Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. maí 2009.
Mál nr. E-10299/2008:
D
Ó M U R
nr. E-10299/2008:
Raflax
ehf.
gegn
ANS
ehf.
Mál
þetta var höfðað 5. nóvember 2008 og dómtekið 12. þ.m.
Stefnandi
er Raflax ehf., Garðsstöðum 64, Reykjavík.
Stefndi
er ANS ehf., Þverholti 11, Reykjavík.
Stefnandi
krefst þess að stefnda verði gert að greiða honum skuld að fjárhæð 1.363.050
krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 19.
desember 2007 til greiðsludags auk málskostnaðar.
Stefndi
krefst sýknu af kröfum stefnanda en til vara verulegrar lækkunar á kröfum
stefnanda og jafnframt skuldajafnaðar á kröfum stefnda gagnvart kröfum
stefnanda. Þá krefst stefndi
málskostnaðar úr hendi stefnanda.
Af
hálfu stefnanda er málsástæðum og helstu málsatvikum lýst þannig að hann reki
raflagnafyrirtæki. Krafa stefnanda
byggist á ógreiddum reikningi en stefndi hafi keypt vöru og þjónustu af
stefnanda. Stefnandi hafi sent stefnda
reikning á útgáfudegi umstefnds reiknings, 19. desember 2007 en reikningurinn,
að upphæð 1.363.050 krónur sé ógreiddur.
Stefnandi byggir á því að stefnda sé skylt að greiða fyrir þá vöru og
þjónustu sem stefnandi hafi sannanlega látið honum í té að beiðni hans.
Reikningurinn,
sem mál þetta snýst um, hljóðar um eftirfarandi: Lagt í bílakjallara, geymslur og sameign
niðri, v/breytinga á teikningum, teknar upp brunndælur, tengd varadæla o.fl.
Af
hálfu stefnda er málavöxtum og málsástæðum lýst sem hér segir:
Stefndi
tók að sér að ljúka við húsið að Tindaflöt 2-8 á Akranesi samkvæmt samkomulagi
við Garðbæ ehf. og Glitni banka. Verkið
Lykilorð
Útdráttur
Stefndi dæmdur til greiðslu skuldar.
Stefnandi krefst þess að stefnda verði gert að greiða honum skuld að fjárhæð 1.363.050 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 19. desember 2007 til greiðsludags auk málskostnaðar.
Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda en til vara verulegrar lækkunar á kröfum stefnanda og jafnframt skuldajafnaðar á kröfum stefnda gagnvart kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda.
Af hálfu stefnanda er málsástæðum og helstu málsatvikum lýst þannig að hann reki raflagnafyrirtæki. Krafa stefnanda byggist á ógreiddum reikningi en stefndi hafi keypt vöru og þjónustu af stefnanda. Stefnandi hafi sent stefnda reikning á útgáfudegi umstefnds reiknings, 19. desember 2007 en reikningurinn, að upphæð 1.363.050 krónur sé ógreiddur. Stefnandi byggir á því að stefnda sé skylt að greiða fyrir þá vöru og þjónustu sem stefnandi hafi sannanlega látið honum í té að beiðni hans.
Reikningurinn, sem mál þetta snýst um, hljóðar um eftirfarandi: Lagt í bíla kjallara, geymslur og sameign niðri, v/breytinga á teikningum, teknar upp brunndælur, tengd varadæla o.fl. Af hálfu stefnda er málavöxtum og málsástæðum lýst sem hér segir:
Stefndi tók að sér að ljúka við húsið að Tindaflöt 2-8 á Akranesi samkvæmt samkomulagi við Garðbæ ehf. og Glitni banka. Verkið hafði áður verið í höndum Rúmmeters ehf. sem var aðalverktaki á verkinu. Stefnandi hafði séð um raflagnir í húsinu sem undirverktaki Rúmmeters ehf. Er stefndi kom að verkinu var talað við stefnanda um að vinna við raflagnir en stefndi tók ekki að sér að greiða skuldir eða fyrir vinnu annarra sem höfðu áður unnið við verkið. Í september 2007 tilkynnti Glitnir banki Garðbæ ehf. að lánasamningur væri útrunninn og yrði ekki framlengdur. Stefndi stöðvaði þá allar framkvæmdir vegna verksins, þ.m.t. vinnu stefnanda. Tveir reikningar bárust frá stefnanda eftir þetta; sá fyrri að upphæð 388.685 krónur, dagsettur 26. september 2007 og greiddur 16. október s.á., og sá síðari að upphæð 852.000 krónur, dagsettur 10. október 2007 og greiddur 7. nóvember s.á. Í október og nóvember 2007 stóðu síðan yfir viðræður stefnda og Glitnis banka um verklokin og leitaði stefndi m.a. til stefnanda um tilboð í lok framkvæmda við rafmagn. Leiddu þær viðræður ekki til niðurstöðu og leysti Glitnir banki þá til sín verkefnið. Stefnanda var tilkynnt þessi niðurstaða og var því fullljóst að ekki yrði unnið frekar að verkinu. Ekki hafi verið beðið um vinnu samkvæmt umstefndum reikningi og því beri að sýkna stefnda af kröfum stefnanda.
Varakrafa um lækkun vegna skuldajafnaðar er reist á því að stefndi hafi greitt framangreinda tvo reikninga, samtals að upphæð 1.240.685 krónur, án þess að honum hafi borið að gera það.
Lögmaður stefnanda sendi stefnda innheimtubréf 20. maí 2008 vegna þeirrar kröfu sem um ræðir í málinu en ekki sést að því hafi verið svarað eða við því brugðist á nokkurn hátt.
Óumdeilt er að stefnandi innti af höndum þjónustu fyrir stefnda í tímavinnu við fasteignina Tindaflöt 2-8, Akranesi. Af hálfu stefnanda hafa verið lagðar fram tímaskýrslur sem sýna vinnu frá því um miðjan ágúst fram um mánaðamót október/nóvember. Frammi liggur tölvupóstur forsvarsmanns stefnda til eiganda stefnanda, dags. 23. nóvember 2007, en þar segir: „Nú hefur það gerst að Glitnir hefur eftir viðræður við ANS tekið þá ákvörðun að draga til baka fjármögnun verkefnisins. Því vil ég biðja þig um að halda að þér höndum með framhald vinnu á vegum ANS og gera ekkert fyrir okkur þar á meðan ekki er vissa um greiðslur. Það liggur auðvitað fyrir að með einum eða öðrum hætti þarf að ljúka við byggingu hússins og þú ert jú rafvirkjameistari þess svo það er ekki ólíklegt að til þín verði leitað með það.“
Engar sönnur eru um að stefndi hafi hafnað þjónustu stefnanda fyrr en með framangreindum tölvupósti en þá þegar hafði hann innt af höndum þau verk sem hann krefur greiðslu á. Af hálfu stefnda hefur ekki verið sýnt fram á að hinn umstefndi reikningur sé ósanngjarn eða of hár. Ekki verður fallist á varakröfu stefnda þegar af þeirri ástæðu að af hálfu hans hefur ekki verið sýnt fram á að hann hafi greitt umrædda reikninga og - jafnvel þótt svo hafi verið - að honum hafi ekki borið að gera það. Þá er ekki sýnt fram á að hinar ætluðu greiðslur reikninganna séu vegna þeirrar þjónustu sem krafist er greiðslu fyrir í málinu.
Samkvæmt þessu er niðurstaða málsins sú að fallist er að öllu leyti á kröfu stefnanda. Málskostnaður er ákveðinn 250.000 krónur.
Mál þetta dæmir Sigurður H. Stefánsson héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Stefndi, ANS ehf., greiði stefnanda, Raflax ehf., skuld að fjárhæð 1.363.050 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 19. desember 2007 til greiðsludags.
Stefndi greiði stefnanda 250.000 krónur í málskostnað.
Sigurður H. Stefánsson