Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-769/2015:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Böðvari Guðmundssyni

(Gísli Tryggvason hdl)

Skilorðsrof. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir hótun og umferðarlagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var fimmtudaginn 9. júní 2016, er höfðað með ákærum, útgefnum af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. desember 2015 og   22.   mars   2016,   á   hendur   Böðvari   Guðmundssyni,   kennitala   000000-0000, Tröllaborgum 11, Reykjavík, sem hér greinir:

Ákæra útgefin 15. desember 2015

Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 6. september 2015, ekið bifreiðinni OF-952 óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og   fíkniefna   (í   blóði   mældist   tetrahýdrókannabínól   0,8   ng/ml)   um   Dalveg   í Kópavogi, til móts við hús nr. 18, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.

Ákæra útgefin 22. mars 2016

Fyrir eftirtalin brot:

  1. Umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 15. desember 2015, ekið bifreiðinni NV-004 með 103 km hraða á klukkustund suður Kringlumýrarbraut í Reykjavík, við bensínafgreiðslustöð N1 í Fossvogi, þar sem leyfður hámarkshraði var 80 km á klukkustund.
  2. Hótun   með   því   að   hafa,   mánudaginn   25.   janúar   2016,   utandyra   við Tröllaborgir 9-11, haldið hníf upp að hálsi I, kt. 000000-0000, en hótunin var til þess fallið að vekja upp hjá I ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.

    Telst háttsemi ákærða samkvæmt 1. ákærulið varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga, en samkvæmt 2. ákærulið við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Verjandi krefst þess að ákærði verði sýknaður af ákæru útgefinni 22. mars 2015 og 2. lið ákæru útgefinni 22. mars 2016. Að öðru leyti er krafist vægustu refsingar er lög leyfa. Þá krefst verjandi hæfilegs málskostnaðar sér til handa, sem greiðist úr ríkissjóði.

Málsatvik

Ákæra útgefin 15. desember 2015

Aðfaranótt   sunnudagsins   6.   september   2015,   klukkan   2:19,   stöðvuðu lögreglumenn akstur bifreiðarinnar OF-952 við Dalveg 18 í Kópavogi, til þess að kanna ástand og ökuréttindi ökumanns. Ákærði reyndist vera ökumaður bifreiðarinnar, en tvö ungmenni voru farþegar, E, fæddur 1997, og H, fædd 1999. Samkvæmt skýrslu lögreglu barst kannabislykt úr bifreiðinni, þegar rætt var við ákærða, og virtust þau sem í bifreiðinni voru í annarlegu ástandi, eins og þar segir: „með stóra, fljótandi augasteina“. Þau könnuðust ekki við að hafa verið að reykja kannabis. Í bifreiðinni fannst bakpoki sem E sagði vera í eigu sinni. Í honum fundust kannabisleifar og kemur fram í skýrslunni að E hafi þá gengist við því að þau hefðu verið að reykja kannabis í bifreiðinni fyrr um kvöldið. Ákærði gaf þvagsýni í svokallað ToxCup fíkniefnapróf og reyndist það jákvætt við THC. Var ákærði færður á lögreglustöð þar sem tekið var úr honum blóðsýni, samkvæmt blóðtökuvottorði klukkan 3:02. Í matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, dagsettri 23. september 2015, kemur fram að í blóðsýni hafi mælst 0,8 ng/ml tetrahýdrókannabínóls og að tetrahýdrókannabínólsýra hafi mælst í þvagsýni. Ákærði neitaði sök við þingfestingu málsins fyrir dómi 20. janúar sl. Hann áréttaði þá afstöðu sína í þinghaldi 5. febrúar sl. og var jafnframt bókað eftir verjanda   hans   að   vefengd   væri   niðurstaða   fíkniefnamælingar   í   blóði.   Við aðalmeðferð málsins kvaðst ákærði hafa verið allsgáður í umrætt sinn. Hann kvað sig þó ráma í að þau sem voru með honum í bifreiðinni hefðu verið að reykja kannabis.

Auk ákærða gáfu skýrslu við aðalmeðferð málsins R lögreglumaður, sem hafði afskipti af ákærða í umrætt sinn, og K, deildarstjóri Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði.

Ákæra útgefin 22. mars 2016

Eins og afstöðu ákærða til sakarefnisins er háttað verður látið við það sitja að rekja atvik málsins er varða 2. ákærulið. Mánudaginn   25.   janúar   2016   var   lögregla   kvödd   að   Tröllaborgum   í Reykjavík, en þar var tilkynnt um líkamsárás og hótun með hníf. Á vettvangi hittu lögreglumenn fyrir I, íbúa í raðhúsinu að Tröllaborgum 9, en ákærði er búsettur í sama húsi nr. 11. I lýsti því að komið hefði til orðaskipta á milli þeirra ákærða utan við húsið og kvaðst hann m.a. hafa sagt við ákærða: „Þegiðu barnaperrinn þinn.“ Við það hefði ákærði tekið upp „Leatherman“ fjölnotaverkfæri, opnað hnífsblaðið, gengið ógnandi að I Reyni, tekið í hann, lagt hnífinn að hálsi hans og sagst ætla að drepa hann. Einnig var rætt við vitnið P á vettvangi, sem kvaðst hafa séð ákærða taka eitthvað upp sem honum sýndist vera hnífur og leggja að hálsi I. Ákærði var handtekinn á heimili sínu. Kemur fram í lögregluskýrslu að hann hafi verið með leðurhulstur í belti á hægri síðu og að í beltinu hafi verið „Hitachi“   fjölnotaverkfæri   sem   svipi   til   „Leatherman“.   Í   málinu   liggja   fyrir ljósmyndir af þeim grip. Ákærði var yfirheyrður af lögreglu um hádegisbil daginn eftir atvikið, eftir að hafa gist fangageymslu um nóttina. Hann neitaði því að hafa ógnað I með hníf, en kvaðst hafa komið að honum þar sem hann hefði verið að vinna spjöll á bifreið sinni. Hann kannaðist við að hafa verið með umræddan hníf í belti, en neitaði því að hafa tekið hann upp. Við aðalmeðferð málsins kvaðst ákærði hafa verið að ganga inn götuna á leið heim þegar hann hefði séð brotaþola vera að rispa bifreið sína með lykli. Komið hefði til orðaskipta á milli þeirra og hefði hann síðan ætlað að ganga inn í húsið þegar brotaþoli hefði kallað til hans: „Helvítis barnaníðings ógeðið þitt.“ Ákærði kvað hafa fokið í sig við þetta. Hann hefði gengið að brotaþola, gripið um öxl hans með vinstri hendi en beint hnefa hægri handar upp að hálsi hans og sagt við hann að ef hann hætti þessu ekki myndi hann fara með málið lengra. Hann kannaðist við að hafa verið með hníf í slíðri við beltisstað, en kvaðst ekki hafa tekið hann upp. Hins vegar hefði hann verið með lyklakippu með húslyklum í hnefanum. Þegar borið var undir ákærða að við yfirheyrslu hjá lögreglu daginn eftir atvikið hefði hann sagst ekki hafa verið með neitt í höndunum kvaðst hann hafa verið í sjokki eftir að hafa verið handtekinn. Þá kom fram hjá ákærða að hann væri örvhentur. Hann kvaðst telja að vitnið P hefði staðið í um 10 m fjarlægð frá þeim brotaþola þegar atvikið átti sér stað. Ákærði lýsti því að hann hefði átt í illdeilum við brotaþola um árabil. Hann hefði m.a. komið að brotaþola þar sem hann var að losa felgurær á bifreið sinni, auk þess sem brotaþoli hefði ítrekað lagt bifreið sinni þannig að hann lokaði bifreið ákærða inni.

I kvaðst hafa verið að vinna við viðgerð á húsi sínu ásamt vitninu P. Hann hefði gengið frá húsinu til að virða verkið fyrir sér og staðnæmst við bifreið ákærða. Í því hefði ákærði komið gangandi fyrir hornið og hefði hann orðið mjög æstur og sakað I um að hafa tvívegis unnið skemmdaverk á bifreiðinni. Ákærði hefði   verið   kominn   inn   í   anddyrið   heima   hjá   sér   þegar   I   hefði   kallað   hann barnaníðing. Við það hefði ákærði brjálast, tekið upp svokallaðan Leatherman hníf, opnað hann, tekið fram hnífsblaðið, ætt að I, tekið í öxlina á honum og hótað að skera hann eða drepa. I kvaðst hafa kallað til P að hringja á lögreglu. Hann kvaðst telja að ákærði hefði þá orðið var við P og ungan son I, sem hefðu orðið vitni að þessu. Hefði ákærði farið inn til sín eftir þetta. Hann kvaðst hafa staðið í um 5 m fjarlægð frá húsi sínu þegar þetta gerðist og hefði P staðið í anddyri þess.

I hafnaði því að ákærði hefði verið með lykla í hnefanum og kvað engan vafa   leika   á   því   að   um   Leatherman   hníf   var   að   ræða,   en   hann   kvaðst   vera veiðimaður og þekkja slíka hnífa vel. Hann lýsti því jafnframt hvernig slíkur hnífur er opnaður og taldi liggja beint við að örvhentur maður héldi á hnífnum í hægri hendi. Hann kvað ákærða hafa borið hnífinn alveg upp að hálsi sínum, eða um 2-3 cm frá hálsinum, og hefði hann óttast um líf sitt. I lýsti því fyrir dóminum að þeir ákærði hefðu átt í illdeilum, sem m.a. tengdist fréttum af því að ákærði hefði hlotið refsidóm fyrir kynferðisbrot gegn barni. Spurður um tengsl við vitnið P kvað hann þá vera vini, auk þess sem P og eiginkona   hans   væru   starfsmenn   fyrirtækis   hans   og   þau   væru   öll   í   sama trúarsöfnuði.

P kvaðst hafa verið að vinna við hús I, sem hefði bent honum á illa útlítandi bifreið við húsið. Hefði I gengið að bifreiðinni og litið inn í hana, en í því hefði ákærði komið aðvífandi. Komið hefði til orðaskipta á milli ákærða og I, en vitnið kvaðst ekki hafa skilið það sem þeim fór á milli þar sem þeir töluðu íslensku. Hann kvað orðaskiptin þó hafa verið í reiði og hefði ákærði hækkað róminn. Ákærði hefði síðan farið inn í hús sitt, en komið út aftur með hníf í hendi. Hann hefði gengið að I, gripið í öxl hans, sett hnífinn að hálsi hans og sagt eitthvað sem hefði virst vera hótun. I hefði sagst ætlað að hringja á lögregluna og hefði ákærði þá hörfað inn í hús sitt. Vitnið kvað hnífinn hafa virst mjög nálægt hálsi I. Sérstaklega spurður kvaðst hann þess fullviss að þetta hefði verið hnífur, en ekki lyklar. Hann lýsti hnífnum sem vasahníf og hefði ákærði opnað hann þegar hann gekk frá húsinu að I. Hann kvaðst hafa staðið í um eins eða eins og hálfs metra fjarlægð frá þeim þegar þetta gerðist.

Þá gáfu skýrslur fyrir dóminum lögreglumennirnir H, Ó og A, sem komu á vettvang í umrætt sinn. A, sem ræddi við vitnið P á vettvangi, var spurður um orðalag í frumskýrslu þar sem haft var eftir honum að hann hefði séð ákærða taka eitthvað upp „sem honum sýndist vera hnífur“. Vitnið kvað þá P hafa rætt saman á ensku, en hann hefði skilið þetta svo að P hefði talið þetta vera hníf, án þess að þora að fullyrða það. H lögreglumaður gaf einnig skýrslu fyrir dóminum og kvaðst hafa skoðað bifreið ákærða daginn eftir atvikið en sú skoðun hefði ekki leitt í ljós að unnin hefðu verið eignaspjöll á henni.

Þá komu fyrir dóminn starfsmenn Foldaskóla, J og H, sem spurðir voru af verjanda um samskipti við brotaþola vegna starfsloka eiginkonu vitnisins P hjá skólanum.

Loks gáfu foreldrar ákærða, A og G, skýrslu fyrir dóminum og báru um samskipti ákærða og brotaþola í gegnum tíðina.

Niðurstaða

Ákæra útgefin 15. desember 2015

Ákærði neitar að hafa verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna við akstur bifreiðarinnar í umrætt sinn. Í málinu liggur fyrir matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði þar sem fram kemur að í blóðsýni sem tekið var úr ákærða hafi mælst 0,8 ng/ml tetrahýdrókannabínóls, auk þess sem tetrahýdrókannabínólsýra hafi mælst í þvagsýni. Af hálfu ákærða hefur niðurstaða matsgerðarinnar verið vefengd þar sem greiningaraðferðir rannsóknarstofunnar hafi ekki verið vottaðar af óháðum viðurkenndum aðila, svo sem faggildingarstofu. Hefur í því sambandi verið   vísað   til   svarbréfs   K,   deildarstjóra   rannsóknarstofunnar,   við   fyrirspurn verjanda, sem liggur fyrir í málinu, og vitnisburðar K við aðalmeðferð málsins.

Í framangreindu svarbréfi rannsóknarstofunnar og skýrslu K fyrir dóminum var ítarleg grein gerð fyrir verkferlum rannsóknarstofunnar og mælingaraðferðum. Kom þar fram að um sérhæfðar mælingaraðferðir væri að ræða, sem byggðu á alþjóðlegum viðmiðum, sem mikil reynsla væri af. Er ekkert komið fram í málinu sem bendir til þess að verkferlum rannsóknarstofunnar eða rannsókn á blóð- og þvagsýni úr ákærða hafi verið áfátt í málinu. Lögreglumaður sem hafði afskipti af ákærða við akstur bifreiðarinnar í umrætt sinn gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins og staðfesti þar skýrslu sína, þar sem fram kom að ákærði hefði borið merki fíkniefnaneyslu. Samkvæmt framangreindu, og með vísan til niðurstöðu staðfestrar matsgerðar Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, telst fram komin lögfull sönnun fyrir því að ákærði hafi verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna við akstur bifreiðarinnar eins og í ákæru greinir. Verður hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987, með áorðnum breytingum.

Ákæra útgefin 22. mars 2016

Sem að framan greinir játar ákærði sök samkvæmt 1. ákærulið. Er því sannað með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í þeim ákærulið og er brot hans þar rétt fært til refsiákvæða.

Ákærði neitar sök að því er 2. ákærulið varðar. Hann hafnar því að hafa hótað I með hnífi í umrætt sinn, en kveðst hafa borið hnefa að hálsi hans. Rakinn hefur verið framburður brotaþolans I og vitnisins P, við aðalmeðferð málsins, en þeir lýstu því að ákærði hefði haldið hníf að hálsi I, eins og í ákæru greinir, og gaf I jafnframt greinargóða lýsingu á hnífnum. Samkvæmt skýrslu lögreglu samrýmist sú lýsing hníf sem ákærði bar í beltisstað þegar hann var handtekinn og kannast við að hafa haft á sér þegar atvikið varð. Ákærði bar fyrst um það við aðalmeðferð málsins að hann hefði haldið á lyklum í hnefanum, en vitnin tvö hafa alfarið vísað því á bug að svo hafi verið. Eru skýringar ákærða að þessu leyti misvísandi og ótrúverðugar og ber að hafna þeim. Með samhljóða framburði vitnanna I og P, sem jafnframt fær stoð í gögnum málsins, telst sannað að ákærði hafi framið þá háttsemi sem lýst er í ákæru. Var háttsemin til þess fallin að vekja hjá I ótta um líf sitt og heilsu og hefur hann jafnframt borið um að hafa óttast um líf sitt. Þykir ákærði með þessu hafa sýnt af sér hótun í verki. Samkvæmt framangreindu verður ákærði sakfelldur samkvæmt 2. ákærulið og varðar brot hans við 233. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði er fæddur í febrúar 1993. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum   6.   mars   2014,   var   honum   gert   að   sæta   fangelsi   í   níu   mánuði, skilorðsbundið   í   fimm   ár,   fyrir   brot   gegn   2.   og   4.   mgr.   202.   gr.   almennra hegningarlaga,   3.   mgr.   sömu   lagagreinar,   sbr.   1.   mgr.   20.   gr.   almennra hegningarlaga og 210. gr. a sömu laga. Með brotum þeim sem ákærði er sakfelldur fyrir í þessu máli hefur hann rofið skilorð dómsins, sem verður dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Ekki eru efni til að binda refsinguna skilorði.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gísla Tryggvasonar hdl., vegna vinnu á rannsóknarstigi málsins og við meðferð þess fyrir dómi, sem miðað við efni og umfang málsins telst hæfilega ákveðin 700.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærði greiði 76.971 krónu í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir fulltrúi. Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Böðvar Guðmundsson, sæti fangelsi í 12 mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gísla Tryggvasonar hdl., 700.000 krónur, og 76.971 krónu í annan sakarkostnað.

Ragnheiður Harðardóttir