Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-295/2014:

Ákæruvaldið

(María Káradóttir fulltrúi)

gegn

X

(Arnar Kormákur Friðriksson hdl)

Ölvunarakstur. Sýkna.

Sýkna

Mál þetta, sem dómtekið var mánudaginn 7. apríl 2014, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 11. mars 2014, á hendur X, kt. 000000-0000, ... , Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa, laugardaginn 18. maí 2013, ekið bifreiðinni .... undir áhrifum áfengis (í blóði mældist vínandamagn 1,79‰) á bifreiðastæði við Kirkjutorg í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga.

Verjandi krefst þess aðallega að ákærða verði sýknuð af kröfum ákæruvalds, en til vara að hún verði dæmd til vægustu refsingar er lög leyfa. Þá krefst hann hæfilegra málsvarnarlauna, sem greiðist úr ríkissjóði.

Málsatvik

Samkvæmt skýrslu lögreglu barst tilkynning frá starfsfólki Vínbarsins við Kirkjutorg aðfaranótt laugardagsins 18. maí 2013, klukkan 2:36, um að ölvuð kona sæti í bifreið sinni, ... , og gerði sig líklega til að aka af stað. Kemur fram að er lögreglumenn á lögreglubifreiðinni 07-275 bar á vettvang hefði bifreiðin verið í bakkgír og hafi hvít bakkljós logað. Hafi bifreiðinni því næst verið ekið tæpan metra aftur á bak, en akstur hennar skyndilega verið stöðvaður er önnur lögreglubifreið nr. 07-140, kom á vettvang og stöðvaði aftan við hana. Ákærða reyndist sitja undir stýri bifreiðarinnar og kemur fram að hún hafi verið mjög ölvuð. Var hún handtekin og færð á lögreglustöð þar sem tekið var úr henni blóðsýni klukkan 3:16. Samkvæmt vottorði Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði reyndist sýnið innihalda 1,79‰ alkóhóls. Haft er eftir ákærðu í frumskýrslu lögreglu að hún hafi sest inn í bifreiðina og ætlað að hringja, en bifreiðin hafi runnið til. Við skýrslutöku hjá lögreglu 22. maí 2013 kvaðst hún ekki skilja hvernig það vildi til að bifreiðin rann aftur á bak, en telja sennilegt að hún hefði óvart „rekið hann í gír“. Hún hefði áttað sig á að bifreiðin hreyfðist og óðara rekið bifreiðina „í parkið“.

Við aðalmeðferð málsins kvaðst ákærða ekki rengja niðurstöðu rannsóknar á áfengismagni í blóðsýni, sem að framan greinir. Hún kvað það hins vegar ekki hafa verið ásetning sinn að aka bifreiðinni umrætt sinn. Ákærða kvaðst hafa lagt bifreiðinni í bifreiðastæði við Vínbarinn fyrr um kvöldið og hefði hún neytt áfengis eftir það. Eftir að hún yfirgaf staðinn hefði hún reynt að ná símasambandi við leigubifreiðarstjóra sem hún þekkti, til að biðja hann um að aka sér heim. Henni hefði verið kalt og hún því sest inn í bifreiðina og gangsett hana til að hita sér. Þá hefði bifreiðin skyndilega rykkst aftur á bak. Hún kvaðst hafa sett bifreiðina í „park“, en í sömu mund hefði lögreglumenn borið að og hún verið handtekin. Ákærða kvaðst ekki vera viss um það hvort bifreiðin hefði rykkst til um leið og hún gangsetti hana, eða hvort hún hefði rekist í gírstöngina, en um væri að ræða sjálfskipta bifreið af ... gerð. Hún kvaðst telja stórlega ýkt að bifreiðin hefði færst til um tæpan metra, eins og kemur fram í lögregluskýrslu. Þá kvaðst hún ekki hafa séð lögreglubifreiðina aftan við bifreið sína fyrr en eftir að lögreglumenn höfðu afskipti af henni í bifreiðinni.

Lögreglumennirnir A og B, sem komu á vettvang umrætt sinn, kváðust hafa verið í lögreglubifreið við Alþingishúsið þegar þeir urðu varir við bifreið ákærðu. A sagðist hafa séð bifreiðinni ekið um metra aftur á bak uns hún stöðvaði, en þá hefði önnur lögreglubifreið stöðvað aftan við hana og sett ljósin á. Vitnið kvaðst telja útilokað að bifreiðin hefði rykkst til. B kvaðst hafa séð bakkljós á bifreiðinni og hefði hún færst rúmlega metra aftur á bak. Hann kvaðst ekki hafa upplifað þetta þannig að bifreiðin hefði rykkst til. Þá kvaðst vitnið minna að hann hefði séð bremsuljós áður en bifreiðin fór af stað og síðan aftur þegar hún stöðvaði.

Vitnin C og D voru í lögreglubifreiðinni sem stöðvaði aftan við bifreið ákærðu. C kvaðst hafa séð að bakkljós voru kveikt á bifreiðinni og hefði henni verið ekið um metra aftur á bak. Hann kvaðst ekki geta lýst því nákvæmlega hvernig bifreiðin hreyfðist og ekki muna hvort hún rykktist til. D kvaðst einnig hafa séð bifreiðinni ekið um einn metra aftur á bak. Hann kvaðst hafa séð bremsuljós og síðan bakkljós þegar bifreiðinni var ekið af stað og hefði verið augljóst að um akstur var að ræða.

Niðurstaða

Ákærða kannast við að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hún gangsetti bifreið sína, sem mun vera sjálfskipt af .... gerð, á bifreiðastæðinu umrætt sinn. Hún ber hins vegar að ásetningur hennar hafi ekki staðið til þess að aka bifreiðinni, heldur hafi hún gangsett hana til að halda á sér hita á meðan hún hringdi símtal til að útvega sér far heim. Sem að framan er rakið bar ákærða strax við yfirheyrslu hjá lögreglu að bifreiðin hefði runnið aftur á bak þegar hún gangsetti hana og að hún teldi sennilegt að hún hefði rekið sig í gírstöngina, með þeim afleiðingum að hrokkið hefði í bakkgír og bifreiðin færst til. Við rannsókn málsins fór engin athugun fram á bifreiðinni með það fyrir augum að sannreyna hvort frásögn ákærðu að þessu leyti gæti staðist. Þá verður ekki ráðið af framburði lögreglumannanna fjögurra, sem komu á vettvang, af hvaða orsök bifreiðin færðist til eftir að hún var gangsett. Vafa þar um ber að skýra ákærðu í hag, sbr. 108. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til þess telst ósannað að ákærða hafi haft ásetning til að aka bifreiðinni undir áhrifum áfengis, eins og henni er gefið að sök í ákæru. Verður hún því sýknuð af kröfum ákæruvalds í málinu.

Samkvæmt 2. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 greiðist allur sakarkostnaður úr ríkissjóði, þ.m.t. málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærðu, Arnars Kormáks Friðrikssonar hdl., 188.250 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið María Káradóttir, fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærða, X, er sýkn af kröfum ákæruvaldsins.

Málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærðu, Arnars Kormáks Friðrikssonar hdl., 188.250 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Ragnheiður Harðardóttir