Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 6. maí 2009.
Mál nr. S-462/2009:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Agnari Davíð Stefánssyni
Árið
2009, miðvikudaginn 6. maí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í
Dómhúsinu við Lækjartorg af Ragnheiði Harðardóttur, settum héraðsdómara,
kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 462/2009: Ákæruvaldið gegn Agnari Davíð
Stefánssyni, sem tekið var til dóms í þinghaldi hinn 5. sama mánaðar.
Málið
er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 29. apríl
2009, á hendur ákærða, Agnari Davíð Stefánssyni, kennitala 000000-0000,
Höfðabakka 1, Reykjavík, fyrir eftirtalin hegningar-, umferðar- og
fíkniefnalagabrot:
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Líkamsárás. Nytjastuldur. Umferðarlagabrot. Ítrekun. Þjófnaður.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir hættulega líkamsárás og ýmis hegningar- og umferðarlagabrot. Sviptur ökurétti í 4 mánuði.
Árið 2009, miðvikudaginn 6. maí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Ragnheiði Harðardóttur, settum héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 462/2009: Ákæruvaldið gegn Agnari Davíð Stefánssyni, sem tekið var til dóms í þinghaldi hinn 5. sama mánaðar.
Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 29. apríl 2009, á hendur ákærða, Agnari Davíð Stefánssyni, kennitala 000000-0000, Höfðabakka 1, Reykjavík, fyrir eftirtalin hegningar-, umferðar- og fíkniefnalagabrot:
I. (007-2009-4573) Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa að morgni laugardagsins 24. janúar 2009 ekið bifreiðinni KG-Z12, óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (metýlfenídat í blóði 200 ng/ml) frá Skúlagötu 64 í Reykjavík að Stórhöfða, uns lögregla stöðvaði aksturinn við Gullinbrú.
Telst þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.
II. (007-2009-17717) Fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 27. febrúar 2009 í verslun EJS við Grensásveg 10 í Reykjavík, stolið fartölvu að verðmæti 284.900 kr. með því að klippa á þjófavörn fartölvunnar og fara með hana út úr versluninni, innan klæða, án þess að greiða fyrir hana.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III. (007-2009-14662) Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 8. mars 2009 í verslun Elkó við Lindir í Kópavogi, stolið fartölvu að verðmæti 114.995 kr. með því að taka fartölvuna og ganga með hana út úr versluninni án þess að greiða fyrir hana.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV. (007-2009-14287) Fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 9. mars 2009 í versluninni Tölvutek að Borgartúni 33 í Reykjavík, stolið rafhlöðu að verðmæti 29.900 kr. með því að taka rafhlöðuna og ganga með hana út úr versluninni án þess að greiða fyrir hana.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
V. (007-2009-16549) Fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 20. mars 2009 á Hótel Hilton við Suðurlandsbraut í Reykjavík, stolið gosdrykkjum og áfengi að verðmæti 5.050 kr. með því að fara inn á hótelherbergi og neyta drykkjanna og fara út af hótelinu án þess að greiða fyrir þá.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
VI. (007-2009-20698) Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 2. apríl 2009 í verslun Max í Kauptúni í Garðabæ, stolið fartölvu að verðmæti 137.989 kr. með því að taka fartölvuna og ganga með hana út úr versluninni án þess að greiða fyrir hana.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í máli þessu gerir Svanberg Halldórsson, kt. 000000-0000, öryggisfulltrúi Haga, þá kröfu f.h. Max raftækja að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 137.989, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
VII. (007-2009-20549) Fyrir nytjastuld og eignaspjöll, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 6. apríl 2009 tekið bifreiðina UL-935 í heimildarleysi, til eigin nota, frá bifreiðastæði við bílaleiguna Aka að Vagnhöfða 25 í Reykjavík og ekið henni aðfaranótt þriðjudagsins 7. apríl um götur höfuðborgarsvæðisins og með ásetningi inn í ýmsar verslanir á höfuðborgarsvæðinu með þeim afleiðingum að mikið tjón varð á bifreiðinni.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. og 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í máli þessu gerir Aka ehf. kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærði verið dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 545.000, sem nemur andvirði tjónsins á bifreiðinni, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
VIII. (007-2009-20550) Fyrir nytjastuld og þjófnað, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 7. apríl 2009 tekið bifreiðina MZ-U79 í heimildarleysi, til eigin nota, frá Mosgerði 18 í Reykjavík og með því að hafa stolið úr bílskúr á sama stað sólgleraugum, að verðmæti kr. 25.000, tveimur pör af hönskum að verðmæti kr. 5000, peningaveski með 5000 kr. reiðufé og Shoel mótorhjólahjálmi.
Telst þetta varða við 244. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í máli þessu gerir Björn Viggósson kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 60.776, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
IX. (007-2009-20532) Fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 7. apríl 2009, í auðgunarskyni, reynt að brjótast inn í verslunina Tölvuvirkni við Hlíðarsmára 13 í Kópavogi, með því að aka bifreiðinni UL-935 á útidyrahurð verslunarinnar, en horfið á braut, þar sem honum tókst ekki að brjóta niður hurðina.
Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
X. (007-2009-20541) Fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 7. apríl 2009, brotist inn í verslunina Fotoval, við Skipholt 50b í Reykjavík, með því að aka bifreiðinni UL- 935 á útidyrahurð verslunarinnar og stolið þaðan myndavél af gerðinni Olympus E- 520.
Telst þetta varða við 244. gr. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
XI. (007-2009-20544) Fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 7. apríl 2009, brotist inn í verslunina Att.is, við Bæjarlind 1-3 í Kópavogi, með því að aka bifreiðinni UL-935 á útidyrahurð verslunarinnar og stolið þaðan tölvu af gerðinni Toshiba og heyrnatólum af gerðinni Sennheiser.
Telst þetta varða við 244. gr. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.
Í þinghaldi 5. maí sl. var sakamálið nr. 510/2009 sameinað máli þessu, en í því máli er ákærða gefin að sök með ákæru Ríkissaksóknara, útgefinni 30. apríl 2009, sérstaklega hættuleg líkamsárás, með því að hafa, laugardaginn 24. janúar 2009, í íbúð að Skúlagötu 64, Reykjavík, slegið Goða Jóhann Gunnarsson, kennitala 000000-0000, í höfuðið með hamri, með þeim afleiðingum að hann hlaut 2,5 sm skurð aftan á hnakka.
Telst þetta varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Verjandi ákærða krefst þess að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa og að bótakröfum verði vísað frá dómi.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í maí 1979. Á hann að baki talsverðan sakaferil, allt aftur til ársins 1995. Það ár var ákærði dæmdur í 45 daga skilorðsbundið varðhald fyrir nytjastuld og réttindaleysisakstur. Árið 1996 og 1998 hlaut ákærði skilorðsbundna fangelsisdóma fyrir þjófnaðarbrot. Árið 2003 var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir þjófnaðarbrot og árið 2007 í 8 mánaða fangelsi fyrir skjalafals, þjófnað, nytjastuld og fjársvik.
Í máli þessu er ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, 9 þjófnaðarbrot, nytjastuld í tvö skipti, eignaspjöll og umferðarlagabrot. Verður refsing ákærða ákveðin eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Þá hafa eldri dómar fyrir auðgunarbrot ítrekunaráhrif í málinu, sbr. 71. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga. Telst refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Óslitið gæsluvarðhald ákærða frá 8. apríl 2009 til dagsins í dag komi til frádráttar refsingu.
Ákærði er sviptur ökurétti í 4 mánuði frá dómsbirtingu að telja.
Skaðabótakröfur sem greinir í ákæru og hafðar eru uppi af hálfu Max Raftækja ehf., kennitala 000000-0000, Aka ehf., kennitala 000000-0000, og Björns Viggóssonar, kennitala 000000-0000, fullnægja ekki skilyrðum 2. mgr. 173. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Verður kröfunum vísað frá dómi.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og við meðferð málsins fyrir dómi, 180.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði greiði 112.276 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvalds flutti málið Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Agnar Davíð Stefánsson, sæti fangelsi í 15 mánuði. Gæsluvarðhald ákærða frá 8. apríl 2009 komi til frádráttar refsingu.
Ákærði er sviptur ökurétti í 4 mánuði frá dómsbirtingu að telja.
Skaðabótakröfum Max Raftækja ehf., kennitala 000000-0000, Aka ehf., kennitala 000000-0000, og Björns Viggóssonar, kennitala 000000-0000, er vísað frá dómi.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 180.000 krónur, og 112.276 krónur í annan sakarkostnað.
Ragnheiður Harðardóttir