Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. desember 2018.
Lykilorð
Lánssamningur. Samningur. Skuldamál. Vextir.
Útdráttur
Deilt um rétt til endurgreiðslu vegna ólögmætrar gengistryggingar
Stefnandi er Sandra Ragnarsson, [...]. Stefndi er Landsbankinn hf., Austurstræti 11, Reykjavík. Dómsformaðurinn tók við meðferð málsins 1. september 2018 en hafði engin afskipti af meðferð þess fram að þeim tíma.
- Stefnandi krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér skuld að fjárhæð 1.160.067 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 af 1.051.438 krónum frá 22. mars 2012 til 10. febrúar 2014 en af 1.060.067 krónum frá 10. febrúar 2014 til greiðsludags og málskostnað að mati dómsins. Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda. Til vara krefst stefndi þess að skuldajafnað verði vegna kröfu stefnda á hendur stefnanda vegna vanskila á bílasamningi ásamt kostnaði sem stefndi hefur lagt út fyrir að fjárhæð 497.987 krónum ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af 35.318 krónum frá 18. mars 2013 til 16. apríl 2013, af 50.318 krónum frá 16. apríl 2013 til 3. október 2013, af 85.660 krónum frá 3. október 2013 til 15. nóvember 2013, af 482.987 krónum frá 15. nóvember 2013 til 4. mars 2015 en af 497.987 krónum frá 4. mars 2015 til greiðsludags. Þá krefst stefndi í báðum dómkröfum sínum málskostnaðar úr hendi stefnanda að mati dómsins.
- Dómkröfu sína rekur stefnandi til tveggja mismunandi atvika. Annars vegar rekur stefnandi 108.629 krónur af höfuðstól kröfu sinnar til þess sem hún telur vera rangt uppgjör stefnda til sín vegna bílasamnings. Stefnandi gerði samning við SP – Fjármögnun í apríl 2005. Í samningnum fólst að SP – Fjármögnun, sem síðar varð hluti af stefnda, lánaði stefnanda fé til bílakaupa með svokölluðum kaupleigusamningi. Samningurinn var tengdur gengi tiltekinna erlendra gjaldmiðla og með vöxtum miðað við millibankavexti í London eða svokölluðum LIBOR-vöxtum. Í kjölfar dóma Hæstaréttar, þar sem slík lán, sem tengd voru gengi erlendra gjaldmiðla, voru talin lán í íslenskum krónum, með ólögmætri gengistryggingu höfuðstóls skuldar, var lán stefnanda endurreiknað. Ekki aðeins einu sinni heldur tvívegis. Þetta leiddi til þess að skuld stefnanda var talin hafa lækkað. Í kjölfar síðari endurreikningsins taldi stefnandi sig enn ekki hafa fengið sinn hlut réttan að fullu. Leitaði hún til kunnáttumanns sem gerði nýjan endurreikning sem stefnandi byggir á þennan fyrri lið kröfu sinnar. Hinn hluta kröfu sinnar að höfuðstól 1.051.438 krónur rekur stefnandi til þess að í september 2011 hafi hún fengið framselda til sín kröfu Byggingafélagsins Kambs ehf. á hendur SP – Fjármögnun. Þessa kröfu Byggingafélagsins Kambs telur stefnandi hafa stofnast á grundvelli þess að félagið hefði átt rétt á endurgreiðslu ofgreiddra afborgana vegna bílalána sem það hefði fengið hjá SP – Fjármögnun og sem voru ólögmæt á sama hátt og hennar eigin samningur. Stefndi telur sig hafa staðið rétt að endurútreikningi skuldar stefnanda vegna nefnds bílasamnings og hafnar útreikningum stefnanda og telur auk þess að hvorki liggi fyrir gögn sem sýni tilvist kröfu Byggingafélagsins Kambs ehf. á hendur SP – Fjármögnun né að slík krafa, ef hún væri til, hefði verið framseld stefnanda.
- Stefnandi byggir á því að stefndi og forveri hans sem eigandi kröfu á hendur stefnanda, SP – Fjármögnun, hafi vanefnt gróflega skyldur sínar samkvæmt samningi aðila með því að lána stefnanda fé með lánssamningi sem bundinn var ólögmætri gengisviðmiðun, með því að standa ranglega að endurútreikningi lánsins og með því að hafa ekki greitt stefnanda kröfu hennar þrátt fyrir að hafa viðurkennt tilvist hennar. Þá vísar stefnandi til þess að eftir að endurútreikningur Þorgils Ámundasonar hafi legið fyrir og verið sendur stefnda hafi honum hvorki verið mótmælt né gerðar við hann efnislegar athugasemdir. Þannig hafi stefndi hvorki gert athugasemdir um niðurstöðu Þorgils eða þá aðferðafræði sem hann hafi beitt við útreikning sinn. Hvað varðar hinn hluta kröfugerðar sinnar vísar stefnandi til þess að um sé að ræða leiðréttingu á kröfulýsingum vegna fjölmargra rekstrarleigusamninga sem Byggingafélagið Kambur hafi verið með hjá SP – Fjármögnun. SP – Fjármögnun hafi lýst eftirstöðvakröfu vegna rekstrarleigusamninganna við nauðasamning Byggingafélagsins Kambs að fjárhæð 12.265.362 krónur og fengið greiddar 2.698.380 krónur við nauðasamninginn. Síðar hafi verið viðurkennt að kröfugerð SP – Fjármögnunar hafi verið reist á uppgjöri lánssamninga sem bundnir hafi verið ólögmætri gengisviðmiðun og kröfugerðin við nauðasamning Kambs því ekki átt rétt á sér að öllu leyti. Á þessum grundvelli telur stefnandi að stefndi hafi fallist á að endurgreiða Byggingafélaginu Kambi 1.051.438 krónur en sú krafa hafi verið framseld stefnanda.
Niðurstaða
- Kröfugerð stefnanda samkvæmt fyrri hluta kröfugerðar hans byggir á útreikningum Þorgils Einars Ámundasonar. Í útreikningunum eru afborganir og greiðslur lánsins sem stefnandi tók hjá SP – Fjármögnun reiknaðar út frá þeirri forsendu að höfuðstóll lánsins sé í íslenskum krónum en vextir lánsins miðist áfram við LIBOR-vexti með álagi eins og hinn svokallaði bílasamningur kvað á um. Mismunur á niðurstöðu samkvæmt þessum útreikningi og útreikningum stefnda sem lagðir voru til grundvallar við endurreikninga láns stefnanda stafar eingöngu af mismunandi vaxtaforsendum. Ekki verður annað séð en að útreikningar Þorgils á vöxtum og afborgunum lánsins séu réttir miðað við forsendur hans. Til hins er að líta að í dómum Hæstaréttar, þar sem lán hafa verið talin ólögleg vegna gengistryggingar, hefur niðurstaðan verið sú að ekki sé hægt að vaxtareikna lán í íslenskum krónum með LIBOR-vöxtum. Sé lán í íslenskum krónum verði að vaxtareikna það með lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum sem eru birtir samkvæmt 10. gr. laga nr. 38/2001. Þetta hefur einmitt verið lagt til grundvallar við endurreikninga á láni stefnanda. Til hliðsjónar um þetta vísast til dóma Hæstaréttar í málunum nr. 471/2010 og nr. 604/2010. Ekki verður því fallist á þann hluta kröfu stefnanda sem gerð er á þessum grundvelli.
- Þá kemur að þeim hluta kröfu stefnanda sem varðar endurkröfurétt á hendur stefnda, sem stefnandi telur hafa verið framseldan sér, vegna leiðréttinga ólöglegrar gengistryggingar rekstrarleigusamninga Byggingarfélagsins Kambs hjá SP – Fjármögnun. Í málinu liggja fyrir nokkur gögn sem varða tilvist þessarar kröfu, m.a. drög að samkomulagi stefnda og Byggingafélagsins Kambs um uppgjör eða leiðréttingu vegna nauðasamninga byggingarfélagsins þar sem ráðgert virðist hafa verið að stefndi endurgreiddi hluta þeirrar greiðslu sem hann hafði fengið við nauðasamninginn til uppgjörs á ofgreiðslu vegna ólögmætra gengistryggðra lána. Ráðagerðir í sömu veru verða ráðnar af tölvubréfum sem liggja fyrir í málinu milli fulltrúa stefnda og fyrirsvarsmanna Byggingafélagsins Kambs. Hvað sem þessu líður virðist ljóst að fyrirætlanir um slíkt uppgjör eða leiðréttingu til Byggingafélagsins Kambs hafa ekki gengið eftir. Ekkert undirritað samkomulag liggur fyrir um slíkt uppgjör og ófullnaðar ráðagerðir um gerð slíks samnings verða ekki gegn eindreginni neitun stefnda taldar fela í sér viðurkenningu á tilvist kröfunnar sem stefnandi samkvæmt þessu telur hafa verið framselda sér. Miðað við þessa niðurstöðu er ekki þörf á að taka afstöðu til málatilbúnaðar aðila um gildi eða þýðingu framsals Byggingafélagsins Kambs til stefnanda. Með vísan til framangreinds verður stefndi sýknaður af kröfum stefnanda. Eftir þessum úrslitum verður stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað eins og greinir í dómsorði. Af hálfu stefnanda flutti málið Sveinn Jónatansson lögmaður, af hálfu stefnda flutti málið Bjarni Þór Óskarsson lögmaður. Málið dæmdu Ástráður Haraldsson héraðsdómari, sem dómsformaður, og meðdómsmennirnir Daði Kristjánsson héraðsdómari og Sigurbjörn Einarsson viðskiptafræðingur.
D ó m s o r ð
Stefndi, Landsbankinn hf., er sýkn af kröfu stefnanda, Söndru Ragnarsson. Stefnandi greiði stefnda 500.000 krónur í málskostnað.
Ástráður Haraldsson Daði Kristjánsson Sigurbjörn Einarsson