Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-2749/2014:

Sverrir Einar Eiríksson

(Skúli Sveinsson hdl)

gegn

Hraðpeningum ehf. og

Skorra Rafni Rafnssyni

I.

(Þórir Júlíusson hdl)

Einkahlutafélög. Frávísun frá héraðsdómi. Hlutafé.

Frávísun frá dómi.

I.

Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar 7. janúar sl. um frávísunarkröfu stefndu, er höfðað af Sverri Einari Eiríkssyni, 53 Burnley Road, London, Bretlandi, á hendur Hraðpeningum ehf., Ármúla 29, Reykjavík, og Skorra Rafni Rafnssyni, Gvendargeisla 102, Reykjavík,  með stefnu birtri 23. júní 2014.

Stefnandi krefst þess að viðurkennt verði með dómi að hann sé eigandi að hlutafé í félaginu Hraðpeningum ehf. að fjárhæð 500.000 krónur. Þá krefst hann málskostnaðar sér að skaðlausu úr hendi stefndu.

Stefndu krefjast þess aðallega að málinu verði vísað frá dómi en til vara að þeir verði sýknaðir. Jafnframt krefjast þeir málskostnaðar úr hendi stefnanda.

Stefnandi krefst þess í þessum þætti málsins að frávísunarkröfum stefndu verði hafnað og að stefndu verði gert að greiða honum málskostnað.

II.

Ágreiningur máls þessa lýtur að því hvort stefnandi teljist eigandi að þriðjungi hlutafjár að nafnvirði 500.000 krónur í hinu stefnda félagi, Hraðpeningum ehf. Samkvæmt tilkynningu um stofnun þess félags, sem móttekin var hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra 17. desember 2009, var félagið stofnað 16. sama mánaðar og voru stofnendur og stjórnarmenn sagðir vera Gísli Rúnar Rafnsson, stefndi Skorri Rafn og stefnandi Sverrir Einar, hver með 33,333% hlut í félaginu. Jafnframt kemur fram í tilkynningunni að hlutafjársöfnun væri lokið og allt hlutafé félagsins, 1.500.000 krónur, væri greitt.

Með tilkynningu til fyrirtækjaskrárinnar, sem dagsett er 6. janúar 2010, og móttekin var daginn eftir, er upplýst að samkvæmt fundi í félaginu þann dag skuli stjórn þess þannig skipuð að formaður stjórnar og eini stjórnarmaður verði stefndi Skorri Rafn en varamaður Þorgeir Þorgeirsson. Undir þessa tilkynningu rita allir ofangreindir stofnendur félagsins auk framangreinds varamanns í stjórn.

Samkvæmt fyrirliggjandi ársreikningum stefnda Hraðpeninga ehf. fyrir reikningsárin 2009 og 2010 er stefndi Skorri Rafn sagður eigandi alls hlutafjár í félaginu en samkvæmt ársreikningi ársins 2011 er erlent félag með heitið Jumdon Micro Finance Ltd., með heimili á Kýpur, sagt eigandi að öllu hlutafé í félaginu.

III.

Stefnandi byggir kröfu sína á því að samkvæmt meginreglum félaga- og samningaréttar sé hann réttmætur eigandi að þeim 500.000 króna hlut í stefnda Hraðpeningum ehf., sem hann sé skráður fyrir í framangreindum stofngögnum félagsins. Tilkynning félagsins til fyrirtækjaskrár, með áritun löggilts endurskoðanda félagsins, sé staðfesting þess, sbr. 1. mgr. 11. gr. og 1. mgr. 9. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, að stefnandi hafi greitt hlutaféð að fullu. Þar sem hann hafi ekki á neinn hátt samþykkt ráðstöfun hlutafjárins eða afsalað sér rétti til þess til annars aðila sé hann enn réttmætur eigandi þess. Telji stefnandi að stefndi, Skorri Rafn, hafi misnotað aðstöðu sína með ólögmætum hætti, beitt blekkingum og slegið eign sinni á hlutafjáreign stefnanda og breytt hlutahafaskrá félagsins í samræmi við það.

Stefndu halda því fram að stefnandi hafi ekki staðið við skuldbindingu sína um að greiða hlutafjárloforð í stefnda, Hraðpeningum ehf., í samræmi við undirritun sína þar um í stofnskjölum félagsins og geti hann því ekki talið til réttar yfir hlutafénu. Hafi stefnandi, þrátt fyrir áskoranir þar um, ekki getað lagt fram nein gögn sem sýni að hann hafi greitt fyrir þennan hlut í félaginu. Ljóst sé að endurskoðandi félagsins hafi treyst orðum þeirra sem hlutafjárloforðin gáfu um að þeir hefðu greitt fyrir hlutaféð. Hins vegar taki yfirlýsing endurskoðandans frá 17. september 2013 af allan vafa um þetta atriði enda komi þar fram að meðstefndi, Skorri Rafn, hafi við stofnun félagsins greitt 500.000 krónur af hlutafénu og síðan skrifað sig fyrir afganginum af hlutafénu, 1.000.000 króna, þegar vanskil stefnanda lágu fyrir og hlutafjárloforð hans hefði verið fellt niður.

Krafa stefndu um frávísun er á því byggð að stefnandi hafi ekki gætt þess að stefna inn í málið þeim aðila sem sé eigandi hins umdeilda hlutafjár. Eins og fram komi í stefnu og fram lögðum ársreikningum sé Jumdon Micro Finance Ltd. skráður eigandi alls hlutafjár hins stefnda félags. Um þetta sé ekki ágreiningur með málsaðilum. Til þess að fá úrslausn um álitaefnið, þ.e. hvort stefnandi sé eigandi 33,3% hlutar í félaginu, hefði hann þurft að stefna Jumdon Micro Finance Ltd. til þess að þola dóm í málinu. Í raun eigi hið stefnda félag, Hraðpeningar ehf., ekki aðild að þeirri kröfu sem málið byggi á. Hinu stefnda félagi sé eingöngu skylt að halda hlutaskrá í félaginu og samkvæmt henni sé Jumdon Micro Finance Ltd. skráður hluthafi. Í málinu sé ekki gerð krafa um að nafn stefnanda sé fært í hluthafaskrá félagsins. Ef talið verði að hið stefnda félag og Jumdon Micro Finance Ltd. hafi sameiginlegar skyldur eða réttindi vegna kröfugerðar stefnanda beri að vísa málinu frá dómi, sbr. 1. og 2. mgr. 18. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

Stefnandi hafnar kröfu stefndu um að málinu verði vísað frá dómi. Segir hann ekkert liggja fyrir um hver sé nú handhafi umræddra hluta. Engin gögn finnist um félagið Jumdon Micro Finance Ltd., sem tilgreint sé í ársreikningum Hraðpeninga ehf. að sé nú skráð fyrir öllu hlutafé félagsins og sé skráð á Kýpur. Við nánari eftirgrennslan stefnanda hafi komið í ljós að Jumdon Micro Finance Ltd. sé ekki skráð á Kýpur og ekkert sé heldur vitað um hverjir séu forsvarsmenn þess. Af þeim sökum hafi stefnanda verið ókleift að stefna því félagi inn í málið að svo stöddu. Með hliðsjón af framangreindu, og þar sem stefndu hafi sjálfir þrátt fyrir áskoranir stefnanda ekki gert grein fyrir því hver sé skráður eigandi hlutafjár Hraðpeninga ehf., líti stefnandi svo á að stefndi Skorri Rafn sé enn raunverulegur eigandi alls hlutafjár í framangreindu félagi.

IV.

Niðurstaða

Eins og áður er lýst liggur fyrir að samkvæmt ársreikningum stefnda Hraðpeninga ehf. er félagið Jumdon Micro Finance Ltd. skráður eigandi að öllu hlutafé í fyrrnefnda félaginu. Enda þótt stefnandi byggi kröfu sína á því „að stefndi, Skorri, sé enn raunverulegur eigandi alls hlutafjár í stefnda“ er ljóst að krafa stefnanda, um að viðurkennt verði með dómi að stefnandi sé eigandi að hlutafé í félaginu Hraðpeningum ehf. að fjárhæð 500.000 krónur, verður ekki tekin til greina án þess að sá aðili sem samkvæmt gögnum þess félags er skráður eigandi alls hlutafjár í félaginu komi þar jafnframt að. Bar því nauðsyn til, sbr. ákv. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, að stefna jafnframt framangreindu félagi, Jumdon Micro Finance Ltd., í því skyni að gefa því kost á að svara til sakar í máli þessu. Breytir engu í því sambandi þótt stefnanda hafi ekki tekist að hafa uppi á skráðu heimili þess félags eða forsvarsmönnum þess, enda átti hann þess kost að birta stefnu fyrir félaginu í Lögbirtingablaði á grundvelli heimildar 89. gr. laga nr. 91/1991, að fullnægðum þeim skilyrðum sem þar eru sett. Með hliðsjón af framangreindu verður að vísa máli þessu frá dómi.

Stefnandi greiði stefndu hvorum fyrir sig 200.000 krónur í málskostnað.

Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá dómi.

Stefnandi, Sverrir Einar Eiríksson, greiði stefndu, Hraðpeningum ehf. og Skorra Rafni Rafnssyni, hvorum fyrir sig 200.000 krónur í málskostnað.

Ásgeir Magnússon