Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. október 2009.
Mál nr. S-864/2009:
D Ó M U R
máli nr. S-864/2009:
Ákæruvaldið
(Eyjólfur Ármannsson fulltrúi)
gegn
Konráði Gylfasyni
Formvélum ehf.
Ár
2009, þriðjudaginn 20. október, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð
er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp
Málið
er höfðað með ákæru ríkislögreglustjóra, dagsettri 7. september sl. á hendur
ákærða, Konráð Gylfasyni, kt. 000000-0000, Lækjarvaði 25, Reykjavík, og
Formvélum ehf., kt. 000000-0000, Kletthálsi 9, Reykjavík, sem ákærði er talinn
vera í svari fyrir, „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum framin í rekstri
einkahluta-félagsins Formvélar, sem ákærði Konráð var framkvæmdastjóri,
stjórnarmaður og prókúruhafi fyrir, með því að hafa eigi staðið skil á
virðisaukaskattsskýrslum fyrir hönd félagsins á árinu 2007, en með þessu var
eigi talin fram skattskyld velta á árinu samtals að fjárhæð kr. 13.964.644, og
hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í
starfseminni á árinu 2007, í samræmi við fyrirmæli í IX. kafla laga um
virðisaukaskatt nr. 50/1988, samtals að fjárhæð kr. 3.013.979, sem sundurliðast
sem hér greinir:
Uppgjörstímabil Vantalin
skattskyld velta Vangoldinn
VSK á eindaga
Árið 2007:
(Guðmundur Ágústsson hrl)
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Virðisaukaskattur.
Útdráttur
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn skattalögum.
Ár 2009, þriðjudaginn 20. október, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 864/2009: Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson) gegn Konráð Gylfasyni (Guðmundur Ágústsson hrl.), sem tekið var til dóms hinn 12. sama mánaðar.
Málið er höfðað með ákæru ríkislögreglustjóra, dagsettri 7. september sl. á hendur ákærða, Konráð Gylfasyni, kt. 000000-0000, Lækjarvaði 25, Reykjavík, og Formvélum ehf., kt. 000000-0000, Kletthálsi 9, Reykjavík, sem ákærði er talinn vera í svari fyrir, „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum framin í rekstri einkahluta-félagsins Formvélar, sem ákærði Konráð var framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi fyrir, með því að hafa eigi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum fyrir hönd félagsins á árinu 2007, en með þessu var eigi talin fram skattskyld velta á árinu samtals að fjárhæð kr. 13.964.644, og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfseminni á árinu 2007, í samræmi við fyrirmæli í IX. kafla laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, samtals að fjárhæð kr. 3.013.979, sem sundurliðast sem hér greinir:
Uppgjörstímabil Vantalin skattskyld velta
Vangoldinn VSK á eindaga
Árið 2007:
Janúar-febrúar kr. 1.043.021 kr. 255.272 Mars-apríl kr. 2.332.057 kr. 323.448 Maí-júní kr. 2.464.318 kr. 603.759 Júlí-ágúst kr. 1.312.575 kr. 321.581 September-október kr. 3.022.324 kr. 626.984 Nóvember-desember kr. 3.790.349 kr. 882.935 Samtals kr. 13.964.644 kr. 3.013.979 Framangreind brot ákærða Konráðs samkvæmt ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
a) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005.
Framangreind brot ákærða Formvélar ehf. samkvæmt ákæru teljast varða við:
b) 8. mgr. 40 gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt að því er varðar 1. tölulið ákæru, sbr. tilvitnuð ákvæði í a) lið að framan.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákæruvaldið hefur í bókun krafist þess að ákæran verði leiðrétt í þá veru að refsikrafan snúi bæði að ákærða Konráði og einkahlutafélaginu Formvélum en ekki að ákærða einum, eins og misritast hafi. Af hálfu ákærða, Formvéla ehf., er því mótmælt að þessi leiðrétting ákærunnar komist að í málinu.
Samkvæmt 1. mgr. 153. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008 verður ekki bætt úr þeim galla á ákærunni sem hér um ræðir nema með framhaldsákæru. Samkvæmt því varðar refsikrafan einungis ákærða Konráð.
Málavextir
Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir. Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni. Fyrir liggur að ákærði greiddi skatt þann sem hann stóð ekki skil á og skilaði um hann skýrslum áður en mál þetta var höfðað. Í nýlegri dómaframkvæmd hefur verið litið svo á að þegar svo standi á varði brot sem þetta ekki við 262. gr. almennra hegningarlaga og ber að sýkna ákærða af því. Ákærði Konráð og Formvélar ehf. hafa því orðið sek um brot það sem lýst er í ákærunni og er að öðru leyti réttilega heimfært til refsiákvæðis laganna um virðisaukaskatt. Með vísan til þess sem áður sagði um refsikröfuna verður ákærða Konráð einum gerð refsing í málinu og telst hún með hliðsjón af málsbótum hans vera hæfilega ákveðin 1.800.000 króna sekt. Þá ber að ákveða það að 30 daga fangelsi komi í stað sektarinnar, greiðist hún ekki innan 4 vikna frá dómsbirtingu.
Dæma ber ákærðu til þess að greiða óskipt verjanda sínum, Guðmundi Ágústssyni hrl. 100.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti.
Annan sakarkostnað mun ekki hafa leitt af málinu.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Konráð Gylfason, greiði 1.800.000 krónur í sekt og komi 30 daga fangelsi í stað sektarinnar, greiðist hún ekki innan 4 vikna frá dómsbirtingu.
Ákærðu greiði óskipt verjanda sínum, Guðmundi Ágústssyni hrl. 100.000 krónur í málsvarnarlaun.
Pétur Guðgeirsson