Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. mars 2009.
Mál nr. S-268/2009:
S-268/2009:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
Ólafi Pétri Péturssyni
Ár
2009, fimmtudaginn 19. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í
Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur
var til dóms í sama þinghaldi.
Málið
var höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 10. mars
sl. á hendur ákærða, Ólafi Pétri Péturssyni, kt. 000000-0000, Geitlandi 8,
Reykjavík, og Jenný Gísladóttur, kt. 000000-0000. Málið hefur verið skilið í sundur vegna
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Skilorðsrof. Þjófnaður.
Útdráttur
Ákærði dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistunar fyrir þjófnaði.
Ár 2009, fimmtudaginn 19. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 268/2009: Ákæruvaldið (Guðjón Magnússon) gegn Ólafi Pétri Péturssyni (Hilmar Ingimundarson hrl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.
Málið var höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 10. mars sl. á hendur ákærða, Ólafi Pétri Péturssyni, kt. 000000-0000, Geitlandi 8, Reykjavík, og Jenný Gísladóttur, kt. 000000-0000. Málið hefur verið skilið í sundur vegna útivistar Jennýjar og er því dæmt um hlut ákærða Ólafs Péturs eins. Málið er höfðað “fyrir eftirgreinda þjófnaði í Reykjavík nema annars sé getið:
I. Ákærðu báðum fyrir að hafa í félagi brotist inn í hesthús í nóvember 2007 og stolið þar munum.
Hesthús nr. 12. B-tröð í Víðidal og stolið hnakk og tveimur beislum að verðmæti um 210.000 kr.
Hesthús við Hólmsheiði 1A og stolið dýnu, hnakk, tveimur stallmúlum, krossmúl, tveimur nasamúlum, fjórum beislum, písk og tveimur teymigjörðum alls að verðmæti um 220.000 kr.
II. Ákærða Ólafi Pétri fyrir þjófnaði með því að hafa:
Föstudaginn 19. júlí 2008 stolið tveimur gaskútum við hústjald í Arahólum.
Fimmtudaginn 7. ágúst 2008 stolið vöru að verðmæti 23.506 kr. í versluninni Europris, Fiskislóð 3.
Fimmtudaginn 27. nóvember 2008 stolið vöru að verðmæti 40.877 kr. í versluninni Krónunni, Fiskislóð 15 -21.
Þriðjudaginn 9. desember 2008 stolið vöru að verðmæti 81.442 í verslun Hagkaupa við Holtaveg.
Mánudaginn 13. október 2008 stolið tveimur ilmvatnsglösum að verðmæti 13.298 kr. í verslun Hagkaupa í Smáralind, Kópavogi.
Miðvikudaginn 28. janúar 2009 stolið lambalæri að verðmæti 3.899 kr. í versluninni Krónunni, Fiskislóð 15-21.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.
III. Ákærðu Jennýju fyrir þjófnað með því að hafa laugardaginn 13. september 2008 stolið gervinöglum að verðmæti 1.143 kr. í lyfjaversluninni Lyfju, Lágmúla 5.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.”
Málavextir
Ákærði hefur skýlaust játað þau brot sem hann er saksóttur fyrir. Hefur hann orðið sekur um verknaði þá sem lýst er í ákærunni og réttilega eru þar færðir til refsiákvæðis.
Ákærði á að baki talsverðan sakaferil allt frá því að hann hlaut ákærufrestun árið 1999. Hefur hann hlotið átta dóma fyrir margvísleg brot og þar af hefur hann verið dæmdur sjö sinnum fyrir auðgunarbrot. Samkvæmt dómi 25. maí 2007 hlaut hann 21 mánaðar fangelsi skilorðsbundið í 5 ár. Var um að ræða uppsafnaða refsingu samkvæmt sex fyrri skilorðsdómum. Ákærði hefur rofið skilorð dóms þessa og ber að dæma hann upp og gera ákærða refsingu í einu lagi. Þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ½ ár.
Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Hilmari Ingimundarsyni hrl. 50.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Ólafur Pétur Ólafsson sæti fangelsi í tvö og hálft ár.
Ákærði greiði verjanda sínum, Hilmari Ingimundarsyni hrl. 50.000 krónur í málsvarnarlaun.
Pétur Guðgeirsson.