Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. nóvember 2013.
Mál nr. S-345/2013:
Ákæruvaldið
(Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari)
gegn
Stefáni Þór Jansen
I
Mál
þetta, sem dómtekið var 21. nóvember síðastliðinn, var höfðað með ákæru
ríkissaksóknara, útgefinni 10. maí síðastliðinn, á hendur Stefáni Þór Jansen,
kt. 000000-0000, [...], „fyrir kynferðisbrot gegn A, kt. 000000-0000, með því
að hafa þann 24. febrúar 2011, í samskiptum við stúlkuna á netinu, fengið hana
til að hitta sig í kynferðislegum tilgangi gegn greiðslu, sótt hana á bifreið
sinni og farið með hana á heimili sitt að [...], og þar sleikt kynfæri hennar
og greitt henni 25.000 kr. fyrir.
Telst þetta aðallega varða við 1. mgr. 202.
gr., sbr. 204. gr. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en
til vara við 3. mgr. 202. gr. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til
refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Brotaþoli
gerði bótakröfu á hendur ákærða og var henni skipaður réttargæslumaður. Í
þinghaldi 31. október féll þingsókn niður af hennar hálfu en
réttargæslumaðurinn hafði áður upplýst dóminn um að ákærði hefði greitt bætur
og þóknun réttargæslumanns.
Við
þingfestingu neitaði ákærði sök og eins gerði hann við upphaf aðalmeðferðar. Í
framangreindu þinghaldi upplýsti verjandi ákærða, en ákærði sótti ekki þing, að
ákærði hygðist játa sök að hluta til eins og rakið verður hér á eftir. Ákærði
krefst vægustu refsingar og að sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun,
verði greiddur úr ríkissjóði.
II
Í þinghaldi 21. nóvember viðurkenndi ákærði
ákæruefnið rétt, nema hvað varðaði aldur brotaþola. Hann kvaðst hafa haldið að
hún væri tæpra 18 ára gömul. Hann hefði spurt hana um aldur í tölvusamskiptunum
og hún þá sagst vera á þessum aldri og eins hefði hann spurt hana um aldur
þegar hann sótti hana og fengið sama svar. Brotaþoli hefði sagst vera 17 ára að
(Bjarni Eiríksson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði dæmdur til 15 mánaða fangelsisrefsingar vegna kynferðisbrots.
I
Mál þetta, sem dómtekið var 21. nóvember síðastliðinn, var höfðað með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 10. maí síðastliðinn, á hendur Stefáni Þór Jansen, kt. 000000-0000, [...], „fyrir kynferðisbrot gegn A, kt. 000000-0000, með því að hafa þann 24. febrúar 2011, í samskiptum við stúlkuna á netinu, fengið hana til að hitta sig í kynferðislegum tilgangi gegn greiðslu, sótt hana á bifreið sinni og farið með hana á heimili sitt að [...], og þar sleikt kynfæri hennar og greitt henni 25.000 kr. fyrir.
Telst þetta aðallega varða við 1. mgr. 202. gr., sbr. 204. gr. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara við 3. mgr. 202. gr. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Brotaþoli gerði bótakröfu á hendur ákærða og var henni skipaður réttargæslumaður. Í þinghaldi 31. október féll þingsókn niður af hennar hálfu en réttargæslumaðurinn hafði áður upplýst dóminn um að ákærði hefði greitt bætur og þóknun réttargæslumanns.
Við þingfestingu neitaði ákærði sök og eins gerði hann við upphaf aðalmeðferðar. Í framangreindu þinghaldi upplýsti verjandi ákærða, en ákærði sótti ekki þing, að ákærði hygðist játa sök að hluta til eins og rakið verður hér á eftir. Ákærði krefst vægustu refsingar og að sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.
II
Í þinghaldi 21. nóvember viðurkenndi ákærði ákæruefnið rétt, nema hvað varðaði aldur brotaþola. Hann kvaðst hafa haldið að hún væri tæpra 18 ára gömul. Hann hefði spurt hana um aldur í tölvusamskiptunum og hún þá sagst vera á þessum aldri og eins hefði hann spurt hana um aldur þegar hann sótti hana og fengið sama svar. Brotaþoli hefði sagst vera 17 ára að verða 18. Hann kvaðst hafa spurt hana aftur til að vera viss um aldur hennar. Hann kvað aldrei hafa hvarflað að sér að hún væri yngri. Þá hefði komið fram hjá henni að hún hefði gert þetta áður.
Með játningu ákærða sem styðst við önnur gögn málsins er sannað að hann var í samskiptum við brotaþola og hafði við hana kynmök sem hann greiddi henni fyrir, eins og honum er gefið að sök í ákæru. Ákærði heldur því hins vegar fram að hann hafi ekki vitað um raunverulegan aldur brotaþola. Meðal gagna málsins er endurrit af tölvupóstsamskiptum ákærða við brotaþola. Þar kemur fram að hann spyr hana hversu gömul hún sé og hún svarar að hún sé 17 ára. Fyrir dómi bar hún að ákærði hefði spurt sig um aldur og hún hefði svarað að hún væri að verða 18 ára. Þegar ákærði átti þessi samskipti við brotaþola var hún ekki orðin 14 ára. Dómsformaður tók af henni skýrslu fyrir dómi 24. október 2011 og var hún tekin upp á myndband sem dómarar hafa skoðað. Það er álit dómsins að á þeim tíma hafi ekki verið hægt að slá því föstu, svo óyggjandi væri, að brotaþoli væri yngri en 15 ára. Með vísun til þessa og þess, sem að framan var rakið um samskipti ákærða og brotaþola, verður hins vegar að meta ákærða það til gáleysis að hafa ekki gengið úr skugga um aldur brotaþola. Svar hennar um aldur sinn og útlit hennar gaf tilefni til þess. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákærunni og varðar brot hans við 1. mgr. 202. gr., sbr. 204. gr. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærða hefur ekki áður verið refsað. Við ákvörðun refsingar ber að taka tillit til að hann játaði sakir samkvæmt ákæru að hluta til, að vísu ekki fyrr en eftir að fyrri hluta aðalmeðferðar lauk, og hann hefur greitt brotaþola skaðabætur og kostnað lögmanns hennar. Samkvæmt þessu verður refsing hans ákveðin 15 mánaða fangelsi.
Ákærði verður dæmdur til að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir svo og þóknun verjanda síns á rannsóknarstigi.
Dóminn kváðu upp héraðsdómararnir Arngrímur Ísberg, dómsformaður, Ragnheiður Harðardóttir og Símon Sigvaldason.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Stefán Þór Jansen, sæti fangelsi í 15 mánuði.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Bjarna Eiríkssonar hdl., 500.000 krónur, og þóknun verjanda síns á rannsóknarstigi, Brynjars Níelssonar hrl., 125.500 krónur.
Arngrímur Ísberg Ragnheiður Harðardóttir Símon Sigvaldason