Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-506/2016:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir fulltrúi)

gegn

Guðmundi Friðriki Stefánssyni

Mál

(Stefán Karl Kristjánsson hrl)

Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Hraðakstur. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.

Ákærði dæmdur í þrettán mánaða fangelsi fyrir að aka í tvígang sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og í annað skiptið jafnframt undir áhrifum áfengis og umfram lögleyfðan hámarkshraða.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglu stjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   9.   ágúst   2016,   á   hendur   Guðmundi   Friðriki Stefánssyni,   kennitala   000000-0000,   Hraunbæ   156,   Reykjavík,   fyrir   eftirtalin umferðarlagabrot með því að hafa:

  1. Þriðjudaginn 9. febrúar 2016, ekið bifreiðinni OB-686 sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 1,25 ‰ og amfetamín 135 ng/ml), með 117 km hraða á klukkustund um Reykjanesbraut í Vatnsleysustrandarhreppi, vestan við Voga, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klukkustund.

    Teljast brot þessi varða við 2. mgr. 37. gr., 1., sbr. 3. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

  2. Laugardaginn 11. júní 2016, ekið bifreiðinni PF-199 sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 265 ng/ml) vestur Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði, við Fornubúðir, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Teljast brot þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín.  Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í ágúst 1980.  Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 3. ágúst 2016, á ákærði að baki nokkurn sakaferil og hefur margítrekað verið fundinn sekur um að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa vegna ávana- og fíkniefna.  Við ákvörðun refsingar er miðað við að ákærði sé nú í áttunda sinn fundinn sekur um að aka undir áhrifum áfengis eða óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna en í sjötta sinn fundinn sekur um að aka sviptur ökurétti.  Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og ákvæðum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og í samræmi við dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrettán mánuði.

    Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða, frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.

    Ákærði   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Stefáns   Karls Kristjánssonar hrl., 145.080 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 175.608 krónur í annan sakarkostnað.

    Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir fulltrúi. Valborg Steingrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Guðmundur Friðrik Stefánsson, sæti fangelsi í þrettán mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dóms þessa að telja. Ákærði   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Stefáns   Karls Kristjánssonar hrl., 145.080 krónur og 175.608 krónur í annan sakarkostnað.

Valborg Steingrímsdóttir