Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1060/2009:

D Ó M U R

máli nr. S-1060/2009:

Ákæruvaldið

(Anna Barbara Andradóttir fulltrúi)

gegn

Halldóri Magnússyni

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl)

Ávana- og fíkniefni. Vopnalagabrot.

Ákærða gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið, fyrir brot gegn fíkniefnalöggjöf og vopnalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var 9. nóvember sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. september 2009 á hendur Halldóri Magnússyni, Leirubakka 8, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot framin sunnudaginn 12. apríl 2009, að Bíldshöfða 16 í Reykjavík:

  1. Fíkniefnalagabrot, með því að hafa haft í vörslum sínum samtals 414,3 g af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur og 53,03 g af kannabisstönglum og hafa um nokkurt skeið fram til þessa dags ræktað greindar plöntur.

    Þetta er talið varða við 2. gr. sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

  2. Vopnalagabrot, með því að hafa haft í vörslum sínum lásboga, sem lögreglumenn fundu við leit.

    Þetta er talið varða við f- lið 2. mgr. 30. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.  Þá er þess krafist að gerð verði upptæk 414,3 g af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur og 53,03 g af kannabisstönglum sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.  Jafnframt er krafist upptöku á 13 hitalömpum, 3 loftræstikössum, 206 blómapottum og einu vatnskerfi til ræktunar, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. sömu laga. Ennfremur er þess krafist að gerður verði upptækur ofangreindur lásbogi sem hald var lagt á, sbr. 1. mgr. 37. gr. vopnlaga nr. 16/1998.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa. Verði dæmd fangelsisrefsing er þess krafist að hún verði bundin skilorði. Þá er krafist hæfilegrar verjandaþóknunar.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði gekkst ákærði undir að greiða sekt vegna fíkniefnalagabrots á árinu 2002. Eftir það hefur ákærða í tvígang verið gert að greiða sektir vegna umferðarlagabrota, í seinna skiptið með lögreglustjórasátt hinn 4. maí 2009. Brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir voru framin áður en ákærði gekkst undir framangreinda lögreglustjórasátt og verður refsing hans því ákveðin sem hegningarauki við hana, með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt þessu, og einnig með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 90 daga, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að þremur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

    Upptæk eru gerð 414,3 g af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur, 53,03 g af kannabisstönglum, 13 hitalampar, 3 loftræstikassar, 206 blómapottar, eitt vatnskerfi til ræktunar og lásbogi, með vísan til þeirra lagaákvæða sem vísað er til í ákæru.

    Ákærði greiði 90.907 krónur í útlagðan sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglustjóra og þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., 48.430 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

    Ásgeir Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Halldór Magnússon, sæti fangelsi í 90 daga, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að þremur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Upptæk eru gerð 414,3 g af kannabislaufum, 204 kannabisplöntur, 53,03 g af kannabisstönglum, 13 hitalampar, 3 loftræstikassar, 206 blómapottar, eitt vatnskerfi til ræktunar og lásbogi.

Ákærði greiði 139.337 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., 48.430 krónur.

Ásgeir Magnússon