Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-563/2012:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)

gegn

Daniel Arciszewski og

(Jón Egilsson hrl)

Snorra Sturlusyni

(Guðmundur St. Ragnarsson hdl)

Frelsissvipting. Rán.

Tveir menn sakfelldir fyrir brot m.a. gegn 2. mgr. 226. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga.

Mál þetta var höfðað með tveimur ákærum ríkissaksóknara (dags. 15. júní og 14. ágúst 2012) og einni ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (dags. 22. ágúst 2012).  Allar ákærurnar eru á hendur Daniel Arciszewski, Funahöfða 7, Reykjavík.  Ákæran frá 14. ágúst er einnig á hendur Snorra Sturlusyni, Fálkagötu 13, Reykjavík.

Í fyrstu ákærunni er ákærði Daniel sagður hafa framið … eftirtalin brot gegn umferðarlögum og almennum hegningarlögum, … laugardaginn 17. september 2011 í Reykjavík:

… umferðarlagabrot með því að hafa, ekið bifreiðinni TU-041 undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði mældist 1,86%) um Vesturlandsveg við Korpúlfsstaðaveg, svo óvarlega að hann ók aftan á bifreiðina UK-244 ...

Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 4. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

… rangar sakargiftir með því að hafa, við afskipti lögreglu sem lýst er í 1. ákærulið, gefið upp nafn og kennitölu Alexei Fadeev, kt. 100275-2019, og þannig leitast við að koma því til leiðar að saklaus maður yrði sakaður um refsiverðan verknað ...

Telst þetta varða við 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Í annarri ákærunni eru báðir ákærðu taldir hafa gerst sekir um … frelsissviptingu og rán með því að hafa um klukkan 3 aðfaranótt föstudagsins 6 júlí 2012 í félagi svipt A frelsi sínu á heimili hans … í Reykjavík, en ákærðu héldu honum nauðugum í íbúðinni til kl. tæplega 11 sama dag, beittu hann ofbeldi og hótuðu honum líkamsmeiðingum og lífláti í því skyni að ná af honum verðmætum. Meðal annars ýttu ákærðu A í stól í stofu íbúðarinnar og bundu hann við stólinn með límbandi. Ákærði Daniel … skipaði honum að skrifa undir skjal þess efnis að hann skuldaði ákærðu fjármuni. Þessu næst leystu ákærðu A og skipuðu honum að millifæra peninga á bankareikning þeirra í gegnum heimabanka en A tókst ekki að tengjast internetinu. Ákærðu færðu A þá inn á baðherbergi íbúðarinnar þar sem ákærði Snorri ýtti honum ofan í baðkar, batt hann á höndum og fótum með rafmagnssnúru sem hann festi við blöndunartæki, tróð tusku upp í munn hans og setti límband fyrir munninn. Nokkru síðar neyddu ákærðu A til að gefa upp leyninúmer á debetkorti hans og hélt ákærði Daniel tréstaf ógnandi á lofti á meðan á því stóð. Í kjölfarið tók ákærði Snorri 20.000 krónur út af reikningi A í hraðbanka við Lóuhóla. Ákærði Snorri sló A í höfuðið einu höggi og báðir ákærðu hótuðu A lífláti og líkamsmeiðingum ef hann hringdi á lögreglu. Þá neyddu ákærðu A til að millifæra af reikningi sínum 453.000 krónur inn á reikning ákærða Daniels. Ákærðu afhentu óþekktum manni 32“ sjónvarp í eigu A og höfðu á brott með sér 22“ tölvuskjá, lítið kassettutæki, ullarteppi, seðlaveski með 10-15 þúsund krónum, strætómiðum og debetkorti auk þess sem þeir söfnuðu saman ýmsum verðmætum í íbúð A og gerðu tilraun til að hafa á brott með sér. Af þessu hlaut A blóðmar á úlnliðum og ökklum og áverka á skyntaugum í framhandleggjum.

Telst þetta varða við 2. mgr. 226. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.

Loks er í þriðju ákærunni lýst brotum ákærða Daniels:

I. eftirtalin brot framin árið 2011:

1. … fíkniefnalagabrot, með því hafa föstudaginn 4. febrúar, að Vesturbergi 195, Reykjavík, haft í vörslum sínum í söluskyni samtals 34,55 g af amfetamíni og tvær kannabisplöntur sem lögregla fann við leit á heimili ákærða, og hafa um nokkurt skeið fram til þessa dags ræktað greindar plöntur.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5., og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni.

2. … hylmingu, með því að hafa föstudaginn 20. maí, haft í vörslum sínum GPS tæki, srn. PC 745876740043, sem fannst við leit lögreglu í bifreiðinni KN-764, við hús nr. 17 í Keflarvíkurgötu, Snæfellsbæ, en tækið fékk hann af óþekktum aðila í skiptum fyrir landa, vitandi að um þjófstolinn mun væri að ræða.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga laga nr. 19/1940.

3. … fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 14. september, ekið bifreiðinni PE-659 vestur Flatahraun í Hafnarfirði, sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur um að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (vínandamagn í útöndunarlofti mældist 0,42 mg/l, amfetamín í blóði mældist 160 ng/ml), uns hann var stöðvaður af lögreglu við hefðbundið eftirlit á móts við Flatahraun 7, Hafnarfirði, og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,31 g af amfetamíni sem fannst við leit lögreglu á ákærða.

Teljast brot þessi varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr., 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni.

… eftirtalin brot framin árið 2012:

4. … þjófnað, með því að hafa föstudaginn 16. mars, í félagi við Þorkel Diego Jónsson, brotist inn í íbúðarhús að Grænatúni 14, Kópavogi, og stolið þaðan tveimur Cobra Micro Talk talstöðvum, vindlingaboxi, Yamaha hljómborði í svartri tösku, trompeti í brúnni tösku ásamt fylgihlutum, gítarmagnara, rafmagnsgítar, íslensku vegabréfi, tveim pörum af ermahnöppum, þrem sjónaukum, PSP leikjatölvu, Playstation 3 leikjatölvu, Nintendo Wii fjarstýringum, Nunchuck –Wii fjarstýringaviðbót, Playstation 3 fjarstýringu, íþróttatösku, Nintendo Wii leikjatölvu, sex tölvuleikjum, Ipod Nano 4GB, tveim bakpokum, fartölvutösku, gítartösku, handtösku, Canon myndavél ásamt linsu, skjalatösku, hliðartösku, taktmæli og Packard Bell TJ65 fartölvu, heildarverðmæti að fjárhæð kr. 1.141.090.- og lausafé kr. 11.000.-

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

5. … umferðarlagabrot, með því að hafa að morgni laugardagsins 17. mars, ekið bifreiðinni VK-987 sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (amfetamín í blóði mældist 160 ng/ml, kókaín í blóði mældist 40 ng/ml, metýlfenídat mældist 15 ng/ml) frá Vesturhólum uns hann stöðvaði við Hjaltabakka í Reykjavík.

Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

6. … umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 26. mars, ekið bifreiðinni UJ-013 sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (amfetamín í blóði mældist 85 ng/ml, kódein í blóði mældist 40 ng/ml) frá Krónunni við Dalbraut á Akranesi, uns hann var stöðvaður af lögreglu á Karlmansbraut móts við Skagaver, Akranesi.

Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

7. … nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 27. mars, tekið bifreiðina UT-919 af gerðinni Subaru Legacy Wagon, í heimildarleysi, til eigin nota þar sem hún stóð við hús nr. 9 að Hyrjarhöfða í Reykjavík, og ekið henni, sviptur ökurétti, uns hann lagði henni við Fríkirkjuveg.

Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987 og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákæruvaldið krefst þess að báðir ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.  Þá er þess krafist að ákærði Daniel verði sviptur ökurétti samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að framangreind fíkniefni verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Í ákæru er höfð uppi skaðabótakrafa A.  Hann krefst þess að ákærðu verði dæmdir til að greiða honum óskipt 3.203.800 krónur, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 6. júlí 2012 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags.  Þá krefst hann málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt mati dómsins.

Fyrir dómi játaði ákærði Daniel brot þau sem lýst er í ákæru 15. júní.  Er þessi játning í samræmi við gögn málsins og verður hann sakfelldur eins og krafist er, en brotin eru réttilega færð til refsiákvæða.

Ákærðu játuðu báðir fyrir dómi að hafa svipt A frelsi og að hafa rænt hann eins og lýst er í ákæru 14. ágúst.

Ákærði Daniel kvað þá ekki hafa beitt eins miklu ofbeldi og lýst er.  Þannig neitaði hann að beitt hefði verið byssu, eins og sagði í ákæru, en sækjandi féll frá við meðferð málsins.  Þá neitaði Daniel að hann hefði beitt staf og þá hefði hann ekki afhent óþekktum manni sjónvarp.

Ákærði Snorri sagði líka að ekki hefði verið beitt eins miklu ofbeldi og lýst er.  Hann kvaðst ekki hafa hótað lífláti og líkamsmeiðingum.  Þá kvaðst hann ekki hafa slegið A eða bundið hann niður í stól með límbandi.  Þá sagði Snorri að þeir hefðu ekki byrjað árásina fyrr en klukkan fimm um morguninn, en ekki klukkan þrjú eins og segir í ákæru.  Meðákærði bar á sama veg.

Þrátt fyrir þessa fyrirvara ákærðu við verknaðarlýsingu voru dómari og málflytjendur sammála um að fram væri komin játning brota sem lýst er.  Taldi sækjandi ekki þörf á að leiða vitni.  Því verður að miða við játningu ákærðu um verknaðarlýsingu.  Þannig verður að miða við að frelsissviptingin hafi staðið frá klukkan fimm um morguninn.  Ákærðu ruddust inn á heimili brotaþola og þvinguðu hann til að afhenda sér fé.  Þá tóku þeir verðmæti og höfðu á brott með sér.  Brotið er samverknaður þeirra og skiptir ekki máli hvor þeirra hafi síðan ráðstafað einstökum munum.  Hins vegar er ekki sannað að ákærðu hafi hótað lífláti eða líkamsmeiðingum með orðum, en telja má ljóst að framganga þeirra og aðgerðir hafi verið mjög ógnandi.  Hafa þeir báðir brotið gegn 2. mgr. 226. og 252. gr. almennra hegningarlaga, en hvorugt ákvæðið tæmir hér sök.  Brot þeirra eru gróf og eiga þeir sér ekki aðrar málsbætur en að hafa játað.

Fyrir dómi játaði ákærði Daniel brot þau sem lýst er í ákæru 15. júní.  Er þessi játning í samræmi við gögn málsins og verður hann sakfelldur eins og krafist er, en brotin eru réttilega færð til refsiákvæða.  Amfetamín og kannabisplöntur sem greinir í fyrsta lið ákærunnar ber að gera upptæk.

Báðir ákærðu hafa sætt gæsluvarðhaldi frá því að þeir voru handteknir vegna árásarinnar á A.  Þeir voru fljótlega fluttir á svokallaðan meðferðargang í fangelsinu á Litla-Hrauni.  Í vottorðum meðferðarfulltrúa í fangelsinu er því lýst að þeir séu báðir virkir í meðferðarstarfinu og í AA-starfi.

Ákærði Daniel hefur alls fimm sinnum sætt viðurlögum fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.  Síðasti dómur var kveðinn upp 11. janúar 2012, en þar hlaut hann sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið.  Hann hefur rofið skilorð dómsins, en sum brotanna voru einnig framin áður en dómur þessi var kveðinn upp.  Verður refsing hans ákveðin samkvæmt 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga.  Með hliðsjón af fjölda brota, skilorðsdóminum og hinu alvarlega ránsbroti er refsing hans ákveðin fangelsi í þrjú ár.  Þá verður að svipta hann ökurétti ævilangt, en hann var sviptur ökurétti í fimm ár með dómi 11. janúar 2012.

Ákærði Snorri hefur hlotið samtals 12 refsidóma, fyrst 1988 og þann síðasta 13. nóvember 2009.  Þá hefur hann gengist undir eina sátt.  Síðast var hann með þremur dómsúrlausnum dæmdur til að sæta fangelsi samtals í sex mánuði fyrir þjófnað, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot.  Sakavottorð hans ber vímuefnafíkn vitni.  Hann hefur ekki áður sætt refsingum fyrir ofbeldisbrot.  Er refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.

Bótakrafa A er studd við verknaðarlýsingu ákæru og vottorð læknis og geðhjúkrunarfræðings.  Í vottorði læknisins er því lýst að A hafi hlotið blóðmar á úlnliðum og ökklum.  Hann hafi orðið fyrir miklu andlegu áfalli.  Áfallinu og eftirköstum þess er nánar lýst í vottorði geðhjúkrunarfræðings sem starfar á miðstöð áfallahjálpar á Landspítala í Fossvogi.

Engin efni eru til að vísa bótakröfunni í heild frá dómi.  Liðirnir sjúkrakostnaður/öflun læknisvottorða, skemmdir á húsnæði og sjónvarp, hljómtæki, tölvuskjár, teppi o.fl. eru allir byggðir á áælunum, en engum gögnum.  Verður að vísa þeim frá dómi, nema hvað dæma verður kostnað við öflun framangreinds vottorðs geðhjúkrunarfræðings, 12.000 krónur.

Ákærðu náðu 453.000 krónum af reikningi A og verða dæmdir til að endurgreiða þá fjárhæð.  Skiptir ekki máli þótt lögregla hafi lagt hald á peninga hjá ákærðu, en A hefur ekki verið endurgreitt.

Þá verða ákærðu dæmdir til að greiða miskabætur samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.  Eru þær ákveðnar 800.000 krónur.

Bætur verða því ákveðnar samtals 1.265.000 krónur.  Málskostnaður vegna bótakröfunnar er ákveðinn með virðisaukaskatti 175.000 krónur.

Vextir af bótunum dæmast frá þeim degi er brot var framið, en dráttarvextir frá þingfestingardegi, eins og nánar greinir í dómsorði.

Ákærðu verða dæmdir til að greiða sakarkostnað.  Af kostnaði vegna rannsóknar greiði þeir óskipt 238.521 krónu, en ákærði Daniel greiði einn 501.977 krónur.  Hvor um sig greiði þóknun og kostnað verjanda síns, ákærði Daniel 400.000 krónur í málsvarnarlaun og 23.500 krónur í kostnað, ákærði Snorri 250.000 krónur í málsvarnarlaun og 12.925 krónur í kostnað.  Þá greiði ákærði Snorri þóknun verjanda við lögreglurannsókn, Brynjólfs Eyvindssonar hdl., 40.00 krónur.

Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð

Ákærði Daniel Arciszewski sæti fangelsi í þrjú ár.  Gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 7. júlí sl. komi til frádráttar refsingunni.

Ákærði Snorri Sturluson sæti fangelsi í tvö ár.  Gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 8. júlí sl. komi til frádráttar refsingunni.

Ákærði Daniel er sviptur ökurétti ævilangt.

Upptæk eru 34,55 g af amfetamíni og tvær kannabisplöntur.

Ákærðu greiði A óskipt 1.265.000 krónur, með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 6. júlí 2012 til 23. ágúst sama ár, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags og 175.000 krónur í málskostnað.

Framantöldum liðum í bótakröfu er vísað frá dómi.

Ákærði Daniel greiði þóknun verjanda síns, Jóns Egilssonar hæstaréttarlögmanns, 450.000 krónur og 23.500 krónur vegna kostnaðar.  Ákærði Snorri greiði þóknun verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar héraðsdómslögmanns, 250.000 krónur og 12.925 krónur vegna kostnaðar, og þóknun fyrri verjanda síns, Brynjólfs Eyvindssonar héraðsdómslögmanns, 40.000 krónur.  Þá greiði ákærðu óskipt 238.521 krónu í annan sakarkostnað og ákærði Daniel að auki 501.977 krónur.

Jón Finnbjörnsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 148. gr.2. mgr. 226. gr.244. gr.252. gr.1. mgr. 254. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.5. gr.6. gr.
Lög nr. 20/1981 11. gr.
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 4. gr.1. mgr. 45. gr.2. mgr. 45. gr.3. mgr. 45. gr.1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.
Lög nr. 66/2006 5. gr.