Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 2. apríl 2009.
Mál nr. S-213/2009:
Ákæruvaldið
(Kolbrún Benediktsdóttir fulltrúi)
gegn
Gytis
Kepalas
Lykilorð
Rán.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir rán og líkamsárás með því að hafa í félagi við annan mann ráðist á eldri mann, rænt hann fjármunum og veitt honum líkamsáverka. Ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var 19. mars sl., er höfðað með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 20. febrúar 2009 á hendur Gytis Kepalas, kt. [...], Frakkastíg 8, Reykjavík, fyrir líkamsárás og rán, með því að hafa að morgni sunnudagsins 5. október 2008, í húsasundi til móts við Laugaveg 49 í Reykjavík, í félagi við óþekktan mann, veist að Þorsteini Smára Þorsteinssyni, slegið hann nokkrum sinnum í andlitið þannig að hann féll í jörðina og tekið af honum seðlaveski, sem í voru 100.000 krónur, og farsíma. Af árásinni hlaut Þorsteinn Smári brot í augntóftargólfi, tvo skurði á vinstri kinn, mar á augnvefi og yfirborðsáverka á brjóstkassa.
Brot ákærða er talið varða við 1. mgr. 218. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakar kostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Af hálfu Þorsteins Smára Þorsteinssonar, kt. [...], er þess krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu miskabóta og fjártóns að fjárhæð 2.100.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 5. október 2008 að liðnum mánuði frá þeim degi er bótakrafa er birt ákærða en með dráttar vöxtum frá þeim degi til greiðsludags samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001.
Verjandi ákærða krefst þess að ákærði verði sýknaður af kröfum ákæruvalds, að skaðabótakröfu verði vísað frá dómi og að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.
Klukkan 03.29 að morgni sunnudagsins 5. október 2008 var óskað eftir aðstoð lögreglu við að huga að manni sem talið var að ráðist hafi verið á í húsasundi á móts við hús nr. 49 við Laugaveg í Reykjavík. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að er lögreglumenn hafi komið á vettvang hafi verið rætt við Þórð Jónsson Thors, sem tilkynnt hafi lögreglu um atburðinn. Hafi Þórður vísað lögreglu á mann sem legið hafi við hús alblóðugur í andliti og með skerta meðvitund. Hinn slasaði reyndist vera Þorsteinn Smári Þorsteinsson. Fram kemur að Þorsteinn hafi legið á vinstri hlið. Hafi Þorsteinn tjáð lögreglumönnum að hann hafi verið laminn og að 100.000 krónur sem hann hafi verið með á sér í peningum hafi verið teknar. Í viðræðum við Þórð Jónsson hafi komið fram að Þórður hafi talið sig sjá tvo menn af erlendum uppruna leiða mann í umrætt húsasund. Hafi Þórði fundist það skrýtið og því farið á eftir mönnunum til að kanna málið betur. Er hann hafi komið að sundinu hafi mennirnir tveir komið hlaupandi á móti Þórði og hlaupið fram hjá honum. Eftir hafi legið Þorsteinn Smári í blóði sínu. Þórður hafi gefið þá lýsingu á mönnunum að þeir hafi verið tveir og á aldrinum 25 til 30 ára. Annar þeirra hafi verið með ljósbláa prjónahúfu á höfði, í ljósum leðurjakka með hvítum röndum þvert yfir brjóstkassa. Hinn aðilinn hafi verið með dökka húfu, í dökkum jakka og hugsanlega í ljósum gallabuxum. Fram kemur í skýrslunni að Þorsteinn hafi verið fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítala háskólasjúkrahúss. Hafi hann verið með mikla áverka á andliti, mikið bólginn við vinstra auga og með áverka á kvið.
Guðmundur Haukur Gunnarsson rannsóknarlögreglumaður hefur 5. október 2008 ritað lögregluskýrslu um atvikið eftir að hafa rætt við Þorstein Smára á slysadeild í framhaldi af flutningi þangað. Samkvæmt skýrslunni hafi Þorsteinn tjáð lögreglumönnum að hann hafi verið á Mónakó þessa nótt. Hefði hann unnið 100.000 krónur í spilakassa. Fjárhæðina hafi hann unnið í spilakassa á 2. hæð en þegar um slíka fjárhæð væri að ræða fengi hann kvittun úr spilakassanum sem hann þyrfti að fara með á barinn þar sem upphæðin væri greidd út. Hafi Þorsteinn tekið við peningunum og sett þá í brúnt seðlaveski sitt. Eftir það hafi hann farið niður á neðri hæð staðarins og dvalið þar í einhvern tíma með fólki sem þar hafi verið. Í framhaldi af því hafi hann ákveðið að tími væri kominn til að halda niður í gistiskýli. Ekki hafi hann verið búinn að ganga lengi niður Laugaveginn þegar hann hafi skyndilega verið rifinn inn í húsasund þar sem hann hafi verið laminn illa og rændur. Ekki hafi Þorsteinn getað gert sér grein fyrir árásaraðilum þar sem hann hafi ekki tekið eftir þeim heldur hafi hann einungis fundið fyrir barsmíðunum. Hafi árásarmennirnir náð af honum farsíma og veskinu með peningum í. Eftir að hafa fengið umræddar upplýsingar frá Þorsteini hafi Guðmundur Haukur rætt við eiganda Monakó og óskað eftir að kannað yrði með eftirlitsmyndavélar í húsnæðinu. Um kl. 19.00 á sunnudeginum hafi eigandi staðarins haft samband og sagt að hann hefði undir höndum myndskeið er sýndi tvo aðila er svipaði til lýsingar lögreglu á árásarmönnunum. Þá hafi eigandinn rætt við starfsfólk á staðnum sem hafi munað eftir því að Þorsteinn hafi þessa nótt unnið um 100.000 krónur í peningakössum. Við skoðun á umræddum myndskeiðum megi sjá tvo aðila sem svipi til lýsingar vitnis á árásarmönnunum vera inni á Mónakó skömmu fyrir ránið. Sjá megi af myndupptöku að þeir fylgist með manni sem sé að spila á einn kassa. Megi sjá Þorstein standa á fætur og sé hann að öllum líkindum að yfirgefa staðinn. Þá megi sjá annan mannanna yfirgefa staðinn á sama tíma en áður en hann fari út virðist hann ræði við hinn manninn. Sá hafi orðið eftir inni og hafi hann farið að þeim manni sem hafi verið nýbúinn að vinna 100.000 krónur eins og Þorsteinn.
Svo til strax hafi manninum verið vísað út af staðnum og hafi ránið verið framið skömmu síðar.
Þórður Geir Þorsteinsson rannsóknarlögreglumaður hefur ritað lögregluskýrslu 6. október 2008 í tengslum við rannsókn málsins. Í skýrslunni er rakið að Þórður Geir hafi farið á slysadeild í framhaldi af flutningi Þorsteins á deildina. Er Þórður hafi komið þangað hafi Þorsteinn verið í aðgerð og því ekki unnt að ræða við hann. Næsta dag hafi Þórður farið á deildina og rætt við Þorstein. Hafi Þorsteinn lýst því að hann hafi verið inni á Mónakó við Laugaveg. Þar hafi hann drukkið áfengi og verið að spila í spilakössum. Hafi hann unnið um 100.000 krónur í spilakössum og skömmu eftir það yfirgefið staðinn. Hafi hann gengið niður Laugaveg. Eftir um 10 mínútna gang hafi honum verið ýtt inn í húsasund af tveim mönnum. Þar hafi hann verið sleginn bylmingshöggi í andlitið. Gæti Þorsteinn lítið meira sagt um málið nema honum fyndist eins og þessir menn hefðu verið útlendingar. Ekki hafi hann séð mennina og gæti því enga lýsingu gefið á þeim. Mennirnir hafi tekið seðlaveski Þorsteins með um 100.000 krónum í. Þá hafi þeir sennilega tekið af honum farsíma með farsímanúmerið 824 3526. Í skýrslu lögreglumannsins kemur fram að sömu nótt hafi verið tilkynnt um annað rán þar sem ungri konu hafi verið hrint á Lindargötu og handtaska sem hún hafi haldið á verið hrifsuð frá henni. Það atvik hafi verið um einni og hálfri klukkustundu eftir árásina á Þorstein. Tveir menn hafi verið á ferð og lýsingu á þeim svipað til þeirra er væru grunaðir um að hafa ráðist á Þorstein.
Samkvæmt skýrslu lögreglu frá mánudeginum 13. október 2008 kl. 12.40 mætti Gytis Kepalas, ákærði í máli þessu, á lögreglustöð á þeim tíma. Kemur fram að vinnufélagi ákærða hafi óskað eftir því að ákærði gæfi sig fram í þágu rannsóknar málsins. Samkvæmt skýrslu lögreglu frá þriðjudeginum 14. október 2008 fór ákærði í fylgd lögreglu á dvalarstað sinn að Hverfisgötu 55 í Reykjavík, en fyrir lá úrskurður héraðsdóms um húsleit á staðnum. Fram kemur að nokkrir einstaklingar frá Litháen búi á staðnum. Hafi ákærði upplýst að hann gæti ekki vísað lögreglu á þann fatnað sem hann hafi verið klæddur í aðfaranótt sunnudagsins 5. október, en hann hafi áður verið búinn að bera kennsl á sig af myndskeiði úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó. Hafi hann lýst því að hann hafi fengið jakka sem hann hafi verið í og skó að láni frá vini sínum að nafni Tomas og væri hann búinn að skila honum fatnaðinum. Húfunni hafi ákærði sennilega týnt í vinnu hjá sér. Hafi ákærði framvísað nýþvegnum gallabuxum úr ferðatösku og sagt að hann hafi verið í þeim umrætt kvöld. Ekkert frekar hafi fundist við húsleitina sem hafi getað tengst þeim atburðum sem verið hafi til rannsóknar.
Þriðjudaginn 14. október 2008 var ákærði úrskurðaður í gæsluvarðhald allt til föstudagsins 17. október 2008 vegna rannsóknar málsins.
Ása E. Einarsdóttir sérfræðilæknir hefur 7. október 2008 ritað læknisvottorð vegna komu Þorsteins Smára Þorsteinssonar á slysadeild Landspítala háskólasjúkra húss kl. 03.40 að morgni sunnudagsins 5. október 2008. Í vottorðinu kemur m.a. fram að Þorsteinn hafi við komu fengið vökva í æð og fengið verkjalyf. Fyrirhuguð hafi verið aðgerð vegna andlitsbrots. Hann hafi verið með 2 djúpa skurði á vinstri kinn. Saumuð hafi verið 4 spor í annan skurðinn og 5 spor í hinn. Lítið brot muni vera í augntóttargólfi vinstra megin. Áverkar samsvari alvarlegri líkamsárás sem geti haft í för með sér varanlegan skaða.
Mánudaginn 6. október 2008 mætti Þórður Jónsson Thors í svokallaða myndflettingu á lögreglustöð. Í niðurstöðu er fært að Þórði finnist mynd af til greindum manni vera líkur þeim sem hafi verið sá minni í árásinni en Þórður væri þó ekki viss. Ekki gat Þórður bent á mynd af ákærða í myndsakbendingunni. Þórður mætti aftur á lögreglustöð föstudaginn 17. nóvember 2008 og þá í myndsakbendingu. Er fært í niðurstöðu að Þórður treysti sér ekki til að rita nafn sitt undir mynd þar sem hann sé ekki viss um hvort um árásarmanninn sé að ræða.
Þorsteinn Smári Þorsteinsson lagði fram kæru vegna málsins hjá lögreglu 18. febrúar 2009.
Ákærði var yfirheyrður af lögreglu vegna málsins mánudaginn 13. október 2008. Kvaðst hann hafa verið með vini sínum sem heiti Tomas inni á Mónakó aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008. Hafi þeir fengið sér bjór að drekka og verið að spila. Eftir að staðnum hafi lokað hafi ákærði farið heim en vinur hans hafi orðið eftir. Ekki vissi ákærði eftirnafn Tomas. Hafi nefndur Tomas unnið með ákærða, en ákærði væri ekki viss um hvort Tomas væri enn í vinnu. Ekki vissi ákærði hvar Tomas héldi sig og ekki vissi ákærði hvar hann ætti heima. Vissi ákærði að Tomas hafi áður búið þar sem Vegas væri á Frakkastíg. Tomas hafi ákærði hitt fyrir tilviljun umrætt kvöld inni á Mónakó. Ekki hefði ákærði heyrt í Tomas eftir að ákærði hafi yfirgefið staðinn. Er ákærða var sýnt myndskeið úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó á Laugavegi frá aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008 kvaðst ákærði þekkja sig sem þann aðila sem væri með svarta húfu á höfði og væri Tomas sá með hvítu húfuna. Ákærði kvað það geta staðist að nefndur Tomas væri farinn af landi brott.
Ákærði var aftur yfirheyrður af lögreglu 17. október 2008. Kvaðst ákærði ítreka það að hann hafi komið einn inn á Mónakó en áður hafi hann verið heima hjá sér á Hverfisgötu með vini sínum Algimantas Pikelis. Á staðnum hafi hann hitt Tomas. Hann hafi verið á staðnum fram að lokun en þá hafi hann kvatt Tomas og farið beint heim. Ákærði kvaðst telja að hann hafi ekkert hitt Tomas eftir þetta kvöld. Ákærði kvaðst einungis hafa átt sjálfur þær buxur er hann hafi verið í umrætt kvöld en Tomas hafi átt annan fatnað. Tomas hafi átt húfuna, jakkann og skóna. Fötin hafi ákærði fengið lánuð hjá Tomas skömmu áður en þeir hafi farið á Mónakó, en Tomas hafi komið með fötin heim til ákærða. Ákærði kvaðst ekki vita hvar fötin væru lengur. Er hann hafi komið heim hafi hann klætt sig úr fötunum. Næsta dag hafi hann skroppið út í búð en þau verið horfin er hann hafi komið til baka. Tomas hafi örugglega tekið fötin. Ákærði kvaðst ekki vita hvar Tomas ætti heima en síðast þegar hann vissi hafi Tomas átt heima á Vegas á Frakkastíg. Ákærði kvað fjóra einstaklinga búa að Hverfisgötu 55 í Reykjavík. Er borið var undir hann að Algimantas hafi lýst því að Tomas Dovydaitis byggi einnig á Hverfisgötunni þá kvaðst ákærði ekki hafa vitað að svo væri. Ef það væri tilfellið byggju fimm einstaklingar þar. Ákærði kvaðst neita því að hafa ráðist á gamlan mann aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008 í húsasundi til móts við hús nr. 49 við Laugaveg.
Við aðalmeðferð málsins kvaðst ákærði umrætt kvöld hafa farið að spila á spilakassa á Mónakó. Þar hafi ákærði verið ásamt Algimantas og kærustu hans og Tomas. Algimantas hafi farið fyrstur út af staðnum og heim. Ákærði hafi farið næstur en það hafi verið þegar verið var að loka staðnum. Tomas hafi verið eftir og haldið áfram að skemmta sér og ákærði því kvatt hann inni á staðnum. Af staðnum hafi ákærði farið beint heim til sín að Hverfisgötu 55 í Reykjavík. Hafi hann gengið niður Laugaveginn og síðan niður á Hverfisgötu fram hjá Vegas. Er ákærði hafi komið heim hafi Algimantas verið háttaður. Ekki vissi ákærði hvort Algimantas hafi orðið var við er ákærði kom heim. Ákærði kvaðst ekki sérstaklega hafa tekið eftir eldri manni inni á Mónakó umrætt kvöld sem hafi unnið peninga í spilakössum. Fjöldi fólks hafi verið inni á staðnum. Ákærði kvaðst ekki hafa ráðist á eldri mann síðar þessa nótt í húsasundi við Laugaveg. Ákærði kvaðst vera kunningi Tomas. Tomas hafi átt heima á Spáni og þeir þekkst þar. Eftir að Tomas hafi komið til landsins hafi þeir rifjað upp kynni sín. Ákærði og Tomas hafi unnið hjá sama fyrirtæki frá sumri 2008, en ákærði væri búinn að vera búsettur á Íslandi í eitt ár. Aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008 hafi ákærði verið í fötum sem Tomas hafi lánað honum. Ákærði hafi ekki átt hlý föt og því fengið föt lánuð hjá Tomas. Tomas hafi átt húfuna, úlpuna, skóna og buxurnar. Ákærði hafi verið ölvaður er hann hafi farið að hátta og reiknað með að Tomas hafi tekið fötin því hann viti ekki hvað hafi orðið um þau. Tomas hafi eftir komu til landsins búið í húsnæði þar sem Las Vegas hafi verið til húsa við Laugaveg en er atburðir hafi gerst hafi Tomas verið fluttur inn á Hverfisgötu 55. Þeir hafi því búið saman á þessum tíma. Ákærði kvaðst fyrst hafa frétt af málinu er hann hafi verið boðaður í skýrslutöku hjá lögreglu. Þá hafi hann verið í starfi en nú hafi honum verið sagt upp. Stefni hann á að fara af landi brott er máli þessu lýkur en enga vinnu sé lengur að hafa hér. Málið hafi haft mikil áhrif á ákærða en m.a. hafi verið birtar myndir af honum í fjölmiðlum í tengslum við rannsókn málsins. Ákærði kvaðst staðfesta að hafa hjá lögreglu borið kennsl á sig á myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó. Kvaðst hann vera 181 cm á hæð.
Þorsteinn Smári Þorsteinsson kvaðst hafa farið á spilastaðinn Háspennu aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008. Á staðnum hafi hann verið að vinna ,,smá potta“. Eftir það hafi hann farið á Mónakó. Þar hafi hann haldið áfram að spila og verið ,,í stuði“. Hafi hann drukkið bjór á staðnum og geti bjórarnir hafa verið fleiri en tveir því mikið fjör hafi verið. Hafi hann verið búinn að græða 100.000 krónur í spilakössum, en fjárhæðina hafi hann unnið í nokkrum litlum spilum. Hann hafi látið starfsstúlkur á bar staðarins geyma fyrir sig peningaveski. Síðan hafi hann fengið úr spilakössunum miða og út á þá fengið peningaseðla sem farið hafi í veskið. Er hann hafi hætt að spila hafi hann tekið veskið til sín. Hann hafi gefið einhverjum dreng í glas og drengurinn sagt að ákærði væri búinn að græða 100.000 krónur. Peningana hafi ákærði ekki talið sjálfur. Ákærði hafi síðan farið út af staðnum nærri lokun. Hafi hann gengið áleiðis niður Laugaveg. Eftir um 10 til 15 mínútna gang hafi einhverjir komið aftan að honum og myndi Þorsteinn eftir því að hann hafi fengið högg. Eftir það myndi hann ekki meira en hann hafi misst meðvitund við barsmíðar. Myndi hann næst eftir sér á sjúkrahúsi. Hafi hann m.a. fengið brot í andlit og ætti hann erfitt með sjón á öðru auga eftir þetta. Hefðu læknar tjáð honum að hann hefði tapað varanlega 20% sjón á auganu. Af Þorsteini hafi verið tekið vegabréf, veskið með peningunum í og farsími. Þorsteinn kvaðst aldrei hafa séð þá menn sem komið hafi aftan að honum og gæti hann því ekki borið kennsl á þá. Hann myndi eftir því að hafa sagt við lögreglu að mennirnir útlendingar eða Pólverjar. Hann gæti í dag ekki fullyrt hvort svo hafi verið.
Þórður Jónsson Thors kvaðst umrædda nótt hafa ekið niður Laugaveg. Hafi hann séð tvo menn styðja eldri mann. Hafi honum fundist eitthvað óeðlilegt við að stæðurnar en hann hafi séð mennina bera manninn inn í sund. Hafi Þórður lagt bifreið sem hann hafi ekið og farið að sundinu. Í því er hann hafi komið að sundinu hafi tveir menn komið hlaupandi á móti Þórði út úr sundinu. Gamli maðurinn hafi legið í blóði sínu í sundinu. Þórður hafi ekki sjálfur séð hvernig manninum hafi verið veittir áverkarnir. Hafi Þórður tekið eftir því að allt hafi verið í lagi með gamla manninn er mennirnir hafi farið með hann inn í sundið en hann hafi séð á andlit hans þá. Þórður kvaðst hafa hringt á lögreglu og gefið lögreglu lýsingu á mönnunum. Hafi það verið fært niður í lögregluskýrslu. Kvaðst Þórður um þá lýsingu vilja vísa til lögregluskýrslna í málinu. Þórður gaf skýrslu hjá lögreglu mánudaginn 6. október 2008 kl. 10.02. Lýsti hann árásarmönnunum þá á þann veg að annar hafi verið talsvert hærri en hinn og sennilega 185 til 190 cm á hæð. Hafi hann verið með ljósbláa húfu, klæddur í snjóþvegnar gallabuxur, í dökkan leðurjakka með hvíta rönd yfir brjóstkassa og bak. Hinn hafi verið talsvert lægri í vextinum og sennilega um 175 til 180 cm á hæð. Hafi hann verið í dökkum fötum og með dökka húfu. Báðir hafi verið stuttklipptir því ekkert hár hafi sést undan húfunum. Þeir hafi verið á aldrinum 25 til 30 ára og væri Þórður handviss um að mennirnir væru frá Austur-Evrópu því klæðnaður þeirra og andlitsfall hafi verið með þeim hætti. Í lögregluskýrslu kemur fram að með Þórði þetta kvöld hafi Bjarni Rafn Ragnarsson, en Bjarni hafi verið með honum í bifreiðinni. Þórður kvað það rangt sem fram kæmi í frumskýrslu lögreglu í málinu varðandi jakka þess manns sem hafi verið með ljósbláa húfu á höfði. Í frumskýrslu væri fært að sá hafi verið í ljósum leðurjakka. Það væri ekki rétt og hafi Þórður reynt að koma þeim skilaboðum til lögreglumannsins að jakkinn hafi verið dökkur. Sá lögreglumaður sem tekið hafi niður lýsinguna hafi hins vegar verið nokkuð ör og ekki gripið þetta. Þórður kvaðst ekki hafa heyrt árásarmennina segja neitt. Af yfirbragði þeirra að dæma hafi honum hins vegar fundist þeir væru af erlendu bergi brotnir. Mennirnir hafi hlaupið fram hjá Þórði og áfram niður Laugaveg að Vegas þar sem þeir hafi hlaupið í átt að Hverfisgötu. Í viðræðum við gamla manninn, sem hafi verið mjög illa farinn, hafi maðurinn sagt að hann hafi verið rændur og hafi hann sennilega sagt að mennirnir hafi verið Pólverjar. Þórður kvað enga aðra hafa komið til greina en mennina sem valdið hafi áverkum mannsins þar sem engir aðrir hafi verið í sundinu er hann hafi komið að og hafi einungis verið unnt að komast út úr sundinu út á Laugaveg.
Bjarni Rafn Ragnarsson var boðaður fyrir dóm við aðalmeðferð málsins. Mætti hann ekki til þinghaldsins. Samkvæmt rannsóknargögnum málsins hafði lögreglumaður samband við Bjarna símleiðis mánudaginn 6. október 2008 kl. 14.19. Lýsti Bjarni því þá að hann hafi verið með Þórði í bifreið og hafi bifreiðinni verið ekið niður Laugaveg í Reykjavík. Hafi þeir séð tvo menn halda um handleggina á eldri manni og teyma hann inn í húsasund. Bjarna og Þórð hafi grunað að ekki væri allt með felldu og hinkrað við. Þórður hafi farið út úr bifreiðinni til að kanna hvað væri í gangi en mennirnir þá komið rösklega út úr húsasundinu og síðan hlaupið niður Laugaveg. Þórður hafi þá hringt í lögregluna. Bjarni kvaðst hafa veitt því athygli að annar mannanna hafi verið í dökkum gallabuxum og með bláleita húfu á höfði.
Algimantas Pikelis kvaðst þekkja ákærða, en þeir félagar hafi verið á sama tíma í grunnskóla í Litháen. Þeir hafi ekki verið samferða til Íslands, en verið í samskiptum hér á landi. Þeir hafi unnið saman og hafi Algimantas útvegað ákærða húsnæði. Í október 2008 hafi þeir búið saman að Hverfisgötu 55 í Reykjavík. Algimantas kvaðst hafa lýst atburðum í kringum sunnudaginn 5. október 2008 er lögregla hafi tekið af honum skýrslu. Vildi hann vísa til þess er þar hafi verið skráð niður eftir honum um atvik. Á meðal rannsóknargagna málsins er lögregluskýrsla er tekin var af Algimantas 15. október 2008. Lýsti Algimantas því að myndir hafi verið birtar í fjölmiðlum af mönnun er grunaðir hafi verið um að hafa ráðist á gamlan mann á Laugavegi og rænt hann. Kvaðst Algimantas hafa þekkt ákærða sem einn þeirra manna sem myndir hafi verið birtar af. Kvaðst Algimantas vita að hinn maðurinn héti Tomas, en hann hafi komið til landsins frá Spáni sumarið 2008. Er atvik átt sér stað hafi Tomas nýlega verið fluttur inn á Hverfisgötu 55. Kvaðst Algimantas hafa ekið Tomas út á flugvöll miðvikudaginn 8. október 2008 en hann hafi flogið til Lettlands í gegnum Osló í Noregi. Er Algimantas voru sýndar myndir úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó frá aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008 kvaðst hann kannast við ákærða og Tomas á myndunum. Ákærði hafi verið með dökka húfu en Tomas með ljósa. Hafi Algimantas kvatt ákærða til að gefa sig fram við lögreglu eftir að Tomas hafi verið farinn af landi brott. Ákærði hafi hins vegar ekki haft neinn áhuga á því. Tomas hafi fengið greidd laun á mánudeginum 6. október eða þriðjudeginum 7. október 2008 og hafi hann þá strax keypt flugmiða í gegnum internetið. Hafi hann sagt að hann þyrfti að yfirgefa landið. Kvaðst Algimantas hafa verið með ákærða og Tomas inni á Mónakó þessa nótt. Hafi Algimantas og kona hans yfirgefið staðinn um kl. 02.30 en ákærði og Tomas orðið eftir. Hafi þau farið heim að sofa og ekkert hitt ákærða og Tomas meira um nóttina. Hafi Algimantas sofið lengi fram eftir á sunnudeginum. Ekki hafi hann tekið eftir neinu óeðlilegu í fari tvímenninganna næsta dag. Kvaðst Algimantas oft áður hafa séð ákærða í þeim fötum er hann hafi klæðst aðfaranótt 5. október og teldi hann þetta vera hans föt.
Ragnheiður Gordon kvaðst hafa unnið sem starfsmaður á Mónakó aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008. Hafi Þorsteinn Smári Þorsteinsson verið gestur staðarins þessa nótt. Hafi hann unnið eitthvað af vinningum. Vinningana hafi hann fengið greidda út á bar staðarins. Kvaðst Ragnheiður muna eftir að hafa greitt honum einu sinni 34.000 krónur og áður einu sinni fjárhæð yfir 30.000 krónur. Þorsteinn hafi tekið við þessum fjármunum og sett í veski sitt. Hafi Ragnheiður geymt veskið í afgreiðslunni á meðan Þorsteinn hafi spilað. Hafi hann síðan fengið veskið afhent áður en hann hafi farið út af staðnum. Staðnum hafi verið lokað milli kl. 3.00 og 3.30 um nóttina. Þorsteinn hafi spilað í nágrenni við Ragnheiði og hún því séð hann vinna vinninga. Margir hafi verið á staðnum að fylgjast með þeim sem hafi spilað. Myndi hún eftir að tveir menn hafi verið á staðnum að fylgjast með og hafi hún borið kennsl á þá á mynd úr eftirlitsmyndavél af staðnum. Hafi mennirnir verið rólegir og myndi hún eftir að þeir hafi verið að fylgjast með þeim sem hafi verið að spila og sérstaklega tveim spilurum. Algengt sé að fylgst sé með spilurum með þessum hætti en það sem hafi verið óvenjulegt hafi verið að þessir tveir menn hafi sjálfir ekki spilað neitt. Þá hafi þeir verið nýir á staðnum og hún ekki séð þá áður. Myndi Ragnheiður sérstaklega eftir vinningsmiða frá Þorsteini ríflega að fjárhæð 30.000 krónur en Þorsteinn hafi misst miðann í gólfið og hafi þurft að leita að honum.
Ása Einarsdóttir læknir staðfesti læknisvottorð er hún gaf út 7. október 2008 vegna Þorsteins Smára og gerði grein fyrir innihaldi þess. Ása kvað Þorstein hafa verið með marga áverka og hafi það því verið útilokað að þeir hafi getað komið vegna falls. Þá hafi verið til staðar vökvi í brjóstholi sem komið hafi heim og saman við að Þorsteinn hafi orðið fyrir höggum sem hafi verið fleiri en eitt. Brot í augntóftargólfi geti komið vegna hnefahöggs eða eftir barefli eða alvarlegt fall á hlut.
Niðurstaða:
Aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008 var lögregla kölluð að húsasundi á móts við hús nr. 49 við Laugaveg í Reykjavík vegna árásar á gamlan mann. Tilkynnandi var Þórður Jónsson Thors, en Þórður hafði ásamt félaga sínum orðið var við er tveir ungir menn báru gamlan mann inn í húsasundið. Er Þórður kom að sundinu hlupu mennirnir á brott en eftir lá gamli maðurinn liggjandi í blóði sínu. Tjáði maðurinn Þórði að hann hefði verið rændur veski með peningum í og síma. Gamli maðurinn reyndist vera Þorsteinn Smári Þorsteinsson. Var Þorsteinn fluttur á slysadeild Landspítala háskólasjúkrahúss og gekkst hann þar undir aðgerð vegna áverka er hann hlaut þessa nótt. Samkvæmt vottorði læknis hlaut Þorsteinn við atlöguna brot á augntóftargólfi, tvo skurði á vinstri kinn, mar á augnvef og yfirborðsáverka á brjóstkassa. Ekki gat Þorsteinn lýst árásarmönnunum að öðru leyti en að þeir hafi verið tveir. Þórður Jónsson gaf lögreglu hins vegar greinargóða lýsingu á mönnunum. Þá greindi Bjarni Rafn Ragnarsson, sem samferða var Þórði Jónssyni þessa nótt, frá því að mennirnir hafi verið tveir. Gat hann að auki gefið þá lýsingu á mönnunum að annar þeirra hafi verið í dökkum gallabuxum og með bláleita húfu á höfði. Þorsteinn Smári tjáði lögreglu að hann hefði þessa nótt verið á Mónakó við Laugaveg að spila í spilakössum. Eftir að myndskeið úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó höfðu verið skoðuð beindist grunur að tveim ungum mönnum sem sjá má á myndskeiðum á staðnum, en lýsing Þórðar Jónssonar kom heim og saman við mennina. Í framhaldi voru birtar myndir af mönnunum í fjölmiðlum. Ákærði gaf sig fram við lögreglu í kjölfarið. Hefur hann frá upphafi vega neitað sök í málinu.
Ákærði hefur borið kennsl á sig á myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó frá aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008. Þá hefur hann lýst því að með honum þetta kvöld hafi verið maður að nafni Tomas og sé hann einnig á mynd skeiðum úr eftirlitsmyndavélakerfinu. Framburður ákærða hefur við rannsókn og meðferð málsins að verið á reiki og óstöðugur varðandi mikilverð atriði málsins. Svo sem rakið var gaf hann í tvígang skýrslu vegna málsins hjá lögreglu. Að auki gaf hann skýrslu við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Það rýrir trúverðugleika framburðar ákærða á hvern hátt hann hefur lýst kynnum sínum af Tomas samferðamanni sínum þessa nótt. Ákærði skýrði frá því við aðalmeðferð málsins að Tomas væri kunningi ákærða og hefði hann búið með ákærða á þessum tíma að Hverfisgötu 55 í Reykjavík. Er það í samræmi við framburð Algimantas Pikelis er þá bjó að Hverfisgötu, en Algimantas kvaðst hafa útvegað Tomas húsnæði þar. Við fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst ákærði hins vegar ekki vita hvar Tomas héldi sig eða vita hvar hann ætti heima. Endurtók ákærði þennan framburð sinn við næstu skýrslutöku hjá lögreglu 17. október 2008 er hann kvaðst ekki vita hvar Tomas ætti heima. Eins og áður sagði gengur þetta gegn framburði ákærða fyrir dómi sem og vitnisins Algimantas Pikelis. Skipti þetta atriði miklu varðandi rannsókn málsins þar sem grunur beindist á þessum tíma að ákærða og Tomas sem árásarmönnunum. Síðar hefur komið í ljós, eftir því sem Algimantas Pikelis hefur greint frá, að Tomas fór af landi brott um miðja næstu viku eftir atburðinn.
Þá hefur framburður ákærða um fatnað þann er hann klæddist þessa nótt ekki verið á einn veg, en í ljósi þess að reynt var að bera kennsl á árásarmennina út frá klæðnaði þeirra lagði lögregla frá upphafi mikla áherslu á að ákærði gerði grein fyrir þeim fatnaði sem hann hefði klæðst þessa nótt. Í skýrslu sem lögregla hefur ritað vegna húsleitar að Hverfisgötu 55 þriðjudaginn 14. október 2008 er fært eftir ákærða að ákærði hafi fengið jakka þann og skó er hann hafi verið í umrædda nótt frá Tomas vini sínum og væri hann búinn að skila Tomas fatnaðinum. Húfunni hafi hann sennilega týnt í vinnunni. Hafi hann framvísað nýþvegnum gallabuxum úr ferðatösku og sagt að hann hafi klæðst þeim þessa nótt. Við skýrslugjöf hjá lögreglu 17. október 2008 bar ákærði á þann veg að Tomas hafi lánað ákærða húfuna, úlpuna og skóna. Ákærði ætti hins vegar buxurnar sem hann hafi klæðst. Við aðalmeðferð málsins bar ákærði að Tomas hafi átt allan þennan fatnað og buxurnar þar á meðal. Við skýrslugjöf hjá lögreglu bar Algimantas Pikelis að hann hafi oft verið búinn að sjá ákærða klæðast þessum fatnaði þegar þessir atburðir hafi gerst og talið að ákærði ætti fötin. Við skýrslugjöfina 17. október kvaðst ákærði ekki vita hvað orðið hafi um fötin. Fyrir dómi kvaðst hann telja að Tomas hafi tekið þau.
Þá hefur ákærði ávallt fullyrt að hann hafi kvatt Tomas inni á Mónakó og farið á undan honum heim. Samkvæmt myndskeiði úr eftirlitsmyndavélakerfi Mónakó, sem er á meðal rannsóknargagna málsins, sjást ákærði og nefndur Tomas saman inni á staðnum. Má ráða af myndskeiði að er starfsmenn staðarins loka staðnum fara ákærði og Tomas út af staðnum og eru nánast samferða.
Við mat á niðurstöðu liggur það fyrir að ákærði var ásamt félaga sínum Tomas inni á Mónakó aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008 þegar Þorsteinn Smári Þorsteinsson var þar inni að spila í spilakössum. Þorsteinn hefur lýst því að hann hafi unnið vinninga þessa nótt og hefur Ragnheiður Gordon, sem vann á staðnum, staðfest það. Af myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélakerfi staðarins sést Þorsteinn yfirgefa staðinn og ákærði og Tomas fara út af honum nánast í beinu framhaldi. Tveir ungir menn, sem samkvæmt greinargóðum framburði vitnis voru klæddir í samskonar fatnaði og ákærði og Tomas og svara að öðru leyti til lýsinga á þeim, réðust á Þorstein er hann var á gangi frá Mónakó þessa nótt áleiðis á næturstað sinn. Þegar þessi atriði eru virt og haft er í huga að starfsmaður Mónakó sá ákærða og Tomas fylgjast með Þorsteini og öðrum manni um nóttina og að framburður ákærða hefur verið reikull um tengsl við nefndan Tomas þessa nótt, þykir dóminum hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi verið annar þeirra tveggja er réðust á Þorstein í húsasundi til móts við hús nr. 49 í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 5. október 2008. Í félagi við þennan mann veitti ákærði Þorsteini þá áverka er í ákæru og læknisvottorði greinir. Læknir hefur staðfest að áverkar þessir hafi komið af fleiri en einu höggi, en slíkt sé umfang þeirra. Verður við það miðað að ákærði hafi í félagi við annan mann slegið Þorstein nokkrum sinnum í andlitið, svo sem ákæra miðar við.
Í ákæru er við það miðað að Þorsteinn hafi verið rændur farsíma og 100.000 krónum sem voru í seðlaveski. Í málinu nýtur ekki annars við um nefndan farsíma en þess er fram kemur í frumskýrslu að sennilega hafi verið tekinn farsími. Þá er fram komið um fjárhæð er í veskinu var að ungur drengur hafði þessa nótt talið peninga í veski Þorsteins inni á Mónakó. Ekki kvaðst Þorsteinn hafa talið peningana sjálfur. Reynt var að varpa ljósi á þá vinninga sem Þorsteinn vann þetta kvöld með því að starfsmaður Mónakó var leiddur fyrir dóminn. Staðfesti starfsmaðurinn að Þorsteinn hafi a.m.k. tvívegis unnið háar fjárhæðir. Hafi önnur þeirra numið 34.000 krónum og hin svipaðri upphæð. Í ljósi þess sem upplýst er um vinninga þetta kvöld telur dómurinn einungis liggja fyrir sönnun um að Þorsteinn hafi verið rændur 64.000 krónum um nóttina. Þar sem óljóst er um farsímann verður ekki talin fram komin fullnægjandi sönnun um að af honum hafi verið tekinn farsími. Með framangreindum athugasemdum verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í júlí 1986. Hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi svo kunnugt sé. Ákærði hefur með háttsemi sinni gerst sekur um rán og meiri háttar líkamsmeiðingu. Var brot ákærða einkar fólskulegt, en í félagi við annan mann réðst hann á gamlan mann í húsasundi og barði hann illilega. Á ákærði sér engar málsbætur. Er refsing hans, með hliðsjón af 1., 2., 3. og 7. tl. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 70. gr. laga nr. 19/1940, ákveðin fangelsi í tvö ár. Í ljósi eðlis verknaðarins verður refsingin að engu leyti skilorðsbundin. Frá refsingu dregst gæsluvarðhaldsvist ákærða, svo sem í dómsorði greinir.
Þorsteinn Smári Þorsteinsson hefur krafist þess að ákærði verði dæmdur til greiðslu fjártjóns að fjárhæð 100.000 krónur og miskabóta að fjárhæð 2.000.000 króna. Þá hefur verið krafist vaxta. Svo sem að framan var rakið liggur einungis fyrir sönnun um að ákærði og félagi hans hafi tekið 64.000 krónur af Þorsteini. Verður ákærði dæmdur til greiðslu þeirrar fjárhæðar. Að því er miska varðar hefur verið vísað til þeirra alvarlegu áverka er Þorsteinn hlaut þessa nótt en um hafi verið að ræða ólögmæta meingerð í garð Þorsteins. Er um skaðabótagrundvöll vísað til 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Með hliðsjón af þeim áverkum er Þorsteinn hlaut þessa nótt verður við það miðað að Þorsteinn hafi orðið fyrir miska af hálfu ákærða. Eru bætur fyrir miska ákveðnar samkvæmt dómvenju og þykja hæfilega ákveðnar 700.000 krónur. Fjárhæð skaðabóta ber vexti svo sem í dómsorði greinir.
Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti, málsvarnar laun skipaðs verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþola, ásamt virðisaukaskatti, svo sem í dómsorði greinir.
Af hálfu ákæruvaldsins var málið flutt af Kolbrúnu Benediktsdóttur fulltrúa ríkissaksóknara.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Gytis Kepalas, sæti fangelsi í 2 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 14. til 17. október 2008.
Ákærði greiði Þorsteini Smára Þorsteinssyni skaðabætur að fjárhæð 764.000 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 5. október 2008 til 3. mars 2009, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði 343.468 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Ómars Hafsteinssonar héraðsdómslögmanns, 209.160 krónur og þóknun réttargæslumanns brotaþola Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 97.608 krónur.
Símon Sigvaldason.