Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-2583/2014:

D Ó M U R

nr. E-2583/2014:

Vátryggingafélag Íslands hf.

(Jóhannes Sigurðsson hrl)

gegn

Visoky Zamok Investments Ltd

(Björgvin Þorsteinsson hrl)

Aðild. Lögvarðir hagsmunir. Umsýsluviðskipti.

Stefnda félaginu var gert skylt að selja innlán sitt í úkraínskum banka og afhenda stefnanda söluandvirðið í samræmi við umsýslusamninga aðila. Aðalkröfu stefnanda um endurgreiðslu fjármuna og varakröfu hans um framsal innstæðunnar til sín var hafnað þar sem þær þóttu ekki eiga sér stoð í samningum aðila.

Mál þetta, sem dómtekið var 20. júní 2016, var höfðað 1. maí 2014 af hálfu Vátryggingafélags Íslands hf., Ármúla 3, Reykjavík á hendur félaginu Visoky Zamok Investments Ltd., fyrirtækjanúmer 06444907, 42 New Broad Street, EC2M 1JD, London, Bretlandi.

Stefnandi krefst þess aðallega að stefndi verði dæmdur til þess að greiða stefnanda 2.000.000 Bandaríkjadala ásamt dráttarvöxtum skv. 1. og 3. mgr. 5. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, af 110.000 Bandaríkjadölum frá 1. mars 2012 til 1. september 2012, af 220.000 Bandaríkjadölum frá þeim degi til 1. mars 2013, af 330.000 Bandaríkjadölum frá þeim degi til 1. september 2013, af 440.000 Bandaríkjadölum frá þeim degi til 1. mars 2014, af 550.000 Bandaríkjadölum frá þeim degi til 7. apríl 2014 og af 2.565.278 Bandaríkjadölum frá þeim degi til greiðsludags.

Stefnandi krefst þess til vara að stefndi verði dæmdur til þess að framselja innlán stefnda, upphaflega að fjárhæð 1.999.932,31 Bandaríkjadalur, á reikningi stefnda nr.   2615902850501077840   hjá   Open   Joint-Stock   Company   Joint   Stock   Bank „Lviv“   í   Úkraínu,   til   stefnanda,   gegn   greiðslu   með   skuldajöfnuði   við   kröfu stefnanda á stefnda á grundvelli lánssamnings aðilanna, dags. 1. september 2008.

Stefnandi krefst þess til þrautavara að stefndi verði dæmdur til þess að selja innlán stefnda   á   reikningi   stefnda   nr.   2615902850501077840   hjá   Open   Joint-Stock Company Joint Stock Bank „Lviv“ í Úkraínu fyrir 2.273.443 Bandaríkjadali og verði jafnframt gert að afhenda stefnanda söluandvirðið að sömu fjárhæð.

Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda með álagi.

Við aðalmeðferð málsins krafðist stefndi aðallega frávísunar málsins.

Til vara krefst stefndi sýknu af öllum kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hendi stefnanda.

Til þrautavara krefst stefndi sýknu að svo stöddu og að stefnandi verði dæmdur til að greiða stefnda málskostnað.

Til þrautaþrautavara krefst stefndi þess að stefnukröfurnar verði stórlega lækkaðar og að málskostnaður verði felldur niður.

Stefndi krafðist þess aðallega í greinargerð að málinu yrði vísað frá dómi auk málskostnaðar úr hendi stefnanda. Með úrskurði dómsins 7. apríl 2015 var málinu vísað frá dómi, en með dómi Hæstaréttar 28. maí 2015 í máli nr. 307/2015 var úrskurður   dómsins   felldur   úr   gildi   og   lagt   fyrir   dóminn   að   taka   málið   til efnismeðferðar.

Yfirlit málsatvika og ágreiningsefna

Þann 2. maí 2008 gerðu stefnandi og stefndi með sér svokallaðan rammasamning um   fjármögnun   á   fjármálagerningum   og   er   tilgangur   rammasamningsins   að afmarka framkvæmd á viðskiptum milli málsaðila í tengslum við fjármögnun kaupa á fjármálagerningum og lánveitingum til lögaðila í Úkraínu. Samkvæmt grein 1.1 í rammasamningnum bar stefnda að bera fjárfestingarkost undir stefnanda, en í framhaldi af því hafði stefnandi einhliða ákvörðunarvald um það hvort lán yrði veitt í þeim tilgangi. Í grein 1.4 segir að gera skuli sérstakan lánssamning fyrir hvert lán sem stefnandi veitir stefnda samkvæmt rammasamningnum, þar sem fram komi m.a. fjárhæð viðkomandi láns og skilmálar þess. Skilmálar slíks lánssamnings skulu endurspegla skilmála þeirra fjármálagerninga sem keyptir eru eða lána sem veitt eru fyrir andvirði lánsins, auk þess sem framkvæmd endurgreiðslu samkvæmt lánssamningi skal vera sú sama og samkvæmt undirliggjandi fjármálagerningum eða lánveitingum.

Þann   1.   september   2008   gerðu   stefnandi   og   stefndi   með   sér   lánssamning   á grundvelli rammasamningsins. Samkvæmt grein 2.3 í lánssamningnum var það veitt   til   þess   að   fjármagna   innlán   hjá   úkraínska   bankanum   Open   Joint   Stock Company Joint-Stock Bank „Lviv“ (hér eftir „Bank Lviv“). Í grein 2.4 er tilgreint að lánssamningurinn sé sjálfstæður hluti rammasamningsins og lúti ákvæðum hans. Samkvæmt ákvæðum lánssamningsins lánaði stefnandi stefnda samtals 2.000.000 Bandaríkjadala, með 11% vöxtum og skyldi lánið endurgreitt þann 1. september 2015. Jafnframt var kveðið á um greiðslu 1% þóknunar þar af til stefnda gegn útgáfu reiknings. Tveir vaxtagjalddagar voru á ári og er fyrsti vaxtagjalddagi tilgreindur 1. mars 2009 en síðari vaxtagjalddagi ársins var 1. september 2009. Í 3. grein lánssamningsins kemur fram að greiðslustaður lánsins sé hjá stefnanda og að stefnandi megi á hverjum tíma krefjast sölu innlánsins samhliða því að gjaldfella lánið. Í 6. grein lánssamningsins er kveðið á um að endurgreiðsla stefnda til stefnanda skuli grundvallast á lokaverðmæti trygginga, eins og nánar er kveðið á um í rammasamningnum.

Þann 8. september 2008 gerði stefndi að sögn stefnanda samning við Bank Lviv um innlán. Samkvæmt 1. gr. innlánssamningsins skuldbatt stefndi sig til þess að leggja 1.999.932,31 Bandaríkjadal inn á reikning í sínu nafni nr. 2615902850501077840 hjá Bank Lviv, sem stefndi gerði. Innlánssamningurinn gildir til 8. september 2015 og skuldbindur Bank Lviv sig til þess að greiða innlánið til stefnda á lokadegi innlánssamningsins, auk umsaminna 11% vaxta tvisvar sinnum á ári, í byrjun mars og september. Samkvæmt 3. gr. innlánssamningsins á stefndi rétt á því að fá andvirði   innlánsins   greitt   að   fullu   á   réttum   tíma   og   að   fá   útdrátt   um   stöðu reikningsins á hverjum tíma samkvæmt kröfu. Þá á stefndi rétt á því að fá innlánið greitt að hluta eða að fullu þrjátíu dögum eftir að beiðni um slíkt berst Bank Lviv.

Í lánssamningi þeim sem krafið er um greiðslu á í málinu voru vextir ákveðnir 11% á ári og var um tvo vaxtagjalddaga að ræða ár hvert. Bank Lviv greiddi umsamda vexti til og með 1. september 2011. Áfallnir greiddir vextir voru þá alls 660.000 Bandaríkjadalir og var þessi fjárhæð að frádreginni þóknun stefnda innt af hendi til stefnanda samkvæmt lánssamningnum Á næsta vaxtagjalddaga lánsins, 1. mars 2012, greiddi stefndi stefnanda ekki vexti og hefur ekki gert síðan. Stefndi hafði tilkynnt stefnanda að Seðlabanki Úkraínu hefði sett þak á vexti af innlánum, þeir mættu að hámarki vera 6% á ári, og sendi honum viðauka við samning aðila til undirritunar 25. janúar 2012, en viðaukinn var ekki undirritaður af stefnanda. Yfirlit voru send mánaðarlega til stefnanda þar sem reiknað var með 6% ársvöxtum á innlánið.

Þegar   aðilar   gerðu   með   sér   fyrrgreinda   samninga   tengdust   aðilar   samkvæmt lýsingum stefnda með þeim hætti að stefnandi var alfarið í eigu Exista hf. sem nú heitir Klakki ehf. Stefnandi var stór hluthafi í MP banka hf., sem nú heitir EA fjárfestingarfélag   hf.   EA   fjárfestingarfélag   hf.   var   tekið   til   slitameðferðar samkvæmt ákvæðum XII. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og lauk slitameðferðinni með því að nauðasamningur félagsins var staðfestur með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 26. janúar 2016. Eignarhlutur stefnanda í MP banka hf. var færður yfir í Klakka ehf. MP banki hf. átti félagið Vostok Holdings Netherlands BV, sem átti félagið New Progress Holding, sem skráð er í Úkraínu og það félag átti og á meirihluta hlutafjár í Bank Lviv í Úkraínu. Stefndi, Visoky Samok Investments Ltd., var í eigu Vostok Holdings Netherland BV, sem var eign MP banka hf., sem fyrr segir.

Þann 13. september 2013 sendi stefnandi stefnda bréf þar sem fram kom að stefndi hefði brotið gegn ákvæðum lánssamningsins með því að greiða stefnanda ekki samningsbundna vexti og að lánið væri í vanskilum. Í bréfinu krafðist stefnandi þess, á grundvelli greinar 3.1 í rammasamningnum og greinar 3.4 í lánssamningnum, að stefndi seldi fjármálagerninginn, þ.e. innlánið í Bank Lviv, fyrir að lágmarki 2.273.443 Bandaríkjadali. Stefnda væri ekki heimilt að selja fjármálagerninginn á lægra verði samkvæmt ákvæði 3.1 í rammasamningnum. Í bréfinu setti stefnandi jafnframt fram boð um að kaupa fjármálagerninginn af stefnda fyrir 2.273.443 Bandaríkjadali, sem yrði greitt með skuldajöfnuði á kröfu stefnanda á hendur stefnda samkvæmt lánssamningnum. Með vísan til gr. 1.5 í rammasamningnum var þess krafist að greiðslan bærist stefnanda innan 14 daga frá dagsetningu bréfsins.

Þann 27. september 2013 barst stefnanda svarbréf frá lögmönnum stefnda. Þar var óskað eftir frekari fresti til þess að íhuga kröfur stefnanda, m.a. með vísan til þess að óvíst væri hvort innlán mætti framselja milli aðila samkvæmt gildandi lögum í Úkraínu og mögulega hefði rammasamningurinn og lánið verið fært frá stefnanda yfir í annað félag. Þann 4. október 2013 sendi stefnandi bréf til stefnda, þar sem mótmælt var þeim röksemdum sem fram komu í bréfi stefnda og beiðni hans um frekari frest og var krafa stefnanda ítrekuð. Í bréfinu kom fram að stefnandi myndi leita réttar síns fyrir dómstólum ef fjármunirnir yrðu ekki greiddir fyrir þann 15. október 2013.

Nokkur samskipti hafa átt sér stað á milli lögmanna aðila, m.a. um það hvort unnt væri að framselja hlutafé stefnda til stefnanda en ekki reyndist unnt að leysa málið með þeim hætti. Þann 24. mars 2014 sendi stefnandi stefnda formlega tilkynningu um gjaldfellingu lánsins samkvæmt gr. 3.4 í lánssamningnum og gerði kröfu um greiðslu lánsins ásamt vöxtum og kostnaði fyrir 7. apríl 2014. Stefndi varð ekki við þessari kröfu. Stefnandi telur að stefndi hafi vanefnt samningsskuldbindingar sínar gagnvart stefnanda, sem eigi skýra og réttmæta kröfu um efndir þeirra og sé því nauðsyn að höfða mál þetta.

Fyrirsvarsmaður stefnanda, Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri, gaf aðilaskýrslu við aðalmeðferð   málsins.   Einnig   gáfu   skýrslur   vitnin   Einar   Hálfdánarson,   Jóhann Tómas Sigurðsson, Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, Tryggvi Guðbrandsson, Ólafur Lúther   Einarsson,   Hilmar  Alfreð  Alfreðsson,   Magnús   Scheving  Thorsteinsson, Margeir   Pétursson   og   Sæmundur   Guðjón   Valdimarsson.   Verður   vitnað   til framburðar þeirra eftir því sem þurfa þykir.

Málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi byggir aðalkröfu sína á ákvæðum lánssamningsins og rammasamningsins og meginreglum samninga- og kröfuréttar. Það leiði af ákvæði 1.4 í rammasamningnum að lánssamningurinn mæli nánar fyrir um skilmála lánsins, en um   framkvæmd   endurgreiðslu   skuli   gilda   sömu   skilmálar   og   eigi   við   um undirliggjandi fjármálagerning, í þessu tilviki innlánssamninginn. Samkvæmt 3. gr. lánssamningsins   megi   stefnandi,   á   hverjum   tíma,   krefjast   sölu   innlánsins   og greiðslu samkvæmt lánssamningnum. Þá mæli innlánssamningurinn fyrir um að stefndi eigi á hverjum tíma rétt á greiðslu innlánsins með þrjátíu daga fyrirvara.

Með því að innheimta ekki vexti, selja innlánið eða gera kröfur um endurgreiðslu þess hafi stefndi sýnt af sér saknæma háttsemi sem leiði til skaðabótaskyldu innan samninga. Þá hafi stefndi vanefnt greiðslu vaxta á gjalddaga frá og með 1. mars 2012,   en   þær   ógreiddu   peningakröfur   stefnanda   beri   dráttarvexti   frá   hverjum vaxtagjalddaga   í   samræmi   við   III.   kafla   laga   nr.   38/2001,   um   vexti   og verðtryggingu.

Stefnandi eigi fjárkröfu að fjárhæð 2.000.000 Bandaríkjadala á hendur stefnda, sem orðið hafi gjaldkræf eigi síðar en 14 dögum eftir að krafa um greiðslu hafi verið sett fram þann 7. apríl 2014 og beri krafan dráttarvexti frá þeim degi. Krafa um dráttarvexti af ógreiddum vaxtagjalddögum sé byggð á 1. mgr. 5. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, krafa um dráttarvexti af útistandandi skuldbindingu stefnda samkvæmt lánssamningnum byggi á 3. mgr. 5. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga.

Í þinghaldi 2. febrúar sl. lagði stefnandi fram bókun með nýrri málsástæðu fyrir aðalkröfu sinni. Stefnandi byggir á því að ráðstöfun stefnda 11. ágúst 2011 á umræddu innláni til félagsins Orange International Investments (UK) Limited hafi falið í sér saknæma háttsemi stefnda sem leiði til skaðabótaskyldu innan samninga. Hið sama gildi um beiðni um afskráningu stefnda í kjölfar þess að eignum stefnda hafi verið skotið undan kröfum stefnanda, en að mati stefnanda virðist sú aðgerð hafa verið liður í þessari skipulögðu saknæmu háttsemi. Vegna framangreindrar ráðstöfunar   stefnda   hafi   allt   frá   árinu   2011   verið   fyrirsjáanleg   vanefnd   á skuldbindingum stefnda við stefnanda sem réttlæti gjaldfellingu kröfu stefnanda á hendur stefnda. Skýri þetta meðal annars af hverju vaxtagreiðslum hafi verið hætt.

Stefnandi byggir á því að aðgerðir stefnda í tengslum við umrædda ráðstöfun innlánsins   feli   í   sér   skilasvik   samkvæmt   250.   gr.   almennra   hegningarlaga   nr. 19/1940,   ,,assett   stripping“   samkvæmt   enskum   rétti.   Um   hafi   verið   að   ræða skipulagðar aðgerðir sem eigendur, stjórnendur og ráðgjafar stefnda og Orange International Investments (UK) Limited hafi staðið fyrir og sem brjóti í bága við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 64/2006. Lögin séu byggð á samevrópskum reglum sem hafi einnig verið innleiddar í enskan rétt. Þessi   saknæma   háttsemi   stefnda   leiði   til   skaðabótaskyldu   hans   samkvæmt almennum reglum.

Við aðalmeðferð málsins kom fram hjá lögmanni stefnanda að krafa stefnanda hefði ekki verið framseld Klakka ehf. Öll vitni sem gefið hefðu skýrslu fyrir dóminum hefðu staðfest að framsal hefði ekki gengið eftir. Stefnandi sé því enn eigandi kröfunnar. Auk þess hafi ekkert framsal verið tilkynnt stefnda. Ekkert banni samninga um að þriðji maður njóti ávinnings af innheimtu kröfuhafa á kröfu. Þá sé ekkert því til fyrirstöðu að færa kröfuna ekki í bókhaldi stefnanda. Þá sé því mótmælt að samningur aðila sé umboðs- eða umsýslusamningur. Ekkert liggi fyrir um að gjaldeyrishöft í Úkraínu hindri efndir stefnda. Sé ómöguleiki til staðar sé hann stefnda um að kenna. Þá hafi eignarhald stefnda breyst frá því umræddir samningar   voru   gerðir.   Málsástæðu   stefnda   um   skort   stefnanda   á   lögvörðum hagsmunum sé mótmælt sem of seint fram kominni.

Varakrafa stefnanda byggi á sama grunni og aðalkrafan, að breyttu breytanda. Verði ekki fallist á aðalkröfu stefnanda byggi hann á því að stefnda sé skylt að framselja innlánið til stefnanda á grundvelli rammasamningsins og lánssamningsins. Ákvæði 3. gr. rammasamningsins, sbr. og gr. 3.4 í lánssamningnum, hafi að geyma skýra heimild til handa stefnanda til þess að krefjast þess, á hverjum tíma, að innlánið skuli tafarlaust selt á tilteknu lágmarksverði sem stefnandi ákveði. Þá sé ljóst af sömu ákvæðum að stefnandi geti krafist greiðslu á fjármunum sem fáist við slíka sölu. Stefnandi hafi krafist sölu innlánsins í erindi, dags. 13. september 2013, fyrir að lágmarki 2.273.433 Bandaríkjadali. Í sama erindi hafi stefnandi boðist til að kaupa innlánið fyrir sömu fjárhæð gegn greiðslu með skuldajöfnuði gegn kröfum stefnanda samkvæmt lánssamningnum. Stefndi hafi ekki orðið við þessum kröfum stefnanda. Þá hafi stefndi ekki upplýst hvort leitað hafi verið tilboða hjá öðrum aðilum í innlánið eða hvort gerð hafi verið tilraun til þess að selja innlánið.

Þrautavarakrafa stefnanda byggi á sama grunni og varakrafa, að breyttu breytanda. Verði ekki fallist á aðal- eða varakröfu stefnanda byggi hann á því að stefnda sé skylt að selja innlánið tafarlaust á grundvelli rammasamningsins og lánssamningsins. Stefndi hafi ekki orðið við kröfum stefnanda um að selja innlánið, þrátt fyrir skýra skyldu þar að lútandi. Stefndi hafi ekki upplýst hvort leitað hafi verið tilboða hjá öðrum aðilum í innlánið eða hvort gerð hafi verið tilraun til þess að selja innlánið.

Íslensk lög gildi um bæði rammasamninginn og lánssamninginn, en samkvæmt gr. 9.1   í   rammasamningnum   heyri   ágreiningurinn   undir   Héraðsdóm   Reykjavíkur. Stefnandi   reisi   kröfur   sínar   meðal   annars   á   almennum   reglum   fjármunaréttar, kröfuréttar og samningaréttar, einkum reglunni um skuldbindingargildi samninga, einnig á lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, einkum 1. og 3. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 6. gr., og á lögum um meðferð einkamála nr. 91/1991.

Þá sé krafa um málskostnað reist á 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991. Stefnandi vísar til þess að afskráningu og slitum stefnda hafi verið frestað að beiðni stefnanda vegna þessa máls. Stefnandi hafi í þeim tilgangi þurft að greiða fyrir þjónustu bæði íslenskra og enskra lögmanna. Eftir að frávísunarkröfu stefnda var hafnað hafi hann fengið málinu frestað í rúma sex mánuði til að leggja fram þýðingar á samningum Bank Lviv við Seðlabanka Úkraínu. Í þinghaldi 16. desember 2015 hafi verið lagðar fram samtals fjórar blaðsíður af þýðingum á umræddum samningum úr ensku yfir á íslensku. Með hliðsjón af nýjum málsástæðum stefnanda til stuðnings aðalkröfu sinni sé augljóst að þessi gagnaöflun stefnda hafi verið tilgangslaus og valdið óþörfum drætti á málinu. Því krefjist stefnandi málskostnaðar með álagi, hvernig sem úrslit málsins verði, sbr. 1. og 2. mgr. 131. gr. laga nr. 91/1991. Þá krefjist stefnandi þess að stefndi verði dæmdur til þess að greiða sérstaklega kostnað stefnanda við að fresta afskráningu stefnda og slitum í Bretlandi, sbr. 3. mgr. 131. gr. sömu laga. Stefnandi hefur ekki tilgreint fjárhæð í því sambandi. Auk þess kom stefnandi þeirri ábendingu á framfæri við dóminn að stefnda verði ákveðin réttarfarssekt,s sbr. 135. gr. sömu laga.

Málsástæður og lagarök stefnda

Við aðalmeðferð málsins reifaði lögmaður stefnda að krafa stefnda um frávísun málsins byggðist á því að aðild stefnanda væri óljós. Stefnandi hefði ekki lagt fram nein gögn um viðskipti sín við Klakka ehf. Krafa stefnanda hefði verið hluti af kaupverði stefnanda á Líftryggingafélagi Íslands hf. af Klakka ehf., en stefnandi hafi ekki lagt fram kaupsamning stefnanda við Klakka ehf. Kröfunnar sé ekki getið í útboðslýsingu stefnanda, eins og hefði verið skylt að gera. Þá sé krafan færð í bókhaldi Klakka ehf. Þá hafi fyrirsvarsmaður stefnanda, Sigrún Ragna Ólafsdóttir, sagt að krafan væri í eigu Klakka ehf. Vanreifun á aðild leiði til frávísunar. Þá vísaði lögmaðurinn til þess að öll vitni séu sammála um að stefnandi eigi engra hagsmuna að gæta af þessu máli, heldur eigi Klakki ehf. allt það fé sem stefnandi innheimti. Stefnandi hafi því enga lögvarða hagsmuni af rekstri þessa máls og varði það einnig frávísun.

Varakrafa stefnda um sýknu byggist á því að stefnandi eigi ekki aðild að málinu og því beri með vísan til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, að sýkna stefnda af kröfum stefnanda. Stefndi telji víst að við kaup stefnanda á nær öllu hlutafé Líftryggingafélags Íslands hf. hafi kaupverðið til Klakka ehf. verið greitt meðal annars með lánssamningi stefnanda við stefnda. Stefndi telji raunar mögulegt að þessi gjörningur hafi farið fram fyrir sölu á hlutafé í Líftryggingafélagi Íslands hf. Stefndi vísi til þess að í tölvupósti frá stefnanda 3. nóvember 2011, þar sem óskað hafi verið eftir stöðuyfirliti innlánsins, hafi verið sagt innan sviga að kröfuhafinn sé Exista, nú Klakki ehf. Sýknukrafa stefnda af aðalkröfu stefnanda byggist jafnframt á því að stefnandi eigi enga kröfu til greiðslu úr hendi stefnda á grundvelli þeirra samninga sem aðilar hafi gert. Svonefndur rammasamningur og svonefndur lánssamningur hafi ekki verið um lán til stefnda frá stefnanda heldur hafi verið um einhvers konar umboðs- eða umsýslusamning að ræða. Stefnandi hafi greitt stefnda sérstaka þóknun vegna lánsins sem hann hafi veitt, en óþekkt sé að lánveitandi greiði lántaka þóknanir fyrir að taka lán, heldur sé það ætíð hið öndverða að lántaki greiði lánveitanda lántökugjald. Þá eigi stefnandi að greiða stefnda í þóknun hluta þeirra vaxta sem á innlánið   falli   og   hann   eigi   að   greiða   stefnda   árlega   hlutfall   af   heildarstöðu innlánsins í umsýsluþóknun, sbr. 6. gr. rammasamnings aðila.

Stefndi   sé   ekki   skuldbundinn   til   að   endurgreiða   stefnanda   lánið   samkvæmt samningum aðila. Allar endurgreiðslur til stefnanda tengist því hvernig heimtur verði á innláninu í Bank Lviv eða hvaða heimtur verði af sölu þess. Verði á því tap þá eigi stefnandi enga kröfu á hendur stefnda vegna þess tjóns sem verði af verðrýrnun lánsins, sbr. gr. 3.2 í rammasamningi aðila. Því sé augljóslega ekki um að ræða lánssamning á milli aðila þar sem stefnandi eigi fjárkröfu á hendur stefnda sem greiða beri til baka að fullu með ákveðnum vöxtum á ákveðnum tíma. Stefndi geti því aldrei orðið greiðsluskyldur gagnvart stefnanda nema með því fé sem hann sjálfur hafi innheimt og liggi í vörslu stefnda vegna viðskipta aðila, sbr. 2. gr. rammasamnings aðila.

Stefndi   krefjist   sýknu   af   varakröfu   stefnanda.   Í   lánssamningi   aðila,   dags.   1. september 2008, komi skýrt fram í 4. gr. að lánsféð eigi að nota til að mynda innlán í Closed Joint-Stock Company Joint Stock Bank „Lviv“ í Úkraínu. Varakrafan taki til framsals á kröfu í Open Joint-Stock Company Joint Stock Bank „Lviv“ í Úkraínu,   sem   virðist   vera   allt   annað   fyrirtæki.   Enginn   innlánsreikningur   sé tilgreindur í lánssamningnum. Stefnandi eigi enga kröfu um framsal þessa innláns til sín auk þess sem ekki sé að sjá af samningum aðila að stefnandi geti gert slíka kröfu vegna þeirra innlána sem til sé stofnað á grundvelli samninga aðila. Hann eigi rétt á að krefjast sölu þeirra en ekki rétt á framsali til sín. Þá væru jafnframt slíkar hindranir í vegi fyrir framsali á grundvelli gjaldeyrishafta í Úkraínu og vegna samnings Seðlabanka Úkraínu við Bank Lviv að ógerningur væri að verða við þessum kröfum stefnanda og vandséð hvernig hann ætli að fullnægja kröfunni með aðför ef til kæmi.

Stefndi krefjist sýknu af þrautavarakröfu stefnanda. Ekki sé útskýrt á nokkurn hátt í stefnu hvernig Open Joint-Stock Company Joint Stock Bank „Lviv“ tengist kröfum stefnanda, en samkvæmt lánssamningi aðila, dags. 1. september 2008, hafi stefnda borið að leggja peningana inn á reikning í Closed Joint Stock Company Joint Stock Bank „Lviv“.

Þótt   stefnandi   hefði   vísað   til   rétts   innlánsreiknings   og   réttrar   stofnunar   sé ómögulegt að verða við þessari kröfu stefnanda. Innlánið sé bundið hjá Bank Lviv og í raun ómögulegt að selja innlánið nema fyrir hrakvirði ef aðrar hindranir koma ekki til. Um sé að ræða innlán tengds aðila við Bank Lviv sem geri það ómögulegt að selja lánið, en tengdir aðilar séu háðir mun strangari skilyrðum um meðferð krafna sinna á hendur bankanum en aðrir. Þá hafi stefnandi látið það ógert að útskýra hvernig hann ætli að fullnægja dómi sem leggi þessar skyldur á herðar dómþola. Ómöguleiki á innheimtu eða sölu lánsins í Bank Lviv leiði til þess að ómögulegt sé að verða við kröfu stefnanda og því beri að sýkna stefnda.

Verði sýknukrafa stefnda ekki tekin til greina krefjist stefndi sýknu að svo stöddu. Vissulega geti komið þeir tímar að stefnandi eigi kröfur á hendur stefnda um efndir á samningum þeirra. Sá tími sé hins vegar ókominn vegna hindrana sem í vegi séu fyrir efndum og leiði til þess að stefndi hafi ekki vanefnt samninga sína við stefnanda. Um sé að ræða hindranir sem ómögulegt sé að yfirstíga og hafi þær réttarverkanir að á meðan þær séu fyrir hendi sé ekki um vanefndir að ræða af hálfu stefnda. Beri því a.m.k. að sýkna hann að svo stöddu, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga nr. 91/1991.

Stefndi krefjist þess loks að kröfur stefnanda verði lækkaðar. Stefnandi krefjist greiðslu á of háum höfuðstól auk of hárra vaxta á kröfuna. Þá taki hann ekkert tillit til þeirra fjárhæða sem honum beri að greiða stefnda í ýmsar þóknanir.

Fram kom hjá lögmanni stefnda við aðalmeðferð málsins að Orange International Investments (UK) Limited hefði borið sömu skyldur við stefnanda og stefndi, hefði það   félag   tekið   við   innstæðunni   eftir   afskráningu   stefnda.   Þá   hefði   framsalið einungis verið gert í hagræðingarskyni en ekki til að koma fénu undan stefnanda.

Loks hafi beiðni um afskráningu stefnda verið afturkölluð.

Málskostnaðarkrafa stefnda sé reist á 130. gr. laga nr. 91/1991. Við ákvörðun málskostnaðar úr hendi stefnanda beri að taka tillit til þess að málið sé flókið, skjöl þess séu lögð fram á erlendu tungumáli og að miklir hagsmunir séu í húfi.

Niðurstaða

Frávísunarkrafa stefnda byggir á því í fyrsta lagi að aðild stefnanda sé vanreifuð. Málatilbúnaður stefnanda byggir á tveimur samningum sem aðilar gerðu sín á milli árið 2008, í fyrsta lagi rammasamningi um fjármögnun fjármálagernings, dags. 2. maí   2008,   og   lánssamningi,   dags.   1.   september   2008.   Stefndi   vísar   um frávísunarkröfuna til þess að stefnandi hafi, með samningi við Klakka ehf. um kaup stefnanda á Líftryggingafélagi Íslands hf. af því félagi, greitt hluta af kaupverðinu með þeirri kröfu sem þetta mál er sprottið af. Stefnandi mótmælir því ekki að krafa hans hafi verið hluti af kaupverði Líftryggingafélags Íslands hf., en byggir á því að krafan hafi þrátt fyrir það ekki verið framseld Klakka ehf. Stefnandi hafi samið svo um við Klakka ehf. að það félag myndi njóta ávinningsins af innheimtu stefnanda á kröfunni.

Upphafleg frávísunarkrafa stefnda byggði meðal annars á því að aðild stefnanda væri vanreifuð. Um þetta sagði Hæstiréttur í dómi í málinu nr. 307/2015 að gagnaöflun hefði enn ekki verið lýst lokið í héraði og því væri á þessu stigi ekki hægt að slá föstu að málið væri vanreifað af stefnanda um aðild sína. Síðan málið var tekið fyrir eftir dóm Hæstaréttar hefur lögmaður stefnanda sýnt dómara og lögmanni stefnda frumrit rammasamningsins og lánssamningsins. Þá hefur stefndi lagt fram tölvupóst á ensku frá 3. nóvember 2011 þar sem starfsmaður stefnanda biður   um   tiltekin   gögn   vegna   stefnda   og   kemur   þar   fram   innan   sviga   að viðskiptavinur   (,,client“)   sé   ,,VIS   (Exista)“.   Stefndi   hefur   einnig   lagt   fram tölvuskeyti frá mars til júní 2012 þar sem Jón Örn Guðmundsson, fjármálastjóri Klakka ehf., ræðir við Einar S. Hálfdánarson hæstaréttarlögmann möguleika á að selja þá kröfu sem mál þetta er sprottið af. Fyrirsvarsmaður stefnanda, Sigrún Ragna   Ólafsdóttir,   og   Magnús   Scheving   Thorsteinsson,   forstjóri   Klakka   ehf., skýrðu bæði frá því að krafa stefnanda hefði ekki verið framseld Klakka ehf., en samið hefði verið um að fjárhagsleg áhætta vegna kröfunnar hvíldi á Klakka ehf. og það félag fengi það fé sem stefnandi myndi innheimta vegna þessarar kröfu. Einnig kom   fram   hjá   vitnunum   Tryggva   Guðbrandssyni,   Ólafi   Lúther   Einarssyni   og Hilmari Alfreð Alfreðssyni að krafa stefnanda hefði ekki formlega verið framseld Klakka ehf. Þá kom fram hjá Sæmundi Guðjóni Valdimarssyni að stefnandi væri formlegur   eigandi   kröfunnar   en   hefði   ávísað   hinum   efnahagslegum   réttindum samkvæmt   kröfunni   til   Klakka   ehf.   Með   vísan   til   framangreindra   útskýringa stefnanda,   sem   samræmast   fyrrnefndum   framburði   og   fá   stoð   í   fyrrgreindu tölvuskeyti frá 3. nóvember 2011, verður að fallast á það með stefnanda að sannað sé   að   stefnandi   sé   eigandi   kröfunnar,   en   hafi   samið   við   Klakka   ehf.   um   að síðarnefnda félagið myndi njóta ávinningsins af innheimtu stefnanda á kröfunni. Geta fyrrgreind tölvuskeyti frá mars til júní 2012 ekki hnekkt því mati. Er málið því nægilega reifað um aðild stefnanda og verður málinu því ekki vísað frá dómi vegna vanreifunar.

Frávísunarkrafa   stefnda   byggir   einnig   á   því   að   stefnandi   eigi   ekki   lögvarða hagsmuni,   þar   sem   Klakki   ehf.   ætti   allt   fé   sem   stefnandi   innheimti.   Þessi málsástæða kom fyrst fram við aðalmeðferð málsins og var mótmælt sem of seint fram kominni af lögmanni stefnanda. Þar sem málsástæðan var sett fram í tilefni af framangreindum framburði, þar sem meðal annars kom fram að Klakki ehf. ætti fjárhagslegra hagsmuna að gæta af innheimtu kröfunnar, er ekki á það fallist að málsástæðan sé of seint fram komin. Þar sem stefnandi á enn umrædda kröfu á hann lögvarða hagsmuni af höfðun þessa máls. Verður málinu því ekki heldur vísað frá dómi á þessum grundvelli. Verður frávísunarkröfu stefnda því hafnað.

Sýknukrafa stefnda byggir einnig á aðildarskorti stefnanda. Að framan var komist að þeirri niðurstöðu að málatilbúnaður stefnanda væri nægilega reifaður um aðild hans. Þar sem ljóst er að stefnandi er eigandi þeirrar kröfu sem er tilefni þessa máls verður stefndi ekki sýknaður á grundvelli aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

Krafa   stefnda   um   sýknu   byggir   í   öðru   lagi   á   því   að   rammasamningur   um fjármögnun   fjármálagernings,   dags.   2.   maí   2008,   og   lánssamningur,   dags.   1. september   2008,   séu   ekki   lánssamningar,   heldur   umsýslusamningar.   Það   er einkenni umsýslusamninga að umsýslumaður gerir löggerninga gagnvart þriðja manni í eigin nafni en fyrir reikning og samkvæmt heimild umsýsluveitandans. Í því felst að umsýsluveitandinn ber hina endanlegu fjárhagslegu áhættu og þann fjárhagslega hagnað sem leiðir af viðskiptunum. Ekkert beint réttarsamband er á milli þriðja manns og umsýsluveitandans, en réttarsamband er á milli umsýslumanns og umsýsluveitanda.

Í íslenskri þýðingu á rammasamningi aðila er í grein 1.1 tekið fram að stefnandi geti lánað stefnda ,,fé til að fjármagna kaup á fjármálagerningum“. Stefndi skyldi kynna   ,,fjárfestingatækifæri   fyrir   [stefnanda]   áður   en   ákvörðun   er   tekin   um lánveitingu“ en skýrt er að stefnandi hafði einhliða ákvörðunarvald um það hvort lán yrði veitt í þeim tilgangi. Í grein 1.4 segir að gera skuli sérstakan lánssamning fyrir hvert lán sem stefnandi veitir stefnda samkvæmt rammasamningnum, þar sem fram   komi   m.a.   fjárhæð   viðkomandi   láns   og   skilmálar   þess.   Skilmálar   slíks lánssamnings skulu endurspegla skilmála þeirra fjármálagerninga sem keyptir eru eða   lána   sem   veitt   eru   fyrir   andvirði   lánsins,   auk   þess   sem   framkvæmd endurgreiðslu samkvæmt lánssamningi skal vera sú sama og samkvæmt undirliggjandi fjármálagerningum eða lánveitingum. Samkvæmt grein 2.1 skulu   ,,öll   verðbréf   og   lán   sem   [stefndi]   kaupir   fyrir   fjárfestingar“   stefnanda samkvæmt lánssamningi vera skráð eign stefnda hjá viðurkenndum vörsluaðila. Tekið er fram í grein 2.3 að stefnda beri að senda stefnanda ,,yfirlit um allt sem fjárfest hefur verið í fyrir lánin“ frá stefnanda og skuli stefndi halda þessum fjárfestingum aðskildum frá öðrum eignum sínum. Í grein 3.1 er stefnanda veitt heimild til þess að krefjast sölu á verðbréfi eða láni, hvenær sem er á gildistíma lánssamningsins, fyrir lágmarksverð sem stefnandi tilgreinir, samkvæmt nánari ákvæðum í greinum 3.2 og 3.3. Samkvæmt síðarnefndu ákvæðunum skal allt andvirði sölunnar renna til stefnanda, að frádregnum útlögðum kostnaði og þóknun til stefnda, hvort sem selt er fyrir yfirverð eða með afslætti. Tekið er fram í grein 3.3 að þótt tap verði á sölu teljist greiðsla vera fullnaðargreiðsla. Þá er sú skylda lögð á stefnda í grein 3.5 að tilkynna stefnanda um vanskil ,,á einhverri greiðslu eða vöxtum“ og gera ráðstafanir til innheimtu í samráði við stefnanda. Í grein 3.6 er stefnda bannað að samþykkja endurfjármögnun og/eða breytingar á skilmálum þeirra fjármálagerninga sem fjárfest er í án samþykkis stefnanda.

Í íslenskri þýðingu á lánssamningi aðila er í grein 2.3 tekið fram að samningurinn sé gerður ,,í tengslum við kaup á fjármálagerningum í Úkraínu“ og samkvæmt grein 2.4 gilda skilmálar rammasamningsins um lánssamninginn. Í grein 3 eru tilgreindir   upphafsdagur   samnings,   1.   september   2008,   fyrsti   útgöngudagur samnings, 1. september 2009, og lokadagur samnings og gjalddagi skuldbindingar, 1. september 2015. Tekið er fram í grein 3.4 að stefnandi geti ,,hvenær sem er krafist sölu keypts fjármálagernings og á sama tíma gjaldfellt lánssamning þennan“. Í grein 4 er því lýst að láninu sé ráðstafað til kaupa á fjármálagerningi, þ.e. innlánsreikningi í Bandaríkjadölum. Lánsfjárhæðin sé 2.000.000 Bandaríkjadala, upphafsdagur samningsins sé 1. september 2008 en gjalddagi 1. september 2015, nafnvextir séu 11% en þar af sé þóknun stefnda 1%. Samkvæmt grein 5 var heildarfjárhæð   lánsins   2.000.050   Bandaríkjadalir,   þar   af   50   Bandaríkjadala umsýsluþóknun til Byrs. Samkvæmt grein 6.2 skyldi endurgreiðsla stefnda   ,,byggjast   á   endanlegu   virði   verðbréfsins“   eins   og   kveðið   sé   á   um   í rammasamningnum.

Stefnandi hefur lagt fram ljósrit innlánssamnings milli stefnda og Bank Lviv, sem ber með sér að vera undirritað fyrir hönd beggja samningsaðila. Stefndi hefur bent á   misræmi   milli   þess   samnings   og   lánssamnings   aðila,   nánar   tiltekið   að innlánssamningurinn sé dagsettur 8. september 2008 en lánssamningurinn vísi til innlánssamnings frá 1. september 2008, samningurinn frá 8. september 2008 sé við ,,Open Joint-Stock Company Joint Stock Bank ,,Lviv““ en í lánssamningnum sé vísað til samnings við ,,Closed Joint-Stock Company Joint Stock Bank ,,Lviv““. Loks segi í innlánssamningnum að innlánseigandi geti með 30 daga fyrirvara tekið út innlán sitt að hluta eða öllu leyti, en stefnandi byggi á því í dómkröfum sínum að hægt sé að taka innlánið út með 14 daga fyrirvara. Stefndi hefur þó ekki lagt fram annað eintak af umræddum innlánssamningi. Verður því að leggja til grundvallar að framlagt ljósrit sé af þeim innlánssamningi sem stefndi gerði við Bank Lviv og lánssamningur aðila á við um.

Í íslenskri þýðingu á innlánssamningi milli stefnda og Bank Lviv, sem er ýmist nefndur ,,Public Joint-Stock Company Joint Stock Bank ,,Lviv““ eða ,,Open Joint- Stock Company Joint Stock Bank ,,Lviv““, er vísað til stefnda sem innlánseiganda. Samkvæmt grein 1.1 skyldi bankinn opna innlánsreikning fyrir stefnda og leggja inn   á   reikninginn   1.999.932,31   Bandaríkjadal   frá   stefnda.   Samningstími   var tilgreindur í grein 1.2 frá 8. september 2008 til 8. september 2015. Samkvæmt greinum 2.1 til 2.3 bar innlánið 11% ársvexti sem skyldi reikna mánaðarlega og skyldi bankinn greiða vextina á sex mánaða fresti inn á tiltekinn bankareikning stefnda. Í grein 3.1.3 var tekið fram að stefndi ætti rétt á að óska eftir úttekt innlánsfjárhæðarinnar með 30 daga fyrirvara. Þó var tekið fram í grein 5.2 að samningnum yrði ekki slitið fyrir tímann fyrr en að liðnu einu ári eftir gerð hans.

Samkvæmt þessu er ljóst að stefndi gerði umræddan innlánssamning við Bank Lviv í eigin nafni, en þar er hvergi minnst á stefnanda. Þó er ljóst af rammasamningi og lánssamningi aðila að stefndi gerði þennan samning með heimild stefnanda og með fjármunum sem stefnandi lánaði stefnda. Þá er einnig ljóst að krafa stefnanda um endurgreiðslu úr hendi stefnda fer eftir því hvað stefndi fær endurgreitt frá Bank Lviv og stefndi fær einungis í sinn hlut samningsbundnar þóknanir samkvæmt því sem nánar greinir í samningum aðila. Samkvæmt þessu er það stefnandi sem ber fjárhagslega áhættu og ávinning af samningi stefnda við Bank Lviv. Framangreint samræmist einnig framburði vitnanna Jóhanns Tómasar Sigurðssonar og Margeirs Péturssonar   fyrir   réttinum,   en   fram   kom   hjá   þeim   að   tilgangur   með   gerð framangreindra samninga aðila væri fjárfesting stefnanda. Því verður að líta svo á að samningar aðila séu umsýslusamningar og að stefnandi teljist vera umsýsluveitandi en stefndi umsýslumaður.

Eins og framar greinir á stefnandi rétt á því samkvæmt grein 3.1 í rammasamningnum og grein 3.4 í lánssamningnum að krefjast sölu innlánsins sem stefndi samdi um við Bank Lviv. Með bréfi, dags. 13. september 2013, krafðist stefnandi þess með vísan til framangreindra ákvæða að stefndi seldi innlánið fyrir að lágmarki 2.273.443 Bandaríkjadali og bauðst til að kaupa innlánið fyrir sömu fjárhæð og greiða með skuldajöfnuði við andvirðið sem stefnandi ætti að fá fyrir söluna. Stefndi hefur þrátt fyrir það ekki selt innlánið en ber því við að vegna samnings sem Bank Lviv gerði við Seðlabanka Úkraínu sé stefnda ekki mögulegt að selja innlánið, enda teljist stefndi vera tengdur fyrrnefnda bankanum.

Í íslenskri þýðingu á ársreikningi stefnda fyrir árið 2011 segir meðal annars að 11. ágúst 2011 hafi verið gerður framsalssamningur við annað dótturfélag, sem ekki er nafngreint, og þann dag hafi fjárfesting í langtíma bankainnstæðum og skuldabréf og tengd lán verið flutt til umrædds dótturfélags. Einnig er tekið fram að stefndi sé enn með skuldbindingar við kröfuhafa sem tengist hinum framseldu eignum og skuldum. Um framsal þetta var ekki upplýst í málinu fyrr en stefnandi lagði fram gögn um það í þinghaldi 2. febrúar 2016, en í bréfaskiptum aðila frá september og október 2013, sem stefnandi lagði fram við þingfestingu málsins var þó minnst á meint framsal stefnda til félagsins Orange International Investment Limited 11. ágúst 2011, sem stefnandi hefði ekki samþykkt eða verið upplýstur um. Þetta framsal stefnda er í þversögn við málatilbúnað hans um að honum sé ómögulegt vegna tengsla við Bank Lviv að verða við kröfum stefnanda. Samkvæmt því sem fram kom fyrir dóminum gekk framsalið til baka. Í þriggja ára gömlu bréfi frá Bank Lviv til stefnda, dags. 30. júní 2013, sem stefndi lagði fyrst fram við aðalmeðferð málsins, var vísað til samskipta bankans við stefnda á árinu 2011 og að bankinn hefði synjað beiðni stefnda um framsal innstæðunnar til annars bresks félags til kostnaðarhagræðis m.a. vegna þess að stefndi, sem skilgreindur hefði verið tengdur aðili,   hefði   ekki   veitt   neina   fullgilda   staðfestingu   á   raunverulegu   eignarhaldi innstæðunnar. Í sama bréfi gerir bankinn grein fyrir takmörkunum á ráðstöfun innstæðna tengdra aðila og tekur fram að til þess að eftirlitsstjórn bankans geti tekið ákvörðun um að endurgreiða stefnda innstæðu í bankanum þyrfti m.a. að taka mið af því hvort stefndi væri enn tengdur aðili. Af þeim gögnum sem stefndi byggir á verður ekkert ráðið um mat bankans á því hvort stefndi sé enn tengdur aðili og hefur stefndi ekki útskýrt það í málatilbúnaði sínum.

Stefndi hefur lýst þeim tengslum sem hann telur að hafi verið á milli sín og Bank Lviv,   en   stefnandi   hefur   mótmælt   þeirri   lýsingu   sem   ósannaðri.  Vitnið   Einar Hálfdánarson staðfesti fyrir dóminum að lýsing stefnda á tengslum, sem dregin hafi verið   upp   af   nafngreindum   endurskoðanda,   hafi   verið   rétt   meðan   vitnið   var stjórnarmaður í MP banka, þ.e. á árinu 2012, en sú mynd sé væntanlega ekki rétt í dag.   Samkvæmt   árlegri   skýrslu   til   fyrirtækjaskrár   í   Bretlandi   (e.   Companies House), dags. 4. desember 2013, sem stefnandi lagði fram í þinghaldi 2. febrúar sl., virðist allt hlutafé í stefnda hafa verið framselt 30. desember 2012 frá félaginu Frontmost Limited til félagsins Mirus Trading Ltd. Samkvæmt tilkynningu stefnda til sömu fyrirtækjaskrár tók nýr framkvæmdastjóri (e. director) við rekstri félagsins 2. janúar 2013. Stefndi hefur ekki reifað hvernig eignarhaldi hans sé nú háttað og hvort og þá hvernig hann teljist enn vera tengdur Bank Lviv. Gegn mótmælum stefnanda og að virtum gögnum málsins er ósannað að stefndi sé enn í dag tengdur Bank Lviv.

Verður stefndi því hvorki sýknaður né sýknaður að svo stöddu vegna ómöguleika stefnda á að verða við kröfum stefnanda.

Aðalkrafa stefnanda felur í sér að stefndi verði dæmdur til að endurgreiða stefnanda hina upphaflegu lánsfjárhæð ásamt tilteknum dráttarvöxtum. Varakrafa stefnanda felur í sér að stefndi verði dæmdur til þess að framselja innlán stefnda til stefnanda gegn   greiðslu   með   skuldajöfnuði   við   kröfu   stefnanda   á   stefnda   samkvæmt lánssamningi aðila. Hvorug krafan á sér stoð í grein 3.1 í rammasamningi aðila eða greinum 3.4 og 6.2 í lánssamningi aðila, sem lýst er að framan. Stefnandi vísar einnig almennt til reglna um skaðabótaábyrgð innan og utan samninga til stuðnings þessum kröfum. Að því virtu að framsal stefnda á umræddri innstæðu til annars bresks félags gekk ekki eftir hefur stefnandi ekki sýnt fram á bótaskylt tjón sem hlotist hafi af saknæmri háttsemi stefnda. Verður stefndi því sýknaður af báðum þessum kröfum.

Þrautavarakrafa stefnanda á sér á hinn bóginn stoð í framangreindum ákvæðum rammasamnings og lánssamnings aðila og verður hún því tekin til greina. Um þá málsástæðu stefnda í tengslum við meintan ómöguleika, að óútskýrt sé hvernig stefnandi ætli að fullnægja dómi um kröfur sínar, fjallaði Hæstiréttur í fyrrgreindum dómi í máli nr. 307/2015. Þar segir að ekki verði leitt af lögum að sá sem leitar dóms í einkamáli um skyldu gagnaðila síns verði sérstaklega að gefa þar skýringar á   fyrirætlan   sinni   um   hvernig   fullnægja   mætti   ætluðum   réttindum   hans   við aðfarargerð, enda uppfylli hann það almenna skilyrði að hafa lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um kröfu sína, en stefndi byggi ekki á því að það skilyrði skorti. Stefnandi yrði að auki að bera áhættu af því hvort eða hvernig tækist að fullnægja dómi sem gengi honum í vil um aðra hvora varakröfu hans, þar á meðal vegna atriða sem varða löggjöf í Úkraínu. Með sömu rökum er því hafnað að það eigi að leiða til sýknu af þrautavarakröfu stefnanda að áform hans um fullnustu séu ekki skýrð frekar. Ekki er á það fallist með stefnda að krafa stefnanda verði lækkuð, enda hefur stefndi ekki gert nákvæma grein fyrir því hvaða fjárhæðir hann telur að ættu að koma til frádráttar kröfu stefnanda.

Með vísun til 1. mgr. 130. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 verður stefnda gert að greiða stefnanda málskostnað sem, að teknu tilliti til umfangs málsins er ákveðinn 1.500.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki þykir tilefni til þess að leggja réttarfarssekt á stefnda.

Dóminn kveður upp Kristrún Kristinsdóttir héraðsdómari.

D ó m s o r ð

Stefndi, Visoky Zamok Investments Ltd., skal selja innlán stefnda á reikningi sínum nr.   2615902850501077840   hjá   Open   Joint-Stock   Company   Joint   Stock   Bank „Lviv“   í   Úkraínu   fyrir   2.273.443   Bandaríkjadali og   skal   afhenda   stefnanda, Vátryggingafélagi Íslands hf., söluandvirðið að sömu fjárhæð.

Stefndi greiði stefnanda 1.500.000 krónur í málskostnað.

Kristrún Kristinsdóttir

Heimildaskrá

Dómaskrá