Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. apríl 2010.
Mál nr. S-213/2010:
D Ó M U R
máli nr. S-213/2010:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óðni Frey
Valgeirssyni
(Jón Egilsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærða gert að sæta fangelsi í 10 mánuði fyrir rán og innbrot.
Mál þetta, sem dómtekið var 7. apríl sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 23. mars sl. „á hendur Óðni Frey Valgeirssyni, Kleppsvegi 54, Reykjavík:
I.
Fyrir þjófnað, með því að hafa að morgni sunnudagsins 21. febrúar 2010, um kl. 07:00, brotist inn í bifreiðina MD-720, þar sem hún stóð við Kleppsveg 150 í Reykjavík og stolið þaðan handfrjálsum búnaði fyrir farsíma, Spectra geislatæki sem er ætlað til að mæla fleti og þremur hleðslutækjum, samtals að verðmæti um 60.000 krónur.
Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 190/1940.
II.
Fyrir þjófnað, með því að hafa að morgni sunnudagsins 21. febrúar 2010, um kl. 8:55, brotist inn í íbúðarhúsnæðið að Laufásvegi 18a í Reykjavík, með því að brjóta rúðu við inngang húsnæðisins, og stolið þaðan DVD-spilara, en lögreglan kom að ákærða þar sem hann var á leið út úr húsnæðinu og handtók hann.
Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III.
Fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa að morgni mánudagsins 22. febrúar 2010, í auðgunarskyni, farið inn í fjölbýlishúsið að Brautarholti 2, í Reykjavík, og þar inn í tvær íbúðir nr. 205 og 401 og leitað þar verðmæta, án árangur, þar sem húsráðendur komu að ákærða og handsömuðu hann.
Þetta er talið varða við 244. gr. sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu sakarkostnaðar.“
Hinn 7. apríl sl. var mál nr. 214/2010 sameinað máli þessu en þar er ákærða, með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 22. mars 2010, gefið að sök rán, „með því að hafa laugardaginn 20. febrúar 2010, farið inn í verslunina 10/11, Álfheimum 74, Reykjavík, ógnað þar starfsmanni, Þórhildi Kristjánsdóttur, með sprautunál, hótunum um að stinga hana og smita af eyðniveiru, krafist þess að hún opnaði sjóðsvélina og haft á brott með sér kr. 28.000 úr versluninni.
Þetta er talið varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar verjandaþóknunar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði ákærða var honum á árinu 2003 veitt ákærufrestun, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnað. Með dómi hinn 14. nóvember 2005 var ákvörðun um refsingu ákærða frestað skilorðsbundið í 2 ár vegna þjófnaðar, tilraunar til ráns og brots gegn valdstjórninni. Með dómi 3. febrúar 2006 var ákærða gert að sæta fangelsi í 45 daga, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir hylmingu og þjófnað. Þá var ákærða, með dómi uppkveðnum 28. janúar 2008, gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir gripdeild. Auk þessa hefur ákærði frá árinu 2006 tvívegis hlotið sektardóma og fimm sinnum gengist undir að greiða sektir með viðurlagaákvörðunum og lögreglustjórasáttum, síðast í október sl., vegna umferðarlaga- og fíkniefnabrota. Við ákvörðun refsingar verður til refsimildunar horft til þess að ákærði hefur játað brot sín greiðlega. Til refsiþyngingar horfir hins vegar að ákærði hefur þrisvar áður hlotið dóm vegna auðgunarbrota og að tvö brota hans nú lúta að því að ákærði hafi farið inn í íbúðarhús í auðgunartilgangi. Að þessu virtu, og með vísan til 77. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Til frádráttar komi gæsluvarðhaldsvist er ákærði hefur sætt frá 23. febrúar 2010.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðsdómslögmanns, við rannsókn málsins og fyrir dómi, 200.800 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Óðinn Freyr Valgeirsson, sæti fangelsi í 10 mánuði. Til frádráttar komi gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 23. febrúar 2010.
Ákærði greiði 200.800 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðsdómslögmanns, Ásgeir Magnússon