Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-46/2008:

D Ó M U R

máli nr. S-46/2008:

Ákæruvaldið

(Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

Sigurþóri Sigurðssyni

Ár 2008, mánudaginn

21. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við

Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu

tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með

ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  3. þ.m. á hendur ákærða, Sigurþóri

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Skilorð. Sakarkostnaður. Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður dæmdur í skilorðbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Einnig var hann dæmdur til upptöku á fíkniefnum.

Ár 2008, mánudaginn 21. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 46/2008:  Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir) gegn Sigurþóri Sigurðssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  3. þ.m. á hendur ákærða, Sigurþóri Sigurðssyni, kt. [...], Akurhvarfi 8, Kópavogi, (Dvalarst. Mjölnisholt 4, Reykjavík, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 5. mars 2007 á dvalarstað sínum við Mjölnisholt 4 í Reykjavík haft í vörslum sínum 248,31 g af hassi og 0,78 g af kókaíni, sem ákærði framvísaði og lögreglumenn fundu við leit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002, sbr. augl. 232, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að gerð verði upptæk þau fíkniefni sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. nr. 233, 2001.“

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga.  Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Dæma ber ákærða til þess að sæta upptöku á fíkniefnum þeim sem hann var með samkvæmt tilfærðum lagaákvæðum.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hrl., 160.000 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti og 124.157 krónur í annan sakarkostnað.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Sigurþór Sigurðsson, sæti fangelsi í 45 daga.  Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði sæti upptöku á 248,31 g af hassi og 0,78 g af kókaíni.

Ákærði greiði verjanda sínum, Sveini Andra Sveinsson hæstaréttarlögmanni, 160.000 krónur í málsvarnarlaun og 124.157 krónur í annan sakarkostnað.

Pétur Guðgeirsson.