Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. apríl 2007.
Mál nr. S-344/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Kristjánsson fulltrúi)
gegn
Óttari Gunnarssyni
(Grímur Sigurðarson hdl)
Lykilorð
Fangelsi. Skilorð. Vörslur. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur á 13,20 g af kókaíni.
Mál þetta, sem dómtekið var 20. apríl sl., er höfðað með ákæruskjali lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, frá 13. mars 2007 á hendur Óttari Gunnarssyni, kt. 000000-0000, Fjarðarstræti 2, Ísafirði, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 24. júní 2006 á veitingastaðnum Gauknum við Tryggvagötu 22 í Reykjavík haft í vörslum sínum 13,20 g af kókaíni, sem fundust við leit á ákærða.
Telur ákæruvaldið þessa háttsemi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001. Ákæruvaldið krefst þess að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreint fíkniefni sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega heimfært til refsiákvæða.
Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir greiðslu 37.500 króna sektar 11. mars 1997 vegna fíkniefnalagabrots. Þá gekkst hann undir greiðslu 32.500 króna sektar 4. apríl 1997 vegna fíkniefnalagabrots. Hann hlaut 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi, 30. júní 1997, fyrir brot gegn 1. mgr. 254. gr. og 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Honum var ekki gerð sérstök refsing með dómi sem hann hlaut 13. apríl 1999 fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.
Brot þessi hafa ekki áhrif á ákvörðun refsingar ákærða nú. Við ákvörðun refsingar ákærða er litið til magns kókaíns þess sem ákærði hafði í vörslum sínum og dómvenju í sambærilegum málum. Refsing ákærða er ákveðin 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum 2 árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði sæti upptöku á 13,20 g af kókaíni, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 greiði ákærði sakarkostnað málsins, 134.002 krónur, þar með talda málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gríms Sigurðarsonar héraðsdómslögmanns, 60.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Daði Kristjánsson fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Óttar Gunnarsson, sæti fangelsi í 30 daga, en frestað er fullnustu refsingar ákærða og falli hún niður að liðnum 2 árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði sæti upptöku á 13,20 g af kókaíni.
Ákærði greiði sakarkostnað málsins, 134.002 krónur, þar með talda málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Gríms Sigurðarsonar héraðsdómslögmanns, 60.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ingveldur Einarsdóttir