Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 22. desember 2009.
Mál nr. S-841/2009:
D Ó M U R
máli nr. S-841/2009:
Ákæruvaldið
(Einar Tryggvason saksóknarfulltrúi)
gegn
Snæbirni Reyni, Rafnssyni og
(Þorsteinn Einarsson hrl)
Jónasi, Helga Ólafssyni
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Staðgreiðsla opinberra gjalda. Virðisaukaskattur.
Útdráttur
Tveir forsvarsmenn fyrirtækis sakfelldir fyrir brot gegn skattalögum.
I.
Mál þetta, sem dómtekið var 25. nóvember sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 18. ágúst 2009 á hendur Snæbirni Reyni Rafnssyni, Nökkvavogi 4, Reykjavík, og Jónasi Helga Ólafssyni, Bergsstöðum, Vogum.
Á hendur ákærða Snæbirni fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum framin í rekstri einkahlutafélagsins V & R Lagnakerfi, sem ákærði Snæbjörn var skráður framkvæmdastjóri fyrir frá 30. október 2005 til 20. nóvember 2007, og starfandi framkvæmdastjóri fyrir frá 20. nóvember 2007, og á hendur ákærða Jónasi sem skráðum framkvæmdastjóra félagsins frá 20. nóvember 2007, fyrir brot gegn skattalögum framin í rekstri þess, með því að hafa:
- Eigi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum fyrir hönd félagsins á lögmæltum tíma vegna uppgjörstímabilanna nóvember-desember 2006 og janúar-febrúar, marsapríl og júlí-ágúst 2007, hafa skilað til skattyfirvalda efnislega rangri virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabilsins júlí-ágúst 2007 þar sem útskattur var vantalinn um samtals kr. 2.165.597, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, skil á virðisaukaskatti, sem þó var rétt fram talinn á virðisaukaskattsskýrslum uppgjörstímabilanna nóvember-desember 2006 og janúar-febrúar, mars-apríl 2007, og innheimtur í rekstri einkahlutafélagsins vegna sömu uppgjörstímabila auk uppgjörstímabilsins júlí-ágúst 2007, samtals að fjárhæð kr. 10.983.297, sem sundurliðast sem hér greinir:
Uppgjörstímabil:
Vangoldinn VSK:
Árið 2006 nóvember - desember kr. 2.297.779 kr. 2.297.779 Árið 2007 janúar - febrúar kr. 2.805.692 mars - apríl kr. 1.360.844 júlí - ágúst kr. 4.518.982 kr. 8.685.518 Samtals: kr. 10.983.297
- Eigi staðið skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma vegna tímabilanna janúar til og með mars auk maí, október, nóvember og desember 2007 og janúar 2008, og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna neðangreindra tímabila, samtals að fjárhæð kr. 8.261.226, sem sundurliðast sem hér greinir:
Greiðslutímabil:
Vangoldin staðgreiðsla:
Árið 2007 janúar kr. 1.100.978 febrúar kr. 1.048.674 mars kr. 1.554.165 maí kr. 1.395.655 júní kr. 923.510 júlí kr. 699.854 ágúst kr. 146.856 september kr. 328.279 október kr. 443.044 nóvember kr. 238.739 desember kr. 94.628 kr. 7.974.382
| Árið 2008 | ||
janúar kr. 151.566 febrúar kr. 135.278 kr. 286.844 Samtals: kr. 8.261.226 Framangreind brot ákærða Snæbjarnar samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
a) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. tölulið ákæru.
b) 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 2. tölulið ákæru.
Framangreind brot ákærða Jónasar samkvæmt 2. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Af hálfu ákærða Snæbjörns Reynis er þess krafist að hann verði sýknaður af þeim hluta ákæruliðar 2 er lýtur að tímabilinu nóvember 2007 til febrúar 2008. Að öðru leyti sé krafist vægustu refsingar sem lög leyfi. Þá sé krafist málsvarnarlauna úr ríkissjóði.
Af hálfu ákærða Jónasar Helga er þess aðallega krafist að hann verði sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í málinu, en til vara að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið. Sé þess og krafist að málsvarnarlaun verði greidd úr ríkissjóði.
II.
Skattrannsóknarstjóri ríkisins vísaði máli þessu til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, með bréfi dags. 27. ágúst 2008. Kemur í bréfinu fram að rannsókn skattrannsóknarstjóra á staðgreiðslu- og virðisaukaskattsskilum V & R Lagnakerfis ehf. vegna rekstraráranna 2006, 2007 og 2008 hafi hafist hinn 15. apríl 2008. Hafi henni lokið með skýrslu dags. 27. júní 2008.
V & R Lagnakerfi ehf. var stofnað 30. október 2005. Voru stofnendur annars vegar einkahlutafélagið Verktakar og ráðgjöf í eigu ákærða Snæbjörns Reynis og hins vegar einkahlutafélagið H.J. Pípulagnir ehf. í eigu ákærða Jónasar Helga. Var í stofnfundargerð tekið fram að ákærði Snæbjörn væri formaður stjórnar en ákærði Jónas Helgi meðstjórnandi. Þá væri Snæbjörn ráðinn framkvæmdastjóri með prókúru en Jónasi hefði einnig verið veitt prókúra. Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra kom fram að ákærðu sætu báðir í stjórn félagsins en handritað hefur verið fyrir ofan í nöfn þeirra í tilkynningunni að Snæbjörn væri meðstjórnandi en Jónas formaður.
Ákærði Snæbjörn Reynir er eins og fyrr greinir einn ákærður vegna tilgreindra brota í starfsemi V & R Lagnakerfis ehf. allt til 20. nóvember 2007. Ákæran beinist hins vegar að báðum ákærðu vegna þess hluta ákæruliðar 2 er lýtur að greiðslutímabilunum nóvember 2007 til febrúar 2008. Ákærði Snæbjörn Reynir neitar sök í málinu en kveður þó óumdeilt að hann sé sekur um þá háttsemi í ákæru sem lýtur að tímabilinu fram til nóvember 2007. Hann hafi verið framkvæmdastjóri V & R Lagnakerfis ehf. allt til 20. nóvember 2007, en þá hafi meðákærði Jónas Helgi tekið það að sér, sbr. fyrirliggjandi fundargerð sem þeir hafi báðir ritað undir þann dag. Ákærði Jónas Helgi kannast hins vegar ekki við að hafa í raun séð um framkvæmdastjórn félagsins á umræddu tímabili, þrátt fyrir að hafa ritað undir framangreinda fundargerð hinn 20. nóvember 2007. Þá hafi tilkynningin ekki borist fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra fyrr en 15. janúar 2008 og verði því að miða skráninguna við þann tíma.
Við aðalmeðferð málsins fyrir dómi kannaðist ákærði Snæbjörn Reynir við að hafa verið skráður framkvæmdastjóri V & R Lagnakerfis ehf. á tímabilinu 30.10. 2005 til 20.11. 2007. Sagðist hann hafa rekið félagið ásamt meðákærða Jónasi Helga. Þeir hefðu haldið með sér reglulega samráðsfundi varðandi rekstur félagsins. Sjálfur kvaðst ákærði, sem framkvæmdastjóri félagsins, hafa komið að fjármálastjórn þess á fyrrgreindu tímabili. Jónas Helgi hefði einnig komið að framkvæmdastjórninni á öllu þessu tímabili. Ákærði kvaðst hafa hætt sem framkvæmdastjóri frá og með þeim degi sem hann og meðákærði Jónas Helgi undirrituðu fundargerð þar um og hefði hann frá þeim degi ekkert komið að stjórnun félagsins. Hefði Jónas Helgi átt að sjá alfarið um framkvæmdastjórnina frá og með þeim degi. Reyndin hefði hins vegar orðið sú að Jónas hefði ekki sagst geta gengið frá þeim skýrslum og greiðslum sem skylt sé að ganga frá og hefði hann þá þurft sjálfur að hlaupa í skarðið og annast um þessi mál. Sagðist ákærði því í raun hafa séð um þessi mál samfellt, bæði fyrir og eftir 20. nóvember 2007, og þannig verið sá eini innan félagsins sem hefði verið í sambandi við endurskoðanda þess vegna uppgjörsmála. Aðspurður síðar af verjanda kvaðst ákærði þó eingöngu hafa hlaupið í skarðið með framangreind skýrsluskil og frágang mála eftir að rannsókn lögreglu hófst, í því skyni að upplýsa málið. Hann hefði ekkert komið að rekstri félagsins á þessu tímabili. Ástæður þeirra vanskila á skýrslum og greiðslu gjalda sem mál þetta snýst um kvað ákærði mega að hluta rekja til óreiðu í rekstri félagsins. Hins vegar hefði gert útslagið með vanskil greiðslnanna að félagið hefði boðið fimmtán milljónum króna of lágt í stórt verk við byggingu Grand hótels.
Kvaðst ákærði hafa samið við skattyfirvöld um að reyna að greiða útistandandi skuld félagsins. Hann hefði reynt eins og hann gat að standa skil á þeim greiðslum en undir lokin orðið að gefast upp vegna greiðsluþrots. Hefði hann verið einn í þeirri baráttu af hálfu félagsins.
Ákærði Snæbjörn var spurður út í tilkynningu félagsins til fyrirtækjaskrár við stofnun þess á árinu 2005. Sagði hann þá að gengið hefði verið þannig frá gögnum, í einhverju hugsanaleysi af hans hálfu, að hann væri bæði framkvæmdastjóri og formaður stjórnar félagsins. Þessu hefði síðan verið breytt í skráningunni af starfsmönnum fyrirtækjaskrár þannig að meðákærði Jónas Helgi væri stjórnarformaður, enda hefði það ekki gengið lögum samkvæmt að hann sæi um hvort tveggja. Þeir hefðu svo báðir verið skráðir með prókúru. Hefði það í raun verið í samræmi við þann veruleika að þeir hefðu báðir starfað sem framkvæmdastjórar með prókúru. Aðspurður kvaðst hann hafa skilað framangreindri tilkynningu inn til fyrirtækjaskrár en meðákærði hefði átt að sjá um það. Spurður um þá fullyrðingu meðákærða við rannsókn málsins að meðákærði hefði hætt hjá félaginu í apríl/maí 2007 og starfað eftir það fyrir annað fyrirtæki svaraði ákærði því til að hann hefði eftir þetta starfað fyrir félagið sem stjórnarformaður. Þá hefðu þeir hist reglulega eftir þetta en ekkert væri til skráð um það í fundargerðum félagsins.
Ákærði Jónas Helgi kvaðst ekkert hafa komið að stjórnun V & R Lagnakerfis eftir 30. nóvember 2007 þrátt fyrir að hafa ritað undir yfirlýsingu þar um í fundargerð. Hefði ekkert orðið úr með það og hefði það verið hugsunarleysi hans að tilkynna ekki um það til fyrirtækjaskrárinnar. Meðákærði Snæbjörn Reynir hefði séð um allan rekstur félagsins, bæði fyrir og eftir 30. nóvember 2007. Hann hefði því séð um öll skýrsluskil og greiðslu gjalda. Sjálfur kvaðst ákærði hafa starfað við pípulögn fyrir félagið og annast verkstjórn. Hann hefði svo hætt störfum í apríl/maí 2007 og starfað frá þeim tíma hjá J.B pípulögnum ehf. Sagði ákærði að jafnvel þótt hann hefði verið skráður með prókúru fyrir félagið ásamt Snæbirni hefði hann aldrei haft aðgang að fjármálum þess né haft prókúru vegna bankareikninga. Meðákærði Snæbjörn hefði haft fjármálastjórnina með höndum og einn haft aðgang að bankareikningum félagsins. Spurður hvort hann hefði verið formaður stjórnar félagsins frá stofnun þess til janúar/febrúar 2008, eins og fyrirliggjandi tilkynning um stofnun félagsins segði til um, sagði ákærði: „Ég hreinlega veit það ekki. Ég veit ekkert hvað ég hef verið að skrifa þarna undir.“ Hins vegar hlyti að vera að hann hefði verið í stjórn félagsins. Hann hefði hins vegar í raun ekkert komið að stjórn félagsins. Þeir Snæbjörn hefðu vissulega hist og rætt málefni félagsins en það hefðu verið verkfundir.
Ása Ingibergsdóttir, viðskiptafræðingur hjá Deloitte hf., sagðist hafa komið að færslu og frágangi bókhalds vegna V & R Lagnakerfis á seinni hluta ársins 2007 og fram í febrúar 2008. Hefði vinna hennar aðallega snúist um að aðstoða við skil að virðisaukaskattsskýrslum og skilagreinum staðgreiðslu. Ekki hefði hins vegar verið um að ræða afstemningu á bókhaldi. Kvaðst hún einungis hafa verið í sambandi við ákærða Snæbjörn Reyni vegna fjárhagsmála félagsins þó komið hefði fram hjá honum að það væri fyrir báða ákærðu.
Hvorugur ákærðu hafa gert athugasemdir við þau tímabil eða fjárhæðir sem tilgreindar eru í ákærunni.
III.
Ákærði Snæbjörn Reynir, var eins og fyrr segir, formlegur framkvæmdastjóri V & R Lagnakerfis ehf., auk þess að vera stjórnarmaður, allt til 20. nóvember 2007. Hefur hann og viðurkennt að hafa annast framkvæmdastjórn félagsins, og þar með fjármálastjórn, allt til þess dags, en þá hafi meðákærði Jónas Helgi tekið við sem framkvæmdastjóri. Liggi sú breyting fyrir með ritun þeirra beggja undir fundargerð félagsins. Hafi Jónas þá tekið einn sæti í stjórn þess og jafnframt sem framkvæmdastjóri með prókúru. Enda þótt ákærði Snæbjörn byggi málsvörn sína á því að hann hafi ekki komið að fjármálum félagsins eftir framangreint tímamark telur dómurinn sannað, með framburði ákærða sjálfs, vitnisins Ásu Ingibergsdóttur viðskiptafræðings og ákærða Jónasar Helga að ákærði Snæbjörn Reynir hafi, þrátt fyrir ofangreint, einnig séð einn um fjármál félagsins á þeim tíma. Þegar til þessa er litið, og einnig þess að hann var annar tveggja eigenda félagsins, verður hann talinn bera refsiábyrgð vegna þeirra brota sem ákært er fyrir og framin voru í starfsemi félagsins, bæði fyrir og eftir 20. nóvember 2007. Eru brot hans rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Ekki verður talið að sönnun sé komin fram um að ákærði Jónas Helgi hafi komið að ákvarðanatöku um fjárhagsleg málefni félagsins. Hins vegar tók hann að sér þær skyldur sem á framkvæmdastjóra einkahlutafélaga hvíla skv. 2. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög með staðfestingu sinni á fundargerð félagsins þar um hinn 20. nóvember 2007. Verður að telja að hann hafi vanrækt þá skyldu sína að sjá til þess að félagið stæði skil á skilagreinum staðgreiðslu og tilheyrandi afdreginni staðgreiðslu og með því sýnt af sér stórkostlegt hirðuleysi. Verður hann því sakfelldur ásamt ákærða Snæbirni Reyni vegna þeirra brota í ákærulið 2 er snúa að skilagreinum og afdreginni staðgreiðslu frá nóvember 2007 til febrúar 2008. Eru brot hans rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði hefur ákærði Snæbjörn Reynir ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Að virtum framangreindum brotum ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 7 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að 2 árum liðnum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940. Auk þess ber að dæma ákærða Snæbjörn til sektargreiðslu. Við ákvörðun hennar verður auk framangreinds til þess litið að verulega hefur verið greitt inn á vangoldinn virðisaukaskatt vegna tímabilanna nóvember/desember 2006 og janúar/febrúar 2007 og vangoldna staðgreiðslu vegna janúar og febrúar 2007. Þykir sekt ákærða því hæfilega ákveðin 21.000.000 krónur og komi 5 mánaða fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa.
Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði hefur ákærði Jónas Helgi ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað. Að því virtu, og þeim brotum sem hann hefur verið fundinn sekur um, verður honum gert að greiða 630.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 16 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Ákærði Snæbjörn Reynir greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Þorsteins Einarssonar hæstaréttarlögmanns, 260.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði Jónas Helgi greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 240.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Snæbjörn Reynir Rafnsson, sæti fangelsi í 7 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að 2 árum liðnum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Ákærði Snæbjörn greiði 21.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna en sæti ella fangelsi í 5 mánuði.
Ákærði, Jónas Helgi Ólafsson, greiði 630.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna en sæti ella fangelsi í 16 daga.
Ákærði Snæbjörn Reynir greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Þorsteins Einarssonar hæstaréttarlögmanns, 260.000 krónur.
Ákærði Jónas Helgi greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 240.000 krónur.
Ásgeir Magnússon