Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. október 2013.
Mál nr. S-342/2013:
Ákæruvaldið
(Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Gintaras Bloviescius
(Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir nauðgun. Dæmdur til 3 ára og 6 mánaða fangelsisrefsingar. Miskabætur.
Mál þetta, sem dómtekið var mánudaginn 23. september 2013, er höfðað með ákæru, útgefinni af ríkissaksóknara 7. maí 2013 á hendur Gintaras Bloviescius, kt. 000000-0000, Lindargötu 31, Reykjavík, fyrir nauðgun, með því að hafa síðla aðfaranætur sunnudagsins 22. apríl 2012, á heimili ákærða að Dalshrauni 15, Hafnarfirði, með ofbeldi, hótunum, með annars konar ólögmætri nauðung og með því að neyta aflsmunar, þröngvað X, kt. 000000-0000, til samræðis. Í því skyni að ná fram vilja sínum tók ákærði ítrekað um háls X og herti að, hélt höndum hennar og þrýsti henni niður í rúm sitt og hótaði að henda henni nakinni á dyr og að ónafngreindir einstaklingar sem hann þekkti myndu gera henni mein.
Telst þetta varða við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Af hálfu X er þess krafist að ákærða verði gert að greiða henni miskabætur að fjárhæð 2.500.000 króna, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 22. apríl 2012 þar til mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags. Einnig er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun.
Verjandi ákærða gerir aðallega þá kröfu að ákærði verði sýknaður af refsikröfu ákæruvalds, en til vara að hann verði dæmdur til vægustu refsingar er lög leyfa. Þá er þess aðallega krafist að bótakröfu í málinu verði vísað frá dómi, til vara er krafist sýknu af fram kominni bótakröfu, en til þrautavara að bætur verði stórlega lækkaðar. Loks krefst verjandi hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa, sem greiðist úr ríkissjóði.
Málsatvik
Sunnudaginn 22. apríl 2012, klukkan 16:14, var lögregla kvödd að fjölbýlis húsi við ... í Reykjavík, þar sem kona hefði óskað aðstoðar vegna nauðgunar. Er lögreglumenn komu á vettvang hittu þeir fyrir X, brotaþola í máli þessu, og A. Kemur fram í skýrslu lögreglu að X, sem er eistnesk, hafi talað ágæta íslensku. X hafi greint frá því að hún hefði verið stödd í heimahúsi hjá vini sínum um nóttina, en um klukkan 7 um morguninn hefði ákærði hringt og beðið hana að hitta sig. Hefði ákærði sagt henni að vinur hans hefði dáið nýlega og vildi hann ræða það við einhvern rússneskumælandi. Hún kvaðst hafa maldað í móinn, en loks fallist á beiðni hans. Ákærði hefði komið að sækja hana við verslun við Seljabraut, en hann hefði verið farþegi í bifreið með íslenskum karlmanni og konu. Hefði ákærði verið undir einhverjum áhrifum, en komið hefði fram að hann hefði verið að skemmta sér um nóttina. X kvaðst hins vegar hafa verið allsgáð. Þau hefðu ekið inn í Hafnarfjörð og hún farið með ákærða inn í hús þar. Þau hefðu farið saman inn í herbergi ákærða og þar hefði hann byrjað að „knúsa“ hana. X kvaðst margsinnis hafa beðið hann að hætta þessu en hann hefði ekki sinnt því. Hann hefði síðan læst herbergisdyrunum, hrint henni í rúmið og haldið henni fastri. X kvaðst hafa beðið ákærða um að sleppa sér, en hann væri mjög sterkur og hefði hún verið hrædd. Hefði ákærði sagt við hana að ef hún ætlaði að vera með „vesen“ þá þekkti hann hættulegt fólk, vissi hvar hún byggi og verið með ýmsar óbeinar hótanir við hana. Hann hefði tekið nokkrum sinnum um háls hennar, hert að og sagt henni að fara úr fötunum. Hún kvaðst ekki hafa þorað öðru en að hlýða honum. Hefði ákærði haft við hana samfarir og notað verju í fyrstu, en síðan tekið hana af sér. Þegar þetta var yfirstaðið hefði hún farið út og tekið leigubifreið að heimili vina sinna í Breiðholti, en þar hefði hún skilið muni sína eftir um morguninn. Hún hefði komið þangað um klukkan 13. Síðan hefði hún farið heim til móður sinnar í ... . Móðir hennar hefði ekki verið heima, en hún hefði hringt í A og beðið hann um að hjálpa sér. Í skýrslu lögreglu kemur fram að X hafi verið mjög stöðug í framburði og hafi frásögn hennar verið heildstæð. Hún hafi verið nokkuð róleg í tali og frásögnin verið að því er virtist í réttri röð. Þó hafi hún sjáanlega verið í uppnámi. Ekki hefði verið hægt að merkja að hún væri undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Var X flutt á Neyðarmóttöku Landspítala, þar sem hún gekkst undir réttarlæknisfræðilega skoðun. Lögreglumenn fóru að gistiheimili að Dalshrauni 15 í Hafnarfirði, þar sem ákærði dvaldist og var hann handtekinn í herbergi sínu.
Í gögnum málsins er móttökuskýrsla Lovísu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðings á Neyðarmóttöku, þar sem kemur fram að brotaþoli hafi komið þangað kl. 17:00 í fylgd lögreglu. Frásögn brotaþola er skráð í skýrsluna og kemur þar m.a. fram að árásaraðili hafi haldið handlegg hennar og tekið hana hálstaki. Þá hafi hann sagst þekkja fólk sem gæti farið illa með hana. Þá kemur fram að brotaþoli hefði verið að skemmta sér með vinum um nóttina þegar gerandi hefði hringt og beðið hana að tala við sig. Hún hefði farið með honum í bifreið heim til hans. Þar hefðu þau setið í eldhúsi og talað saman. Hefði hann verið að drekka vín, en ekki hún. Þau hefðu síðan legið saman uppi í rúmi og verið að tala saman þegar hann hefði viljað hafa samfarir við hana. Hún hefði sagt nei og að þau væru vinir, en hann hefði þá orðið reiður, haldið henni fastri og tekið hana hálstaki. Hún hefði orðið hrædd og fundist betra að streitast ekki á móti þar sem gerandinn sé stór og sterkur. Hann hefði klætt hana úr og skemmt rennilás á buxum. Hann hefði síðan haft samfarir við hana með smokk. Honum hefði þótt óþægilegt að nota smokkinn og hefði hann tekið hann af og haft sáðlát í rúmið, en verið um leið með fingur í leggöngum hennar. Í niðurlagi skýrslunnar er ritað að brotaþoli hafi komið í endurkomu á Neyðarmóttöku 26. sama mánaðar og hafi þá verið ljósmyndaður marblettur á vinstri framhandlegg, rauðbrúnn, um tvisvar sinnum tveir sentimetrar að stærð.
Þá liggur fyrir skýrsla Arnars Haukssonar kvensjúkdómalæknis um réttarlæknisfræðilega skoðun sem fram fór á brotaþola á Neyðarmóttöku. Í skýrslunni er rakin frásögn hennar af atvikum um nóttina. Kemur þar fram að hún hafi verið með vinum sínum í húsi þegar „gaur“ hringdi í hana og bað hana að hitta sig í 5 mínútur. Hún hefði farið með honum í bifreið sem vinur hans ók inn í Hafnarfjörð. Þar hefði hún farið inn með ákærða. Ákærði hefði verið að drekka bjór, en hún hefði sjálf drukkið þrjá litla bjóra kvöldið áður. Þau hefðu lagst upp í rúm og verið að tala saman. Síðan hefði hún ætlað að standa upp og fá sér að drekka. Hún hefði reynt að hringja til að láta sækja sig, en enginn hefði svarað. Ákærði hefði þá aftur farið að „kela“ við hana, en hún hefði ekki sagst vilja neitt. Hann hefði sagt „jú“, en hún hefði sagt „nei“, og beðið hann um að vera ekki leiðinlegan. Hann hefði sagt „jú“, en hún sagst ekki vilja það. Hann hefði sagt „eigum við að veðja“. Hún hefði sagst vilja fara, en hann hefði hótað að henda henni nakinni út ef hún vildi ekki sofa hjá honum. Hann hefði sagt „ég veit hvar þú átt heima og þú lendir í veseni ef þú sefur ekki hjá mér“. Hann hefði haldið áfram, en hún hefði farið að gráta. Þá hefði hann sagt henni að fara úr og þegar hún hefði neitað hefði hann ýtt henni á rúmið. Hún hefði barist á móti, en hann hefði tekið um hálsinn á henni og spurt hvort hana langaði ekki til að anda. Síðan hefði hann klætt hana úr. Hann væri miklu stærri en hún og hefði hann verið „alveg rosalega æstur“. Hún hefði vitað að ef hún myndi streitast meira á móti myndi hann ekki hika við að lemja hana, hann væri þannig gaur. Síðan hefði ákærði háttað hana úr og sagt að ef hún yrði með svona stæla myndi hann taka vídeómynd af henni og sýna vinum hennar. Ákærði hefði síðan sett á sig smokk og viljað „fara í rassinn á henni“, en hún hefði sagt nei og hefði hún líka neitað er hann vildi láta hana sjúga sig. Ákærði hefði látið hana ofan á sig, en eftir smá stund hefði hann sagt að þetta væri óþægilegt. Hún kvaðst hafa spurt hvernig hún ætti að gera þetta þegar hann vildi halda um hálsinn á henni. Ákærði hefði síðan tekið smokkinn af, farið ofan á hana og nauðgað henni, en dregið liminn út og hefði sæðið sennilega farið á rúmið. Eftir þetta hefði ákærði klætt sig og sagt: „Þú getur alveg farið núna, mér er skítsama um þig, drullaðu þér í burtu.“ Hann hefði hringt á leigubifreið fyrir hana. Hún hefði farið með leigubifreiðinni til vina sinna, þar sem hún hefði verið um morguninn, en dótið hennar hefði orðið þar eftir þar sem hún hefði aðeins ætlað að skreppa út í 5 mínútna rabb. Hún hefði síðan farið heim og hefði fyrrverandi kærasti hennar komið þangað. Hún hefði verið hrædd vegna þess að þetta væri „svona gaur“, en hann hefði hvatt hana til að hringja á lögregluna og láta gaurinn ekki hræða sig. Þá kom fram hjá brotaþola að ákærði hefði verið með dóp og hefði hann gefið henni að prófa pínulítið.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að rennilás á gallabuxum brotaþola hafi verið slitinn. Lýst er áverkum vinstra megin á hálsi brotaþola, en þar hafi verið örlitlar „petechiur“, örfáir blettir á tveimur svæðum, um 6 til 7 ofar og utar og 5 til 6 innar, sem geti samrýmst lýsingu brotaþola á hálstaki. Er þessu nánar lýst í niðurstöðukafla skýrslunnar, þar sem kemur m.a. fram að brotaþoli hafi verið rauð á hálsi og örlitlar „petechiur“, örfáir blettir á hálssvæði, sem að framan greinir. Er tekið fram að frekara mar geti átt eftir að koma fram. Engir áverkar hafi verið sjáanlegir á kynfærum, en roði hafi verið á ytri börmum. Í skýrslunni kemur fram að brotaþoli hafi mælst 176 sentimetrar á hæð og vegið 54 kg.
Í skýrslu um réttarlæknisfræðilega skoðun sem ákærði gekkst undir í kjölfar handtöku kemur fram að hann hafi verið með tvær grannar húðrispur vinstra megin á hálsi, en ekki önnur áverkamerki. Tekið er fram að ákærði hafi mælst 186 sentimetrar á hæð og vegið 126 kg.
X gaf skýrslu hjá lögreglu sunnudagskvöldið 22. apríl 2012 klukkan 20:47. Hún kvaðst hafa verið í heimahúsi í Breiðholti með þremur vinum sínum um nóttina. Þau hefðu verið að hlusta á tónlist og hefði hún drukkið nokkra bjóra. Ákærði hefði hringt í hana klukkan 6:22 um morguninn, en hún hefði ekki svarað fyrr en hann hringdi aftur klukkan 6:31. Hefði ákærði sagt henni að hann væri nýkominn úr jarðarför vinar síns á Englandi og vildi fá að hitta hana. X kvað þau ákærða hafa verið vini í um eins árs skeið og töluðu þau saman á rússnesku. Hún kvaðst hafa verið treg til að hitta ákærða, en samþykkt það um síðir og hefðu þau mælt sér mót við verslun í nágrenninu. Hann hefði hringt í hana klukkan 7:19 og sagst vera við verslunina. Hún hefði farið að hitta hann, en hann hefði verið í bifreið með vini sínum og vinkonu hans og hefði ákærði setið í aftursætinu. Þeim ákærða hefði verið ekið að Dalshrauni 15 og hefðu þau farið í íbúð hans þar. Þau hefðu sest þar við borð og spjallað saman og hefði ákærði verið með kókaín sem þau hefðu fengið sér af. Þau hefðu bæði verið þreytt og því lagst upp í rúm. Þá hefði ákærði farið að klóra henni um bakið innanklæða og niður á rass. Hún hefði sagt honum að hún vildi ekkert „vesen“ þar sem hún ætti kærasta. Ákærði hefði spurt hana hvort hún vildi hafa kynferðismök, en hún hefði neitað því. Hann hefði gengið á eftir henni, en hún margneitað honum. Ákærði hefði þá sagt að hún fengi ekki að yfirgefa íbúðina og að hann myndi henda henni nakinni út ef hún svæfi ekki hjá honum. Hann hefði sagt að hann ætlaði að „ríða“ og að hann ætlaði að gera það sem hann vildi. Þegar hún hefði sagt að hún vildi það ekki hefði hann sagt að honum væri „skítsama“. X kvaðst hafa reynt að róa ákærða niður og hefði hún gengið að dyrunum og ætlað út. Ákærði hefði hins vegar komið á eftir henni og ýtt henni að rúminu. Hún kvaðst hafa verið farin að gráta þegar þarna var. Ákærði hefði heimtað að hún færi úr fötunum og sagst þekkja fólk sem gæti unnið henni mein. Hann hefði spurt hana hvort hún vildi eiga við hann munnmök, eða hvernig hún vildi hafa þetta, hvort hann ætti að „ríða henni í rassinn“, en hún hefði neitað því. Hann hefði síðan tekið um hendur hennar og ýtt henni á rúmið. Hún hefði ekki þorað að streitast á móti þar sem ákærði væri miklu stærri og sterkari en hún. Hann hefði skipað henni að hætta að væla og tekið hana kverkataki með annarri hendinni svo að hún gat ekki andað. Þetta hefði hann gert nokkrum sinnum. Síðan hefði hann afklætt hana. Hún hefði ekki þorað að streitast á móti þar sem hann hefði öskrað á hana. Hún hefði beðið hann um að nota smokk og hefði hann þá náð í smokk inn í skáp, sett hann á sig, lagst á bakið og skipað henni að setjast ofan á liminn. Þau hefðu haft samfarir þannig í smástund, en hann hefði síðan velt henni á bakið, tekið af sér smokkinn og hent honum á rúmið. Hann hefði haft við hana samræði þar sem hún lá á bakinu, en síðan tekið liminn úr leggöngum hennar, fróað sér og fengið sáðlát ofan á sæng í rúminu. Ákærði hefði síðan viljað kyssa hana og haft á orði að annars myndi hann kalla í vini sína, sem myndu skemmta sér kynferðislega með henni og taka upp á myndband. Hún hefði ekki þorað annað en að kyssa hann. Ákærði hefði síðan sagt henni að fara þar sem hann væri „búinn með hana“ og hefði hann hringt á leigubifreið fyrir hana. Hún hefði farið heim til B vinar síns, þar sem hún hafði verið um nóttina, og sótt símann sinn, greiðslukort o.fl., sem hefði orðið þar eftir. Síðan hefði hún hringt til A, kærasta síns, og beðið hann um að sækja sig. X kvað ákærða hafa haft í hótunum við sig á meðan á kynferðismök unum stóð. Hann hefði sagst geta fengið fólk til að meiða hana. Þá hefði hann skipað henni að þegja, en hún hefði metið það svo að hún myndi taka óþarfa áhættu á því að verða meidd illa ef hún kallaði á hjálp. Hún kvað ákærða hafa tekið sig kverkataki nokkrum sinnum, auk þess sem hann hefði haldið fast um úlnliði hennar á meðan á kynferðismökunum stóð. Hún kvað þau engin kynferðisleg samskipti hafa haft fyrir þennan atburð. Þá kvað hún ákærða hafa rifið rennilásinn á buxunum hennar þegar hann afklæddi hana. Skýrslutaka af X var tekin upp í hljóði og mynd og kemur fram á upptöku að hún lýsti þar og sýndi hvernig ákærði hefði togað í sundur buxnaklaufina og rifið rennilásinn. Af upptökunni verður þó ekki greint hvert ástand rennilássins var.
Ákærði var yfirheyrður af lögreglu sunnudagskvöldið 22. apríl 2012. Hann greindi svo frá að X hefði hringt í hann um klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags. Nánar spurður kvaðst hann hafa reynt að ná símasambandi við hana fyrr um nóttina og hefði hún síðan hringt til baka. Hann kvað X hafa spurt hvort hann væri ekki að skemmta sér og hvort þau gætu hist. Ekki væri rétt að hann hefði sagst vera nýkominn frá Englandi þar sem hann hefði fylgt vini sínum til grafar. Hann kvaðst hafa farið ásamt vinum sínum, D og E, að sækja X um sex eða sjö leytið um morguninn. Þau hefðu farið saman heim til hans, talað þar saman og haft kynferðis mök. Síðan hefði X beðið hann um að hringja á leigubifreið fyrir sig, sem hann hefði gert og hefði hún farið um klukkan 11 um morguninn. Ákærði kvað kynferðis mökin hafa verið með vilja X. Þau hefðu þekkst um tveggja ára skeið og nokkrum sinnum haft kynferðismök. Hann kvaðst hafa látið X fá 5.000 krónur til að greiða fyrir fargjaldið með leigubifreiðinni. Hann vísaði því alfarið á bug að hafa haft í hótunum við stúlkuna eða beitt hana nauðung, eins og hún hefði lýst. Nánar spurður um farsímanotkun kvaðst hann hafa hringt til vinkonu sinnar, sem hefði pantað leigubifreiðina fyrir X. Ákærði var yfirheyrður á ný 24. ágúst 2012. Hann greindi þá frá því að vinur hans hefði fengið símtal frá manni sem hefði sagt að X myndi breyta framburði sínum ef ákærði greiddi 2.000.000 króna og myndi málinu þá vera lokið. Ákærði kvað þau X hafa haft kynferðismök í eitt eða tvö skipti áður, á afmælisdegi hans fyrir ári síðan. Þá kannaðist hann ekki við að hafa rifið rennilás á buxum X og kvað hana sjálfa hafa afklæðst.
Meðal rannsóknargagna málsins er matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefna fræði, dagsett 29. júní 2012, vegna rannsóknar á blóðsýnum sem tekin voru úr brota þola við réttarlæknisfræðilega skoðun á Neyðarmóttöku klukkan 17:38 og 18:50 og þvagsýni, sem tekið var klukkan 17:38. Kemur þar fram að alkóhól hafi hvorki mælst í blóði né þvagi. Í þvagi hafi fundist kókaín, vímuefnið MDMA og kanna bínóníðar. Í blóði hafi mælst 45 ng/ml af kókaíni, 310 ng/ml af MDMA og 1,3 ng/ml af tetrahýdrókannabínóli. Segir í matsgerðinni að hlutaðeigandi hafi verið undir örvandi áhrifum kókaíns og MDMA og slævandi áhrifum tetrahýdrókannabínóls þegar blóðsýni var tekið klukkan 17:38.
Þá liggja fyrir skýrslur tæknideildar lögreglu, m.a. um rannsókn á sýnum sem tekin voru frá brotaþola á Neyðarmóttöku, úr munni og kynfærum, en fram kemur að engar sáðfrumur voru þar sjáanlegar. Sýni úr klofbót nærbuxna gaf jákvæða svörun við sæðisprófi, en engar sáðfrumur fundust við smásjárskoðun. Skýrsla um rannsókn á vettvangi í íbúð ákærða að Dalshrauni 15 liggur fyrir og fylgja henni ljósmyndir. Var lagt hald á rúmlak og notaða verju, sem fannst í ruslafötu í eldhúsi. Blettir á lakinu gáfu ekki jákvæða svörun við sæðisprófum. Sýni sem tekið var úr innanverðri hlið verjunnar gaf hins vegar jákvæða svörun sem sæði og voru sáðfrumur til staðar í smásjársýni.
Í málinu er skýrsla lögreglu um samskipti milli síma ákærða og X að morgni 22. apríl 2012 og kemur fram að hringt var úr síma ákærða í síma X klukkan 6:21, en því símtali virðist ekki hafa verið svarað. Næst hafi verið hringt úr síma X í síma ákærða klukkan 6:30 og hafi sú tenging varað í 3 mínútur og 29 sekúndur. Frá þeim tíma og til klukkan 7:17 hafi sjö tengingar verið á milli síma þeirra, en engin eftir það.
Þá er í málinu vottorð Guðrúnar Úlfhildar Grímsdóttur, hjúkrunarfræðings á geðsviði Landspítala, dagsett 29. ágúst 2013, þar sem kemur fram að X hafi sótt fimm viðtöl á deildinni frá 25. apríl 2012 til 10. júlí 2013. Kemur fram að allt viðmót X bendi til þess að hún hafi upplifað mikla ógn, ofsaótta og lífshættu í kjölfar meintrar nauðgunar. Niðurstöður endurtekins greiningarmats sýni að hún hafi þjáðst af áfallastreituröskun eftir atburðinn. Sálræn einkenni hennar samsvari einkennum sem þekkt séu hjá fólki sem hefur upplifað alvarleg áföll eins og líkamsárás, nauðgun, stórslys eða hamfarir. Þá kemur fram að X hafi ávallt virst hreinskilin, trúverðug og samkvæm sjálfri sér í viðtölum.
Verður nú gerð grein fyrir framburði ákærða og vitna við aðalmeðferð málsins.
Ákærði kvaðst hafa verið í ökuferð með vini sínum, Högna Þór Högnasyni, og vinkonu hans. Hefði hann hringt til X til að bjóða henni í heimsókn, en hún hefði ekki svarað. Hún hefði síðan hringt til baka, þau hefðu mælt sér mót og hist um klukkan sex eða sjö um morguninn. Þau hefðu farið saman að heimili ákærða að Dalshrauni 15. Það hefði farið vel á með þeim. Þau hefðu setið við borð í eldhúsi og drukkið bjór. X hefði dregið kókaín upp úr vasanum og fengið sér af því. Ákærði kvað þau hafa setið og spjallað saman í rúman klukkutíma. Síðan hefðu þau farið inn í svefnherbergi og horft á myndband í sjónvarpi. Þau hefðu síðan farið að kyssast. X hefði klætt sig úr fötunum og hjálpað honum að afklæðast. Þau hefðu haft kynferðismök, en ákærði kvað sér ekki hafa orðið sáðfall. Eftir þetta hefði X sagst þurfa að fara heim vegna þess að móðir hennar ætti afmæli. Hún hefði sagt honum að hún ætti ekki peninga til að greiða fyrir leigubifreið. Hann hefði hringt á leigubifreið fyrir hana og látið hana fá 5.000 krónur fyrir farinu. Ákærði kvaðst hafa orðið mjög hissa þegar lögreglumenn komu á heimili hans síðar um daginn og hann var sakaður um að hafa nauðgað stúlkunni. Hann greindi frá því að eftir yfirheyrslu á lögreglustöðinni hefði hann farið heim til nafngreinds vinar síns, sem hefði sagt honum að einhver hefði hringt til hans með þau skilaboð að ef ákærði greiddi 2.000.000 króna myndi málið ekki fara lengra. Ákærði kvaðst hafa þekkt X um þriggja ára skeið. Hann kvað þau hafa haft kynferðismök áður, í þrjú eða fjögur skipti. Hann kvaðst ekki hafa orðið var við að skemmdir yrðu á fatnaði stúlkunnar þegar hún klæddi sig úr. Hann hefði ekki séð rifinn rennilás á buxum hennar. Þá kvaðst hann ekki hafa skýringar á áverkum á hálsi hennar. Hann kvaðst hins vegar hafa þá skýringu á framburði stúlkunnar að hún væri að reyna að hafa af honum fé, en hann hefði ákveðið að greiða henni ekki neitt.
X kvaðst hafa verið heima hjá B, vini sínum, þegar hún fékk símtal frá ákærða, sem sagðist vera með vinum sínum og spurði hvort þau gætu hist. X kvaðst hafa færst undan, en ákærði hefði sagt henni að honum liði illa og langaði til að tala við einhvern vegna þess að vinur hans, sem hefði búið á Englandi, hefði látist og væri hann nýkominn úr jarðarförinni. Hún kvaðst hafa fallist á að hitta ákærða og hefði hann komið að sækja hana á bifreið með manni sem heiti D og stúlku sem hún þekkti ekki. D og stúlkan hefðu ekið þeim ákærða að heimili hans í Hafnarfirði og þau hefðu farið þar inn. X tók fram að hún hefði ekki gert ráð fyrir því að vera lengi í þessari för og hefði hún skilið töskuna sína, húslykla og veski eftir hjá B. Hún hefði þó verið með farsíma sinn meðferðis.
X lýsti því að þau ákærði hefðu sest við borð í íbúð hans og hefði ákærði fengið sér bjór. Hann hefði boðið henni kókaín og hún þegið „nokkrar línur“. Þá hefði ákærði gefið henni hvíta töflu, sem hann hefði sagt að myndi hafa góð áhrif og hefði hann sjálfur tekið slíka töflu. Þau hefðu spjallað saman um stund, en hana hefði verið farið að syfja. Hún hefði viljað fara heim og ætlað að hringja og láta sækja sig, en síminn hennar hefði þá verið rafmagnslaus. Ákærði hefði beðið hana um að staldra við og lofað að útvega henni far heim. Hún hefði farið á salerni og beðið ákærða að athuga með bifreiðina þegar hún kom út aftur. Hann hefði sagt henni að allt væri í lagi með farið. Síðan hefði ákærði farið að reyna við hana. Hún kvað hann hafa gjörbreyst er þarna var komið og hefði hún ekki þekkt hann sem sama mann. Það hefði verið eins og hann breyttist í skepnu. Ákærði hefði sagt við hana að „það myndi fara eins og hann vildi“. Hann hefði sagt við hana að ef hún hlýddi honum ekki gæti hann fengið fólk sem hann þekkti til að vinna henni mein. Hún kvaðst hafa farið að gráta, en hann hefði sagt henni að þegja. Hún hefði reynt að fara út, en hann hefði hindrað hana og lokað dyrunum fyrir henni. Hún kvaðst hafa sest á rúmið og hefði hann sest við hlið hennar og spurt hana hvort hún vildi klæða sig úr sjálf eða hvort hann ætti að gera það. Hann hefði lagst í rúmið og hefði hún þá hlaupið að dyrunum, en þær hefðu reynst vera læstar. Ákærði hefði þá tekið hana hálstaki og hert að. X kvaðst hafa öskrað og reynt að ýta ákærða í burtu. Hann hefði sagt við hana að hún myndi hafa verra af ef hún hætti því ekki. X tók fram að hún væri miklu minni en ákærði og því hefði hún bara beðið eftir því sem myndi gerast næst. Ákærði hefði sagt við hana að því fyrr sem þetta byrjaði því fyrr yrði það búið, hann ætlaði að gera það sem hann vildi hvort eð er. Hún kvaðst hafa sest á rúmið. Ákærði hefði þá komið að henni og byrjað að rífa hana úr buxunum og við það hefði rennilásinn rifnað. Lýsti hún því nánar fyrir dóminum að ákærði hefði tekið í buxurnar beggja vegna við buxnaklaufina og togað í sundur. Hún kvaðst þá hafa sagt honum að hún skyldi gera þetta sjálf. Hún hefði grátið á meðan hún afklæddist og beðið hann að fá að fara, en hann hefði ekki sinnt því. Þegar hún hefði lokið við að afklæðast hefði ákærði beðið hana að hafa við sig munnmök. Henni hefði fundist það viðbjóðslegt og sagt honum að hún vildi það ekki. Þá hefði ákærði sagt að hann ætlaði að „ríða“ henni og hefði hann sagt henni að fara ofan á sig. Hún kvaðst hafa beðið hann um að nota smokk og hefði hann orðið við því. Hún hefði síðan farið ofan á hann og þau haft samfarir þannig, en hún hefði verið grátandi á meðan. Ákærði hefði sagt henni að hætta að gráta og tekið hana hálstaki svo að hún missti andann. Hún kvaðst hafa snúið andlitinu frá honum og haldið áfram að gráta. Hún hefði setið ofan á honum og eiginlega ekki verið að gera neitt. Ákærði hefði þá hent henni í rúmið og lagst ofan á hana. Hann hefði haldið áfram að hafa við hana samfarir þannig, þangað til hann fékk sáðlát og þá tekið af sér smokkinn. Eftir þetta hefði ákærði skipað henni að klæða sig og hafa sig á brott. Hann hefði hringt á leigubifreið fyrir hana og hún hefði flýtt sér út. X kvaðst hafa beðið leigubifreiðarstjórann að aka sér heim til B, þar sem hún hefði verið fyrr um nóttina. Hún kvaðst hafa setið í framsætinu við hlið leigubifreiðarstjórans og hefði hún grátið, en snúið andlitinu frá bifreiðarstjóranum. Þegar þau komu að heimili B hefði hún hlaupið upp í íbúðina og fengið 5.000 krónur hjá B svo að hún gæti greitt fyrir leigubifreiðina. Hún hefði síðan sest niður hjá B og farið að gráta. Hún hefði ekki vitað hvað hún ætti að gera, en loks hringt í A, sem hefði hitt hana heima hjá henni. Þau hefðu síðan ákveðið að hringja til lögreglunnar. X kvaðst hafa litið á ákærða sem kunningja, en þau hefðu átt sameiginlega vini og hefði hún oft hitt hann í partíum. Hún neitaði því að þau hefði átt einhver kynferðisleg samskipti fyrir þennan atburð. Þá kvað hún ákærða ekki hafa látið hana hafa peninga fyrir leigubifreiðinni.
X kvað andlega og líkamlega líðan sína hafa verið skelfilega eftir atburðinn. Hún kvaðst hafa fundið fyrir miklum ótta er ákærði tók hana hálstaki. Þá hefði líðan hennar gjörbreyst. Hún treysti ekki fólki og væri hrædd við að fara út á kvöldin. Hún kvaðst telja að þessar hugsanir myndu búa með henni alla ævi.
X kvað ákærða hafa tekið hana hálstaki oftar en einu sinni og lýsti því þannig að hann hefði tekið fast um háls hennar með annarri hendinni. Þá hefði hann öskrað nokkrum sinnum á hana, en það hefði ekki verið hátt. Nánar spurð um atburða rásina kvaðst hún hafa afklæðst sjálf vegna þess að hún hefði ekki viljað að ákærði rifi fötin hennar. Þegar lýsingar hennar í lögregluskýrslu voru bornar undir hana kvaðst hún hafa farið sjálf úr fötunum eftir að ákærði hótaði henni. Borið var undir X það sem komið hafði fram hjá henni við skýrslutöku hjá lögreglu, að ákærði hefði afklætt hana. Kvað hún sig minna að hún hefði sjálf farið úr fötunum, en ekki útiloka að ákærði hefði aðstoðað hana við það. Bornar voru undir X lýsingar hennar í lögregluskýrslu þar sem kom fram að kynferðismökunum hefði lokið með því að ákærði hefði tekið af sér smokkinn, fróað sér og fengið sáðfall á sængina. Hún kvaðst muna þetta þannig nú að ákærði hefði fengið sáðfall í smokkinn. Hún kvaðst minnast þess að ákærði hefði verið án smokks einhvern tíma á meðan á kynferðismökunum stóð, en ekki hvenær það var. Hún tók fram að hún teldi sig hafa munað atvik betur þegar hún gaf skýrslu hjá lögreglu. Hún kvaðst telja það sem komi fram í lögregluskýrslu, sem hún gaf nokkrum klukkustundum eftir atburðinn, vera nær raunveruleikanum en það sem kæmi fram hjá henni fyrir dóminum. Þá kvaðst hún muna atvik í stórum dráttum nú en ekki í smáatriðum. X kvaðst ekki hafa fundið til vímuáhrifa þegar hún gaf skýrslu hjá lögreglu. Hún kvaðst hafa tekið inn vímuefnið MDMA nokkrum klukkustundum áður en ákærði hringdi til hennar. Þá hefði hún reykt kannabis í síðasta lagi daginn áður.
Spurð hvort hún myndi eftir því að þau ákærði hefðu legið saman uppi í rúmi og verið að „kúra“ svaraði X að það geti verið að þau hafi legið saman uppi í rúmi, en þau hefðu þó ekki verið að snerta hvort annað. Nánar spurð kvaðst hún muna eftir því að þau ákærði hefðu legið í rúminu, en ekki því að hann hefði farið að klóra henni á bakinu, eins og hún hafði lýst við skýrslutöku hjá lögreglu. Hún kvaðst þó ekki útiloka að það hefði gerst.
X var spurð um samband þeirra A og kvað hún þau vera kærustupar. Þau hefðu einnig verið kærustupar fyrir þennan atburð, en hlé hefði verið á sambandinu á þessum tíma. Þau hefðu verið „sundur og saman“ á þessum tíma.
C, móðir X, kvað dóttur sína hafa hringt til sín þennan dag og hefði hún hitt hana á Neyðarmóttöku. X hefði verið í „sjokki“, grátandi og ástand hennar hefði verið slæmt. Þá hefði þessi atburður haft slæm áhrif á hana til lengri tíma. Hún hefði þurft að leita sér sálfræðiaðstoðar og taka róandi lyf. Hún hafi verið grátgjörn eftir að þetta gerðist og óttast mjög viðbrögð ákærða, sem vitninu skildist að tilheyrði einhverju „glæpagengi“. Hún kvaðst hvorki hafa tekið eftir því að föt X væru skemmd þegar þær ræddu saman á Neyðarmóttöku, né að hún væri með áverka.
A kvað X hafa hringt til sín þennan dag og hefði hann farið að hitta hana á heimili móður hennar. X hefði sagt honum hvað hefði gerst, m.a. að ákærði hefði tekið hana hálstaki. Hann kvaðst hafa hringt til yfirmanns síns til að leita ráða um hvað gera skyldi og hefði sá maður rætt við vin sinn í lögreglunni, sem hefði ráðlagt þeim að hringja til lögreglunnar. Þau hefðu gert það og hefði X grátið stanslaust á meðan þau biðu eftir lögreglunni. A kvaðst hafa merkt breytingar í fari X eftir þennan atburð, einkum þannig að hún væri alltaf hrædd. Spurður kvaðst hann ekki hafa tekið eftir að rennilás á buxum hennar hefði verið rifinn í umrætt sinn.
F leigubifreiðarstjóri kvaðst minnast þess að hafa ekið X frá Dalshrauni 15 upp í Breiðholt þennan dag. Hann kvaðst hafa skynjað að stúlkunni leið ekki vel og það hefði verið alveg klárt að eitthvað var ekki í lagi hjá henni. Hann hefði ekki merkt að hún væri grátandi, en taldi að stutt hefði verið í grátinn hjá henni. Borið var undir vitnið að komið hefði fram hjá honum við skýrslutöku hjá lögreglu að stúlkan hefði hvorki verið í uppnámi né grátandi í umrætt sinn. Hann kvað það vera rétt, en hann hefði hins vegar skynjað að henni leið ekki vel. Hann kvaðst muna sérstaklega vel eftir þessari stúlku því að honum hefði fundist að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera. Vitnið kvaðst telja rétt vera, sem kemur fram í lögregluskýrslu sem tekin var af honum, að þegar komið var á áfangastað hefði stúlkan fengið að geyma símann sinn í bifreiðinni hjá honum, en farið inn í húsið til að sækja peninga til að greiða fyrir farið.
B kvað X vera góða vinkonu sína og hefði hún verið heima hjá honum um nóttina fyrir atburðinn. Þau hefðu drukkið tvo bjóra eða svo. Seint um nóttina hefði X sagst ætla að stökkva út í stutta stund. Einhver hefði sótt hana, en hann hefði búist við henni aftur. Hún hefði hins vegar ekki komið aftur fyrr en daginn eftir. Þá hefði hún komið með leigubifreið og fengið peninga hjá honum til að greiða fyrir farið. Vitnið kvaðst strax hafa séð að eitthvað var að hjá henni. Hún hefði síðan brotnað saman og sagt honum grátandi hvað hefði gerst. Hún hefði síðan farið að hitta A, fyrrverandi kærasta sinn.
Vitnið kvaðst ekki muna eftir því að X hefði átt símasamskipti við ákærða, en kannaðist við að hún hefði sagt honum að ákærði hefði beðið hana um að hitta sig til að ræða um bróður sinn sem hefði dáið eða eitthvað slíkt. Hún hefði aðeins ætlað að fara út í 10 eða 15 mínútur og hefði hann haft áhyggjur af henni þegar hún sneri ekki aftur. Hún hefði skilið töskuna sína og aðra hluti eftir hjá honum því að hún hefði ætlað að koma fljótlega til baka. Vitnið kvaðst ekki hafa tekið eftir neinu athugaverðu við fatnað X þegar hún kom til hans daginn eftir.
D kvaðst hafa verið í bifreiðinni með ákærða þegar þeir sóttu X. Hann kvaðst ekki hafa vitað til þess að ákærði og stúlkan „væru að sofa saman“, en hann hefði haft það á tilfinningunni. Vinkona hans hefði verið með þeim í bifreiðinni og hefðu þau skutlað ákærða og stúlkunni heim til ákærða.
Lovísa Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur kvaðst hafa tekið á móti X við komu á Neyðarmóttöku og verið viðstödd læknisskoðun. Hún kvaðst hafa skráð það hjá sér að rennilás á buxum stúlkunnar hefði verið slitinn, en ekki muna það nú hvort hún sá rennilásinn, eða hvort hún hafði þetta eftir brotaþola. Buxurnar hefðu hvorki verið teknar til nánari skoðunar, né verið ljósmyndaðar. Vitnið kvað brotaþola hafa verið brugðið eftir það sem hefði gerst, en hún hefði verið í jafnvægi og frásögn hennar skýr. Hún kvaðst ekki hafa getað merkt að stúlkan væri undir áhrifum fíkniefna.
Arnar Hauksson kvensjúkdómalæknir annaðist réttarlæknisfræðilega skoðun á X á Neyðarmóttöku. Hann kvað stúlkuna hafa komið sér fyrir sjónir sem væri hún döpur og hrædd. Ítrekað hefði komið fram hjá henni að hún væri hrædd við ákærða, sem hún sagði vera ógnvænlegan. Komið hefði fram að hún hefði verið treg að leggja fram kæru í málinu, en unnusti hennar hefði hvatt hana til þess. Vitnið kvað sér hafa fundist stúlkan trúverðug og hefði verið eðlilegt rennsli í frásögn hennar. Hann staðfesti að áverkamerki hefðu verið á hálsi stúlkunnar, eins og rakið er í skýrslu um læknisskoðunina. Þetta hefðu verið litlar húðblæðingar á hálsi, sem komi eftir fast tak. Nokkuð átak þurfi til að svona far komi. Kröftugt handtak um hálsinn þurfi til að valda slíkum áverkum. Vitnið kvað áverkana vel geta samrýmst því að stúlkan hefði verið tekin hálstaki og hert að og að um væri að ræða för eftir fingur. Spurður kvað hann áverkana ekki hafa getað hlotist af því að stúlkan hefði rekið sig utan í eitthvað. Hann kvað athugasemd í skýrslunni um að rennilás hefði verið slitinn vera ritaða eftir upplýsingum hjúkrunarfræðings, sem hefði aðstoðað stúlkuna við að afklæðast. Hann kvaðst ekki muna til þess að hafa séð þennan rennilás. Vitnið kvaðst ekki hafa getað merkt að stúlkan hefði verið undir áhrifum vímuefna. Hann hefði skilið hana vel þótt hún talaði bjagaða íslensku og hefði hann ekki talið þörf á að fá túlk til aðstoðar.
Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur á geðsviði Landspítala, staðfesti vottorð sitt sem liggur fyrir málinu. Hún kvað einkenni áfallastreituröskunar sem greindust hjá brotaþola tengjast þeim atburði sem hér um ræðir. Brotaþoli hefði greint frá því að minningar tengdar atburðinum hafi sótt á hana, hún forðist að hugsa um það sem gerðist og hafi haft svefntruflanir. Hún kvaðst þó telja batahorfur brotaþola góðar, en um væri að ræða stúlku með sterk bjargráð og aukið streituþol. Vitnið kvað það gjarnan verða að framburður brotaþola í kynferðisbrotamálum snúist um smáatriði í byrjun, en meira um atburðinn í heild er frá líður. Það sé vel þekkt að brotaþoli muni ekki allt sem gerðist eftir því sem tími líður og minningar um atburðinn verði oft ruglingslegar. Þannig geti tímaröð atburða brenglast, þar sem upp komi minningarbrot, en ekki sé víst að atburðarásin raðist rétt saman í minningunni.
Kristín Magnúsdóttir, deildarstjóri Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, gerði grein fyrir niðurstöðum rannsóknar á blóðsýni frá brotaþola. Hún kvað vímuefni hafa mælst í blóðsýni sem tekið var klukkan 17:38 og hefði brotaþoli neytt þessara efna á síðastliðnum sólarhring. Vitnið hvað brotaþola að öllum líkindum hafa verið undir einhverjum áhrifum tetrahýdrókannabínóls og MDMA þegar hún gaf skýrslu hjá lögreglu um tveimur tímum eftir að sýnið var tekið, en tók fram að áhrifin myndu hafa verið minni en í matsgerðinni greinir. Vitnið kvað kókaín hverfa hratt úr blóði, en helmingunartími væri um 0,7 til 1,5 klukkustund.
Kristján Ingi Kristjánsson lögreglufulltrúi, sem annaðist skýrslutöku af brotaþola að kvöldi 22. apríl 2012, kvaðst ekki myndu hafa tekið af henni skýrslu ef hann hefði talið eitthvað athugavert við ástand hennar. Hann kvaðst ekki muna eftir að hafa séð rifinn rennilás á buxum stúlkunnar. Þá komu Björgvin Sigurðsson og Valþór Ásgrímsson, sérfræðingar í tæknideild lögreglu, fyrir dóminn og gerðu grein fyrir rannsókn sinni. Ekki eru efni til að rekja framburð vitnanna.
Niðurstaða
Ákærði neitar sök og kveðst hafa haft samræði við X með hennar vilja. Ákærða og X ber ekki saman um tildrög þess að þau hittust morguninn sem um ræðir. Framburður X um að hún hafi verið treg til að hitta ákærða, en fallist á að ræða við hann í stutta stund um andlát vinar hans, fær stoð í framburði B og ber þeim saman um að hún hafi skilið handtösku sína og aðra muni eftir á heimili B, þar sem hún hefði ætlað að snúa þangað aftur fljótlega.
X hefur borið að ákærði hafi þröngvað henni til samræðis með ofbeldi, hótunum og ólögmætri nauðung, svo sem í ákæru greinir. Hún gaf greinargóða lýsingu á atvikum við skýrslutöku hjá lögreglu sunnudagskvöldið 22. apríl 2012 og voru þær lýsingar í samræmi við frásögn hennar við hjúkrunarfræðing og lækni við réttarlæknisfræðilega skoðun síðdegis þann dag. X greindi frá á nokkuð annan veg um ýmis atvik við aðalmeðferð málsins. Við skýrslutöku hjá lögreglu lýsti hún upphafi þess að ákærði hefði þröngvað henni til kynferðismaka þannig að þau hefðu legið saman uppi í rúmi þegar ákærði hefði farið að klóra henni um bakið innanklæða, niður á rass, og spurt hana hvort hún vildi hafa kynferðismök. Við aðalmeðferð málsins greindi hún hins vegar svo frá að hún hefði farið á salerni, en þegar hún hefði komið þaðan út hefði ákærði gjörbreyst og sagt að „það myndi fara eins og hann vildi“. Þá bar X fyrir dóminum að hún hefði sjálf afklæðst eftir að ákærði hefði tekið í buxurnar hennar og togað þær í sundur við rennilásinn, en hafði lýst því við skýrslutöku að ákærði hefði tekið hana úr fötunum. Loks bar hún að ákærði hefði notað smokk á meðan á kynferðismökunum stóð, en hafði áður borið að hann hefði tekið af sér smokkinn undir lokin og fengið sáðlát í rúmið. Við aðalmeðferð málsins var X spurð um misræmi í framburði hennar að þessu leyti og kvaðst hún þá muna atvik í stórum dráttum, en ekki í smáatriðum. Hún kvaðst hafa munað atvik betur við skýrslutöku hjá lögreglu nokkrum klukkustundum eftir atburðinn. X kvaðst ekki hafa fundið til vímuáhrifa er hún gaf skýrslu hjá lögreglu. Bar lögreglumanni sem annaðist skýrslutökuna, lækni og hjúkrunarfræðingi sem ræddu við hana á Neyðarmóttöku, saman um að hún hefði ekki virst vera undir vímuáhrifum og að frásögn hennar hafi verið skýr og greinargóð. Hafa dómendur skoðað hljóð- og myndbandsupptöku sem tekin var af skýrslu hennar hjá lögreglu og verður ekki af henni ráðið að vímuefni sem mældust í blóði stúlkunnar hafi haft áhrif á hæfni hennar til að gera grein fyrir málsatvikum. Er það mat dómsins að misræmi í framburði X um þau atvik sem rakin hafa verið skýrist af því að allnokkuð er liðið frá atburðinum. Vísast í því sambandi jafnframt til vitnisburður Guðrúnar Úlfhildar Grímsdóttur hjúkrunarfræðings, sem rakinn hefur verið. Þá verður ekki talið að misræmi hafi verið í framburði stúlkunnar um þau atvik sem mesta þýðingu hafa í málinu og ákæra lýtur að.
Frásögn X um að ákærði hafi tekið með hendi um háls hennar og hert að til að þvinga hana til kynferðismaka, fær stoð í skýrslu um réttarlæknisfræðilega skoðun og vætti Arnars Haukssonar kvensjúkdómalæknis, um húðblæðingar á hálsi hennar. Þá bar X að ákærði hefði haldið höndum hennar og fær sú frásögn stoð í upplýsingum sem Lovísa Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur skráði í skýrslu sína um mar á hendi hennar við endurkomu fjórum dögum eftir atburðinn. X bar jafnframt að ákærði hefði tekið í buxur hennar beggja vegna við rennilás og togað í sundur og hefði rennilásinn rifnað við þetta. Kemur fram í skýrslum Neyðarmóttöku að rennilás á buxum stúlkunnar hafi verið slitinn, auk þess sem hún greindi frá því við skýrslutöku hjá lögreglu. Ekki var gerður reki að því af hálfu lögreglu að rannsaka buxurnar til að upplýsa um ásigkomulag þeirra og hjúkrunarfræðingur og lögreglumaður sem annaðist skýrslutöku af stúlkunni treystu sér ekki til að fullyrða að þau hefðu séð rennilásinn. Þrátt fyrir það þykir óhætt að leggja til grundvallar að skemmdir hafi orðið á fatnaði stúlkunnar af völdum ákærða, líkt og tilgreint er í skýrslum Neyðarmóttöku, enda verður ráðið af gögnum málsins að hún reyndi ítrekað að koma upplýsingum um það á framfæri við upphaf rannsóknarinnar.
Leigubifreiðarstjóri sem ók X frá heimili ákærða bar við aðalmeðferð málsins að augljóst hefði verið að stúlkunni leið ekki vel og að eitthvað hefði verið að hjá henni. Þá báru B, A og C á þá lund að hún hefði verið niðurbrotin og grátandi eftir atburðinn. Miðað við framburð vitna um líðan stúlkunnar, sem og læknisfræðileg gögn um áverka hennar, þykir ótrúverðugur framburður ákærða um að hún hafi verið samþykk því að eiga við hann kynferðismök. Þá er staðhæfing ákærða um að hann hafi látið stúlkuna fá peninga til að greiða fyrir leigubifreiðina í andstöðu við framburð hennar, F leigubifreiðastjóra og B, sem rakinn hefur verið. Enn fremur hefur framburður ákærða um fyrri kynferðisleg samskipti við stúlkuna verið misvísandi, en hún hefur alfarið hafnað því að um slíkt hafi verið að ræða.
Framburður X er trúverðugur að mati dómsins og þykir framangreint misræmi í frásögn hennar eiga sér eðlilegar skýringar, auk þess sem það varðar ekki þau atvik sem mesta þýðingu hafa í málinu og ákæra lýtur að. Áverkar á hálsi stúlkunnar og marblettur á framhandlegg styðja þá frásögn stúlkunnar að ákærði hafi tekið hana kverkataki og haldið um hendur hennar í því skyni að þröngva henni til kynferðismaka. Fær frásögn stúlkunnar þannig stoð í læknisfræðilegum gögnum og því sem lýst var um skemmdir á fatnaði hennar. Framburður ákærða er að sama skapi ótrúverðugur um tiltekin atriði, auk þess að vera í andstöðu við framangreind gögn málsins. Er það niðurstaða dómsins að leggja beri frásögn X til grundvallar í málinu. Þykir sannað að ákærði hafi með ofbeldi, hótunum og annars konar ólögmætri nauðung þröngvað X til samræðis svo sem í ákæru greinir. Verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru og varðar háttsemi hans við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði er fæddur árið 1981. Sakaferill hans hefur ekki áhrif á refsingu. Hann er í máli þessu sakfelldur fyrir nauðgun. Var sú aðferð sem ákærði beitti, að taka stúlkuna ítrekað hálstaki og herða að, sérstaklega gróf. Samkvæmt því, og með vísan til 1. og 2. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 3 ár og 6 mánuði.
Réttargæslumaður hefur fyrir hönd X krafist miskabóta að fjárhæð 2.500.000 krónur auk vaxta. Um lagarök er vísað til 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í málinu liggur fyrir vottorð hjúkrunarfræðings á geðsviði Landspítala þar sem kemur fram að brotið hafi valdið stúlkunni mikilli vanlíðan og hafi hún greinst með einkenni áfallastreituröskunar, þótt ráðið verði af vitnisburði hjúkrunarfræðingsins að batahorfur séu nokkuð góðar. Á stúlkan rétt á miskabótum úr hendi ákærða á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga og þykja þær hæfilega ákveðnar 1.200.000 krónur, sem beri vexti sem í dómsorði greinir.
Ákærði verður dæmdur til að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., vegna vinnu á rannsóknarstigi málsins og við meðferð þess fyrir dómi, 527.100 krónur, og þóknun réttargæslumanns brotaþola, Gunnhildar Pétursdóttur hdl., 348.263 krónur. Við ákvörðun þóknunar lögmanna hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Ákærði greiði 504.037 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.
Dóminn kveða upp Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari, sem dómsformaður, Ingiríður Lúðvíksdóttir og Eiríkur Jónsson, settir héraðsdómarar.
Dómsorð:
Ákærði, Gintaras Bloviesciu, sæti fangelsi í 3 ár og 6 mánuði.
Ákærði greiði X 1.200.000 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 22. apríl til 24. september 2012, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 527.100 krónur, þóknun réttargæslumanns brotaþola, Gunnhildar Pétursdóttur hdl., 348.263 krónur, og 504.037 krónur í annan sakarkostnað.
Ragnheiður Harðardóttir Ingiríður Lúðvíksdóttir Eiríkur Jónsson