Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-335/2017:

D Ó M U R

máli nr. S-335/2017:

Ákæruvaldið

(Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

El Mustapha Bkhibkhi

(Bjarni Hauksson hrl)

Kynferðisbrot.

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni.

Mál   þetta,   sem   dómtekið   var   5.   september   sl.,   er   höfðað   með   ákæru útgefinni af héraðssaksóknara, 15. maí 2017, á hendur El Mustapha Bkhibkhi, dvalarstaður Bæjarhrauni 16, Hafnarfirði fyrir kynferðislega áreitni gegn barni en til vara brot gegn barnaverndarlögum, með því að hafa þann 1. mars 2017, í rúllustiga milli fyrstu og annarrar hæðar í verslunarmiðstöðinni Kringlunni, tekið utan um A, þá 14 ára, sagt við hana á ensku að hann elskaði hana og kysst hana tvisvar sinnum, fyrst á kinn og svo við munnvik, og er upp á aðra hæð var komið, haldið utan um axlir stúlkunnar og gengið áfram með hana og síðar fært hendur sínar niður á bringu stúlkunnar þannig að þær snertu brjóst hennar utanklæða, allt þar til stúlkan losaði sig undan ákærða og flýði á brott. Telst þetta varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara við 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Af hálfu B, fyrir hönd ólögráða dóttur sinnar A, er gerð krafa um greiðslu miskabóta úr hendi ákærða að fjárhæð 400.000 krónur auk almennra vaxta skv. 8. gr.   laga   nr.   38/2011   um   vexti   og   verðtryggingu   frá   1.   mars   2017   en   síðan dráttarvaxta, samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

Ákærði   neitar   sök.   Verjandi   ákærða   krefst   aðallega   sýknu   en   til   vara vægustu refsingar er lög leyfa. Þá krefst hann frávísunar á skaðabótakröfu en til vara að skaðabætur verði lækkaðar. Loks er þess krafist að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.

Miðvikudaginn 1. mars 2017, kl. 12.58, var lögreglu tilkynnt um að 14 ára stúlka, brotaþoli í máli þessu, hefði orðið fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu ákærða. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að er lögregla hafi mætt á svæðið hafi öryggisverðir verið með ákærða hjá sér. Ákærði hafi verið rólegur. Lögregla hafi fengið öryggisverði til að gæta ákærða á meðan hún ræddi við þær stúlkur er tilkynnt hefðu um brot ákærða. Fram kemur að þennan dag hafi verið öskudagur og mikið af fólki og ungmennum í Kringlunni í ýmsum búningum. Brotaþoli hafi verið í bleikum og hvítum samfestingi sem hafi verið renndur upp í háls. Rætt hafi verið við   stúlkurnar   að   foreldrum   þeirra   viðstöddum   en   þeir   hafi   komið   á   staðinn. Brotaþoli   hafi   lýst   atvikum   þannig   að   einhver   hafi   komið   aftan   að   henni   í rúllustiganum í Kringlunni og ,,knúsað“ hana. Hafi brotaþoli ekki séð hver þetta var en talið þetta vera einhvern sem hún þekkti. Er brotaþoli hafi áttað sig á því að svo var ekki hafi hún reynt að losa sig. Maðurinn hafi hins vegar gripið fast í hana og um brjóst hennar utanklæða. Hafi hann sagt við hana á ensku að hann elskaði hana og fleira slíkt og kysst brotaþola á kinnina og á munnvik. Hann hafi elt hana upp stigann og áfram upp á 3ju hæð við Stjörnutorg. Vinkona brotaþola hafi verið með í för og orðið vitni að atvikum. Er upp á Stjörnutorg kom hafi þær hlaupið að versluninni Beautyshop og óskað eftir aðstoð starfsfólks. Í frumskýrslu kemur fram að eftir viðræður við brotaþola og vinkonu hennar hafi verið rætt við ákærða. Hann hafi virkað rólegur og án áfengisáhrifa. Ákærði hafi verið fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku.   Öryggisvörður   í   Kringlunni   hafi   afhent   lögreglu   upptökur   úr eftirlitsmyndavélakerfi og eru þær á meðal gagna málsins. Fimmtudaginn 2. mars 2017 lagði móðir brotaþola fram kæru hjá lögreglu á hendur ákærða fyrir brot gegn dóttur   hennar.   Mánudaginn   20.   mars   2017   var   tekin   skýrsla   af   brotaþola   í Barnahúsi.

Ákærði   hefur   skýrt   svo   frá   að   umrætt   sinn   hafi   hann   verið   á   ferð   í verslunarmiðstöðinni Kringlunni. Hann hafi séð fullt af börnum í Kringlunni og þau verið klædd í búninga og verið búin að mála sig. Á meðal þeirra hafi verði stelpa sem hafi verið í flottum kanínubúningi. Ákærða hafi fundist þetta sætt og hafi ákveðið að knúsa stelpuna. Honum hafi þótt þetta eðlilegt en hann hafi séð að stúlkan var barn. Hann hafi ekkert sagt við stúlkuna heldur einfaldlega tekið utan um hana. Hann hafi talað fallega við hana á sínu tungumáli en hann væri frá Marrokó. Ákærði kvaðst ekki hafa snert stúlkuna nema með þessu eina faðmlagi. Hann hafi ekki kysst hana eða sagt við hana að hann elskaði hana. Þá hafi hann ekki snert brjóst stúlkunnar og hún hafi ekki reynt að losa sig með neinum hætti. Hann hafi faðmað hana um það leyti er þau hafi verið nánast komin upp með rúllustiganum í Kringlunni. Faðmlagið hafi staðið í nokkrar sekúndur. Er upp hafi verið komið hafi stúlkan haldið sína leið. Hún hafi verið glöð í bragði. Hann myndi ekki eftir að hafa rekist á hana aftur í Kringlunni þennan dag og engin kynferðisleg hugsun hafi legið að baki faðmlagi hans. Ákærði kvað það hluta af menningu í heimalandi sínu að faðma ókunnug börn, en honum þætti almennt vænt um börn.

Brotaþoli kvaðst hafa verið í Kringlunni 1. mars 2017. Hún hafi verið þar ásamt vinkonu sinni, en fjöldi ungs fólks hafi verið í Kringlunni þennan dag þar sem dagurinn hafi verið öskudagur. Hún hafi verið í svonefndum ,,cosy-galla“, sem hafi verið eins og krókódíll í laginu. Þær vinkonurnar hafi farið í verslun á jarðhæð Kringlunnar. Þaðan hafi þær farið upp á næstu hæð og farið upp rúllustiga. Er hún hafi verið komin í stigann hafi. Hún hafi í fyrstu ekki vitað/séð hver þetta hafi verið og talið það vera einhvern sem hún þekkti. Í því hafi hún séð ákærða. Hún hafi talið að einungis yrði um þetta eina knús að ræða. Ákærði hafi hins vegar haldið um brotaþola í rúllustiganum og byrjað að kyssa hana og ítrekað sagt á ensku að hann elskaði hana. Hann hafi fyrst kysst hana á kinnina og hún reynt að víkja sér undan. Ákærði hafi þá sett hönd á höfuð hennar, sveigt það að sér og kysst hana aftur og nú nærri munnviki hennar. Þá hafi þau næstum verið komin upp rúllustigann og hún reynt að losna undan honum. Hann hafi aftur gripið um hana og nú sett hönd á brjóstkassa hennar og síðan fært höndina neðar og á brjóst hennar. Henni hafi tekist að losna frá ákærða og hún, ásamt vinkonu sinni, hlaupið á brott. Hafi þær farið að versluninni Beautyshop og leitað þar skjóls. Þær hafi sagt starfsfólki hvað gerst hefði og starfsfólk hringt á öryggisvörð. Á þeim tímapunkti hafi henni verið farið að líða illa yfir þessu öllu saman og málið hafi haft mikil áhrif á hana og henni fundist allar snertingar óþægilegar næstu daga. Hún hafi verið hrædd við að vera ein á ferð og ávallt verið á varðbergi. Þá hafi hún fengið martraðir, sem hún hafi ekki átt vanda til. Vinkona   brotaþola   kvaðst   hafa   verið   samferða   brotaþola   í   Kringlunni umrætt sinn. Þær vinkonurnar hafi verið að koma úr verslun á jarðhæð og farið upp rúllustiga. Vinkonan hafi verið fyrir framan brotaþola í rúllustiganum. Hún hafi litið við og séð ákærða halda utan um brotaþola. Hann hafi ítrekað sagt brotaþola á ensku að hann elskaði hana og að hann saknaði hennar. Hann hafi reynt að kyssa brotaþola og varir hans snert kinn hennar og síðan rétt ofan við munnvikin. Hann hafi haldið höfði hennar nærri sér til að geta kysst hana. Brotaþola hafi tekist að losna frá honum við enda stigans en ákærði hafi elt hana. Hann hafi náð brotaþola aftur og vinkonan séð ákærða koma við brjóst hennar. Þær hafi farið að versluninni Beautyshop en ákærði hafi elt þær þangað. Þær hafi sagt starfsfólki verslunarinnar frá því sem í gangi væri. Hafi starfsfólkið hringt á öryggisvörð. Ákærði hafi staðið skammt frá og með látbragði sagt brotaþola að hringja í sig. Lögregla hafi komið á svæðið skömmu síðar. Vinkonan kvaðst hafa séð að brotaþola leið illa. Hún hafi greinilega verið hrædd við ákærða. Vinkonan haf farið með henni heim en brotaþoli hafi verið óttaslegin. Málið hafi haft töluverð áhrif á brotaþola og hún hafi fengið kvíðaköst eftir þetta og ekki viljað fara í Kringluna eða Smáralind.

Móðir brotaþola greindi frá því að umrætt sinn hafi dóttir hennar hringt í sig. Hafi hún beðið móður sína um að vera ekki hrædda en brotaþoli hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Móðirin hafi farið í Kringluna þar sem hún hafi hitt dóttur sína og vinkonu hennar. Brotaþoli hafi greinilega verið í uppnámi. Hún hafi sagt að ákærði hafi leitað á sig, en hann hafi káfað á henni og snert hana, m.a. brjóstin. Brotaþoli hafi ekki verið að átta sig á hlutum í fyrstu. Áfallið hafi komið eftirá og líðan brotaþola versnað. Brotaþoli og ákærði búi bæði í Hafnarfirði og það komi fyrir að brotaþoli sjái ákærða álengdar. Brotaþoli fái martraðir sem tengdar séu þessum   atburði.   Hafi   brotaþoli   leitað   til   sálfræðings   þar   sem   hún   sé   nú   til meðferðar. Sú meðferð sé að skila árangri.

Fyrir dóminn komu þrír öryggisverðir úr Kringlunni. Greindu þeir frá því að tilkynnt hafi verið um kynferðislegt áreiti í Kringlunni og hafi þeir stöðvað för ákærða. Hann hafi verið hjá öryggisvörðum þar til lögregla hafi tekið við honum. Einn öryggisvörður kvaðst hafa rætt við brotaþola og hafi hún verið í miklu uppnámi.

Starfsmaður   úr   versluninni   Beautyshop   í   Kringlunni   lýsti   því   að   tvær stúlkur hafi komið hlaupandi inn í versluninni á öskudeginum 1. mars 2017. Þær hafi verið í uppnámi og önnur þeirra spurt hvort þær mættu leita þar skjóls þar en hún hefði verið áreitt. Hún hafi sagt að maður hefði snert og kysst hana. Kvaðst starfsmaðurinn   hafa   hringt   á   öryggisvörð.   Hún   hafi   lýst   manninum   fyrir öryggisvörðum og í því farið eftir lýsingu stúlknanna. Í sama mund hafi maður sem samsvarað hafi lýsingunni gengið framhjá versluninni. Hann hafi gert skrýtna handahreyfingu gagnvart þeim í versluninni og sagt "elska þig" á ensku. Maðurinn hafi verið tekinn af öryggisvörðum skömmu síðar. Stúlkurnar hafi verið í uppnámi og skelkaðar.

Lögreglumaður er vann að rannsókn málsins kom fyrir dóminn og staðfesti þátt sinn í rannsókninni.

Niðurstaða:

Ákærða er gefið að sök kynferðisbrot gagnvart brotaþola með því að hafa í rúllustiga í verslunarmiðstöðinni Kringlunni tekið utan um brotaþola, sagt við hana á ensku að hann elskaði hana og kysst hana tvisvar sinnum, fyrst á kinn og svo við munnvik og er upp á aðra hæð var komið haldið utan um axlir brotaþola. Einnig að hafa   gengið   með   henni   áfram   og   síðar   að   hafa   fært   hendur   niður   á   bringu stúlkunnar og snert brjóst hennar utan klæða. Er brot ákærða aðallega talið varða við   2.   mgr.   202.   gr.   laga   nr.   19/1940,   en   til   vara   við   3.   mgr.   99.   gr. barnaverndarlaga.

Ákærði neitar sök. Kveðst hann hafa tekið utan um brotaþola umrætt sinn og knúsað hana. Það hafi varað skamma stund og engin kynferðisleg háttsemi átt sér stað. Hann hafi hvorki kysst brotaþola né komið við brjóst hennar. Þá hafi hann ekki sagt við brotaþola að hann elskaði hana.

Brotaþoli hefur lýst háttsemi ákærða á þann hátt er í ákæru greinir. Hún hefur lýst háttseminni á sama veg hjá lögreglu og fyrir dómi. Þann framburð hennar styður vinkona brotaþola er var brotaþola samferða í Kringlunni þennan dag.

Á   meðal   rannsóknargagna   málsins   er   myndskeið   úr   eftirlitsmyndavél   í verslunarmiðstöðinni.   Myndskeiðið   var   sýnt   bæði   ákærða   og   brotaþola   undir meðförum málsins og staðfestu þau að það sýndi þetta atvik og að um þau væri að ræða.   Á   myndskeiði   má   sjá   er   ákærði   og   brotaþoli   koma   upp   efsta   hluta rúllustigans. Ákærði heldur um herðar brotaþola þannig að brotaþoli er þétt upp við ákærða. Eftir að upp á hæðina er komið gengur ákærði áfram þétt upp við brotaþola og  heldur um hana. Vinkona brotaþola er einnig á myndskeiðinu og er hún á undan þeim. Að endingu reynir brotaþoli að snúa sér undan ákærða. Það gengur ekki vel þar sem ákærði heldur áfram í brotaþola og svo virðist sem hönd ákærða fari niður á brjóstsvæði brotaþola. Brotaþoli fer á brott ásamt vinkonu sinni og eltir ákærði þær þar til þau hverfa öll úr myndskeiðinu. Á öðru myndskeiði, sem tekur við í framhaldi,   má   sjá   brotaþola   og   vinkonu   hennar   hlaupa   eftir   annarri   hæðinni. Skömmu síðar gengur ákærði á eftir þeim uns hann hverfur úr mynd.

Brotaþoli var trúverðug í frásögn sinni hér fyrir dóminum. Framburður vinkonu   brotaþola   styður   við   framburð   hennar.   Ef   litið   er   til   myndskeiðs   úr eftirlitsmyndavélakerfi er framburður ákærða um samskipti við brotaþola ekki trúverðugur en hann hefur lýst því að hann hafi einungis átt stutt samskipti við brotaþola í rúllustiganum. Það fær ekki staðist. Þá lýsti ákærði því að hann hefði einungis í nokkrar sekúndur haldið um herðar brotaþola. Það fær heldur ekki staðist miðað við myndskeiðið. Þá er til þess að líta að þessi myndskeið sýna að ákærði hefur   elt   brotaþola   og   vinkonu   hennar,   um   verslunarmiðstöðina.   Myndskeiðin styðja framburð brotaþola um samskiptin. Þá styðja framburðir vitna að brotaþoli hafi verið í uppnámi eftir atvikið sem styður að brotið hafi verið gegn henni.

Þegar til þessa er litið verður trúverðugur framburður brotaþola og vinkonu hennar   lagður   til   grundvallar   niðurstöðu.   Er   sannað   að   ákærði   hafi   sagt   við brotaþola á ensku að hann elskaði hana, að hann hafi kysst brotaþola í tvígang, haldið um axlir stúlkunnar og að endingu fært hendur niður á bringu stúlkunnar þannig að þær hafi snert brjóst hennar. Framferði ákærða, eins og það birtist á myndskeiðinu og eins og brotaþoli og vinkona hennar lýsa því, getur ekki skýrst af væntumþykju.   Verður   lagt   til   grundvallar   að   ákærði   hafi   áreitt   brotaþola kynferðislega. Varðar sú háttsemi hans við 2. mgr. 202. gr. laga nr. 19/1940. Samkvæmt því verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru.

Ákærði er fæddur í janúar 1964. Hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi svo kunnugt sé. Ákærði braut kynferðislega gegn 14 ára stúlku. Var honum kunnugt um að um barn væri að ræða. Ákærði á sér ekki málsbætur. Er refsing hans ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, sem í ljósi sakaferils þykir fært að skilorðsbinda með þeim hætti er í dómsorði greinir. Fyrir hönd brotaþola er gerð krafa um að ákærði greiði brotaþola 400.000 krónur í miskabætur, ásamt vöxtum. Er á því byggt að ákærði hafi valdið brotaþola miskatjóni sem honum beri að bæta eftir 26. gr. laga nr. 50/1993. Þó svo ekki liggi fyrir sérfræðileg gögn um þau áhrif sem brot ákærða hafði á brotaþola verður engu að síður slegið föstu að háttsemi ákærða hafi verið til þess fallin að valda brotaþola miskatjóni. Verða miskabætur ákveðnar 300.000 krónur, auk vaxta sem í dómsorði greinir.

Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþola, sem nánar greinir í dómsorði Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir aðstoðarsaksóknari. Símon Sigvaldason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, El Mustapha Bkhibkhi, sæti fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms   þessa   haldi   ákærði   almennt   skilorð   57.   gr.   almennra   hegningarlaga   nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði B, fyrir hönd A, 300.000 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 1. mars 2017 til 21. maí 2017 en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Bjarna Haukssonar hæstaréttarlögmanns, 927.520 krónur og þóknun réttargæslumanns brotaþola Hildar Leifsdóttur héraðsdómslögmanns, 421.600 krónur.

Símon Sigvaldason