Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-25/2008:

S-25/2008:

Ákæruvaldið

(Erna Sigríður Sigurðardóttir fulltrúi)

gegn

X

Ár 2008,

þriðjudaginn 29. janúar, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm­húsinu við

S-25/2008: Ákæruvaldið gegn X, sem dómtekið var samdægurs sem játningarmál

samkvæmt 125. gr. laga nr. 1971991 um meðferð opinberra mála.

Lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu

Fangelsi. Nytjastuldur. Skilorð. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.

Táningur sakfelldur fyrir hegningarlaga-, umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot.

X

Ár 2008, þriðjudaginn 29. janúar, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm húsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í málinu nr. S-25/2008: Ákæruvaldið gegn X, sem dómtekið var samdægurs sem játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 1971991 um meðferð opinberra mála.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði málið með ákæru útgefinni 18. desember 2007 á hendur ákærða, X, kt. 000000-0000, .... , Reykjavík, til refsingar fyrir eftirgreind brot framin í Reykjavík á árinu 2007:

  1. Fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 14. janúar, í félagi við tvo nafngreinda menn, tekið bifreiðina YK-328 í heimildarleysi og ákærði ekið henni, án þess að hafa öðlast ökurétt, svo sem nánar er lýst í ákæru.
  2. Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, mánudaginn 23. júlí, ekið bifreiðinni UM-458 undir áhrifum fíkniefna og án þess að vera hæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega sökum þess, svo sem nánar er lýst í ákæru.
  3. Fyrir fíkniefnalagbrot, með því að hafa, laugardaginn 8. september, haft í sínum vörslum eina MDMA töflu, svo sem nánar er lýst í ákæru.

    Er háttsemi samkvæmt 1. tölulið talin varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, háttsemi samkvæmt 2. tölulið við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga, með áorðnum breytingum og háttsemi samkvæmt 3. tölulið við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með áorðnum breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni með áorðnum breytingum.

    Auk refsingar er þess krafist að ákærði sæti upptöku á nefndri MDMA töflu samkvæmt 6. mgr. 5. gr. nefndra fíkniefnalaga og 2. mgr. 14. gr. téðrar reglugerðar, sem og sviptingu ökuréttar á grundvelli 101. og 102. gr. greindra umferðarlaga með áoðrnum breytingum.

    Með hliðsjón af skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist framburði hans hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er aðeins 17 ára og hefur samkvæmt sakavottorði ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Í ljósi þessa og hinnar skýlausu játningar þykir refsing hæfi lega ákveðin 45 daga fangelsi, sem rétt þykir að skilorðsbinda eins og nánar greinir í dómsorði.

    Að kröfu ákæruvaldsins og með skírskotun til fyrrnefndra lagaákvæða ber að gera MDMA töfluna upptæka. Þá skal ákærði sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá dóms uppsögu að telja og frestar áfrýjun dóms ekki verkun hans að því leyti.

    Loks ber samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinbera mála að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, krónur 150.940 Erna S. Sigurðardóttir fulltrúi lögreglustjóra sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.

DÓMSORÐ:

Ákærði, X, sæti fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði sæti upptöku á einni MDMA töflu.

Ákærði er sviptur ökurétti í 4 mánuði frá dómsuppsögu að telja og frestar áfrýjun ekki framkvæmd dóms að því leyti.

Ákærði greiði 150.940 krónur í sakarkostnað.

Jónas Jóhannsson