Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-6130/2010:

Íslandsbanki hf.

(Þórir Örn Árnason hdl)

gegn

Þóri Brynjúlfssyni

Mál

þetta, sem dómtekið var 14. mars sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af

Íslandsbanka hf., Kirkjusandi 2, Reykjavík, á hendur Þóri Brynjúlfssyni,

Rekagranda 8, Reykjavík, með stefnu birtri 30. ágúst 2010.

Stefnandi gerir þær

dómkröfur að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð

3.527.362 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 af

3.527.362 kr. frá 15. júlí 2010 til greiðsludags.

Þá er þess krafist að

stefnandi verði dæmdur til greiðslu málskostnaðar samkvæmt mati dómsins auk

virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.

Stefndi

gerir aðallega þá kröfu að málinu verði vísað frá en til vara að hann verði

sýknaður af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi þess að stefnandi verði

dæmdur til greiðslu málskostnaðar að mati dómsins.

Með úrskurði

Málavextir

Þann 13. desember 1985

stofnaði stefndi tékkareikning nr. 3727 við útibú Útvegsbanka Íslands. Árið

1990 voru Útvegsbanki Íslands, Alþýðubanki Íslands, Iðnaðarbanki Íslands og

Verslunarbanki Íslands sameinaðir undir nafninu Íslandsbanki, sem síðar var

Glitnir og nú Íslandsbanki hf., kt. 491008-0160, sbr. ákvörðun

fjármálaeftirlitsins, dags. 14. október 2008. Tékkareikningur stefnda er nú

reikningur nr. 513-26-3727 við útibú stefnanda að Lækjargötu 12, Reykjavík.

Af hálfu stefnanda var

stefnda sent milliinnheimtubréf, dags. 21. apríl 2010, þar sem þeim tilmælum

var beint til hans að greiða skuldina eða semja um greiðslu hennar innan tíu

daga frá dagsetningu bréfsins ella yrði reikningnum lokað og krafan send

lögmanni bankans til innheimtu. Með bréfi stefnanda, dags 11. júní 2010, var

stefnda á ný send áskorun sama efnis. Loks sendi stefnandi stefnda

innheimtubréf, dags. 21. júlí 2010, og var þá höfuðstóll kröfunnar 3.527.362

kr. sem er stefnufjárhæð málsins.

Málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi byggir

kröfur sínar á meginreglum samninga- og kröfuréttar um loforð og efndir

fjárskuldbindinga. Kröfu um dráttarvexti, þ.m.t. vaxtavexti, styður stefnandi

við reglur III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001, með síðari breytingum. Krafa um

málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála.

Krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun er reist á lögum númer 50/1988.

Stefnandi er ekki virðisaukaskattskyldur og ber honum því nauðsyn til að fá dóm

fyrir skatti þessum úr hendi stefnda. Varðandi varnarþing vísast til 32. gr.

laga nr. 91/1991.

Málsástæður og lagarök stefnda

Stefndi

gerir þá kröfu að málinu verði vísað frá dómi þar sem stefnandi sé ekki aðili

að málinu og eigi ekki lögvarða kröfu á hendur stefnda. Stefndi hafi verið í

viðskiptum við Glitni hf. og hafi sagt sig frá viðskiptum við stefnanda þar sem

hann hafi ekki ætlað að eiga í viðskiptum við þann banka.

Stefndi

segir í greinargerð sinni að ef krafa stefnanda vegna viðskipta stefnda

við Glitni hf. verði viðurkennd, þá eigi hann gagnkröfu á stefnanda vegna taps

á viðskiptum sínum við Glitni hf. en stefndi hafi tapað töluverðum fjármunum á

þeim viðskiptum.

Einnig

geri stefndi kröfu um frávísun málsins þar sem stefnandi eigi ekki lögvarða

Bankar. Skuldajöfnuður. Skuldamál.

Stefndi dæmdur til greiðslu skuldar vegna tékkareiknings.

Mál þetta, sem dómtekið var 14. mars sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Íslandsbanka hf., Kirkjusandi 2, Reykjavík, á hendur Þóri Brynjúlfssyni, Rekagranda 8, Reykjavík, með stefnu birtri 30. ágúst 2010.

Stefnandi gerir þær dómkröfur að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 3.527.362 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 af 3.527.362 kr. frá 15. júlí 2010 til greiðsludags.

Þá er þess krafist að stefnandi verði dæmdur til greiðslu málskostnaðar samkvæmt mati dómsins auk virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.

Stefndi gerir aðallega þá kröfu að málinu verði vísað frá en til vara að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi þess að stefnandi verði dæmdur til greiðslu málskostnaðar að mati dómsins.

Með úrskurði héraðsdóms, dags. 6. maí 2011, var kröfu stefnda um frávísun málsins hafnað.

Málavextir

Þann 13. desember 1985 stofnaði stefndi tékkareikning nr. 3727 við útibú Útvegsbanka Íslands. Árið 1990 voru Útvegsbanki Íslands, Alþýðubanki Íslands, Iðnaðarbanki Íslands og Verslunarbanki Íslands sameinaðir undir nafninu Íslandsbanki, sem síðar var Glitnir og nú Íslandsbanki hf., kt. 491008-0160, sbr. ákvörðun fjármálaeftirlitsins, dags. 14. október 2008. Tékkareikningur stefnda er nú reikningur nr. 513-26-3727 við útibú stefnanda að Lækjargötu 12, Reykjavík.

Af hálfu stefnanda var stefnda sent milliinnheimtubréf, dags. 21. apríl 2010, þar sem þeim tilmælum var beint til hans að greiða skuldina eða semja um greiðslu hennar innan tíu daga frá dagsetningu bréfsins ella yrði reikningnum lokað og krafan send lögmanni bankans til innheimtu. Með bréfi stefnanda, dags 11. júní 2010, var stefnda á ný send áskorun sama efnis. Loks sendi stefnandi stefnda innheimtubréf, dags. 21. júlí 2010, og var þá höfuðstóll kröfunnar 3.527.362 kr. sem er stefnufjárhæð málsins.

Málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi byggir kröfur sínar á meginreglum samninga- og kröfuréttar um loforð og efndir fjárskuldbindinga. Kröfu um dráttarvexti, þ.m.t. vaxtavexti, styður stefnandi við reglur III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001, með síðari breytingum. Krafa um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála. Krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun er reist á lögum númer 50/1988. Stefnandi er ekki virðisaukaskattskyldur og ber honum því nauðsyn til að fá dóm fyrir skatti þessum úr hendi stefnda. Varðandi varnarþing vísast til 32. gr. laga nr. 91/1991.

Málsástæður og lagarök stefnda

Stefndi gerir þá kröfu að málinu verði vísað frá dómi þar sem stefnandi sé ekki aðili að málinu og eigi ekki lögvarða kröfu á hendur stefnda. Stefndi hafi verið í viðskiptum við Glitni hf. og hafi sagt sig frá viðskiptum við stefnanda þar sem hann hafi ekki ætlað að eiga í viðskiptum við þann banka.

Stefndi segir í greinargerð sinni að ef krafa stefnanda vegna viðskipta stefnda við Glitni hf. verði viðurkennd, þá eigi hann gagnkröfu á stefnanda vegna taps á viðskiptum sínum við Glitni hf. en stefndi hafi tapað töluverðum fjármunum á þeim viðskiptum.

Einnig geri stefndi kröfu um frávísun málsins þar sem stefnandi eigi ekki lögvarða kröfu á hendur honum samkvæmt meginreglum kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga og skuldbindingargildi loforða þar sem ekki hafi verið um neitt loforð eða skuldbindingu að ræða af hálfu stefnda. Hvergi sé til neinn samningur milli stefnda og stefnanda eða Glitnis hf. vegna þeirrar kröfu sem fram sé kominn. Umsókn um tékkareikning í Útvegsbanka frá árinu 1985 hafi að mati stefnda ekkert gildi þar sem efnahagsreikningi Útvegsbanka hefur fyrir löngu verið lokað og allar kröfur hans á hendur viðskiptavinum löngu uppgerðar. Útvegsbankinn sé ekki lengur lögaðili. Sú umsókn hafi ekkert gildi gagnvart meginreglum kröfuréttarins um skuldbindingargildi loforða enda beri stefnandi þær ekki fyrir sig þar sem ekki sé um neinn samning eða loforð að ræða sem gilt sé af hálfu stefnda. Ef fyrrnefnd umsókn hefði haft eitthvert gildi samkvæmt meginreglum kröfuréttarins væri hún löngu fyrnd samkvæmt ákvæðum laga um fyrningu.

Ef dómurinn álítur að stefnandi eigi kröfu á stefnda þá biður stefndi dóminn að krefjist þess að stefnandi leggi fram skjöl um öll viðskipti stefnda á öllum reikningum Glitnis hf. síðastliðinn sex ár. Ef stefnandi heldur að hann eigi kröfu á stefnda þá er honum í lófa lagið að afskrifa hana eins og hann hefur gert við marga af „vildar“viðskiptavinum sínum.

Stefndi var viðskiptavinur Glitnis hf. og stundaði viðskipti á fjármálamarkaði með milligöngu bankans. Í stuttu máli má segja að rekstur bankans hafi verið byggður á lygi og svikum eins og komið hefur fram í dagsljósið á síðustu mánuðum og vegna þess tapaði stefndi miklu fé á viðskiptum við bankann. Stefndi ætlaði sér aldrei að vera viðskiptavinur stefnanda í ljósi viðskiptasögu sinnar við Glitni hf. enda sleit hann öllum viðskiptum sínum við bankann fljótlega eftir fall hans.

Sem viðskiptavinur var stefndi með veðreikninga vegna kaupa og sölu á hlutabréfum og gerði lögformlega undirritaða samninga með ýmsum skilyrðum. Stefndi sinnti veðköllum samkvæmt samningum og tapaði stórfé á þeim viðskiptum. Má segja að öll viðskipti stefnda hafi verið byggð á sandi þar sem um hafi verið að ræða markaðsmisnotkun og bankinn logið með fulltingi greiningadeildar sinnar um ástand bankans og eigin fjármögnun. Verði hlutabréfa hafi verið haldið uppi og villandi upplýsingar gefnar um stöðu efnahagsmála. Enginn óbrjálaður fjárfestir hefði fjárfest á íslenskum hlutabréfamarkaði hefði hann vitað um stöðu mála. Er skemmst að minnast Stím-málsins sem er nú til rannsóknar.

Stefndi átti einnig fjármuni í sjóði 9 og tapaði fjármunum við fall bankans. Talað hefur verið um að helstu eigendur bankans, þ.e. stærstu hluthafar og svokallaðir skuggastjórnendur, hafi stjórnað fjárfestingarstefnu sjóðanna í gegnum sjóðsstjóra. Stefnda skilst að viðskipti með fjármuni sjóðs 9 séu í rannsókn en stefndi mun engu að síður senda formlegt erindi til ríkissaksóknara, efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og sérstaks saksóknara og fara fram á rannsókn á málefnum hans.

Stefndi keypti hlutabréf í Icelandair þegar það var selt út úr FL group en Glitnir hf. sá um hlutabréfaútboðið. Stefndi tapaði enn og aftur fjármunum á því. Eru áhöld um að ekki hafi verið löglega staðið að því útboði og að eignir Icelandair hafi verið ofmetnar, þ.e. að verðmæti Icelandair með viðskiptavild og efnislegum eigum hafi verið metið of hátt. Það hafði í för með sér að útboðsgengið var of hátt. Stefndi keypti hlutabréf í Icelandair með lánum frá Glitni hf. sem höfðu hlutabréfin að veði. Stefndi seldi bréfin sem betur fer að eigin frumkvæði áður en gengi þeirra féll mikið en þau höfðu fallið þó nokkuð þegar stefndi seldi með þó nokkru tapi.

Stefndi hafði samband við sérstakan saksóknara vegna fyrrnefnds hlutabréfaútboðs og mun bráðlega senda formlega beiðni um rannsókn til ríkissaksóknara, efnahagsbrotadeildar og sérstaks saksóknara og fara fram á rannsókn vegna þess.

Stefndi keypti hlutabréf í Glitni hf. þegar yfirlýsing var send frá Seðlabanka Íslands og stjórn Glitnis hf. um að íslenska ríkið ætlaði að gerast hluthafi að bankanum. Glitnir hf. var fjóra daga á markaði Kauphallar Íslands eftir þá ákvörðun og áætlað er að tap vegna kaupa á hlutabréfum í bankanum þá daga hafi verið alls 4 milljarðar. Starfsfólk eignastýringar Glitnis hf. hvatti viðskiptavini til að kaupa hlutabréf í bankanum þessa fjóra daga. Hvað gerðist síðan er á allra vitorði.

Vaknað hafa spurningar um ábyrgð stjórnenda Glitnis hf., Þorsteins Más Vilhelmssonar stjórnarformanns, o.fl., stjórnenda Seðlabanka Íslands, Davíðs Oddssonar o.fl., og forsvarsmanna ríkisins, þeirra Geirs Haarde, Árna Mathisen og Björgvins Sigurðssonar. Sú ábyrgð varðar annars vegar upplýsingagjöf stjórnar Glitnis hf. til stjórnar Seðlabankans og fyrrnefndra ráðherra og hins vegar embættisfærslu fyrrnefndra ráðherra og seðlabankastjóra en áhöld eru um að þeir hafi gerst sekir um vanrækslu þar sem þeir skoðuðu ekki stöðu bankans nógu vel. Einnig hafa vaknað spurningar um ábyrgð Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands að því er varðar hvort Glitnir hf. hafi yfirhöfuð átt að vera á markaði kauphallarinnar þessa fjóra daga.

Stefndi tapaði fjármunum á kaupum á hlutbréfum í Glitni hf. þessa fjóra daga. Stefndi hefur í hyggju að senda erindi til ríkissaksóknara, efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og sérstaks saksóknara og biðja um formlega rannsókn.

Stefndi tók lán hjá Glitni hf. árið 2006 fyrir um 30% af andvirði bifreiðar sem hann keypti. Stefndi hugðist staðgreiða bifreiðina en var bent á að það væri snjallræði að taka svokallað myntkörfulán og nota þá fjármuni sem hann ætti í hlutabréfakaup, það myndi örugglega skila sér í hagnaði fyrir hann sem viðskiptavin. Hlutabréfin hurfu, krónan lækkaði og lánið tvöfaldaðist. Vaknað hafa spurningar um hvort Glitnir hf. og fleiri bankar hafi tekið stöðu gegn krónunni og valdið falli hennar og þar með unnið gegn hagsmunum stefnda og fleiri viðskiptavina.

Eftir dóma Hæstaréttar í málum nr. 92/2010 og 153/2010 hætti stefnandi að senda stefnda greiðsluseðla og viðurkenndi í raun fordæmisgildi dómanna. Stefndi sendi stefnanda greiðsluáskorun þar sem hann fór fram á að stefnandi leiðrétti höfuðstól lánsins í samræmi við dóminn, þ.e. gengistryggingin yrði felld úr gildi og stefnandi sendi stefnda greiðsluseðla með samningsvöxtum.

Einnig sendi stefndi stefnanda áskorun um að fá að greiða upp lánið miðað við dóma Hæstaréttar frá 16. júní 2010. Stefnandi varð við hvorugri áskoruninni. Stefndi lítur þannig á að hann eigi rétt á báðu fyrrgreindu miðað við dóma Hæstaréttar og 36. gr. samningalaga sem heimilar að samningi sé vikið til hliðar að hluta til. Stefndi hyggst stefna stefnanda fljótlega vegna þessarar synjunar að viðlögðum skaðabótum þar sem erfitt sé að selja bifreiðina.

Af þessari upptalningu sést að það hallar á þrotabú Glitnis hf. eða á stefnanda í viðskiptum hans og stefnda ef krafa stefnanda verður tekin til greina. Stefndi hefur tapað umtalsverðum fjármunum vegna „leiðsagnar bankans“ í fjármálum. Upphæð sú hleypur á nokkrum milljónum.

Í viðbót við að hafa tekið stöðu gegn krónunni, hafi það komið fram að starfsfólk bankans virðist hafa vitað af ólögmæti svokallaðra myntkörfulána og spurningar hafa vaknað um það hvort nokkur viðskipti með erlenda gjaldmiðla hafi átt sér stað að baki myntkörfulánunum. Einnig hafa vaknað spurningar um að hve miklu leyti stefnandi hafi afskrifað lán, þar með talin myntkörfulán, sem færð voru úr Glitni hf. en stefnandi innheimtir að fullu, þ.e. að upprunalegu verðgildi. Vonandi geti stjórnendur stefnanda svarað þessum spurningum þegar þeir verða kallaðir til vitnis og leitt í ljós hve miklu stefndi hafi í raun tapað á viðskiptum við Glitni hf. og stefnanda. Einnig geti þeir svarað hve mikla fjármuni stefnandi hafi afskrifað og hjá hverjum.

Ef krafa stefnda á hendur stefnanda, sem átti öll sín viðskipti við Glitni hf., verður viðurkennd verður stefnandi að axla þær skyldur og ábyrgð sem Glitnir hf. hafði gagnvart stefnda. Því á skuldajöfnun augljóslega við ef því er að skipta. Þar sem stefndi hefur verið við vinnu erlendis í leiguflugi, en hann er flugstjóri hjá Icelandair, hefur hann ekki haft tíma til að safna saman öllum gögnum er varða viðskipti sín hjá Glitni hf. Stefndi mun leggja þau fram síðar en gerir um leið kröfu um að stefnandi leggi einnig fram þau gögn frá árunum 2004 til 2010.

Stefndi mun kalla vitni fyrir dóm til að sýna og sanna hvernig stjórnendur og yfirmenn bankans unnu gegn stefnda sem viðskiptavini og ollu honum skaða langt umfram kröfu stefnanda. Í raun má segja að stefna og kröfugerð bankans sé einelti og áreiti af hendi stefnanda og áskilur stefndi sér rétt til að kæra stefnanda fyrir þær sakir.

Stefndi byggir á því að ekki sé til neinn löggerningur sem hefur falinn í sér loforð af hálfu stefnda við stefnanda er varða framkomna kröfu. Stefnandi byggir ekki kröfu sína á meginreglu kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga eða skuldbindingargildi loforða því að ekki er til nein lögvarin heimild af hálfu stefnanda til að krefja stefnda um greiðslu. Ef stefnandi ætti lögvarða kröfu á hendur stefnda þá myndi stefndi krefjast skuldajafnaðar þar sem hann sannanlega tapaði á viðskiptum við Glitni hf. vegna svika og lyga, eins og kemur fram hér að framan, en stefnandi álítur að hann eigi hlut að máli sem í raun á uppruna sinn í Glitni hf. Því hlýtur stefndi að eiga, með gagnályktun, kröfu á hendur stefnanda um skuldajöfnun ef dómurinn álítur að um lögvarða kröfu sé að ræða. Skuldajöfnun ætti sannanlega rétt á sér ef þrotabú Glitnis hf. gerði kröfu um greiðslu á þeirri upphæð sem stefnt er fyrir. Sú umsókn um tékkareikning sem stefnandi leggur fram hefur ekkert gildi að lögum þar sem Útvegsbanki er ekki lögaðili og það stofnar ekki stefnanda kröfurétt að lögum. Ef umsókn um tékkareikning hefði eitthvert kröfuréttarlegt gildi væri sú krafa löngu fyrnd. Ef tómlæti, Glitnis hf., og/eða stefnanda, við að krefjast loforðs af stefnda hefur valdið réttarspjöllum er það á ábyrgð stefnanda.

Niðurstaða

Óumdeilt er að stefndi stofnaði tékkareikning í Útvegsbankanum 13. desember 1985 og liggur fyrir umsókn stefnda um stofnun reikningsins.

Árið 1990 voru Útvegsbanki Íslands, Alþýðubanki Íslands, Iðnaðarbanki Íslands og Verslunarbanki Íslands sameinaðir undir nafni Íslandsbanka, sem síðar var Glitnir hf. og nú Íslandsbanki hf., kt. 491008-0160, sbr. ákvörðun fjármálaeftirlitsins, dags. 14. október 2008. Í  1. gr. ákvörðunarinnar segir að öllum eignum Glitnis banka hf., hverju nafni sem þær nefnast, svo sem fasteignum, lausafé, reiðufé, eignarhlutum í öðrum félögum og kröfuréttindum sé þegar í stað ráðstafað til Nýja Glitnis banka hf., sem síðar varð Íslandsbanki hf. Í 2. gr. segir að Nýi Glitnis banki hf. taki jafnframt við öllum tryggingarréttindum Glitnis banka hf., þ.m.t. öllum veðréttindum, ábyrgðum og öðrum sambærilegum réttindum sem tengjast kröfum bankans. Sú ákvörðun var tekin með heimild í 100. gr. a laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 5. gr. laga nr. 125/2008 um fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl. Úr sambærilegu álitaefni var leyst með dómi Hæstaréttar í máli nr. 567/2011. Af hálfu stefnda hafa ekki verið lögð fram haldbær rök til að vikið verði frá því fordæmi sem sett var með þeim dómi Hæstaréttar. Samkvæmt því og með vísan til ofangreinds dóms telur dómari að krafa sú sem hér er deilt um sé eign stefnanda og hann réttur aðili málsins.

Fyrir liggur að stefndi hefur verið eigandi reikningsins frá stofnun hans. Stefndi byggir á því að hann hafi ekki valið að vera í viðskiptum við stefnanda og hafi því tilkynnt honum að hann ætlaði að hætta þeim viðskiptum. Fyrir liggur bréf stefnda, dags. 10. desember 2009, þar sem hann ítrekar, og vísar í fyrra bréf, að viðskiptum hans við stefnanda sé lokið nema hvað varðar bílasamning og óskar eftir því að 38.205 kr. sem lagðar voru inn á reikning 0513-26-3727 fyrir mistök verði lagðar inn á annan reikning stefnda í öðrum banka.

Framlögð gögn bera með sér að til skuldarinnar hafi stofnast vegna notkunar stefnda á reikningnum. Samkvæmt framlögðu reikningsyfirliti, dags. 24. ágúst 2010, var stefndi í lok desember 2009 í skuld á reikningum að fjárhæð 3.224.224 kr.

Í greinargerð stefnda mótmælir hann ekki fjárhæð kröfunnar né heldur því að hafa notað umræddan reikning. Í málflutningi stefnda hélt hann því fyrst fram að af hálfu stefnanda hefði aldrei verið sýnt fram á að stefndi hafi notað reikninginn en það bæri stefnanda að sanna. Af hálfu stefnanda var málsástæðu þessari mótmælt þar sem hann taldi hana of seint fram komna.

Samkvæmt 2. mgr. 99. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála skulu málsástæður koma fram í greinargerð og samkvæmt 5. mgr. 105. gr. laganna skulu málsástæður og mótmæli koma fram jafnskjótt og tilefni verður til. Stefndi hefði getað komið málsástæðu þessari að í greinargerð og er það því mat dómarans, með hliðsjón af nefndum lagaákvæðum, að málsástæða þessi sé of seint fram komin og því verði ekki á henni byggt.

Í málflutningi stefnda kom einnig fram að hann teldi að ekki hafi verið gert ráð fyrir yfirdrætti á reikningnum og ekki hafi verið krafist ábyrgðarmanna vegna notkunar á reikningnum  og því verði hann ekki dæmdur til greiðslu dómkröfunnar. Var þessu mótmælt af hálfu stefnanda sem benti á að ekki væri þörf á ábyrgðarmönnum og að reikningseigendur bæru sjálfir ábyrgð á notkun reikningi sínum.

Af hálfu stefnda var þessari málsástæðu ekki hreyft í greinargerð og ber því með vísan til sömu raka og getið er um hér að ofan að telja að ofangreind málsástæða sé of seint fram komin.

Stefndi byggir einnig á því að krafa stefnanda sé fyrnd og vísar til þess að tékkareikningurinn var stofnaður 1985. Stefndi hefur notað reikninginn samfellt síðan hann var stofnaður og til ársloka 2009 þrátt fyrir breytingar sem orðið hafa á formi reikningsins og fjármálastofnuninni sem hafði reikninginn í vörslum sínum. Eins og fyrr hefur verið rakið var stefnda þann 30. ágúst 2010 birt stefna vegna kröfunnar. Ekki er því fallist á það með stefnda að krafa stefnanda sé fyrnd.

Stefndi krefst þess að verði krafa stefnanda tekin til greina þá verði henni skuldajafnað við kröfur stefnda á hendur stefnanda. Af hálfu stefnanda hefur því verið mótmælt þar sem ekkert hafi komið fram um fjárhæð krafnanna. Í greinargerð stefnda segir hann að vonandi geti stjórnendur stefnanda svarað spurningum um viðskipti stefnanda og stefnda þegar þeir verði kallaðir til vitnis og leitt í ljós hve miklu stefndi hefur í raun tapað á viðskiptum við Glitni hf. og stefnanda. Með úrskurði héraðsdóms, dags. 17. nóvember 2011, vegna ágreinings um vitnaleiðslur, var fjallað um kröfu stefnda um að leidd yrðu fyrir dóminn níu vitni, m.a. fyrrverandi stjórnarmenn og starfsmenn Glitnis hf. Með úrskurðinum var kröfu stefnanda hafnað en þar segir m.a. í niðurstöðu: „Enginn þeirra, að undanskildum þeim Birnu Einarsdóttur og Hannesi Guðmundssyni, sem hafa aðilastöðu í málinu, hefur þau tengsl við sakarefni málsins, að þýðingu geti haft fyrir úrlausn þess. Þá verður ekki talið að sú sönnunarfærsla hafi þýðingu að því er gagnkröfu stefnda í málinu varðar, eins og málatilbúnaði stefnda í þeim efnum er háttað.“

Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. laga nr. 91/1991 er varnaraðila rétt að hafa uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar í máli án þess að gagnstefna ef skilyrði fyrir skuldajöfnuði eru fyrir hendi. Gagnkrafan skal þá höfð uppi í greinargerð en sjálfstæður dómur getur ekki gengið um hana.

Stefndi lýsir því í greinargerð að hann telji sig eiga kröfur á hendur stefnanda vegna taps sem hann hafi orðið fyrir í viðskiptum við stefnanda, m.a. með hlutabréf. Af hálfu stefnda hafa verið lögð fram gögn vegna viðskipta hans við stefnanda. Ekki verður af málatilbúnaði stefnda séð á hvaða grundvelli kröfurnar eru reistar né heldur hver fjárhæð þeirra er utan þess að stefndi telur að þær nemi milljónum. Þegar að ofangreindum ástæðum eru ekki skilyrði til skuldajafna kröfu stefnanda og kröfum stefnda á hendur stefnanda.

Þær varnir sem fram hafa verið færðar af hálfu stefnda geta ekki leitt til sýknu af kröfu stefnanda.

Með vísan til ofangreinds er því fallist á kröfu stefnanda eins og hún er sett fram með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 eins og greinir í dómsorði.

Eftir þessari niðurstöðu ber stefnda að greiða stefnanda málskostnað sem telst hæfilega ákveðinn 300.000 kr. og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts og þess að málið hefur áður verið flutt um frávísunarkröfu og um ágreining um vitnaleiðslur.

Sigríður Elsa Kjartansdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp dóminn.

D Ó M S O R Ð

Stefndi, Þórir Brynjúlfsson, greiði stefnanda, Íslandsbanka hf., 3.527.362 kr. auk dráttarvaxta samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 frá 15. júlí 2010 til greiðsludags.

Stefndi greiði stefnanda 300.000 kr. í málskostnað.

Sigríður Elsa Kjartansdóttir (sign.)

Heimildaskrá