Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-3998/2008:

E-3998/2008:

Hjörtur J. Hjartar

(Sigmundur Hannesson hrl)

gegn

FS13 ehf

(Hróbjartur Jónatansson hrl)

Laun.

Stefndi sýknaður af launakröfu stefnanda, m.a. vegna þess að stefnandi var talinn hafa brotið trúnarskyldu gagnvart stefnda.

Mál þetta, sem var dómtekið 3. desember sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Hirti J. Hjartar, Fáfnisnesi 1, Reykjavík á hendur FS13 ehf., Skógarhlíð 22, Reykjavík, með stefnu birtri  28. maí 2008.

Dómkröfur stefnanda eru þær að hið stefnda einkahlutafélag verði dæmt til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð EUR 37.950 ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 af EUR 11.500 frá 1. janúar 2008 til 1. febrúar 2008, af EUR 26.450  frá 1. febrúar 2008 til 1. mars 2008, af EUR 37.950 frá 1. mars 2008 til greiðsludags. Þá er krafist vaxtavaxta skv. 12. gr. sl. er leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti í fyrsta sinn 1. janúar 2009 en síðan árlega þann dag. Þá er krafist málskostnaðar samkvæmt mati dómsins auk  virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.

Dómkröfur stefnda eru þær að stefndi verði alfarið sýknaður af öllum kröfum stefnanda og stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað auk álags skv. 2. mgr. 131 gr. eml.

Málavextir

Stefndi kveður upphafið vera það að Árni B. Sigurðsson, fyrirsvarsmaður stefnda, hafi snemma árs 2007 leitað til KPMG um öflun fjárfesta að tilteknu viðskiptatækifæri í Króatíu. Stefnandi var þá starfsmaður KPMG. Gerður var samningur milli Árna og KPMG um öflun fjárfesta að verkefninu. Liður í því var að selja Árna félagið FS 13 ehf. sem var í eigu KPMG, eignalaust að frátöldu hlutafé. Stefnandi kom sérstaklega að þeirri vinnu sem starfsmaður KPMG. Fjárfestirinn Róbert Melax gerði samning við FS 13 ehf. fyrir milligöngu KPMG og greiddi FS 13 ehf. háa fjárhæð í þóknun til KMPG vegna þess. Var FS 13 ehf. eftir það í jafnri eigu Árna og Róberts.

Hinn 16. júlí 2007 var stefnandi ráðinn framkvæmdastjóri stefnda og dótturfélags þess í Króatíu.  Hann hóf störf 1. ágúst 2007 og fékk 11.500 EUR í laun á mánuði.

Í bréfi stefnda til stefnanda, dags.11. janúar 2008, var stefnanda tilkynnt að hann hefði formlega verið leystur frá störfum sem framkvæmdastjóri stefnda. Fram kom í bréfinu að stefndi hefði haft upplýsingar um að stefnandi hefði þá þegar hafið störf fyrir félag í eigu Róberts Melax. Í bréfinu var þess krafist að stefnandi skilaði öllum bókhaldsgögnum félagsins og öðrum gögnum félagsins sem hann hafði undir höndum.  Þá var stefnanda einnig tilkynnt að stjórn stefnda teldi að hann hefði brotið af sér í starfi fyrir stefnda, m.a. með refsiverðum hætti, annars vegar með því að hafa komið því til leiðar í desember 2007, með fulltingi Ágústs Þórhallssonar, og með blekkingum, að hlutafélagaskrá RSK breytti skráningu á stjórn stefnda þannig að stefnandi ásamt Ágústi tóku sæti aðal- og varamanns. Hins vegar, að á grundvelli hinnar röngu skráningar, eftir að leiðrétting hefði átt sér stað, hefði hann tekið út peninga af bankareikningi dótturfélags stefnda í Króatíu og greitt þriðja manni án heimildar. Þá var stefnanda tilkynnt að kærur á hendur stefnanda yrðu lagðar fram hjá viðeigandi lögregluyfirvöldum.

Hinn 6. febrúar 2008 krafðist stefnandi þess að við hann yrði gerður starfslokasamningur.

Hinn 22. febrúar 2008 er stefnda sent innheimtubréf.

Hinn 13. mars 2008 svarar stefndi innheimtubréfi stefnanda og telur að engin greiðsluskylda hvíli á honum. Tekið var fram að hann hefði hlaupið úr starfi sínu fyrirvaralaust. Þá hefði stefnandi ekki afhent bókhaldsgögn og fleira sem búið var að krefja hann um.  Jafnframt var honum sent afrit af kæru til lögreglu.

Í apríl 2008 höfðaði stefndi mál á hendur stefnanda og fleiri mönnum vegna viðskipta sinna við þá. Það mál bíður í Héraðsdómi vegna opinbers máls á hendur stefnanda, en ákæra var gefinn út á hendur stefnanda hinn 28. október 2008.

Málsástæður og lagarök stefnanda

Krafa stefnanda er vegna ógreiddra/vangreiddra launa vegna desember 2007,  janúar og febrúar 2008, samtals EUR 34.500, auk lífeyrissjóðsgjalds EUR 3.450 eða samtals EUR 37.950 Nr.        Útgáfudagur       Gjalddagi           Fjárhæð 1.        01.12.2007        01.01.2008        11.500 EUR 2.        01.01.2008        01.02.2008         3.450 EUR 3.        01.01.2008        01.02.2008        11.500 EUR 4.         01.02.2008        01.03.2008         11.500 EUR Verði ekki á það fallist með stefnanda að hann eigi lögvarða kröfu um ógreidd/vangreidd laun skv. framansögðu, þ.e. á grundvelli skriflegs launasamnings aðila, er á því byggt af hálfu stefnanda að hann eigi rétt til skaðabóta úr hendi hins stefnda félags vegna vanefnda á launasamningi aðila, allt að stefnufjárhæð.

Skuld þessi hefur ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir og er því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar.

Um lagarök er vísað til meginreglu kröfuréttarins um efndir fjárskuldbindinga, en regla þessi fær m.a. lagastoð í VI. og VII. kafla laga nr. 50/2000. Um gjalddaga kröfunnar er einkum vísað til meginreglu 49. gr. sömu laga.  Jafnframt vísast til meginreglna skaðabótalaga eftir því sem við á.

Kröfur um dráttarvexti, þ.m.t. vaxtavexti, styður stefnandi við reglur III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 með síðari breytingum.  Krafan um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála.  Krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun er reist á lögum númer 50/1988. Stefnandi er ekki virðisaukaskattskyldur og ber honum því nauðsyn til að fá dóm fyrir skatti þessum úr hendi stefndu.  Varðandi varnarþing vísast til 33. gr. laga nr. 91/1991.

Málsástæður og lagarök stefnda

Málsástæður stefnda eru þær að stefnandi eigi ekki rétt til launa eða skaðabóta úr hendi stefnda þar sem stefnandi hafi brotið af sér gagnvart stefnda með afar alvarlegum hætti, gerst sekur um refsiverða háttsemi, brotið trúnaðarskyldur og fleira og því valdið félaginu verulegu fjártjóni. Þá hafi stefnandi hlaupist úr starfi sínu hjá félaginu, hirt með sér bókhald þess, síma, tölvur og fleira í desember 2007 og hafið störf hjá félagi í sinni eigu og Róberts Melax. Sé ljóst að stefnandi hafi fyrirgert rétti sínum til launa frá og með desembermánuði 2007. En ekki er ágreiningur um laun vegna vinnu sem féll til fyrir desember 2007.

Stefndi bendir á það ex tuto að horfa verði á það að stefnandi var ekki með venjulegan launþegasamning við stefnda heldur starfaði í gegnum erlent félag sitt og á hann því ekki rétt, hvað sem öðru líður, til sjálfkrafa 3ja mánaða launa ef svo ólíklega yrði talið að stefndi hefði vanefnt skyldur sínar gagnvart honum eða félagi hans.

Verði talið að stefnandi ætti fjárkröfu á hendur stefnda er ljóst að stefndi á skuldajöfnunarrétt á hendur stefnanda og ber því að sýkna stefnda af þeim ástæðum.

Stefndi telur málsókn stefnanda í bága við a- og c-lið 1. mgr. 131 gr. eml., honum og lögmanni hans megi vera ljóst að málsóknin sé bersýnilega tilefnislaus og að kröfur og málsástæður stefnanda séu rangar eða haldlausar. Af þeim sökum verði stefnanda gert að greiða stefnda álag á málskostnað skv. 2. mgr. 131.gr. Kröfum stefnanda er mótmælt sem röngum, ósönnum og án lagastoðar. Þá er þeim mótmælt sem tölulega röngum.

Stefndi tekur einnig fram að laun stefnanda hjá öðrum vinnuveitenda eigi að koma til frádráttar tildæmdri fjárhæð og er skorað á stefnanda að upplýsa um tekjur sínar á tímabilinu desember 2007 og, janúar og febrúar 2008.

Forsendur og niðurstaða

Eins og að framan greinir var gerður samningur milli málsaðila hinn 16. júlí 2007 og stefnandi ráðinn framkvæmdastjóri fyrir stefnda og dótturfélag þess í Króatíu. Fyrir hönd stefnda rita þeir Róbert Melax og Árni B. Sigurðsson undir samninginn. Ágreiningslaust er að stefnandi fékk greidd laun fyrir nóvember 2007 og krefur nú launa fyrir desember 2007 og janúar og febrúar 2008.

Það liggur fyrir í málinu að hinn 12. desember 2007 hafi Tilt ehf. verið stofnað. Stefnandi var í stjórn þess félags, ásamt því að vera framkvæmdastjóri og hafa prókúruumboð. Stofnandi þessa félags er Merla ehf., en í stjórn þess félags og með prókúru fyrir það er Róbert Melax. Þetta er á sama tíma og stefnandi er framkvæmdastjóri hjá stefnda. Augljóst er að það samrýmist ekki vinnuskyldum stefnanda hjá stefnda, að hann ræður sig sem framkvæmdastjóra hjá öðru félagi.

Þennan sama daga, eða 12. desember 2007, tilkynnir stefnandi ásamt öðrum manni til Hlutafélagaskrár, að þeir hafi verið kjörnir sem aðal- og varamaður í stjórn stefnda. Fram kemur í tilkynningunni að þetta hafi verið gert á löglegum hluthafafundi sem haldinn hafi verið í stefnda. Umboð fyrri stjórnarmanna, þeirra Árna Sigurðssonar og Róberts Melax, var einnig afturkallað og stefnanda veitt prókúra. Enginn fótur mun hafa verið fyrir þessari tilkynningu og vegna þessarar athafnar stefnanda hefur verið gefin út ákæra á hann og er hún nú til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ljóst er að stefnandi fór langt út fyrir skyldur sínar sem framkvæmdastjóri stefnda sem hann ber, samanber 44. gr. laga um einkafélög nr. 138/1994. Að mati dómsins var háttsemi stefnanda ósamrýmanleg trúnaðarskyldum, sem hann bar gagnvart vinnuveitanda sínum, þ.e. stefnda.

Eins og að framan greinir áttu atburðir þessir sér stað 12. desember 2007. Varðandi laun frá 1.–12. desember þá athugast að stefnandi hélt sjálfur um stjórnvölinn hjá stefnda og var því í lófa lagið að greiða sér laun fyrir þetta tímabil, hafi hann á annað borð litið svo á að hann ætti rétt til launa.

Í ljósi alls þess sem að framan greinir er það niðurstaða dómsins að stefnandi eigi ekki rétt til þeirra launa né skaðabóta, sem hann krefur um í málinu. Stefndi er því sýknaður af öllum kröfum stefnanda í máli þessu. Eftir þessari niðurstöðu ber stefnanda að greiða stefnda málskostnað, sem þykir, eins og hér stendur á, hæfilega ákveðinn 650.000 kr.

Af hálfu stefnanda flutti málið Sigmundur Hannesson hrl. Af hálfu stefnda flutti málið Hróbjartur Jónatansson hrl. Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp dóm þennan.

DÓMSORÐ

Stefndi,  FS 13 ehf., er sýknaður af kröfum stefnanda, Hjartar J. Hjartar. Stefnandi greiði stefnda 650.000 kr. í málskostnað.

Sigrún Guðmundsdóttir.

-------------------------------------------------------- Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjavíkur, 10. desember 2008.

Gjald 900 krónur.  Greitt.