Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-22/2008:

Ákæruvaldið

(Erna Sigríður Sigurðardóttir fulltrúi)

gegn

Julierson

Alves Morgado

Gripdeild. Sektir. Skaðabætur. Útivist.

Ákærði var dæmdur til að greiða sekt vegna gripdeildar. Þá var honum gert að greiða skaðabætur.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 18. desember 2007 á hendur Julierson Alves Morgado, kt. […], Fífuseli 10, Reykjavík, með dvalarstað að Ásgarði 5, Reykjavík, fyrir gripdeild, með því að hafa miðvikudaginn 29. nóvember og mánudaginn 4. desember 2006, slegið eign sinni á samtals 30.000 kr. í reiðufé af uppgjöri veitingastaðarins Priksins, Bankastræti 12, Reykjavík, en uppgjörið hafði verið geymt á lager veitingastaðarins þaðan sem ákærði tók áðurnefnda fjárhæð í heimildarleysi, vitandi það að myndbandsupptaka væri í gangi.

Er þetta talið varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í málinu gerir Guðfinnur Sölvi Karlsson, kt. […], f.h. veitingahússins Priksins, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 130.000 kr. „ásamt hæstu lögleyfðu vöxtum og dráttarvöxtum lögum samkvæmt“.

Ákærða var birt ákæran á löglegan hátt ásamt fyrirkalli þar sem tekið var fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Hann hefur ekki sótt þing og eigi tilkynnt forföll. Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og eru brot ákærða rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærði er fæddur árið 1986. Hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 50.000 króna sekt í ríkissjóð sem greiða skal innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja en ella skal ákærði sæta fangelsi í 4 daga.

Eins og að framan greinir er þess krafist fyrir hönd veitingahússins Priksins að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 130.000 kr. Ákærði hefur verið sakfelldur fyrir að hafa slegið eign sinni á 30.000 kr. Samkvæmt því ber honum að greiða skaðabætur sem því nemur, ásamt dráttarvöxtum, eins og nánar greinir í dómsorði.

Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Julierson Alves Morgado, greiði 50.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 4 daga. Ákærði greiði veitingahúsinu Prikinu 30.000 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá uppkvaðningu dómsins til greiðsludags.

Sandra Baldvinsdóttir.