins. Í ársreikningnum var sérstaklega tekið fram að óefnislegar eignir sem hefðu ákveðinn nýtingartíma væru afskrifaðar á nýtingartíma en afskriftartími og afskriftaraðferð væru endurskoðuð a.m.k. í lok hvers fjárhagsárs. Það var því augljóst að óefnislegu eignirnar fólu fyrst og fremst í sér frestun á gjaldfærslu.

    Skuldir Sameinaðs sílikons hf. samkvæmt ársreikningnum voru verulegar eða rúmlega 2,6 milljarðar kr. í árslok 2014. Veltufjárhlutfall (veltufjármunir/skammtímaskuldir), sem sýnir hversu líklegt félag er til að geta staðið undir skuldum næstu 12 mánuði, var minna en 1, sem sýndi að félagið átti ekki að óbreyttu fyrir skuldum sínum næsta árið.

    Þrátt fyrir þessa augljósu og viðkvæmu stöðu heldur stefnandi því fram að hlutafjárhækkanir í Stakksbraut 9 ehf. árið 2013 og 2014 og óefnislegar eignir sem runnu inn í Sameinað Sílikon hf. síðar það ár hafi riðið baggamuninn við mat stefnanda á því hvort framkvæmdum yrði fram haldið fyrir Sameinað Sílikon hf. árið 2016. Það standist enga skoðun. Útilokað sé að stefnandi hafi reitt sig á þær upplýsingar við framhald framkvæmda enda ekki útskýrt í stefnu hvernig eða að hvaða leyti þeir þættir bentu til þess að félagið væri betur í stakk búið til að efna verksamning við stefnanda árið 2016. Einu má gilda hvenær upplýsingarnar voru birtar þar sem þær lýstu stöðunni í árslok 2014 en ekki við síðara tímamark. Í stefnu er ýmist talað um árslok 2015 eða síðara tímamark. Stefndu benda á að lýstar kröfur við gjaldþrotaskipti á þb. Sameinaðs Sílikons hf. nema um 23 milljörðum króna og skuldbindingar félagsins við aðra en stefnanda eru því gífurlegar eða næstum tuttugufaldar. Ekkert orsakasamband sé því á milli starfa stefndu og ætlaðs tjóns stefnanda.

    Stefnandi bendir á að í stefnu sé lýst fjölþættum ágreiningi á milli stefnanda og Sameinaðs Sílikons hf. um m.a. svokallað markgildi og aukið stálmagn. Af lýsingunni að dæma virðist sem ágreiningur þessi hafi bæði valdið töfum á verkinu og því að reikningar voru ekki greiddir á gjalddaga. Hvort tveggja hafi augljóslega haft áhrif á ákvarðanatöku stefnanda en samhengið við störf stefndu sé ekkert.

    Stefndu benda einnig á að rökstuddur grunur er um ætlaðan fjárdrátt Magnúsar Garðarssonar, fyrrum fyrirsvarsmanns Sameinaðs Sílikons hf. Að mati Friðbjörns Garðarssonar lögmanns olli það gjaldþroti Sameinaðs Sílikons hf. þar sem enginn hefði verið tilbúinn að setja frekari fjármuni í verkefnið eftir að upp komst um ætlaðan fjárdrátt Magnúsar Garðarssonar. Trú Friðbjörns Garðarssonar var að Sameinuðu Sílikoni hf. hefði verið bjargað ef traust hefði ekki brostið með þeim hætti, sbr. það sem segir á bls. 24 í skýrslu Friðbjörns hjá skiptastjóra þb. Sameinaðs Sílikons hf. Af framansögðu megi vera ljóst að orsakasamband skorti á milli háttsemi stefndu og meints tjóns stefnanda. Og í öllu falli sé hið meinta tjón alls ekki sennileg afleiðing af háttsemi stefndu. Orsök ætlaðs tjón stefnanda virðist einfaldlega hafa verið ógjaldfærni Sameinaðs Sílikons hf. og þeir atburðir, m.a. ætlaður fjárdráttur, sem leiddu til þeirrar stöðu.

    Jafnframt benda stefndu á að athugasemdalaus áritun endurskoðanda á ársreikning fyrirtækis sé ekki í lagalegum skilningi fullkomin trygging fyrir því að sú mynd sem stjórnarmenn félags hafi dregið upp af efnahagsstöðu þess sé raunverulega rétt og heldur engin trygging fyrir því að hlutir geti ekki gerst í framtíðinni sem rýri verðmæti eigna og geri vænt verðmæti verðlaus. Að sama skapi er staðfesting á hækkun hlutafjár ekki óvefengjanleg sönnun á greiðslu fyrir hlutafé. Það geta auðvitað orðið mistök og þá getur viðkomandi félag eða aðrir farið fram á leiðréttingu. Hvort tveggja í hlutaskrá félagsins sjálfs og fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.

    Stefndu byggja einnig á því að jafnvel þótt stefnanda takist að sýna fram á eitthvert samhengi á milli starfa þeirra og ætlaðs tjóns stefnanda nægi það heldur ekki til stofnunar bótaábyrgðar. Bótaábyrgð takmarkist við það tjón sem sé sennileg afleiðing af skaðlegri háttsemi. Hvernig sem á málið sé litið hafi ákvarðanir stefnanda á árinu 2016 um áframhaldandi störf fyrir Sameinað Sílikon hf. á grundvelli starfa stefndu vegna ársins 2014 hvorki verið fyrirsjáanlegar afleiðingar þeirra starfa né sé það eðlilegt eða sanngjarnt að gera stefndu ábyrga fyrir þeim ákvörðunum stefnanda.

    Stefndu benda á að þrátt fyrir tilefni sé engin grein gerð fyrir þætti stefnanda eða stjórnenda hans í umfjöllun um hið ætlaða tjón. Hvaða mat lagði stefnandi á gjaldfærni Sameinaðs Sílikons hf. við gerð verksamninga við stefnanda, hverra trygginga aflaði stefnandi, hvernig lagði stefnandi mat á gjaldfærni Sameinaðs Sílikons hf. eftir því sem verkinu vatt fram, hvers vegna horfði stefnandi fram hjá eða brást ekki við augljósum og afgerandi upplýsingum um viðkvæma stöðu Sameinaðs Sílikons hf. samkvæmt ársreikningi 2014? Öllum þessum spurningum og fleiri sé ósvarað. Stefnandi verði sjálfur að bera ábyrgð á ætluðu tjóni sínu sem hlaust af ákvörðunum hans um áframhaldandi störf fyrir Sameinað Sílikon hf.

IV

Krafa stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu byggist á því að fjárhagsstaða Sameinaðs Sílikons hf. hafi verið önnur og verri en fram hafi komið í ársreikningi vegna ársins 2014 og að skráð hlutafé félagsins hafi verið hærra en það átti að vera. Ástæður þessa sé annars vegar að rekja til tveggja tilkynninga stefnda, Rögnvaldar Dofra Péturssonar, löggilts endurskoðanda, um hlutafjárhækkanir í einkahlutafélaginu Stakksbraut 9, sem voru tilkynntar til fyrirtækjaskrár 23. september 2014. Hins vegar til áritunar endurskoðandans á samrunareikning Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons hf. (nú þb. Sameinaðs Sílikons hf.) sem tilkynnt var til fyrirtækjaskrár 24. september 2014, þar sem óefnislegar eignir hafi verið verulega ofmetnar, en hann hafi þrátt fyrir það staðfest að samruninn myndi ekki rýra möguleika lánardrottna til fullnustu krafna sinna og áritað ársreikning fyrir árið 2014 án fyrirvara.

Stefnandi byggir kröfu sína um viðurkenningu á bótaskyldu stefndu nánar á því að stefndi, Rögnvaldur Dofri, hafi ranglega staðfest að greindar hlutfjárhækkanir hafi verið greiddar. Með því hafi hann sýnt af sér saknæma vanrækslu í starfi sem hafi leitt til þess að raunveruleg fjárhagsstaða Sameinaðs Sílikons hf. hafi verið allt önnur en endurskoðaðir ársreikningar þess gáfu til kynna. Þetta hafi stefnda, Rögnvaldi Dofra, átt að vera ljóst í síðasta lagi við endurskoðun ársreiknings félagsins vegna ársins 2014. Byggir stefnandi á því að a.m.k. hluti tjóns hans vegna vanefnda Sameinaðs Sílikons hf. á greiðslum á grundvelli verksamnings aðila hafi verið af völdum þessarar vanrækslu stefnda, Rögnvalds. Stefnandi byggir á því að hefði honum verið ljós raunveruleg fjárhagsstaða Sameinaðs Sílikons hf. hefði hann stöðvað framkvæmdir mun fyrr og tjón hans hefði þá ekki orðið jafnmikið af vanefndum félagsins og raunin varð.

Stefndu hafna bótaskyldu og byggja á því að vinna þeirra hafi falist í staðfestingu á því að greiðslur fyrir hlutafé hefðu borist í Stakksbraut 9 ehf. og það hafi þeir gert á grundvelli upplýsinga um millifærslur. Hvað síðar hafi orðið um fjármunina geti ekki verið á ábyrgð stefndu. Þá hafi þeir staðið rétt að samruna Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons hf. og áritun á ársreikning sameinaðs félags 2014.

Fyrri hlutafjárhækkunin var samþykkt á hluthafafundi Stakksbrautar 9 ehf. þann 31. desember 2013, þar sem ákveðið var að auka hlutafé í félaginu um 223.759.000 hluti eða úr 500.000 krónum að nafnverði í 224.259.000 krónur að nafnverði. Eini hluthafinn í félaginu, hollenska félagið USI Holding B.V., skráði sig fyrir þeirri hækkun og hann skyldi greiða fyrir þá hækkun með skuldajöfnun á viðskiptareikningi sínum á genginu einn, eða króna á móti krónu, í samræmi við skýrslu stjórnar og yfirlýsingu endurskoðanda félagsins frá 22. desember 2013.

Þegar stefndi, Rögnvaldur Dofri, staðfesti hækkunina lá fyrir ársreikningur Stakksbrautar 9 ehf. fyrir árið 2013. Einnig höfðu verið lögð fram staðfestingar og gögn, sem sýndu að skuldir fyrir sömu fjárhæð hefðu verið kreditfærðar. Að þessu virtu verður ekki á það fallist að stefndi, Rögnvaldur Dofri, sem þekkti tengsl hluthafa og stjórna umræddra félaga, hefði haft sérstakt tilefni til að efast um tilurð og tilvist inneignar eina hluthafans, USI Holding B.V., hjá Stakksbraut 9 ehf., sem stjórn félagsins hafði staðfest að hann ætti. Er því hafnað þeirri málsástæðu stefnanda að stefndi, Rögnvaldur Dofri, hafi sýnt af sér saknæma háttsemi með tilkynningu sinni til fyrirtækjaskrár um greinda hlutafjárhækkun eða með staðfestingu sinni á inneign eina hluthafa félagsins.

Víkur þá næst að tilkynningu stefnda, Rögnvaldar Dofra, til fyrirtækjaskrár 23. september 2014 um hækkun hlutafjár að fjárhæð 449.216.000 krónur í Stakksbraut 9 ehf., eða úr 224.259.000 krónum að nafnverði í 673.475.000 krónur að nafnverði. Eini hluthafi félagsins, USI Holding B.V., hafði skráð sig fyrir allri hlutafjáraukningunni og í tilkynningu stefnda, Rögnvaldar Dofra, um hækkunina kemur fram að hún hafi verið greidd með peningum. Samkvæmt gögnum málsins liggur fyrir að umræddar greiðslur bárust inn á bankareikning Stakksbrautar 9 ehf. og hafði stefndi, Rögnvaldur Dofri, eins og áður greinir, ekki ástæðu til að ætla annað en að greiðslur hefðu í raun verið inntar af hendi fyrir hönd hluthafans eins og millifærslur á bankareikningi báru með sér. Ráðstöfun félagsins jafnskjótt á þeim fjármunum eftir innborgun og áður en tilkynning stefnda, Rögnvaldar Dofra, barst fyrirtækjaskrá gat ekki verið á ábyrgð stefnda, Rögnvaldar, hvað sem líður réttmæti hennar að öðru leyti. Með vísan til þess er hafnað þeirri málsástæðu stefnanda að stefndi hafi sýnt af sér saknæma háttsemi þegar hann sendi tilkynningu til fyrirtækjaskrár um greinda hlutafjáraukningu.

Stefnandi byggir einnig á því að ranglega hafi verið staðið að samruna Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons hf., sem tilkynntur var til fyrirtækjaskrár 24. september 2014. Er á því byggt að stefndi, Rögnvaldur Dofri, hafi sýnt af sér saknæma háttsemi með því að taka þátt í því að meta of hátt í samrunaefnahagsreikningi fyrir Stakksbraut 9 ehf. og Sameinað Sílikon ehf. óefnislegar eignir hins sameinaða félags. Hafi stefndi, Rögnvaldur, með yfirlýsingu sinni staðfest að samruninn myndi ekki rýra möguleika lánardrottna til fullnustu krafna sinna og áritað samrunareikning félaganna sem endurskoðaðan. Megi rekja hluta tjóns stefnanda til þessarar vanrækslu stefnda.

Í áritun endurskoðandans á sameiginlegan efnahagsreikning félaganna 24. september 2014 segir svo:

Undirritaður endurskoðandi hefur endurskoðað og sannreynt að sameignlegur efnahagsreikningur Sameinaðs Sílikons hf. og Stakksbrautar 9 ehf. hinn 1. september 2014 byggir á árshlutareikningum félaganna fyrir tímabilið 1. janúar 2014 til 31. ágúst 2014. Jafnframt hefur undirritaður endurskoðandi endurskoðað og sannreynt að drög að upphafsefnahagsreikningi Sameinaðs Sílikons hf. þann 1. september 2014 eru í samræmi við samrunaefnahagsreikninginn og sýnir þær breytingar sem álitið er að samruninn hafi í för með sér. Samkvæmt 1. mgr. 121. gr. laga nr. 2/1995 hvílir sú ábyrgð á félagsstjórn í hverju félagi að semja greinargerð um samrunaáætlunina þar sem hún er skýrð og rökstudd. Hún skal sérstaklega fjalla um efnahagslegar og lagalegar ástæður til grundvallar samrunaáætluninni, svo og ákvörðun endurgjalds fyrir hlutina og þau sérstöku vandkvæði sem tengjast ákvörðuninni. Skal félagsstjórn sjá til þess að henni fylgi endurskoðaður sameiginlegur efnahags- og rekstrarreikningur sem sýni allar eignir og skuldir í hverju félaganna, þær breytingar sem álitið er að samruninn muni hafa í för með sér og drög að upphafsefnahagsreikningi yfirtökufélagsins.

Óumdeilt er að stefndi endurskoðaði ekki samrunaefnahagsreikninginn. Hafa stefndu bent á að þrátt fyrir orðalag ákvæðis 2. mgr. 96. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og 121. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög hafi fyrirtækjaskrá engu að síður tekið áritanir með því orðalagi sem stefndi, Rögnvaldur Dofri, notaði umrætt sinn gildar og jafnvel áritanir um að reikningur hefði ekki verið endurskoðaður.

Ljóst er að umrædd framkvæmd sem stefndi, Rögnvaldur Dofri, hefur lýst að viðhöfð hafi verið við áritun og gerð samrunaefnahagsreikninga er hvorki í samræmi við orðalag fyrrgreindra ákvæða laga nr. 138/1994laga nr. 2/1995. Dómurinn, sem skipaður er sérfróðum meðdómanda, telur ljóst að ábyrgðin og skyldan til að sjá til þess að samrunaáætlun fylgdi endurskoðaður sameiginlegur efnahags- og rekstrarreikningur hafi hvílt á stjórn félagsins. Samt verður ekki litið fram hjá því að stefndi, Rögnvaldur Dofri, sem er löggiltur endurskoðandi, gaf með áritun sinni ranglega til kynna að samrunaefnahagsreikningurinn hefði verið endurskoðaður og með því hefur hann sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi. Sjónarmið stefndu um að framkvæmdin sé önnur en lög mæla fyrir um breytir ekki þessari niðurstöðu dómsins.

Kemur þá næst til skoðunar hvort meint tjón stefnanda megi rekja til fyrrgreindrar háttsemi stefnda, Rögnvaldar Dofra. Stefnandi telur ljóst að svo sé. Vísar stefnandi til þess að útistandandi kröfur hans á hendur Sameinuðu Sílikoni hf. í júlí 2016 hafi numið 1.099.191.104 krónum. Samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi félagsins vegna ársins 2014 hafi eigið fé félagsins numið 1.303.120.681 krónu. Þá bendir stefnandi á að samkvæmt vottorði frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra í maí 2016 hafi hlutafé Sameinaðs Sílikon hf. auk þess verið hækkað í fjóra milljarða króna á árinu 2015 og því hafi stefnandi mátt treysta því að félagið gæti staðið undir kröfum að fjárhæð a.m.k. 1,3 milljarðar króna. Við innheimtu krafnanna hafi síðan komið í ljós að félagið gat ekki staðið undir þeim og í kjölfarið hafi það verið lýst gjaldþrota. Byggir stefnandi á því að hefði honum verið ljós raunveruleg fjárhagsstaða félagsins hefði hann stöðvað framkvæmdir mun fyrr og tjón hans hefði þá ekki orðið jafnmikið af vanefndum félagsins. Endurskoðaður ársreikningur Sameinaðs Sílikons hf. vegna ársins 2014 og skráð hlutafé félagsins í maí 2016 hafi þannig gefið ranga mynd af fjárhagsstöðu þess, sem stefndi, Rögnvaldur, beri ábyrgð á.

Í ársreikningi Sameinaðs Sílikons hf. árið 2014 var gerð grein fyrir óefnislegum eignum en um var að ræða ýmsan undirbúnings- og stofnkostnað sem ekki var heimfæranlegur á verksmiðjuhús eða framleiðslutæki og var þessi kostnaður færður til eignar á kostnaðarverði. Ársreikningurinn bar með sér að allur kostnaður við uppbyggingu verksmiðjunnar hefði verið eignfærður en alls voru varanlegir rekstrarfjármunir í árslok bókfærðir á um 3,1 milljarð króna. Þar af voru óefnislegar eignir (stofnkostnaður) bókfærðar á um 1,4 milljarða króna. Þá liggur fyrir að endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið Deloitte gerði virðisrýrnunarpróf á varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum miðað við árslok 2016, þar sem engar vísbendingar komu fram um virðisrýrnun. Er því ósannað að óefnislegar eignir hafi verið metnar of hátt í ársreikningi Sameinaðs Sílikons hf. árið 2014 og skapað þannig óraunhæfar væntingar.

Samkvæmt gögnum málsins var hlutafé Sameinaðs Sílikons hf. hækkað á árinu 2015 og nam í árslok um 4 milljörðum króna og á árinu 2016 var það hækkað um tæpa 1,7 milljarða króna til viðbótar. Samkvæmt ársreikningi 2015 voru heildareignir félagsins 9,4 milljarðar króna og þar af var handbært fé rúmlega 400 milljónir. Skuldir í árslok voru 5,3 milljarðar króna og eigið fé 4,2 milljarðar. Þá er fram komið að stefnandi fékk greidda rúmlega 3,2 milljarða króna vegna verksamnings við Sameinað Sílikon hf. frá þeirri stöðu sem birtist í ársreikningi 2014 og þar til stefnandi lét af störfum um mitt árið 2016, þar af námu greiðslur á árinu 2016 um 2 milljörðum króna.

Í skýrslu forstjóra stefnanda fyrir dóminum kom enn fremur fram að stefnanda hefði verið kunnugt um það sem fram hefði komið í ársreikningi 2014 og að allar eignir félagsins hefðu verið veðsettar Arion banka. Þá hefði staða skammtímaskulda samkvæmt ársreikningnum, sem voru hærri en handbært fé, ekki valdið stefnanda áhyggjum þar sem verksmiðjan hefði verið í byggingu á þessum tíma. Auk þess hefði efnahagsreikningur Sameinaðs Sílikons hf. breyst á milli daga með framlagningu á nýju hlutafé, láni eða öðru. „Verkefnið var í undirbúningi og þetta hafi verið ársreikningur 2014.“ Þá hefði fjármögnun Arion banka haft mikil áhrif á ákvörðun félagsins um að halda áfram störfum sínum við byggingu verksmiðjunnar. Forstjórinn tók einnig fram að félagið hefði verið með greiðslutryggingu á árinu 2016 sem var að renna út og að taka hefði þurft ákvörðun um það hvort halda ætti áfram vinnu við verkefnið en fram að því hefði þetta gengið alveg ágætlega. Það hefði verið álitamál sem ekki hefði verið samkomulag um að leysa og stefnandi hefði séð að það var töluvert af atriðum sem átti eftir að leysa og þeir hefðu viljað fá vissu fyrir því að þeir enduðu ekki þar sem þeir hefðu að lokum gert. Þá hefði stefnandi litið til hlutafjárhækkunar upp á 4 milljarða á árinu 2015 sem merki um að málin væru á réttri leið. Forstjórinn tók fram að ekki hefði verið kallað eftir árshlutareikningum fyrir árið 2015, en hann gæti ekki svarað því hvort kallað hefði verið eftir ársreikningi 2015 frá Sameinuðu Sílikoni hf. sem lá fyrir 29. febrúar 2016.

Af framanrituðu þykir ljóst að tjón stefnanda verður hvorki rakið til þess að óefnislegar eignir hafi verið metnar of hátt né að tjónið sé að rekja til framsetningar ársreikninga fyrir félögin.

Með skírskotun til alls þess er að framan greinir verður ekki talið að skýringar á meintu tjóni stefnanda sé að rekja til staðfestinga stefnda, Rögnvalds Dofra, á innborguðu hlutafé í Stakksbraut 9 ehf. 31. desember 2013 og 15. febrúar 2014, samtals að fjárhæð 673.475.000 krónur, eða til áritunar hans á sameiginlegan efnahagsreikning félaganna Stakksbrautar 9 ehf. og Sameinaðs Sílikons 24. september 2014 og endurskoðunar hans á ársreikningi Sameinaðs Sílikons hf. árið 2014. Er það niðurstaða dómsins að sýkna beri stefndu, Ernst & Young ehf. og Rögnvald Dofra Pétursson, af öllum kröfum stefnanda, Íslenskra aðalverktaka hf. í máli þessu.

Eftir úrslitum málsins og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ber stefnanda að greiða stefndu sameiginlega 2.000.000 króna í málskostnað. Við ákvörðun málskostnaðar hefur verið tekið tillit til frávísunarþáttar málsins.

Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður flutti málið af hálfu stefnanda.

Grétar Dór Sigurðsson lögmaður flutti málið af hálfu stefndu.

Ragnheiður Snorradóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Meðdómendur eru Björn L. Bergsson héraðsdómari og Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi.

Dómsorð:

Stefndu, Ernst & Young ehf. og Rögnvaldur Dofri Pétursson, eru sýknaðir af dómkröfum stefnanda, Íslenskra aðalverktaka hf. Stefnanda ber að greiða stefndu 2.000.000 króna í málskostnað.

Ragnheiður Snorradóttir Björn L. Bergsson Lárus Finnbogason

Heimildaskrá