Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-8500/2008:

D Ó M U R

máli nr. E-8500/2008:

Gluggasmiðjan ehf.

(Eiríkur Gunnsteinsson hdl)

gegn

ANS ehf

(Guðmundur Birgir Ólafsson hrl)

Skuldamál.

Stefndi dæmdur til að greiða reikning vegna vörukaupa er grundvölluðust á tilboði frá stefnanda.

Dómkröfur

Dómkröfur stefnanda eru þær að stefnda verði gert að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 1.532.963 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma um grunn dráttarvaxta og vanefndaálags, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr.  38/2001 um vexti og verðtryggingu, af 1.532.963 krónum frá 22. mars 2008 til greiðsludags.

Þá er krafist vaxtavaxta samkvæmt 12. gr. s.l. er leggist á höfuðstól á 12 mánaða fresti, auk málskostnaðar samkvæmt mati dómsins.

Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda samkvæmt mati dómsins. Krafist er vaxta af málskostnaði samkvæmt III. kafla vaxtalaga frá 15. degi eftir uppkvaðningu dóms til greiðsludags.

Málsástæður stefnanda og lagarök

Kröfu sína byggir stefnandi á reikningi að fjárhæð 1.532.963 krónur, útgefnum 7. mars 2008 með gjalddaga 22. mars 2008.

Stefnandi kveðst sérhæfa sig í framleiðslu á gluggum og hurðum og ýmsu fleiru úr tré og áli. Auk þess flytji hann inn ýmsar vörur t.d., állista á sólstofuþök, þakglugga o.fl.  Ofangreind krafa sé vegna vöruúttektar stefnda hjá stefnanda í mars 2008 auk vinnu starfsmanna stefnanda í þágu stefnda, eins og nánar sé lýst í framlögðum reikningi.

Skuld þessi hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir og sé því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar.

Vísað sé til meginreglu kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga, en regla þessi fái m.a., lagastoð í 45., 47. og 54. gr. laga nr. 50/2000 og lögum nr. 42/2000. Um gjalddaga kröfunnar sé einkum vísað til meginreglu 49. gr. laga nr. 50/2000.

Málsástæður stefnda og lagarök

Stefndi bendir á að krafa stefnanda byggist á reikningi, dags. 7. mars 2008 vegna vöruúttektar sem ranglega sé talin stafa frá stefnda.  Stefndi hafi verið undirverktaki hjá verktakafyrirtækinu Sólfelli ehf. og hafi ekki pantað þær vörur sem stefnt sé fyrir.  Að ósk Sólfells ehf. hafi starfsmaður stefnda óskað eftir verðhugmyndum frá stefnanda vegna verks sem hafi verið í umsjá Sólfells ehf. og hafi Sólfell ehf. borið ábyrgð á efniskaupum.  Samningssamband hafi því aldrei stofnast á milli stefnanda og stefnda varðandi umrædd vörukaup.  Því beri að sýkna stefnda af öllum kröfum stefnanda.

Fyrir mistök starfsmanns stefnda hafi smáreikningur í fyrirtækjabankanum verið greiddur.  Sá reikningur hafi verið vegna verðbóta á ofangreindan reikning. Augljóst sé því að um mistök hafi verið að ræða.  Rétt sé að benda á að velta stefnda á mánuði á þessum tíma hafi verið um 90 milljónir og því hafi það komið fyrir að smáreikningar væru greidir, sem ekki áttu að greiðast, en auk þess hafi stefndi verið í viðskiptum við stefnanda vegna annarra verka sem hafi leitt til þessara mistaka.

Niðurstaða

Í gögnum málsins er að finna tölvupóst sem Jón Valgeir Björnsson, verkefnastjóri hjá stefnda, sendi til Gunnars Gissunarsonar hjá Gluggasmiðjunni ehf. hinn 13. desember 2007. Í þessum tölvupósti segir:  „Óskum eftir tilboði í eftirfarandi: Glerútbyggingu sýnda á meðfylgjandi mynd. Stigaveggur úr áli og gleri, sýnd á meðfylgjandi mynd. Hurð úr áli og gleri, sýnd á meðfylgjandi mynd.“ Ekki er tekið fram í tölvupósti þessum að þessi ósk sé sett fram fyrir hönd Sólfells ehf. eða annars aðila en stefnda.

Þá liggur frammi tilboð Gluggasmiðjunnar ehf. til Ans ehf., dags. 19. desember 2007, sem er svar stefnanda við ósk stefnda í framangreindum tölvupósti. Í tilboðinu kemur fram að byggingarstaður sé Borgarbraut 58-60.

Jón Valgeir bar fyrir dómi að Ans ehf. hefði verið undirverktaki hjá Sólfelli ehf. í Borgarnesi og hefði verið samvinna þar á milli. Hafi Sigurður í Sólfelli ehf. beðið sig um að afla tilboða, sem hann hafi gert, og sent áfram til Sigurðar. Hafi Sigurður alfarið séð um pöntunina.

Gunnar Guðjónsson framkvæmdastjóri stefnanda bar fyrir dómi, að upphaf umstefndra viðskipta hefði verið tölvupóstur frá stefnda. Beiðni stefnda hafi verið svarað með tilboði sem stílað var á Ans ehf. Ekki hafi verið um annan aðila að ræða sem komið hafi að þessum viðskiptum. Tilboðið hafi verið staðfest með því að varan var afhent og kvaðst Gunnar ekki vita betur en að umræddu verki væri lokið.

Framlagt tilboð er ekki undirritað af stefnda. Hins vegar liggur ekki annað fyrir í málinu en þessu tilboði stefnanda til stefnda hafi verið tekið og varan hafi verið afhent í samræmi við það, sbr. framlagður reikningur, enda er því ekki mótmælt af hálfu stefnda að varan hafi verið afhent. Reikningur samkvæmt tilboðinu var gefinn út 7. mars 2008. Liggur ekki fyrir að stefndi hafi mótmælt honum fyrr en með greinargerð í máli þessu. Þá er fram komið að stefndi greiddi reikning vegna verðbóta á umræddan reikning.    Engin gögn liggja fyrir í málinu er staðfesta hvernig sambandi Ans ehf. og Sólfells var háttað.

Samkvæmt framansögðu verður niðurstaða í málinu ekki byggð á öðru en að réttarsamband hafi stofnast milli stefnanda og stefnda um vörukaup samkvæmt framlögðu tilboði stefnanda. Ber stefnda því að greiða umstefndan reikning, en fjárhæð hans hefur ekki verið mótmælt af hálfu stefnda.

Verða kröfur stefnanda í málinu því teknar til greina.

Eftir þessari niðurstöðu ber stefnda að greiða stefnanda málskostnað sem ákveðst 300.000 krónur.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð

Stefndi, Ans ehf., greiði stefnanda, Gluggasmiðjunni ehf., 1.532.963 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 22. mars 2008 til greiðsludags og 300.000 krónur í málskostnað.

Kristjana Jónsdóttir