Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-288/2015:

Ákæruvaldið

(Margrét Rögnvaldsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sævari

Óla Helgasyni

Ár 2015, fimmtudaginn

(Gísli Tryggvason hdl)

Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Skilorð. Skilorðsrof.

Brot gegn valdstjórninni.

Ár 2015, fimmtudaginn 5. nóvember, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 288/2015:  Ákæruvaldið (Margrét Rögnvaldsdóttir) gegn Sævari Óla Helgasyni (Gísli Tryggvason hdl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 8. maí sl. á hendur ákærða, Sævari Óla Helgasyni, kennitala [...], Austurbrún 6, Reykjavík, „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa laust eftir miðnætti miðvikudaginn 23. júlí 2014 í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu 113 í Reykjavík, hótað Baldri Ólafssyni lögreglumanni að berja hann og móður hans.

Telst þetta varða við 106. gr. almennra hengingarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis.  Ákærði hefur rofið skilorð dóms frá 4. mars 2013.  Ber að dæma þann dóm upp og ákveða ákærða refsingu í einu lagi.  Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.  Rétt er að fresta refsingu þessari og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Gísla Tryggvasyni hdl., 250.000 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Sævar Óli Helgason, sæti fangelsi í 60 daga.  Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði greiði verjanda sínum, Gísla Tryggvasyni hdl. 250.000 krónur í málsvarnarlaun.

Pétur Guðgeirsson.