Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-350/2008:

S-350/2008:

Ákæruvaldið

(Björn Þorvaldsson settur saksóknari)

gegn

Ásgrímur Ragnars

Ár 2008,

mánudaginn 14. apríl, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm­húsinu við

S-350/2008: Ákæruvaldið gegn Ásgrími Ragnars, sem dómtekið var 9. apríl sem

játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Ríkislögreglustjórinn höfðaði málið með

ákæru útgefinni 22. febrúar 2008 á hendur Rannveigu Rafnsdóttur, fæddri

1962, Ásgeiri Heiðari Stefánssyni, fæddum 1982, Ásgrími Ragnars, kt. 000000-0000,

Hólabergi 4, Reykjavík og sautján öðrum einstaklingum, til refsingar fyrir brot

á almennum hegningar­­lögum nr. 19/1940. Þáttur ákærða Ásgríms var skilinn frá

aðalmálinu á þingfestingardegi 14. mars síðastliðinn og er nú dæmdur

sérstaklega.

Nefndri Rannveigu er í I. kafla ákærunnar gefið að sök brot á

248. gr., sbr. 138. almennra hegningar­­laga, sbr. 6. gr. laga nr. 54/2003, með

fjársvikum í opinberu starfi sem þjónustu­fulltrúi hjá Trygginga­stofnun

ríkisins, framin á tímabilinu frá 2. janúar 2002 til 9. júní 2006, með því að

hafa útbúið 781 tilhæfulausa kvittun fyrir útborgun og blekkt gjald­kera

Tryggingastofnunar til að greiða að tilefnislausu úr sjóðum hennar á grund­velli

þeirra, í jafn­­ mörgum greiðslum, sam­tals krónur 75.750.444, svo sem hér

segir: [...]

F.

Með því að hafa, á tímabilinu frá 16. maí 2002 til 7. júní

2006, útbúið 91 kvittun og látið greiða samtals krónur 9.076.632, í formi

endurgreiðslna vegna útlagðs kostnaðar, inn á bankareikninga ákærða Ásgríms nr.

1135-05-403077, 1157-05-400467 og 1157-05-400548. [...]

Nefndum Ásgeiri Heiðari er í B. lið V. kafla ákæru gefin að

sök hlutdeild í fjár­svikum Rannveigar samkvæmt 248. gr. almennra

hegningarlaga, sbr. 138. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga, sem lýst er í B-,

C-, D-F-, H-, I-, J-, K-, O-, P-, Q-, T- og V-liðum I. kafla, með því að hafa

fengið samþykki ákærða Ásgríms og tólf annarra einstaklinga fyrir því að

greiðslur, þar á meðal samkvæmt F-lið, sem sviknar voru út hjá Tryggingastofnun,

yrðu lagðar inn á reikninga ákærða og annarra og haft milli­­­göngu um að fá

hluta þeirra fjár­muna aftur í sín umráð og Rann­veigar.

Í VI. kafla ákærunnar er ákærða Ásgrími gefin að sök hylming samkvæmt

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Fangelsi. Hegningarauki. Hylming. Játningarmál.

Karlmaður dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir aðild að svokölluðu "Tryggingastofununarmáli".

Ár 2008, mánudaginn 14. apríl, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm húsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í máli nr. S-350/2008: Ákæruvaldið gegn Ásgrími Ragnars, sem dómtekið var 9. apríl sem játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Ríkislögreglustjórinn höfðaði málið með ákæru útgefinni 22. febrúar 2008 á hendur Rannveigu Rafnsdóttur, fæddri 1962, Ásgeiri Heiðari Stefánssyni, fæddum 1982, Ásgrími Ragnars, kt. 000000-0000, Hólabergi 4, Reykjavík og sautján öðrum einstaklingum, til refsingar fyrir brot á almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Þáttur ákærða Ásgríms var skilinn frá aðalmálinu á þingfestingardegi 14. mars síðastliðinn og er nú dæmdur sérstaklega.

Nefndri Rannveigu er í I. kafla ákærunnar gefið að sök brot á 248. gr., sbr. 138. almennra hegningarlaga, sbr. 6. gr. laga nr. 54/2003, með fjársvikum í opinberu starfi sem þjónustufulltrúi hjá Tryggingastofnun ríkisins, framin á tímabilinu frá 2. janúar 2002 til 9. júní 2006, með því að hafa útbúið 781 tilhæfulausa kvittun fyrir útborgun og blekkt gjaldkera Tryggingastofnunar til að greiða að tilefnislausu úr sjóðum hennar á grundvelli þeirra, í jafn mörgum greiðslum, samtals krónur 75.750.444, svo sem hér segir: [...] F.

Með því að hafa, á tímabilinu frá 16. maí 2002 til 7. júní 2006, útbúið 91 kvittun og látið greiða samtals krónur 9.076.632, í formi endurgreiðslna vegna útlagðs kostnaðar, inn á bankareikninga ákærða Ásgríms nr. 1135-05-403077, 1157-05-400467 og 1157-05-400548. [...] Nefndum Ásgeiri Heiðari er í B. lið V. kafla ákæru gefin að sök hlutdeild í fjár svikum Rannveigar samkvæmt 248. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 138. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga, sem lýst er í B-, C-, D-F-, H-, I-, J-, K-, O-, P-, Q-, T- og V-liðum I. kafla, með því að hafa fengið samþykki ákærða Ásgríms og tólf annarra einstaklinga fyrir því að greiðslur, þar á meðal samkvæmt F-lið, sem sviknar voru út hjá Tryggingastofnun, yrðu lagðar inn á reikninga ákærða og annarra og haft milligöngu um að fá hluta þeirra fjármuna aftur í sín umráð og Rannveigar.

Í VI. kafla ákærunnar er ákærða Ásgrími gefin að sök hylming samkvæmt 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa í 91 skipti, á tímabilinu frá 16. maí 2002 til 7. júní 2006, veitt viðtöku á bankareikning sinn, haldið og ráðstafað, samkvæmt fyrirmælum Ásgeirs Heiðars, samtals krónum 9.076.632, sem voru ávinningur af brotum Rannveigar sem lýst er í F-lið I. kafla ákæru, þrátt fyrir að ákærða hafi ekki getað dulist að ekki var um löglega fengið fé að ræða.

Við þingfestingu aðalmálsins játaði Rannveig sök að öllu leyti í samræmi við verknaðarlýsingu I. kafla ákæru. Sonur hennar, Ásgeir Heiðar, játaði við sama tæki færi sakarefni samkvæmt B. lið V. kafla ákæru, þó „með fyrirvara um réttmæti allra fjárhæða“. Ákærði Ásgrímur játti sök í sama þinghaldi, sagði háttsemi sinni rétt lýst í VI. kafla og viðurkenndi að hafa þannig gerst sekur um hylmingu.

Af framburði Rannveigar og Ásgeirs Heiðars hjá lögreglu er ljóst að mæðginin sammæltust um að Ásgeir Heiðar hefði milligöngu um að útvega bankareiknings númer annarra, í því skyni að Rannveig gæti látið leggja ætlaðar endurgreiðslur frá Tryggingastofnun inn á viðkomandi reikninga og að hún hafi þannig svikið út fé úr sjóðum stofnunarinnar. Þeim ber og saman um Ásgeir Heiðar hafi annast samskipti við ákærða í þessu skyni, en þeir eru vinir til margra ára. Þá ber Ásgeiri Heiðari og ákærða saman um að þannig hafi samtals 9.076.632 krónur ranglega runnið inn á reikninga ákærða, í 91 skipti á tímabilinu frá 16. maí 2002 til 7. júní 2006 og að af þeirri fjárhæð hafi ákærði fengið samtals um 1.320.795 krónur í þóknun sér til handa, svo sem ráða má af framburði Ásgeirs Heiðars hjá lögreglu 26. október 2007 og framburði ákærða 26. og 28. júní 2006 og 1. mars 2007. Þorri ávinningsins rann hins vegar aftur til Ásgeirs Heiðars, sem deildi fénu með móður sinni.

Með hliðsjón af framansögðu og sér í lagi afdráttarlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í VI. kafla ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða.

Ákvörðun viðurlaga.

Ákærði er þrítugur. Samkvæmt sakavottorði hlaut hann fimm refsidóma á árunum 1998-2002, þar af þrjá fyrir hegningarlagabrot, áður en hann var 24. október 2002 dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir þjófnaðarbrot og fleira. Hinn 30. desember 2002 var honum gerður sjö mánaða hegningarauki fyrir þjófnað og sama varð uppi á teningnum 7. mars 2003 þegar hegningarauki var ákveðinn þrír mánuðir. Þá var ákærði 2. apríl 2007 dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot og 8. október 2007 gekkst hann undir ríflega 40.000 króna sekt fyrir vörslur fíkniefna.

Í málinu liggur fyrir að á tímabilinu frá 16. maí til 19. desember 2002 runnu tæplega milljón krónur inn á reikning ákærða með framangreindum hætti og að frá 8. júní 2004 til 7. júní 2006 námu sams konar greiðslur ríflega 8 milljónum króna.

Ber að virða ofangreindar refsingar með tilliti til nefndra tímabila og dæma ákærða því til samræmis hegningarauka samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá ber að líta til þess að brot ákærða fólust í því að hylma yfir fjársvikum, að þau stóðu yfir langan tíma, vörðuðu verulega fjárhæð og að ákærði naut ávinnings af svikunum. Eru brot hans óumdeilanlega samkynja. Þó varð nær átján mánaða hlé á brotastarfseminni og þykir því rétt að virða hana sem tvær brotaeindir í skilningi 1. mgr. 77. gr. hegningarlaganna. Málsbætur ákærða felast í því að hann játaði aðild sína í upphafi lögreglurannsóknar og hefur lagt sitt af mörkum til að upplýsa málið. Þá hefur hann játað sök greiðlega fyrir dómi. Ber ákærða að njóta hvoru tveggja við ákvörðun refsingar.

Þegar framangreind atriði eru virt heildstætt þykir refsing hæfilega ákveðin átta mánaða fangelsi. Með hliðsjón af eðli og alvarleika brotanna annars vegar og sakaferli ákærða hins vegar er ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna, en henni til frádráttar skal koma tveggja daga gæsluvarðhald ákærða frá 27.-28. júní 2006, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.

Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála ber að dæma ákærða til að greiða þóknun Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, skipaðs verjanda við rannsókn og meðferð málsins. Með hliðsjón af eðli og umfangi þess og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og eftirfylgni í kjölfar dóms þykir umrædd þóknun hæfilega ákveðin 291.200 krónur, sem að meðtöldum virðisaukaskatti nemur 362.544 krónum.

Björn Þorvaldsson aðstoðarsaksóknari sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Ásgrímur Ragnars, sæti fangelsi átta mánuði, en til frádráttar refsingunni komi tveggja daga gæsluvarðhald frá 27.-28. júní 2006.

Ákærði greiði 362.544 króna þóknun Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlög manns.

Jónas Jóhannsson